Morgunblaðið - 10.09.2000, Page 6
6 B SUNNUDAGUR 10. SEPTEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
Af langri reynslu
lært ég hef
Maður verður að berjast með kjafti og klóm til að koma
sínu upplýsta samþykki á framfæri, skrifar Ellert B.
Schram. Og jafnharðan er það vlrt að vettugi.
ENN ERU menn að deila
um gagnagrunninn og
ekki það að neinn sé á
móti vísindunum eða
erfðagreiningunni, heldur vilja
sumir og þá einkum læknar, krefjast svokall-
aðs upplýsts samþykkis sjúklings, áður en
sjúkraskráin hans verður notuð, um ókomna
tíð.
Nú erum við stödd í Dósa, þar sem rifist er
um þetta hugtak, upplýst samþykki, og ekki
séð fyrir endann á þeirri þrætu.
Með allri virðingu fyrir umhyggju lækna og
annarra fyrir þeirri skrá, sem eftir mig liggur
dauðan, er mér þó nærtækara að velta því fyr-
ir mér, hvort eftir mínu upplýsta samþykki er
leitað, meðan ég lifi. Mætti ég sem sagt ráða
einhverju, eða ráðum við nokkru yfirleitt?
Ekki vorum við spurð þegar ákveðið var að
bjóða forseta kínverska þingsins í opinbera
heimsókn hingað til lands. Kannske ákvað
Kínveijinn það sjálfur að bjóða sér? Og hann
ákvað sjálfur að mæta ekki í Alþingi og var
það ekki gesturinn sem bauð sér í heimsókn á
íslenskt alþýðuheimiii í Breiðholtinu? Eða var
það bai-a tilviljun hvar kínverska stórmennið
bar niður, rétt eins og gluggapósturinn dettur
inn um lúguna, um skatta og skyldur, og hús-
ráðandi hefur ekkert um það að segja. Ekki
frekar en þegar hringt er í mig í miðjum
frétta- eða matmálstíma til að selja mér nýj-
ustu gerð af ryksugu eða ritverki, sem býðst á
svo góðum kjörum að ég þarf ekki að greiða
afborganir nema næstu þrjátíu og fjóra mán-
uði. Eða þegar hringt er dyrabjöllunni og
maður er kallaður úr baðinu, af því að það er
verið að spyija eftir manni og úti stendur far-
andsölukona með harðfisk til sölu. Og hvaða
val á góðmenni eins og ég, nema kaupa harð-
fisk af þessari konu, sem leggur það á sig, sér
til viðurværis, að bjóða fólki steinbít, jafnvel
þótt steinbíturinn sé sjálfsagt miklum mun
dýrari heldur en í næstu búð?
Og svo hefst slagurinn um það hvaða sjónv-
arpsrás skal horft á og hvað á að hafa í matinn
og hvort fara eigi austur eða norður um helgi-
na. Maður verður að berjast með kjafti og
klóm til að koma sínu upplýsta samþykki á
framfæri. Og jafnharðan er það virt að vettugi.
Bæði úti og inni á heimilunum geisar verð-
HUGSAÐ
UPPHÁTT
var ao spyr
N'
bólga, sem enginn er spurður um
og þensla í þjóðfélaginu, sem eng-
inn fær stöðvað, (nema með því að
hætta við framkvæmdir við Víkur-
veginn) og svo heyrir maður að
sveitarfélögin séu á góðri leið á hausinn án
þess að nokkur sé spurður ráða og til að bæta
gráu ofan á svart, töpum við fyrir Dönum án
nokkurs upplýsts samþyklds okkar hinna.
Maður bara situr uppi í stúku og nagar negl-
umar í algjöru áhrifaleysi. Valdalaus með öllu.
Hvar í ósköpunum endar þetta? Stjórnlaus
þjóð, stjómlaust heimili, stjórnlaust lífi! Hver
var að spyija um upplýst samþykki?
’ú em framsóknarmenn farnir að
tala um úttekt og endurskoðun á
afstöðu okkar til
Evrópusambandsins án þess þó
að þar með sé sagt að Framsókn vilji ganga í
Evrópusambandið og þeir segjast þurfa að
gefa sér langan tíma til að tala um kosti og
galla þess að vera í Evrópusambandinu, án
þess þó að búið sé að ákveða að sækja um að-
ild, enda ekki víst hvað í umsókninni kunni að
felast og alls ekki vitað hvað í aðild kunni að
felast og fyrr en þetta er vitað er ekki hægt að
sækja um og samt er ekki unnt af vita neitt,
fyrr en sótt er um. Ég er fyrir löngu farinn að
óttast að leitað verði eftir upplýstu samþykki
mínu um þetta flókna mál. En sem betur fer
er ég ekki framsóknarmaður og öðmm en
framsóknarmönnum er ekki leyfilegt að hafa
orð á Evrópumálum, því málið er alls ekki á
dagskrá. Hið upplýsta samþykki er ekki á
dagskrá, guði sé lof.
