Fréttablaðið - 26.10.2005, Side 47
MARKAÐURINN MIÐVIKUDAGUR 26. OKTÓBER 2005
F Y R S T O G S Í Ð A S T
Upplifðu Ísland
„ Í ljósmynd getur listrænt innsæi ljósmyndarans farið
á flug svo að útkoman verði næstum því eins og að im-
pressjónískt málverk. Þetta á við um margar ljósmynd-
irnar í þessari bók. Sumar hverjar eru næstum því
„Kjarvalskar“ og fanga ýmist tæra og hrikalega feg-
urð eða ævintýralega dulúð landsins okkar ómetanlega
dýmæta fjársjóð.“
Ómar Ragnarsson
er ný sérlega vegleg og fjölbreytt ljósmyndabók
sem lýsir upplifun þeirri sem fæst með því að ferðast
um Ísland
■ Bókin kemur jafnframt út á
ensku og frönsku
■ Frábær gjöf til viðskiptavina
í útlöndum
Vönduð bók fyrir þá sem vilja upplifa
náttúruna, dýralífið, borg og bæ, landið úr
lofti, ævintýrin og listaverk náttúrunnar
Minnum einnig á
fyrri bók Hauks
Land of Light
....tengir þig töfrum landsins!
Sími: 567 3350 ● Fax: 567 6671 ● e-mai l : snerra@snerra. is
Ný ljósmyndabók
Gunnar Páll Pálsson, formaður Verzlunarmannafélags Reykjavíkur,
segir að um átta hundruð félagsmenn séu nú á atvinnuleysisskrá hjá
félaginu. Alls eru það um 3,48 prósent allra félagsmanna en til saman-
burðar má geta þess að 1,8 prósenta atvinnuleysi mældist á höfuð-
borgarsvæðinu á þriðja ársfjórðungi samkvæmt upplýsingum frá
Hagstofu Íslands.
„Okkar tölur virðast liggja hærra en landsmeðaltal. Þau störf sem
hafa orðið til núna að undanförnu eru hefðbundin karlastörf úti á landi
en við erum samt að sjá um fjögurra prósenta fjölgun
félagsmanna,“ segir Gunnar Páll. Hann segir að þau
störf sem bjóðist séu oft rétt yfir atvinnuleysisbót-
um sem nemi um 90.000 krónum. „Þetta er oft erfitt
fyrir konur sem hafa börn, því það borgar sig ekki
fyrir þær að fara að vinna fyrr en þær ná ákveðnum
launum upp í kannski tvö hundruð þúsund krónur auk
þess sem mörg þau störf sem bjóðast eru á óhentugum
vinnutíma fyrir barnafólk.“ - hb
Fleiri atvinnulausir hjá VR
Um 3,45 prósent félagsmanna á atvinnuleysisskrá.
GUNNAR PÁLL PÁLSSON, FORMAÐUR VR Fleiri eru atvinnu-
lausir hjá VR en landsmeðaltal atvinnulausra mælist.
Og Vodafone hefur tekið í
notkun gagnahraðal en
hann þjappar gögnum
saman í GSM-kerfinu
þannig að hægt verði að
flytja stærri gögn á auknum
hraða með minni tilkostnaði
fyrir viðskiptavini. Gagna-
hraðallinn kemur sérstaklega
að góðum notum fyrir Mobile
Office viðskiptalausnir Og
Vodafone, svo sem fyrir Black-
Berry lófatölvuna, og Vodafone
Mobile Connect gagnaflutnings-
kortið.
Stefnt er að því að allt höfuðborg-
arsvæðið verði tengt hinum nýja
gagnahraðali fyrir lok ársins 2005. - hb
Og Vodafone eykur
flutningshraða
BLACKBERRY
LÓFATÖLVA Með
hinum nýja gagna-
hraðali verður
hægt að senda
gögn í og úr
BlackBerry
lófatölvunni
með minni
tilkostnaði
en áður.
22_23_Markadur lesið 25.10.2005 16:38 Page 3