Morgunblaðið - 04.01.1969, Side 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 4. JANÚAR 1969
Þorgerður Helena
Guðmundsdóttir
Því kóngborin sál gerir kimann
að sal,
að kastala garðshomið svalt.
Stephan G.
1 dag verður jarðsett frá Hafn-
arfjarðarkirkju Þorgerður Helena
Guðmundsdóttir, er andaðist á
Heilsuvemdarstöðinni í Reykja-
vík þ. 28. des. sl.
Þorgerður var fædd 28. sept.
1888 í Geirakoti í Fró’ðárhreppi.
Æskuheimili hennar var vel
Sitætt og hún nam þar ung og af
næmum hug öll viðfangsefni
heknasætunnar enda kom það sér
vel síðar. Um aðra skólagöngu
var naumast að ræða fyrir stúlku
á þeim árum. Nokkrar vikur í
bamalærdómi, fullt vald á heim-
ilishaldi, fæmi tii hverskonar
sauimaskapar og Gerða litla var
útskrifuð. Nú mátti veröldin
kwma og banka. Og það stóð
ekki á því.
Þar með hófst hinn langi starfs
ferill, sem stóð óslitinn alla daga
og ásamt mörgum nóttum í meira
en 60 ár. Margt hafði hún hlotið
í vöggugjöf, en fátt varð drýgra
en heilsuhreystin, sem ekki bil-
aði að ráði fyrr en síðustu vik-
umar. Þeir fáu dagar, sem fóru
í sex sængurlegur, voru ekki
undanþegnir störfum.
Þorgerður giftist 1912 Jens
Kristjánssyni þeim hjarthlýja
öðlingi, sem nú, eftir rúmlega 56
ára ólýsanlega sambúð, faer
þunga jarðlífsins að reyna. Megi
t Faðir okkar
Guðmundur Andrjesson,
frá Ferjubakka andaðist að
Hrafnistu 3. þ.m. #
Börain.
Maðurinn minn
Birgir Thoroddsen
skipstjóri,
andaðist í Landsspítalanum 2.
janúar.
Hrefna Thoroddsen.
Jónína Guðrún
Jónsdóttir
frá Smiðjuvík,
Grunnavíkurhreppi,
lézt að Elliheimilinu Grund
28. des. sl. Jarðarförin fer
fram frá Fossvogskirkju
þriðjudaginn 7. janúar kl. 3.
Sigríður Hjálmarsdóttir.
Eiginmaður minn
Tómas Óskar
Jóhannsson
Njarðargötu 47,
vérður jarðsunginn frá Foss-
vogskapellu mánudaginn 6.
jan. kl. 3 e.h.
Fyrir hönd ættingja og vina.
Katrín Kjartansdóttir.
samhugur vinahópsins vera hon-
um nokkur hlíf.
Af sex bömum Jens og Þor-
gerðar eru fjögur farin á undan
henni, Haukur, Sigurvin, Bragi
og Júlíana, en tvær dætur hlúa
nú að högum þeirra, Heiða og
Málfríður. Dótturbam sitt, Gúð-
rúnu, ólu þau hjón upp að miklu
leyti og er mér ekki grunlaust
um, að hún hafi bætt þeim og
bæti barnamissinn.
Hingað til Hafnarfjarðar ligg-
ur leið þeirra hjóna 1925. Þá er
það sem sverfur að fiátæktin,
hrakningar milli kjallara og háa-
lofta, vinnuleysi, allsleysi.
Meðan Gerða signir böm sín
og laugar, næstum ílátalaus, raul
ar hún bókmenntaperlur og hetju
Ijóð. Gesitanauðin finnst henni
sjálfsögð hirð. Heimilið verður
samasta'ður ljóðaunnenda, og
þegar þau ráða sjálf húsum, í
blessuðum gamla Dalbæ, hýsa
þau alla starfsemi kvæðamanna-
félagsins í ein tvö ár. Þar sýndi
sig kannski bezt, hve félagslyndi
og leiðsaga Gerðu var frábær. 1
áratugi stjórnaði hún skemmt-
unum og ferðalögum og brast
aldrei þekking á landinu, mann-
inum, krónunni eða bílnum. Hún
var gerð heiðursfélagi Kvæða-
mannafélags Hafnarfjarðar.
Framhald á hls. 17
Utför
Vigfúsar ísleifssonar
bónda Flókastöðum Fljótshlíð,
fer fram frá Fossvogskirkju
miðvikudaginn 8. jan. kl. 3 eh.
Vandamenn.
Þökkum af alhug öllum þeim
sem sýndu okkur samúð og
vinarhug við andlát og jarðar
för
Evlalíu Guðmundsdóttur
Bolungarvík.
Böm tengdabörn
og barnaböm.
Þökkum auðsýnda samúð og
vinarhug við andlát og jarðar-
för móður minnar og ömmu
Guðrúnar Jónsdóttur
Jónina Jónsdóttir,
María Bergmann
Flókagötu 64.
Sigurlaug Jakobína
Sigurvaldadóttir
Fædd 17. des. 1893.
Dáin 28. des. 1968.
