Morgunblaðið - 17.04.1993, Page 4
4
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. APRÍL 1993
Sátt í deilumáli íslandsbanka og Neytendafélags Akureyrar
Sameiginlegt mál
höfðað gegn Artaki
ÍSLANDSBANKI og Sverrir Stefánsson hafa ákveðið að höfða
í sameiningu mál á hendur verktakafyrirtækinu Artaki hf. til
endurgreiðslu fyrirtækisins á 120 þúsund kr. til Sverris. Á síð-
asta ári rek deilumál milli Neytendafélags Akureyrar og ná-
grennis og íslandsbanka vegna þess að bankinn tók út fyrr-
greinda fjárhæð af sparisjóðsreikningi Sverris að beiðni Ártaks
án leyfis reikningseigandans.
Bjöm Eysteinsson útibússtjóri
íslandsbanka sagði að í framhaldi
af greinargerð Bankaeftirlitsins frá
febrúar um helstu lögfræðilegu
sjónarmið sem hafa ber í huga við
leiðréttingar innlánsstofnana á inn-
leggjum inn á reikninga viðskipta-
manna, hefðu menn orðið ásáttir
um að það yrði tímaeyðsla að hefja
málaferli á hendur hvor öðrum, og
það hefði örugglega endað með
málaferlum á hendur Ártaki. „Við
ákváðum að snúa bökum saman.
En það er engin spurning að það
hafa engar reglur um þessa hluti
verið settar ennþá, nema þá þessi
greinargerð Bankaeftirlitins frá því
í febrúar," sagði Bjöm.
Vantar skýrar reglur
í greinargerðinni segir að líta
verði svo á að „ekki hafi farið fram
bindandi ráðstöfun fjármuna á inn-
legg annars manns fyrr en reikn-
ingseigandi hefur fengið vitneskju
um innleggið." Bjöm sagði að það
þyrfti að útkljá frá hveijum sú vitn-
eskja ætti að berast og með hvaða
hætti. „Það vantar skýrari reglur,
en það er komin leiðbeinandi um-
ræða um þessi mál,“ sagði Björn.
„Lausn þessa máls er góð, þótt
hún hafi tekið langan tíma. Ég hef
haldið mínum viðskiptum við bank-
ann og mun halda því áfram,“ seg-
ir Sverrir Stefánsson.
Vilhjálmur Ingi Árnason, for-
maður Neytendafélags Akureyrar
og nágrennis, segir að Bjöm Ey-
steinsson hafi orðið að taka á sig
og sitja opinberlega undir ákúmm
vegna þessa máls. „Það er virðing-
arvert að Bjöm, þrátt fyrir þung
orð og ásakanir sem í hita barátt-
unnar hrutu í hans garð og bank-
ans af minni hálfu, skuli hafa geng-
ið í það persónulega að koma á
sáttum milli bankans og viðskipta-
vinarins,“ sagði Vilhjálmur.
VEÐUR
í DAG kl. 12.00
Heimitd: Veðurslota istands
(Byggt á veðurspá kl 16.15 í gœr)
VEÐURHORFUR I DAG, 17. APRIL
YFIRUT: Um 400 km norftaustur af landinu er vaxandi 978 mb laegft sem þokast
haegt austur. Yfir norftur-Grænlandi og Svalbarða er 1032 mb hæðarhryggur.
STORMVIÐVÖRUN: Gert er ráð fyrir stormi á Grænlandssundi, Noröurdjúpi og
Austurdjúpi. I kvöld fer vindur vaxandi af norftri um allt land og í nótt verður all-
hvöss eða hvöss noröanátt með snjókomu eða éljagangi norðanlands en sunnan
heiða verftur nokkru hægari vindur og úrkomulftið. Uppúr hádegi á morgun verft-
ur haegt minnkandl norftanátt og dregur úr éljum fyrir norðan, fyrst vestan tll.
Um landið sunnanvert verður norðlæg átt, viðast kaldi og léttskýjað. Áfram verð-
ur svalt f veðri.
