Fréttablaðið - 26.10.2005, Side 36

Fréttablaðið - 26.10.2005, Side 36
Biskupar réðu á sinni tíð yfir miklum eignum kirkjunnar. Það á því ágætlega við að höfuð- stöðvar fjárfestingarfélaganna Fons og Fengs séu á Suðurgötunni þar sem áður var biskupsskrifstofa. Æðsti presturinn þar er Pálmi Haralds- son og með honum starfar aðeins einn meðhjálpari. „Við erum lággjaldafjárfestingarfélag,“ segir Pálmi og brosir. Sjálfur er hann ekki maður mik- illa umbúða. Vill hafa skýrar og ein- faldar línur í fjárfestingarverkefn- um og er að sögn þeirra sem til þekkja ótrúlega fljótur að greina kjarnann frá hisminu og sjá tæki- færi til hagræðingar í fyrirtækjum sem hann hefur augastað á. Sterl- ing er nýjasta dæmið um slíkt fyrirtæki, en sala þess til FL Group skilar Fons sem er í eigu Pálma og Jóhannesar Kristinssonar góðum hagnaði. Pálmi vill ekki gefa upp hversu mikill hann er. Sterling var keypt á ríflega fjóra milljarða. „Kaupverð Maersk er trúnaðarmál að þeirra kröfu og ég ætla mér ekki að rjúfa þann trúnað. Ég get þó sagt að þær tölur um tíu eða ellefu milljarða hagnað af sölunni sem verið hafa nefndar eru fjarri lagi.“ EKKI EINS OG MAÐUR LÆSI BARA BÖRSEN Þeir félagar eiga tvö félög. Feng skilgreina þeir sem fjárfestingarfélag sem tekur litla áhættu. Öðru máli gegnir um Fons. Þar hefur oftar en ekki verið ráðist í verkefni þar sem mikillar tiltektar er þörf og margir haft efa- semdir um fjárfestinguna. „Gott dæmi um þetta er Icelandkeðjan. Það hafði enginn trú á Iceland að mér og Jóni Ásgeiri undanskild- um. Í dag, ári síðar, erum við búin að auka verðmæti þessarar fjárfestingar úr 23 millj- ónum punda, 2,5 milljörðum króna, í 100 til 140 milljónir punda.“ Það gerir tíu til fimmt- án milljarðar. „Aðalatriði var að það var allt í molum í fyrirtækinu, svo fer maður inn eins og hvirfilvindur með ákveðið viðskipta- módel.“ Pálmi segir að auk þess sé Iceland eitt fárra breskra félaga sem engar lífeyris- skuldbindingar hvíli á. Pálmi segir að sama hafi gilt um Sterling. „Ég ætlaði mér alltaf að ná í Maersk þegar ég keypti Sterling. Þetta átti sér langan aðdrag- anda. Það var ekki eins og maður læsi bara Börsen einn daginn og ákveddi að kaupa Sterling. Ég er að vinna í verkefnum núna sem gætu orðið stórfrétt árið 2006. Þegar ég seldi í FL Group fyrir tæpu einu og hálfu ári síðan, þá var ég búinn að sjá önnur tækifæri úti á markaðnum.“ Viðskiptin hafa gengið vel, en Pálmi verð- ur sposkur þegar hann er spurður um eigið fé þeirra félaga. Hann vill ekki gefa það upp. „Ég get þó sagt að fjárfestingargeta félag- anna Fengs og Fons er á bilinu þrjátíu til fimmtíu milljarðar eftir eðli verkefna. Þá geta menn séð styrk þessara félaga.“ ICELAND EXPRESS Í GÓÐUM MÁLUM Pálmi og Jóhannes keyptu Iceland Express sem Pálmi segir dæmigert umbreytingar- verkefni. „Félagið var gjaldþrota þegar við tókum við því og hefði ekki getað staðið við MIÐVIKUDAGUR 26. OKTÓBER 2005 MARKAÐURINN12 Ú T T E K T Fjárfestirinn með járnka Pálmi Haraldsson hefur ásamt Jóhannesi Kristinssyni félaga sínum hagnast vel á undanförnum árum í fjár Þeir félagar sjá góð viðskiptatækifæri, þar sem aðrir sjá tóm vandræði. Hafliði Helgason hitti Pálma Harald anna á Sterling til FL Group. Mikill hagnaður varð af sölunni, en Pálmi segir nóg eftir handa kaupendum og Aðalatriði var að það var allt í molum í fyrir- tækinu, svo fer maður inn eins og hvirfilvindur með ákveðið viðskiptamódel. 12_13_Markadur lesið 25.10.2005 15:16 Page 2

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.