Morgunblaðið - 04.01.1969, Blaðsíða 10
10
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 4. JANÚAR 1969
Aldrei hafa verið teknar jafn skýrir og góðar myndir af
tunglinu og í tunglferð Apollo 8 um jólin. En þótt þessar
ljósmyndir kunni að virðast stórfenglegar, eru þær þó ekk-
ert samanborið við það sem geimfararnir þrír sáu með eig-
in augum. Það er gufuhvolf jarðar sem hindrar gott útsýni
héðan út í geiminn. A tunglinu er ekkert slíkt og því verð-
ur allt skýrara blæfegurra og sitórkostlegra. Stjörnumar
eru stærri og blika ekki og ómælisvídd geimsins er eins og
dimmblátt djúp, hnettir og stjömur eins og eyjar. Eftir
nokkur ár, þegar byrjað verður að senda sjónvarpsmynd-
ir í litum til jarðar, getum við jarðbundnir vesalingamir
kannski gert okkur örlitla grein fyrir fegurðinni, en þang-
að til verðum við að láia okkur dreyma.
GIGURINN Laugrenus, séður frá Apollo 8.
ÞETTA eru tvær samsettar myndir, sem sýna jörðina
rísa upp á tungihimininn. Á efri myndinni er hún að
koma upp fyrir sjóndeildarhringinn, svo til neðst til
hægri. Á meðri myndinni er hún komin vel á loft. Yfir-
borð tunglsins er neðst á báðum myndunum.
STÓRI gígurinn heitir Goclenius og er um 40 mílur í
þvermál. Minni gígarnir þrír, sem eru þétt saman, heita:
Magelhaens A og Colombo A. Myndin er tekin úr suður-
átt.
ÞESSI mynd sýnir nærri fullt tungl. Mare Crisium, hring-
laga dökkleita svæðið nærri miðju, er nærri austurbrún
tunglsins frá jörðu séð, en myndin nær yfir stóran hluta,
sem aidrei sést frá jörðu.