SPÁ: Allhvöss eða hvöss norðanátt og él norftanlands og jafnvel snjókoma fram-
eftir degi norðaustantll en norðan kaldi efta stinningskaldi og léttskýjaö sunnan
heiða. Uppúr hádegi fer að draga úr vindi og éljum norðanlands. Áfram verður svalt
f veðri.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á SUNNUDAG: Hæg breytileg eöa austiæg étt. Lltilsháttar rtgning eða
slydda suftaustanlands og á austfjörðum. en annars verður nokkuð bjart veður á
landinu. Hiti 1-4 stig að deginum, en vifta næturfrost.
HORFUR A MÁNUDAG OG ÞRIÐJUDAG: Austlæg átt, nokkuft hvöos með rign-
ingu við suðurströndina, en um landið norðan- og vestanvert verður léttskýjað.
Lítift eitt hlýnandi.
Nýir vefturfrcgnatímar: 1.30, 4.30, 7.30, 10.45,12.46,16.30, 19.30, 22. 30.Svar-
síml Veðurstofu Islands — Vefturfregnlr. 990600.
o &
Heiðskírt Léttskýjað
/ / /
r r
r r r
Rigning
* / *
* /
r * r
Slydda
•ö
Hálfskýjað
* * *
* *
* * *
Snjókoma
Skýjað Alskýjað
V ^ V
Skúrír Slydduél Él
Sunnan, 4 vindstig.
Vindörin sýnir vindstefnu
og fjaðrimar vindstyik,
heil fjöður er 2 vindstig.
10° Hitastig
V Súld
= Þoka
itig-.
FÆRÐA VEGUM: (Kl. 17.30fgær)
Það er góð færð á öllum helstu þjóðvegum landsins og hálka sem var
á vegum sunnan og vestanlands í morgunn er óðum að hverfa. A Vest-
fjörðum er þó þungfært um Kleifaheiöi og Hálfdán, og Steingrímsfjarðar-
heiði er ófær. Þungatakmarkanir, vegna aurbleytu eru víða á útvegum,
og eru þessar takmarkanir sýndar með merkjum við viðkomandi vegi.
Upplýsingar um færð eru veittar hjá Vegaeftirliti i síma 91-631500 og
ígrænnilfnu 99-6315. Vegagerftln.
VEÐUR VÍÐA UM HEIM
kl. 12.00 í gær að ($1. tíma
hiti veftur
Akureyri 2 skýjaft
Reykjavfk 3 úrkomafgr.
Bergen 6 úrkomaígr.
Helsinkf 6 féttskýjad
Kaupmannahöfn 7 hálfskýjað
Narssarssuaq vantar
Nuuk vantar
Oslé 7 alskýjað
Stokkhólmur 11 skýjaft
Þórahöfn 4 haglél
Algarve 20 léttskýjaft
Amsterdam 14 mistur
Barcelona 16 léttskýjað
Berlfn 13 léttskýjað
Chicago 3 alakýjað
Feneyjar 16 þokumóða
Frankfurt 16 léttskýjað
Glasgow 9 rigning
Hamborg 14 léttskýjað
London 12 alskýjað
LosAngeles 13 heiðskfrt
Lúxemborg 12 mistur
Madríd vantar
Malaga 22 léttskýjað
Mallorca vantar
Montreal vantar
NewYork vantar
Ortando vantar
Parfs 13 léttskýjaft
Madeira 17 skýjað
Róm 14 þokumóða
Vín 13 skýjaö
Washington 18 alskýjað
Winnipeg 2 úrkomaígr.
