Fréttablaðið - 26.10.2005, Qupperneq 43

Fréttablaðið - 26.10.2005, Qupperneq 43
MARKAÐURINN MIÐVIKUDAGUR 26. OKTÓBER 2005 H É Ð A N O G Þ A Ð A N 550 5000 AUGLÝSINGASÍMI Gísli Kjartansson, sparisjóðsstjóri Sparisjóðs Mýrasýslu, hefur verið kjörinn formaður Sam- bands íslenskra sparisjóða (SÍSP) og tekur við starfinu af Jóni Kr. Sólnes. Gísli segir að starfið felist í því að leiða samstarf sparisjóðanna en sambandið er hagsmunagæslu- aðili þeirra. Eitt brýnasta verkefni SÍSP er að finna varanlega lausn á íbúðalánamálum. „Við leggjum mikið upp úr því að það verði tryggt að bæði bank- ar og sparisjóðir sitji við sama borð við að afla sér fjármagns á ásættanlegum kjörum,“ segir Gísli. Hann segir enn fremur að íbúðalánasjóður sé ekki heilög kýr í þeirra augum en mikilvægt sé að til staðar sé heildsölubanki sem geti fjármagnað spari- sjóðina. Gísli telur að það sé ríkjandi skoðun innan spari- sjóðanna að þeir þurfi að sameinast og búa til sterk- ari einingar. „Þetta er ekkert sem sambandið ætlar að koma fram með boðvaldi. Hver og einn spari- sjóður gerir þetta með sínum hætti. Við hjá Spari- sjóði Mýrasýslu höfum keypt tvo sparisjóði með samkomulagi við seljendur og höfum áhuga að halda því áfram.“ Aðrir í stjórn SÍSP eru Angantýr Jónasson, Carl H. Erlingsson, Geirmundur Kristinsson, Magnús Pálsson, Ólafur Haraldsson, Ólafur Elísson, Páll Sigurðsson og Ragnar Z. Guðjónsson. Á aðalfundinum voru samþykktar miklar breyt- ingar á lögum samtakanna. Áður fyrr hafði hver sparisjóður haft eitt atkvæði innan SÍSP, óháð stærð sjóðsins, og olli það nokkurri óánægju innan sparisjóðahópsins, einkum þeirra stærstu. Til dæm- is átti SPRON ekki stjórnarmann. „Þetta var ein ástæða þess sem olli erfiðleikum í samstarfi spari- sjóða,“ segir Gísli. Fyrirkomulaginu hefur verið breytt: Annars vegar er hverjum sparisjóði gefinn ákveðinn fjöldi atkvæða og hins vegar er miðað við heildareignir áramótin á undan viðkomandi fundi. „Við lítum á að samstarfið sé að verða betra.“ - eþa Tryggja þarf sama aðgang að íbúðalánum Sambúð sparisjóðanna betri eftir lagabreytingar. GÍSLI KJARTANSSON „Við leggjum mikið upp úr því að það verði tryggt að bæði bankar og sparisjóðir sitji við sama borð við að afla sér fjármagns á ásættanlegum kjörum.“ Færeyska ríkið hefur ákveðið að selja fyrirtækið Faroe Seafood. Frestur til að skila inn kauptilboðum í félagið er til 21. nóvember næstkomandi. Faroe Seafood er stærsta framleiðslu- og sölufyrir- tæki sjávarafurða í Færeyjum og varð til úr samruna Føroyoa Fiskasøla og United Seafood. Félagið er fyrst og fremst sölusamtök í sjávarútvegi en ræður ekki yfir aflaheimildum. Félagið selur og kaupir ufsa, þorsk, ýsu og skelfisk. Áætluð velta félagsins á árinu 2005 er um 7,2 milljarðar króna. Það er fyrirtækjasvið KPMG í Danmörku sem annast sölu fyrirtækisins. - hb Einkavæða færeyskt sjávarútvegsfyrirtæki FRÁ FÆREYJUM Færeyingar einkavæða nú sölusamtök í sjávarútvegi. 18-19 Markadur lesið 25.10.2005 15:56 Page 3
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.