Morgunblaðið - 04.01.1969, Qupperneq 24
AUGLYSINGAR
SÍMI 22*4.80
LAUGARDAGUK 4. JANUAR 1969
RITSTJÓRN • PRENTSMIÐJA
AFGREIÐSLA'SKRIFSTOFA
SÍIVII 40*400
Stórbnuii ú flkureyri í nótt
Verksmiðjur Iðunnar í
björtu báli á miðnœtti
Tugmilljóna tjón — 95
til 100 manns hafa
misst atvinnu sína
Akureyri, 4. janúar.
STÓRBRUNI geisar hér í
bænum, þegar þetta er talað
klukkan 00:30. Klukkan
21:40 veittu menn athygli
eldi í Skó- og skinnaverk-
smiðjunni Iðunni á Glerár-
eyrum og stendur baráttan
við eldinn nú sem hæst. Verk
smiðjuálman, sem liggur frá
austri til vesturs, er alelda
og þak hennar að falla og
stendur baráttan um það,
hvort takast muni að bjarga
öðrum hlutum skógerðarinn-
ar og verksmiðjubyggingum
Gefjunar, en þessi hús eru
öll sambyggð. Inni í vélasal
Gef junar, sem stendur vestan
hinnar brennandi álmu, var
mikil reykjarsvæla fyrir
GuSjón Matthíasson
stundu en salurinn sjálfur er
þó ekki talinn í yfirvofandi
hættu. Ljóst er, að í þessum
bruna er þegar orðið gífur-
legt tjón, sem skiptir tugum
milljóna króna auk þess sem
95—100 manns hafa þegar
misst atvinnu sína. Um elds-
upptök er alls óvíst, en í bygg
ingunni, þar sem eldurinn
kom upp, er geymt mikið af
eldfimum efnum, svo sem
þynni og lakki.
Sennilega hefur eldurinn logað
nokkra stund áður en hans vtarð
vart, en verkstjórar í Ullarverk-
amiðju Gefjunar urðu varir við
reykjarþef og tilkynntu það sam
stundis slökkviliðinu. Eldhafið
varð fljótt geysimikið og slökkvi
starf er miklum erfiðleikum
bundið, þvi nú er hér norðan
hvassviðri með 10-11 stiga frosti
og hríðaréljum.
Allt lið slökkviliðsins er að starfi
með öll tiltæk slökkvitaeki en við
fyrrgreinda erfiðleika bætist, að
erfitt er að afla vatns til slökkvi
starfsins. Tvær slöngur voru
tengdar við dælur, sem settar
Framhald á hls. 23
Verksmiðjubyggingar SÍS á Gleráreyrum: Órin bendir á verksmiðjubyggingu Iðunnar, en um
miðnætti í nótt var efri hæð hennar ónýt. Á neðri hæðinni er skinnaverksmiðjan. Baráttan
stóð þá um að verja tengibyggingu milli brunnu álmunnar og annarra hluta verksmiðjusam-
stæðunnar. I norður-suður álmunni eru til húsa skógerð Iðunnar á efri hæð og vörugeymsl-
ur Gefjunar á neðri hæð. Á myndinni sjást einnig olíugeymirinn, sem minnzt er á í fréttinni
og inni í krikanum er kyndistöð allra verksmiðjuhúsanna. Aðrar byggingar á myndinni eru
skrifstofuhús og sölubúð Gefjunar ,vélasalir og nyrzt ullarþvottastöð.
Síldin í leiguflutn-
ingum erlendis —
FLUTNINGASKIPIÐ Síldin fór
frá Reykjavík $kömmu fyrir ára
mót með 3000 tonn af síldarlýsi
tii Bergen, en að þeirri ferð lok-
Nauðlending á Grœnlandsjökli í gœr:
Flugvélin var á leið
héðan til Grænlands
UM klukkan 5 síðdegis í gær
nauðlenti brezk tveggja hreyfla
flugvél á Grænlandsjökli, en í
henni er einn brezkur flugmað-
ur. Var samband haft við hann
eftir nauðlendinguna og virtist
Sjö ára drengur
lætur lífið í bílslysi
iJÖ ára drengur, Guðjón Matt-
líasson Eiríksgötu 25, lézt i
.andakotsspí tala í fyrrakvöld af
'öldum áverka, sem hann hlaut.
ir hann varð fyrir bíl fyrr um
laginn.
Slysið varð klukkan 18.45.
folkswagen bíl var ekið vestur
liríksgötu og á móts við hús
lúmer 17—19, að því er talið er,
arð Guðjön litli fyrir bílnum.
’alið er, að drengurinn hafi
laupið út á götuna í veg fyrir
lílinn.
ökumaður bílsins segist ekki
hafa orðið Guðjóns var fyrr en
drengurinn var kominn fyrir
faman bílinn, og telur ökumað-
urinn að drengurinn hafi komið
frá hægri en leikbróðir Guðjóns,
sem með honum var, segir það
gagnstæða.
