Fréttablaðið - 26.10.2005, Page 28

Fréttablaðið - 26.10.2005, Page 28
MIÐVIKUDAGUR 26. OKTÓBER 2005 MARKAÐURINN4 F R É T T I R Gunnlaugur Sævar Gunnlaugsson, nýkjörinn stjórnarformaður Icelandic Group, mun jafnframt sinna störfum forstjóra félagsins. Var þetta ákveð- ið á stjórnarfundi að loknum hluthafafundi á mánu- daginn. Samkvæmt heimildum Markaðarins er því ekki verið að leita að nýjum forstjóra. Þórólfur Árnason, sem hafði verið forstjóri í tæpa fimm mánuði, var sagt upp störfum í kjölfar þess að nýir hluthafar tengdir Eimskipafélaginu komu inn í félagið. Gunnlaugur Sævar kynnti á hluthafafundinum skipulagsbreytingar sem væru framundan hjá Icelandic Group. Undir móðurfélaginu verða tvö dótturfélög: Icelandic Europe og Icelandic USA og Asía. Á þetta að auð- velda samþættingu fyrirtækja samstæð- unnar sem og ytri vöxt með sameiningum og fjárfestingum. Starfsemi Icelandic í Banda- ríkjunum og Asíu verður rekin sem ein rekstrar- eining. Yfir henni verð- ur Ellert Vigfússon. Björgvin Guðmundsson skrifar „Verðhækkanir á fasteignum hafa að jafnaði verið ofmetnar frá ársbyrjun 2003,“ segir Ásdís Kristjánsdóttir sem nýlega lauk mastersnámi í hagfræði við Há- skóla Íslands. Í lokaritgerð sinni rannsakaði hún fasteigna- og lóðaverð á höfuðborgarsvæðinu. Ásdís segir að frá byrjun árs 2003 til annars ársfjórðungs 2005 hafi vísitala fasteignaverðs fyrir fjölbýlishús, sem Fasteignamat ríkisins reiknar út, verið ofmetin um 11,9 prósent. Sé sama vísitala fyrir sérbýli skoðuð komi einnig í ljós ofmat um 7,1 prósent. Ásgeir Jónsson, lektor við Há- skóla Íslands og leiðbeinandi Ás- dísar í téðu meistaraverkefni, segir hækkun fasteignaverðs leiða til hækkunar vísitölu neysluverðs. Því skipti ná- kvæmni mælinga gríðarmiklu máli þar sem flest íslensk lán séu verðtryggð. Seðlabankinn hafi líka tölulegt verðbólgumarkmið sem miðist við neysluverðsvísi- töluna. Á síðustu einu til tveimur árum hafi mátt rekja mestan hluta af verðbólgunni hér á landi til hækkunar fasteignaverðs. Ef fasteignaverð hefði ekki verið tekið með væri verðbólga á Ís- landi nálægt 0 til 1%. „Það skiptir miklu máli að hækkun fasteignaverðs sé rétt mæld og tekið sé tillit til gæða- þátta, svo sem þegar nýtt hús- næði kemur inn á markaðinn. Það er hins vegar ekki gert við núver- andi verðbólgumælingar sem nýta ógæðaleiðréttan mæli- kvarða á húsnæðisverð. Af þeim sökum gæti einhver skekkja ver- ið til staðar í verðmælingum sem gætu leitt af sér milljarða tap fyrir heimili landsins vegna of- áætlaðrar verðtryggingar. Hér er um að ræða mjög klassísk vandamál við mælingar verð- bólgu. Oft getur verið mjög erfitt að áætla áhrif gæðaþátta en vegna þess hve húsnæði hefur mikið vægi í vísitölu neysluverðs skipta gæðaleiðréttingar sérstak- lega miklu máli,“ segir Ásgeir. Ásdís bjó til gæðaleiðrétta vísitölu fasteignaverðs. Notaði hún alla þá gæðaþætti sem eru marktækir og eru að finna í kaupsamningum seldra eigna. „Vísitalan metur þróun fast- eignaverðs með nákvæmari hætti þar sem hún leiðréttir mis- munandi gæðaþætti fasteigna. Gæðaleiðrétt vísitala fasteigna- verðs sýnir því hvernig fasteign sem er eins af gæðum hefur ver- ið að þróast yfir ákveðið tímabil, það er hvernig nákvæmlega sama fasteignin hefur verið að þróast yfir ákveðinn tíma,“ segir hún. Auk Ásgeirs var Sigurður Snævarr borgarhagfræðingur leiðbeinandi Ásdísar. Hækkun