Fréttablaðið - 26.10.2005, Side 34

Fréttablaðið - 26.10.2005, Side 34
MIÐVIKUDAGUR 26. OKTÓBER 2005 MARKAÐURINN10 F R É T T A S K Ý R I N G Eggert Þór Aðalsteinsson skrifar FL Group er formlega orðið að fjárfestingar- félagi eftir að tilkynnt var um breytingu á skipulagi félagsins úr blandaðri starfsemi í fjárfestingarfélag sem ýmist á önnur fyrir- tæki að fullu eða að hluta. Þegar tilkynnt var um kaupin á Sterling var jafnframt blásið til mikillar sóknar. BANKARNIR KAUPA FYRIR ÁTTA MILLJARÐA Félagið ætlar að selja nýtt hlutafé fyrir 44 milljarða og þar af hafa 28 milljarðar verið seldir til stærstu hluthafa FL Group: Odda- flugs, Kötlu Holding og Baugs Group. Þessu til viðbótar kaupa Kaupþing og Landsbankinn nýtt hlutafé fyrir átta milljarða og lykilstarfs- menn fyrir þrjá milljarða. Alls hafa því verið gefin vilyrði fyrir kaupum á 39 milljörðum. Kaupþing og Landsbankinn sölutryggja svo fimm milljarða króna útboð sem er fyrir fagfjárfesta. Lágmarkskaup í útboðinu eru miðuð við fimm milljarða og því munu litlu hluthafarnir í FL Group ekki geta tryggt sér hlut í fyrirhuguðu hlutafjárútboði nema þeir reiði fram fimm milljónir króna sem eru lág- markskaup. Fjárhagslegur styrkur fé- lagsins verður mikill að loknu útboði og getur það án teljandi erfiðleika fjárfest fyrir 40-50 milljarða króna. Aðeins við- skiptabankarnir þrír og Straumur-Burðarás verða með meira eigið fé og eiginfjárhlut- fall félagsins verður um sextíu prósent. Heildareignir munu slaga hátt í 120 milljarða króna og ársveltan fara upp í tæpa hundrað milljarða. Markaðs- virði verður það sjötta hæsta í Kauphöllinni. FORSTJÓRINN SANNFÆRÐUR Það var um miðjan september sem fréttist af áhuga FL Group á Sterling. Markmiðið með kaupunum er að styrkja stöðu félagsins á evr- ópskum lággjaldaflugfélagamarkaði sem stækkar hratt og er arðbærari en nokkur önn- ur fyrirtæki á flugmarkaði. Staða FL Group er því orðin mjög sterk en félagið heldur utan um þrettán prósenta hlut í easyJet. Hannes Smárason, forstjóri FL Group, er sannfærður um að fyrirtækið hafi gert góð kaup á norræna lággjaldaflugfélaginu Sterl- ing fyrir tæpa fimmtán milljarða króna. Hann fullyrðir að verðmæti Sterling geti fimmfald- ast á tólf mánuðum miðað við þær forsendur sem kaupin byggjast á og gerir ráð fyrir að Sterling skili hagnaði á næsta ári eftir mikinn taprekstur undanfarin ár. Kaupverðið á Sterling er um 1.500 milljón- ir danskra króna eða tæpir fimmtán milljarð- ar króna og miðast við að rekstrarhagnaður fyrir afskriftir, fjármagnsliði og skatta – svo- kallað EBITDA-hlutfall – verði 3.500 milljónir króna árið 2006. Auk þess er skilyrði kaup- enda að Sterling verði afhent með þremur milljörðum í handbæru fé. FL Group tekur við rekstrinum um næstu áramót. Markaðsvirði Sterling, sem er fjórða stærsta lággjaldaflugfélag Evrópu, er því fimmtán milljarðar sem er einn tíundi af markaðsvirði easyJet, næststærsta lággjaldaflugfélagsins. Stærsta félagið Ryanair er metið á 360 milljarða króna. Forsvarsmenn FL Group benda á að með því að skoða áætlaðar kennitölur nokkurra lággjaldaflugfélaga fyrir árið 2006 séu líkur á því að félagið nái góðri arðsemi út úr fjár- festingunni. TEKIÐ Á KOSTNAÐI Danska pressan telur að hagnaður Fons eign- arhaldsfélags á Sterling-sölunni hafi verið ellefu milljarðar króna. Fons borgaði um fjóra milljarða króna fyrir Sterling í mars síðastliðnum en kaupverð á Maersk Air er á huldu. Börsen sagði frá því á sínum tíma að A.P. Møller-Mærsk hefði losað sig við vand- ræðabarnið Maersk Air með meðgjöf til Fons. Bæði Hannes Smárason