Guðjón var þegar eftir slysið
fluttur i Slysavarðstofuna og
þaðan í Landakotsspítala, þar
sem hann lézt skömmu fyrir
klukkan tíu um kvöldið.
Rannsóknarlögreglan b i ð u r
vitni að slysinu að gefa sig fram
honum ekki hafa orðið meint af,
en ekki var fyllilega ljóst, hvort
flugvélin hafði orðið fyrir
skemmdum í lendingunni, en
hún var með venjulegan hjóla-
útbúnað.
Flugvélin, sem er af „Island-
ér“-gerð, fór héðan frá Reykja-
vik um kl. 10 í gærmorg-
un og ætlaði flugmaðurinn að
lenda á flugvellinum í Narsars-
suaq um kl. 4 síðdegis. Er flug-
maðurinn kom að Grænlands-
ströndum kormst hann brátt í
vandræði. Af einhverjum ástæð-
um tókst honum ekki að finna
ákvörðunarstaðinn — Narsars-
suaq — og kl. 5 varð hann að
nauðlenda á Grænlandsjökli.
Ekki vissi flugmaðurinn ná-
kvæmlega hvar hann var stadd-
ur, en taldi sig vera í nám-
unda við Narsarssuaq. Flug/élar
frá flugvellinum þar og fleiri
flugvöllum í Grænlandi hófu þeg
ar leit, og voru enn að leita seint
í gærkvöldi, en þá hafði leitin
ekíki borið árangur.
Frost var um 10 stig á þessum
slóðum í gærkvöldL Flugmaður-
inn hafði beðið byrjar í Reykja-
vík í marga daga, en hann var á
leið suður á Flórídaskaga.
inni mun skipið verða í leigu-
flutningum eriendis, að því er
Jónas Jónsson, frkvstj. Síldar-
og fiskmjölsverksmiðjunnar hf.,
tjáði Morgunblaðinu í gær. Á
skipinu er 18 manna áhöfn.
Jónas sagði, að frá Bergen færi
Síldin til Middlesborough í Eng-
landi og lestar þar jarðolíu til
Esbjerg í Danmörku. Er ráðgert,
að Síldin fari 4—5 slíkar ferðir.
Ekki er fullákveðið hvað þá tek-
ur við, en Jónas sagði, að mörg
verkefni ,væru fyrir hendi og að
hann vonaði, að skipið hefði nóg
að gera, þar til aftur yrðu verk-
efni fyrir það hér heima. Það
eru danskir aðilar, sem hafa tek-
ið að sér að leigja Síldina út
til flutninga, en sl. vetur hafði
skipið engin verkefni hér heima.
Jónas sagði, að enn væru hér
11—1200 tonn af framleiðslu
Síldar- og fiskmjölsverksmiðj-
unnar hf., en búið er að selja
þau til Noregs og er þá öll fram-
leiðsla verksmiðjunnar seld. Gat
Jónas þess, að fyrir hana hefði
fengizt hæsta verð, sem að und-
anförnu hefur veTÍð greitt fyrir
síldarlýsi erlendis.
Sjómenn og útgerdar-
menn ræðast vlð
— aðalkrafa sjómanna er frítt fæði
VIÐRÆÐUNEFNDIR sjómanna
og útvegsmanna koma saman til
fundar klukkan 10 í dag og er
það fyrsti viðræðufundur nefnd-
anna.
Jón Sigurðsson, formaður Sjó-
mamnafélaga Reykjavíkur, aagði
Morgunblaðinu í gærkvöldi, að
aðalkrafa sjómanna væri frítt
fæði um borð og eimmig fara þeir
fram á, að útvegsmenm mæli
með því, að bátafljómenn fái að
gang að lífeyrissjóði togaraajó-
manna og undirmannia á farskip
um.
Mörg sjómannafélög hafa feng
ið verkfallsheimild.
Islenzka krónan gjald-
geng í Fríhöfninnl —
ÍSLENDINGUM er nú heimilt að
verzla í Fríhöfninni á Keflavík-
urflugvelli fyrir þann íslenzka
gjaldeyri, sem þeir á hverjum
tíma mega taka með sér úr landi,
að því er Páll Ásgeir Tryggva-
son, deildarstjóri i utanríkisráðu-
neytinu, tjáði Morgunblaðinu í
gær.
Utanrikisráðuneytið gaf út 17.
desember sl. nýja meglugerð
varðandi Fríhöfnina og tók reglu
gerðin gildi um áramótin. í þess.
ari reglugerð eru tvær -nýjungar
um verzlunarhætti þar; sú, sem
að framan greinir og svo, að er-
lendum farþegum er nú heimilt
að verzla í Fríhöfninni fyrir
þann íslenzka gjaldeyri, sem þeir
geta sannað að þeir hafi keypt
í islenzikum bönkum.