SIGURLAUG fæddist þann 17.
desember 1893 að Gauksmýri í
V.-Húnavatnssýslu. — Foreldrar
hennar voru hjónin Ólöf Sigurð-
ardóttir og Sigurvaldi Þorsteins-
son, bæði úr Húnaþingi. Þau voru
fátæk af veraldarauði, eins og
algengast var hjá alþýðufólki
þeirra tíma. En litla stúlkan, sem
var þriðja barn þeirra hjóna,
hlaut engu að síður góðar vöggu-
gjafir, að vísu ekki keyptar fyrir
peninga, en þó öllu gulli verð-
mætari. Gjafir þessar voru glað-
lyndi og gott hjartalag, ásamt
trú á guð og hin góðu öfl þessa
heims og annars. Þetta var hinn
rauði þráður lífs hennar og þenn
an þráð tókst henni að varðveita
óslitinn og hnökralausan til sevi-
loka.
Þegar Sigurlaug var tveggja
ára, dó faðir hennar frá þremur
ungum dætrum, en eina höfðu
þau misst í frumbernsku.
Eins og að likum lætur, er
slíkt mikið áfall fyrir börn og
móður, en Ólöf átti einlæga trú-
arvissu, sem var hennar styrkur
í þessum raunum. Henni tókst
að halda hópnum saman og dæt-
urnar fengu áfram að njóta móð-
urkærleikans.
Síðar giftist Ólöf Birni J. Jósa-
fatssyni og héldu þa-u áfram bú-
skap á Gauksmýri. Börnunum
fjölgaði enn og urðu ellefu tals-
ins.
Sigurlaug var í æsku flugnæm
og lærði af móður sinni ógrynni
af ljóðum og þulum, auk annars,
er til gagns og ánægju mátti
verða. Á sviði söngs og ljóða var
Ólöf sá nægtabrunnur, sem
aldrei þraut. Hún hafði mikla og
fallega söngrödd, sem var upp-
spretta yndis og ánægju á heim-
ilinu, og börnin lærðu að syngja,
jafnvel áður en þau fengu vald
á málinu. Engan skyldi því
undra, þótt Sigurlaug hafi tekið
í arf nokkuð af þessum eiginleik-
-um móður sinnar, né heldur hitt,
að þeir hafi þróast með henni í
uppvextinum og orðið hennar
góðu lífsförunautar.
Sigurlaug dafnaði vel, þrosk-
aðist og varð íturvaxin, falleg
stúlka. Innan við tvítugt fór hún
á Blönduósskóla og var þar einn
vetur. Þótti þessi ágæti kvenna-
skóli veita ungum stúlkum góða
undirstöðumenntun, áður en lagt
var út í lífsförina.
Að námi loknu fluttist Sigur-
laug að Litlu-Borg til unnusta
síns, Guðmundar Péturssonar frá
Stóru-Borg. Á Litlu-Borg hafði
þá búið Kristófer gullsmiður,
bróðir Guðmundar, en var, þeg-
ar hér var komið, orðinn ekkju-
maður. Tóku þau Sigurlaug og
Guðmundur við búskap þar, en
Kristófer dvaldist áfram á heim-
ilinu og vann að gullsmíðum.
Sigurlaug og Guðmundur
gengu í hjónaband 9. des. 1917.
Þau bjuggu aðeins tvö ár á Litlu-
Borg, en fluttust þá á eignarjörð
Guðmundar, Refsteinsstaði í Víðj
dal. Áður en þau fluttust þangað.
Hugheilar þakkir fyrir auð-
sýnda samúð, og vináttu við
andlát og útför eiginkonu
minnar, móður, tengdamóður
og ömmu
Guðmundu ísleifsdóttur
Suðurlandsbraut 100.
Ragnar Veturliðason,
Ragna Ragnarsdóttir,
Jens Guðjónsson,
Ólafur Herbert,
tengdadætur og barnabörn.
höfðu þau eignast eina dóttur.
Nú hófst sinn eiginlegi anna-
tími ungu húsmóðurinnar. Eftir
sextán ára búskap á Refsteins-
stöðum voru börnin orðin níu.
En eins og ævinlega skiptast á
skin og skúrir í lífinu, og á þess-
um árum urðu veikindi húsmóð-
urinnar því valdandi, að hún
varð að sjá af tveimur dætra
sinna í fóstur til annarra. Þetta
mun ekki hafa verið sársauka-
laust í fyrstu, en Sigurlaugu var
gefið að sjá fyrst og fremst
bjartari hliðarnar á öllum hlut-
um. Dæturnar tvær voru á góð-
um heimilum, hjá frændum og
vinum, sem tóku ástfóstri við
þær, svo nú áttu þær í raun og
veru tvenna foreldra. Þetta varð
og til þess að sterkari tengsl
mynduðust við þessi heimili og
urðu að þeirri vináttu, sem aldrei
rofnaði.
Þröngt var oft á þessum ár-
um í litlu baðstofunni á Ref-
steinsstöðum, meðan öll bömin
voru heima, og tíðum einnig
vinnu- og kaupafólk. Þá mun og
oft hafia vantað ýmsa hluiti, sem
í dag væri ekki hægt án að vera.
