Fréttablaðið - 26.10.2005, Page 2
2 26. október 2005 MIÐVIKUDAGUR
������ ��������� ���� ������
��������� �� ���������� ������ ��
������������������������������
������������������������������
���� ������ ������ ������ �����
�����������������������������
�������� ���� ��������� �������
��� ������� ��� ������� ������ ����
���� ����� �������� �������� ���
���������������������� �����
������������������������������
��� ��� ������ ����������� ������
������� �������������� ��� ����
����������������������������������
�������� ��� ���������� ���� ����
���������������������������������
������������������������������
�� ����� ��������� �����������
����� ������ �������������� �����
������������������ ����� ����
��������
���������
Árni, verða þetta jólalög?
„Já, eigum við ekki bara að segja það.“
Árni Magnússon félagsmálaráðherra kveðst
stefna á að setja ný lög um starfsmannaleigur
fyrir jól.
NOREGUR Dómstóll í Ofoten hefur
dæmt umsjónarmann vefseturs í
fimm mánaða fangelsi fyrir fjár-
svik.
Maðurinn tók að sér að setja
upp vefsíðu fyrir Norsku sjó-
mannakirkjunna svonefndu. Á
vefinn hlóð hann klámmyndum
af ýmsu tagi og tilkynnti síðan
umsjónarmönnum safnaðarins að
tölvuþrjótar hefðu komið kláminu
þar fyrir. Gegn 800.000 króna
þóknun kvaðst hann hins vegar
fús til að fjarlægja myndirnar.
Sjómennirnir guðhræddu voru
hins vegar fljótir að komast að
því hvernig í pottinn væri búið og
kærðu manninn. ■
Óprúttinn vefstjóri:
Kúgaði söfnuð
með klámi
STJÓRNMÁL Í tillögu sem liggur
fyrir þingi Norðurlandaráðs í
Reykjavík er þeim tilmælum
beint til stjórnvalda á Norður-
löndum að þau hafi frumkvæði
að rannsóknum sem upplýst geti
hverjir standi á bak við mansal
þannig að unnt verði að sækja þá
til saka.
Tillagan kemur frá svonefndri
borgara- og neytendanefnd og er
samin að frumkvæði flokkahóps
vinstri sósíalista og grænna.
Kolbrún Halldórsdóttir,
þingmaður Vinstri grænna
og fulltrúi í hópnum, segir að
markmiðið sé að fórnarlömb
mansals á Norðurlöndum fái
einhverja úrlausn. „Þetta snýst
um að vísa ekki þessum stúlkum
úr landi heldur að gangast við
því að það eru norrænir karlar
sem hafa búið til markað fyrir
þær. Við verðum að veita þeim
félagslegan stuðning. Þær þurfa
dvalarleyfi, lögfræðiaðstoð og
húsaskjól og almennan stuðning
til að koma sér út í lífið á ný. Ef
Norðurlöndin sýna ekki ábyrgð í
þessum efnum - hver gerir það
þá?“ spyr Kolbrún.
Búist er við að þing Norður-
landaráðs samþykki tillöguna og
að skýrsla um málið liggi fyrir í
ágúst á næsta ári.
- jh
Vinstri grænir í Norðurlandaráði vilja aðgerðir gegn kynlífsþrælkun:
Norrænir karlar bera ábyrgð
KOLBRÚN HALLDÓRSDÓTTIR FULLTRÚI
Á NORÐURLANDARÁÐSÞINGI
Flokkahópur vinstri sósíalista í
Norðurlandaráði vill veita fórnarlömbum
mansals vernd og félagslega aðstoð.
DÓMSMÁL Héraðsdómur Reykja-
víkur dæmdi í gær Olíufélagið hf.
til að greiða konu á fertugsaldri
4,9 milljónir í bætur vegna slyss
sem hún varð fyrir við störf sín
á bensínstöð fyrirtækisins við
Borgartún.