Jú, það er sagt að meðan stefna Evrópu-
sambandsins sé óbreytt í sjávarútvegsmálum,
geti íslendingar ekki gerst aðilar, vegna þess
að þá ráðum við ekki lengur yfir fiski-
stofnunum og sókninni í þá. Þjóðin má sem
sagt ekki að afsala sér sameigninni og yfir-
ráðunum yfir sjósókninni við strendur lands-
ins og það ku vera sama þjóðin sem hefur
horft upp á það að auðlindin í sjónum er kom-
in í hendumar á nokkram fjölskyldum og út-
gerðarfyrirtækjum, sem hafa skuldsett sig
fyrir eitt hundrað milljarða vegna kaupa á
kvótum, sem vora upphaflega gefnir til þeirra
sem nú era að selja. Enda var aldrei óskað
eftir upplýstu samþykki á því afsali?
Morgunblaðið/Jim Smart
Vorum við spurð þegar ákveðið var að bjóða forseta kínverska þingsins í opinbera
heimsókn hingað til lands?
Hér er um að ræða þjóðfélagslegt og
stjómmálalegt náttúralögmál,
sem enginn ræður við og allra síst
stjómvöld, hvað þá almenningur
og kjósendur, sem eiga hinsvegar að standa
vörð um fiskveiðistefnuna, vegna þess að út-
lendingamir í Evrópusambandinu mega ekki
komast yfir þá sameiginlegu auðlind, sem
þjóðin hefur fyrir löngu gefið frá sér.
Það er hinsvegar áríðandi að allir gefi upp-
lýst samþykki fyrir því að auðlindin í sjúkra-
skýrslunum nýtist vísindunum, eftir þeirra
dag.
Einu sinni lærði ég þessa vísu:
Aflangrí reynslu lært ég hef
að láta Drottin ráða meðan égsef
en þegar ég rah', þá vil égfá að ráða
og þykist geta ráðið fyrir báða.
En nú er fokið í þetta skjólið líka. Hvort
sem ég sef eða vaki. Við ráðum engu, vakandi
eða sofandi, lífs eða liðin. Hvorki því hvort
gestir koma í heimsókn, hvort við göngum í
Evrópusambandið eða hverjir eiga kvóta í
auðlindinni. Það eina sem við ráðum og ráðum
við er þetta: að gefa upplýst samþykki um að
fara í gagnagranninn eftir að við eram komin
í gröfina og svo hitt að hætta við gatnafram-
kvæmdir á Víkurveginum, sem er sparnaður
upp á eitt prósent í fjárlögum. Og í rauninni
ráðum við því ekki heldur, a.m.k. ekki þau í
borgarstjóminni eða þeir í Grafarvoginum
sem er málið skylt. Þegar þannig stendur á
þarf ekki að leita eftir upplýstu samþykki.
En eitt prósent þykir nokkuð gott og ef ég
réði einu prósenti af því sem gerist á mínu
heimili með upplýstu samþykki, þá þættist ég
góður. En því er ekki að heilsa. Strákurinn
minn, átta ára, er farinn að gefa mér langt
nef, ef mér dirfist að segja honum til. En þetta
er jú haft fyrir honum!
Haustferð til Prag
Ákveðið heíur verið að
bjóða 5 ferðir til hinnar
fornfrægu og fallegu
borgar Prag 4., 11., 17.
og 24. október. Flogið
verður til Frankfurt í
Þýskalandi þaðan sem
ekið verður samdægurs
til Prag. Þar verður svo
gist næstu 6 nætur (5
nætur í ferðinni 11/10)
en á næst síðasta degi
verður ekið áleiðis til
Frankfurt með viðkomu í
Karlovy Vary og gist síð-
ustu nóttina í Þýskalandi.
Verð á mann er 59.900 kr. (56.500 kr. þann 11/10) og er þá innifalið flug, akstur milli Frank-
furt og Prag, gisting í tveggja smanna herbergi, morgunverður, flugvallaskattur, skoðunarferð um
borgina og íslensk fararstjóm.
Leitið nánari upplýsinga hjá utnalandsdeild okkar.
Einnig á heimasíðu okkar: www.gjtravel.is
^■11 Ferðaskrífstofa
[■I GUÐMUNDAR JÓNASSONAR EHF.
Borgartúni 34, sími 511 1515
Haustvörurnar komnar
Verðdæmi:_______.
Jakkar frá kr. 4.900
Stuttir jakkar frá kr. 5.900
Pils
Buxur
Bolir
Stuttbuxur
Kvartbuxur
Pils - Kjólar
Alltaf sama góða verðið!
Nýbýlavegi 12, Kóp., s. 554 4433.
frá kr. 2.900
frákr. 1.690
frá kr. 1.500
frá kr. 2.500
frá kr. 1.900
Homopatanam
Um er að ræða 4 ára nám í hómópatíu sem byrj-
ar í Reykjavík í haust á vegum College of Prac-
tical Homoeopathy í Bretlandi.
Kenndar eru 10 helgar á ári, auk heimanáms og
verklegrar þjálfunar. Námið veitir réttindi.
D.Howell skólastjóri C.P.H. kynnir námið
13., 14. og 15. sept. í Ármúla 44, 3. hæð.
Upplýsingar gefur Martin
í síma 567 8020 eða 897 8190
Fréttir á Netinu v^)mbl.is
/KLLTAf= e!TTH\SA£> NÝTl