En húsmóðurinni tókst að leysa
öll slík vandamál og gera gott
úr öllu. Og enn eins og áður
hljómaði söngur í lítilli baðstofu.
Þar var jafnvel hægt að slá upp
smá darusleik, ef svo bar undir.
Er gesti bar að garði var þeim
konunglega fagnað af húsráðend
um og allt það bezta á borð bor-
ið. Enda má með sanni segja, að
það hafi verið aðalsmerki Sigur-
laugar, að vilja vera veitandi,
hvort heldur var í mat eða öðru.
Og ef um einhvern þurfandi eða
lítilsmegnugan var að ræða, voru
gjafir ekki skornar við nögl.
Þrátt fyrir ýmislegt mótdrægt,
má með réttu segja, að á Ref-
steinsstöðum hafi Sigurlaug lif-
að sitt blómaskeið.
Eins og áður er að vikið,
bjuggu þau hjónin þar í sextán
ár. Þá seldu þau jörðina og flutt
ust upp úr því að Nefstöðum í
Fljótum, en þar bjuggu þau í
átta ár. Ekki er mér grunlaust,
að Sigurlaug hafi fyrstu árin
saknað sárt heimasveitarimnar og
vina sinna þar, en hún átti í fór-
um sínum þann hæfileika, að
geta aðlagast nýju umhverfi og
nýju fólki, enda eignaðist hún
innan tíðar marga góða vini í
Fljótunum, jafnframt því, sem
hún reyndi að halda sambandi
við sveitunga sína í heimabyggð.
Eftir þetta tímabil seldu þau
Nefstaði og keyptu ásamt þrem-
ur sonum sínum Hraun í Fljót-
um og bjuggu þar í sambýli með
þeim í nokkur ár. Nú voru öll
börnin löngu flogin úr hreiðrinu,
flest búin að mynda sín eigiin
heimili, og sum þeirra þá búsett í
Kópavogi. Þangað fluttu þau nú,
hjónin, og héldu þar lengst af
heimili út af fyrir sig, þar til
Guðmundur andaðist þann 14.
ágúst 1964.
Sigurlaugu var enn sam fyrr
ríkt í huga að geta haldið sitt
eigið heimili, verið gestgjafi og
tekið á móti sínum mörgu vin-
um og ættingjum. Hún fluttist
nú til Reykjavíkur, til að vera
meira miðsvæðis. Það var þægi-
legast fyrir alla, sem vildu hitta
hana. Öðru hvoru var hún hjá
bömum sínum tíma og tíma, en
Framhald á bls. 17
Hjartkæra systir mín, svanurinn minn,
sólgeislinn bjarti frá æskunnar dögum,
þín rósemid hjartan's, þín rósfagra kinn
og röddin, sem nærði mig himneskum lögum;
allt þetta sindrar um sál mína nú
er sé ég á eftir þeim gofigasta vini,
trú, von og kærleiikur byggja’ okkar brú
í Blíðheima andans í kvöldsólarekini.
Hjartkæra systir, faive sæl, ó, hve sæl
söngelska barninu fagnar vor móðir,
himnesk-u lögin og ljóðin inndæl
leika á hörpurnar englarnir góðir;
það var þín sígilda, síunga trú,
eorgir og andstreymi þó oss hér mæti,
barnsglaði andinn, faann á sér þar bú
um eilífð sem stendur og farizt ei gæti.
Hjartkæra systir, svo brosmild og blíð,
með börnin þín miörgu og vinanna fjölda,
þú fylgdiist í öllum með æskunnar tíð
í ástvinafaópnum, þó tæki að kvölda;
faðmur þinn, grátandi og brosandi böm
blessaði jatfnt, — það var inndælt að heyra,
Þú sagðir að frelsarinn væri þeim vöm,
þau vildu til ömmu að læra’ um það meira.
Hjartkæra systir, við kveðjum þig klökk,
þig kærleikans faðirinn umvefji blíði;
við kveðjum með ólstúð og aiúðarþökk
fyrir allt, sem þú varst oss í daganna stríði.
Ber kveðjur í faimininn, hreinaista sál,
við hlökkum svo til þess að ná þessum tindi
sem kveikt er á vizkunnar blosisandi bál,
þar bíður þín vissan um fögnuð og yndi.
Kristín M. J. Bjömson.
Hjartans þakkir færi ég öll-
um fjær og nær sem glöddu
mig á 70 ára afmælisdaginn
22. des. 1968. Börnum mínum,
tengdabömum og barnaböm-
um þakka ég sérstaklega
rausnarlegar veitingar og stór-
gjafir.
Gleðilegt nýtt ár!
Pálína Guðjónsdóttir
Þórsgötu 3.
Hugfaeilar þakkir færi ég öll-
um þeim mörgu, samstarfs-
mönnum mínum, vinum og
velunnurum, sem glöddu mig
á margvíslegan hátt, með
heillaóskum, gjöfum og vinar-
kve’ðjum í tilefni 70 ára af-
mælis mínu, þann 2'6. des. sl.
Blessun guðs sé með ykkur
öllum.
Valgarður Stefánsson
Akureyri.