Í apríl 2003 datt konan af stól
sem notaður var við afgreiðslu,
missti meðvitund og var flutt á
sjúkrahús. Fyrir dómi kom fram
að bæði hún og aðrir starfsmenn
höfðu kvartað undan stólnum, en
fyrirtækið ekkert gert í málinu,
enda hefði Vinnueftirlitið ekki
gert athugasemdir við hann.
- smk
Kona í máli við Olíufélagið:
Féll af stól og
fær milljónir
FÍKNIEFNI Efni í umslagi sem sent
var hingað frá útlöndum fyrr í
mánuðinum reyndist vera kókaín,
samkvæmt heimildum Fréttablaðs-
ins. Grunur leikur á að allmargar
fíkniefnasendingar hafi borist að
undnaförnu til landsins með pósti,
en rannsókn málsins leiddi til þess
að lögreglan í Reykjavík handtók
mann og konu 19. október. Þau sitja
í gæsluvarðhaldi til 28. október.
Konan var starfsmaður á pósthúsi
í borginni.
Rannsókn lögreglu beinist
aðallega að því hvort fíkniefni
hafi verið send í pósti til sömu
einstaklinga áður, og ef svo reyn-
ist, þá hversu oft og hvort margir
komi við sögu. Samkvæmt heim-
ildum Fréttablaðsins eru póst-
sendingarnar taldar vera allmarg-
ar en lögreglan rannsakar þrjár
fíkniefnasendingar sem fundust
við tollaeftirlit með póstsending-
um. Þær komu allar frá sama land-
inu. Í gær voru fyrirhugaðar frek-
ari yfirheyrslur yfir þeim tveimur
sem stóðu að innflutningi umslags-
ins ofangreinda, svo og fleirum
sem grunur leikur á að geti tengst
málinu, jafnvel sem sakborningar.
Lögreglan lét til skarar skríða
gegn hinum grunuðu fyrr í þessum
mánuði. Lögreglumenn útbjuggu
gerviumslag sem var áframsent á
pósthúsið þar sem konan vinnur, í
stað þess sem sent hafði verið frá
útlöndum. Lögreglan hafði eftirlit
með umslaginu til að athuga hvort
hin grunuðu nálguðust umslagið.
Það gerðu þau 19. október en konan
hafði þá tekið umslagið og hringt í
manninn, sem kom skömmu síðar
á pósthúsið og sótti hana.
Þau óku á brott með
u m sl a g ið
en lög-
reglan veitti þeim eftirför. Sköm-
mu síðar hentu þau því út úr bíln-
um og handtók lögreglan þau eftir
það. Lögreglan hafði sett litarefni
í gerviumslagið og við athugun
tæknideildar á fatnaði fólksins
reyndist unnt að greina litarefnið
á fötum þess.
Maðurinn og konan hafa játað
að hluta við yfirheyrslur, að því
er fram kemur í gæsluvarðhalds-
úrskurði Héraðsdóms. Framburði
þeirra ber þó ekki saman um ein-
stök atriði, auk þess sem hann er
ekki álitinn í samræmi við meint
umfang brotanna að því er liggur
fyrir í rannsóknargögnum lög-
reglu. Þá kemur fram að lögregl-
an meti það svo að ekki hafi öll
fíkniefni náðst sem send hafi verið
hingað. Lögregla hefur fylgst með
hjúunum um skeið og gerði meðal
annars húsleit á heimilum þeirra
tveimur dögum áður en þau voru
handtekin. jss@frettabladid.is
Kókaín í umslaginu
Grunur leikur á að fíkniefni hafi verið send til landsins í allmörgun póstsend-
ingum að undanförnu. Karl og kona sitja í gæsluvarðhaldi vegna málsins. Lög-
regla gerði nýverið upptækt umslag á leið til landsins en í því var kókaín.
BANDARÍKIN, AP Rosa Parks, konan
sem hleypti lífi í réttindabaráttu
blökkumanna með því að neita að
standa upp fyrir hvítum manni í
strætisvagni í Montgomery í Ala-
bama, lést í hárri elli
í fyrrakvöld.