og Pálmi Har- aldsson, annar af eigendum Fons, hafa vísað því á bug að hagnaður Fons hafi verið ellefu milljarðar og sá síðarnefndi full- yrðir að hann hafi greitt með Ma- ersk Air á sínum tíma en vill ekki gefa upp kaupverðið. Eftir mikla tiltekt í rekstri Sterl- ing-samstæðunnar er ljóst að félag- ið er allt annað en það var þegar Fons festi kaup á flugfélögunum og sameinaði þau. Íslendingarnir hafa verið duglegir að taka til í kostnaði, fækkað starfsmönnum um fjögur hundruð og náð ýmiss konar hag- ræðingu annars staðar frá. Hár kostnaður hjá Maersk Air kom til tals á kynningarfundi hjá FL Group. Fullyrt er að danska flugfélagið hafi litið svo á hlutina að það hafi verið fyrir neðan virðingu þess að sækjast eftir afslátti á flugvallarþjónustu hjá birgjum á Kastrup. Þá hefur Sterling ekki farið varhluta af mikilli farþegaaukningu eins og önnur stór evrópsk lággjaldaflugfélög sem hefur legið á bilinu 15 til 25 prósent á milli ára. Veltuaukn- ingin er jafnvel enn meiri þar sem tekjur á hvert sæti fara hækkandi. Stóru lággjalda- flugfélögin vaxa meira en þau smærri og flestir sjá fram á mikla samþjöppun í geiran- um á næstu árum. Kaupendur gera miklar kröfur til stjórn- enda Sterling um rekstrarbata á næstu miss- erum og er kaupverðið háð afkomu ársins 2006. Pálmi Haraldsson verður áfram stjórnarformaður og Almar Örn áfram for- stjóri. Kaupverðið getur lækkað eða hækkað um nærri fimm milljarða. Hluti þess, um fjórir milljarðar króna, er í formi hlutabréfa í FL Group. NÆSTU SKREF Um leið og undirskriftir þornuðu á kaup- samningnum fór gengi easyJet að hækka á nýjan leik vegna væntinga um frekari fjár- festingu FL Group í breska flugfélaginu. Viðmælendur Markaðarins eru sammála um að hið nýja fjárfestingarfélag hafi mikinn áhuga á frekari landvinningum á evrópska lággjaldamarkaðnum í gegnum easyJet – annaðhvort eitt og sér eða í samfloti með öðrum fjárfestum, til dæmis Baugi. Verð- mæti easyJet þykir lágt að mati stærstu hluthafa félagsins. Stjórnarformaður easyJet hefur bent á að hann muni ekki ræða um sölu á hlut sínum fyrr en verðið nái um 325 pensum á hlut og samkvæmt heimildum Markaðarins eru eig- endur FL Group tilbúnir til að teygja sig upp fyrir þá tölu. Setja sig í startholurnar FL Group þrefaldar eigið fé á næstunni og veðjar á ört vaxandi lággjaldaflugfélagamarkað með kaupum á Sterling-samstæðunni. Fjárfestingargetan eykst jafnframt töluvert. Það er ekki síður mikið í húfi fyrir seljendur Sterling en kaupendur að dæmið gangi upp og hafa aðilar beggja vegna borðs tröllatrú á fyrirtækinu. KAUPIN KYNNT FL Group kaupir Sterling fyrir tæpa fimmtán milljarða króna og getur verðið lækkað verulega náist ekki markmið um 3,5 milljarða rekstrarhagnað Sterling á næsta ári. Frá vinstri eru Jón Sigurðsson, framkvæmdastjóri hjá FL Group, Hannes Smárason forstjóri og Skarphéðinn Berg Steinarsson, stjórnarformaður félagsins. Fr ét ta bl að ið /E .Ó L S A M A N B U R Ð U R N O K K U R R A L Á G G J A L D A F L U G F É L A G A M I Ð A Ð V I Ð V Æ N T A N L E G A N Á R A N G U R Á Á R I N U 2 0 0 6 Markaðsvirði í milljörðum EV/EBITDA EV/Velta Southwest 733 15,7x 2,4x Ryanair 362 12,1x 3,8x GOL 174 8,2x 2,5x easyJet 120 8,9x 1,7x AirAsia 56 16,1x 5,3x Sterling 15 3,8x 0,3x EV/EBITDA = Markaðsverð + skuldir/Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir, fjármagnsliði og skatta Handbært fé að upphæð þrír milljarðar króna er dregið frá EV hjá Sterling) Heimild: FL Group 10_11_Markadur 10 lesið 25.10.2005 15:29 Page 2

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.