fasteigna- verðs ofmetin Veruleg skekkja á verðmælingum fasteigna getur leitt af sér milljarða tap fyrir heimili landsins. Hlutur smærri fjárfesta í FL Group verður þynntur verulega út á næstunni gangi áætlanir stjórnar félagsins eftir um aukn- ingu hlutafjár fyrir 44 milljarða að markaðsvirði. Útboðinu er beint til fagfjárfesta og verða lágmarkskaup hvers fjárfestis fimm milljónir króna. „Við töldum að það passaði betur miðað við aðstæður að fara í lokað hlutafjárútboð og stefna á stærri fjárfesta. Kannski förum við í hlutafjárútboð til smærri hluthafa síðar,“ segir Hannes Smárason, forstjóri FL Group. Stærstu hluthafar FL Group hafa tilkynnt um þátttöku sína í útboðinu, þar á meðal Oddaflug, eignarhaldsfélag Hannesar Smárasonar, Katla Holding og Baugur Group. Útboðsgengi er 13,6 krónur sem er undir markaðsgengi síð- ustu daga. Hluthafi, sem á eitt prósent fyrir aukninguna, á aðeins 0,4 prósent að henni lokinni að því gefnu að hann leggi ekki fram fimm milljónir. Nafnverð hluta- fjár er um 2,5 milljarðar króna fyrir aukningu en verður eftir hana 6,3 milljarðar. Aukningin er því 150 prósent. - eþa Alcoa Fjarðaál og ráðningarstofan IMG Mannafl -Liðsauki hafa gert með sér samning um að Mannafl -Liðsauki ráði alla starfsmenn fyrirhugaðs álvers á Reyðarfirði til starfa eða um 400 manns. „Þetta er sennilega stærsti einstaki ráðningarsamn- ingur sem gerður hefur verið á Íslandi. Við gerum ráð fyrir að um 250 manns komi til starfa strax í byrjun næsta árs og svo um 130 til starfa á árinu á eftir en þegar hafa um 20 hafið störf,“ segir Gunnar Haugen, framkvæmdastjóri IMG Mannafls-Liðs- auka. Hann segir að miðað sé við full stöðugildi og allir starfsmenn muni hafa búsetu á Reyðarfirði. „Við leggjum áherslu á að fá bæði kynin í vinnu en þetta eru sérfræðistörf, störf fyrir fólk með iðnmenntun og störf fyrir fólk með almenna menntun. Ál- verið er sérhannað til þess að gera konum auðvelt að starfa þar,“ segir Gunnar. - hb RANNSAKAÐI FASTEIGNAVERÐ Á HÖFUÐBORGARSVÆÐINU Ásdís Kristjánsdóttir komst að þeirri niðurstöðu að verðhækkanir á fasteignum frá árinu 2003 séu að jafnaði of- metnar. Munurinn nemi allt að 11,9 prósentum á verði eigna í fjölbýlishúsum. M ar ka ðu rin n/ H ei ða Hamar og VSA sameinast Hamar ehf. hefur keypt öll hlutabréf í Véla- og stálsmiðjunni ehf. á Akur- eyri. Hamar hefur rekið vélsmiðjur bæði á Eski- firði og í Kópavogi en starfsemi félagsins hefur einkum verið fólgin í við- haldi á skipum og þjón- ustu við stóriðjufram- kvæmdir. Félögin munu sameinast frá og með 1. nóvember næstkomandi. Með sameiningunni hyggst félagið ná fram hagræðingu í rekstri og flytja fleiri verkefni til Akureyrar þar sem mikið álag er á öðrum verkstæðum. - hb FRÁ KÁRAHNJÚKUM Hamar hefur meðal annars komið að framkvæmdum við nýtt álver á Eskifirði. Gunnlaugur í stað Þórólfs Hlutur smærri eigenda þynntur Litlir hluthafar í FL Group fá ekki að taka þátt í aukningunni nema þeir leggi fram fimm milljónir. Ráðningastofa ræður 400 fyrir Alcoa-Fjarðaál ÁLVERSSTÆÐI Á REYÐAR- FIRÐI Hér mun fyrirhugað ál- ver Alcoa-Fjarðaáls rísa á Reyð- arfirði en ráða þarf um fjögur hundruð manns til starfa í ál- verinu. 4 0 0 M A N N S T I L A L C O A - F J A R Ð A Á L S Almenn menntun 248 Iðnmenntun 61 Háskólamenntun 91 04_05_Markadur lesið 25.10.2005 15:36 Page 2

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.