Lengi vel voru lög
í gildi í Suðurríkjum
Bandaríkjanna sem
kváðu á um aðskilnað
hvítra og svarta. 1.
desember 1955 neit-
aði Parks hins vegar
að beygja sig undir
ólögin með því að neita að standa upp
fyrir hvítum farþega í strætisvagni í.
Hún var sett í fangelsi og sektuð.
Málið vakti mikla reiði og í kjölfar-
ið sniðgekk blökkumannasamfélagið
í Montgomery, undir forystu Martin
Luther King, strætisvagna bæjarins
í rúmt ár. Það var hins vegar ekki
fyrr en tæpum tíu árum síðar sem
samþykkt voru lög sem bönnuðu alla
mismunun á grundvelli kynþáttar.
Parks kvartaði oft undan þeim
sem héldu því fram að hún hefði ekki
gert sér grein fyrir þýðingu staðfestu
sinnar heldur einungis verið þreytt.
Þvert á móti hafði barátta hennar
fyrir bættum réttindum staðið lengi
og því vissi hún nákvæmlega hvað
hún var að gera. - shg
ROSA PARKS
ÞEKKTASTI STRÆTISVAGNAFARÞEGI SÖGUNNAR Rosa Parks sést hér í einum af strætisvögn-
um Montgomery, þó ekki í ferðinni frægu. Samferðamaðurinn er ókunnur. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Bandaríska baráttukonan Rosa Parks lést í Detroit á mánudagskvöldið, 92 ára að aldri:
Reis upp með því að sitja sem fastast
Vamos sokkin Neyðarsendir banda-
rísku skútunnar Vamos fannst skammt
undan strönd Grænlands. Menn telja
því nokkuð víst að skútan sé sokkin. Í
septemberlok bjargaði Landhelgisgæsl-
an einum manni þegar skútan lenti í
brotsjó en félagi hans fórst. Hann féll
útbyrðis áður en þyrla og flugvél Land-
helgisgæslunnar komu að.
SJÓSLYS
BRETLAND Bandarísk þingnefnd
hefur sakað breska þingmanninn
George Gall-
oway um að
hafa logið
að sér þegar
hann stað-
hæfði eið-
svarinn fyrr
á þessu ári
að hann hefði
engar greiðsl-
ur fengið í
tengslum við
olíusöluáætl-
un Sameinuðu
þjóðanna í
Írak.
Norm Col-
eman, formaður nefndarinnar,
segist hafa gögn sem sýni að Gall-
oway og eiginkona hans hafi feng-
ið sem nemur 36 milljónum króna
í olíuúttektum frá írösku ríkis-
stjórninni. Galloway harðneitar
hins vegar þessum ásökunum og
segir þær ómerkilegan áróður.
Bandarísk þingnefnd:
Galloway fékk
fé frá Írökum
GEORGE GALLOWAY
Hann er sagður hafa
þegið fé frá ríkisstjórn
Saddams Hussein.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
SPURNING DAGSINS
SDSAFADASD
Yfirmaður fíkniefnadeildar:
Óheppilegt
Með úrskurði Hæstaréttar fylgdi
nákvæm greinargerð á heimasíðu rétt-
arins þar sem meðal annars kom fram
að lögregla teldi að ekki hefði verið lagt
hald á öll þau fíkniefni sem send voru
til landsins.
Ásgeir Karlsson, aðstoðaryfirlög-
regluþjónn ávana- og fíknefnadeildar
lögreglunnar, telur að greinargerðin
nákvæma hafi síst orðið til að greiða
fyrir rannsókninni. „Þetta var ekki það
sem við óskuðum okkur,“ sagði hann í
gærkvöldi. Ásgeir vildi hins vegar ekki
fullyrða hvort rannsókninni hefði þar
með verið spillt. „Ég get nú kannski
ekki lagt mat á það í sjálfu sér, en þetta
var ekki heppilegt.“