Fréttablaðið - 26.10.2005, Qupperneq 21

Fréttablaðið - 26.10.2005, Qupperneq 21
MIÐVIKUDAGUR 26. október 2005 3 �������������������������������� ���������������������������������������������������������� ������������������������������������������������������������ ��������������������������������������� �������������������������������������������� ��������������� ��������������������������������� ������������������� ��������������� ������������������ ��������������� ����������������������������� Skráning er hafin á eina stærs- tu ferðasýningu í heimi sem haldin verður í Berlín. Internationale Tourismus-Börse (ITB) er ein stærsta ferðasýning í heimi og hefur sýningin verið hald- in árlega í á þriðja áratug. Að þessu sinni verður sýningin haldin í Berl- ín dagana 8. til 12. mars. Ferðamála- ráð Íslands hefur tekið þátt í sýn- ingunni frá upphafi og kynnt þar Ísland og íslenska ferðaþjónustu. Líkt og á öðrum ferðasýningum erlendis býðst íslenskum ferða- þjónustuaðilum að fá aðstöðu í bás Ferðamálaráðs gegn föstu gjaldi. Ferðamálaráð sér um að útbúa bás- ana og skapa mönnum aðstöðu til að hitta viðskiptavini sína. Sýning- arstandar Ferðamálaráðs á þess- um sýningum standa einnig opnir erlendum fyrirtækjum er koma að sölu Íslandsferða. Sýningarbás Ferðamálaráðs Íslands á ITB er hluti af sameiginlegu sýningar- svæði Norðurlandanna. Skráningarfrestur er til 1. des- ember 2005. Ferðasýning í Berlín FRÁ BERLÍN Ein stærsta ferðasýning heims verður haldin í Berlín eftir áramót. Hinn 10. nóvember eru allir þeir sem starfa að ferðamál- um á Norðurlandi boðaðir til uppskeruhátíðar. Uppskeruhátíðin er í boði ferða- málasamtaka Norðurlands eystra og vestra, Ferðaþjónustuklasans, Vaxey og Markaðsskrifstofu ferða- mála á Norðurlandi. Markmið hátíðarinnar er að efla samkennd á milli ferðaþjónustuaðila á Norður- landi og að ferðaþjónustuaðilar kynnist því sem að önnur svæði hafa upp á að bjóða. Áætlað er að hátíð sem þessi verði haldin árlega og þá á mis- munandi svæðum á Norðurlandi. Í ár eru Þingeyingar gestgjafar og hafa ferðaþjónustufyrirtæki í Þing- eyjarsýslum lagt sitt af mörkum til að gera hátíðina sem glæsilegasta. Kostnaður fyrir gesti hátíðarinnar verður eingöngu tengdur ferða- laginu til og frá Húsavík ásamt gistingu. Dagskráin hefst á Húsa- vík og í framhaldinu verður farið í hringferð um nágrennið með ýmsum uppákomum á leiðinni. Um kvöldið verður svo dagskrá sem kætir bæði líkama og sál. Þingeyingar bjóða til hátíðar Fagurt er í Þingeyjarsýslum. Dagskrá ferðamálaráðstefn- unnar 2005 liggur nú fyrir og verður meginþema ráðstefn- unnar „Samkeppnishæfni íslenskrar ferðaþjónustu“. Að venju verður mikið um dýrð- ir á árlegri ferðamálaráðstefnu sem haldin verður 27. október á Radisson SAS Hótel Sögu. Þema ráðstefnunnar er „Samkeppnis- hæfni íslenskrar ferðaþjónustu“. Erindin verða fjölbreytt og koma fyrirlesararnir úr mörgum geir- um ferðaþjónustu. Fjallað verð- ur um markaðslega samkeppn- ishæfni Íslands frá sjónarhorni erlends seljanda og menningar- lega samkeppnishæfni íslenskr- ar ferðaþjónustu. Haldin verður kynning á nýju ráðstefnu- og tónlistarhúsi í Reykjavík og farið verður yfir væntanleg- ar breytingar á Ferðamálaráði með stofnun Ferðamálastofu um næstu áramót. Einnig verða afhent lokaverkefnisverðlaun Ferðamálaseturs Íslands fyrir árið 2005. Móttaka í boði samgönguráð- herra og Höfuðborgarstofu verð- ur um eftirmiðdaginn í Listasafni Reykjavíkur og kvöldverður og skemmtun á Hótel Sögu þar sem venju samkvæmt verða afhent umhverfisverðlaun Ferðamála- ráðs Íslands fyrir árið 2005. Föstudaginn 28. október verð- ur vettvangsferð og kynning á ferðaþjónustu höfuðborgarsvæð- isins. Menningarleg sam- keppnishæfi Íslands HERÐUBREIÐARLINDIR OG LINDARÁ Á Ferðamálaráðstefnunni árið 2005 verður rætt um samkeppnismöguleika íslenskrar ferðaþjónustu. Allt um fasteignir og heimili á mánudögum í Fréttablaðinu. Allt sem þú þarft og meira til ÍS L E N S K A A U G L Ý S IN G A S T O F A N /S IA .I S P R E 2 8 0 4 9 0 4 /2 0 0 5
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.