Gamalgrónir starfsmenn
UNDIRBÚNINGUR að flutningi Sláturfélags Suðurlands af Skúla-
götu að Fosshálsi var í fullum gangi í gær, en þar verða skrifstof-
ur ásmat sölu- og afgreiðsludeild opnaðar á mánudaginn. Á mynd-
inni sem tekin var í gamla afgreiðslusalnum sjást þeir starfsmenn
sem lengst hafa starfað hjá fyrirtækinu, en þeir eru talið frá vinstri:
Helgi Kristjánsson, sem starfað hefur þjá fyrirtækinu í 27 ár,
Hrannar Daníelsson, 31 ár, Guðjón Guðjónsson, 46 ár, Elín Elías-
dóttir, 38 ár, og Gunnar Randver Ingvarsson, sem starfað hefur
hjá SS í 33 ár.
SS flytur frá
Skúlagötunni
STARFSEMI Sláturfplags Suðurlands við Skúlagötu flytur í
dag að Fosshálsi 1, en starfsemin hefur verið í húsnæði við
Skúlagötu frá 1907. Kjötvinnslan flutti þaðan á Hvolsvöll árið
1991 og síðan þá hafa skrifstofur og söludeild verið til húsa
í upphaflega húsnæðinu við Skúlagötu.
A Fosshálsi 1 verða skrifstofur miklar.
SS, sölu- og afgreiðsludeild og inn-
flutningsdeildin sem fram til þessa
hefur verið í Skútuvogi. Starfs-
menn eru um 60 talsins, en í kjöt-
vinnslunni á Hvolsvelli starfa 120
manns.
46 ár hjá fyrirtækinu
Guðjón Guðjónsson, starfsmað-
ur í söludeild sláturfélagsins, hefur
starfað hjá fyrirtækinu í 46 ár, en
hann hóf störf hjá Matardeildinni
í Hafnarstræti 14 ára gamall og
hefur lengst af starfað í verslunum
SS. Hann sagði breytingarnar á
þessum tíma hafa verið ótrúlega
„Þetta er allt önnur vinnuað-
staða og nú er allt verðmerkt og
pakkað. Maður lærði miklu meira
i verslununum áður, t.d. að búa til
rúllupylsur, kæfu, salöt og fleira,
en þetta var góður skóli sem ekki
er í dag. Þá var þjónustan við við-
skiptavinina á margan hátt per-
sónulegri en hún er í dag, en þó
eru núna til búðir þar sem þetta á
við,“ sagði Guðjón í samtali við
Morgunblaðið.
Aðspurður sagði hann flutning-
ana á nýja staðinn leggjast mjög
vel í sig, en þar yrði mjög góð
aðstaða fyrir starfsemina.
Garðar Cortes um frétt í sænsku blaði
Alrangt að ég sé
að hætta störfum
GARÐAR Cortes, óperustjon Gautaborgaróperunnar, segir
alrangt að hann sé að láta af störfum við óperuna eins og
haldið sé fram í Svenska. Dagbladet. Samkvæmt frétt blaðs-
ins lætur Garðar af störfum vegna samstarfsörðugleika
við annað starfsfólk óperunnar. Garðar viðurkennir að
borið hafi á örðugleikum af þessu tagi en segir að verið sé
að reyna að bæta úr þeim.
Svenska Dagbladet heldur því
fram að Garðar láti strax af
störfum. Hins vegar haldi hann
áfram undirbúningi við upp-
færslu Ástardrykksins, sem
frumsýna eigi 30. apríl, og við
undirbúning næsta starfsárs.
Ástæðan fyrir brotthvarfi Garð-
ars er sögð samstarfsörðugleikar
hans við annað stárfsfólk óper-
unnar, einkum vegna flutnings
í nýtt óperuhús árið 1994.
Vísað á bug
Garðar vísaði því algjörlega á
bug að hann væri að láta af
störfum þegar fréttin var borin
undir hann í gær. Hann viður-
kenndi hins vegar að borið hefði
á samstarfsörðugleikum í óper-
unni. „Ég mótmæli því ekki að
hér eru ákveðnar hræringar.
Þeim finnst þeir ekki fá að taka
nægilega mikinn þátt f því sem
er að gerast en það er verið að
reyna að tala saman um málin,“
sagði Garðar og neitaði þvf að
umræddir samstarfsörðugleikar
hefðu komið niður á óperustarf-
inu í vetur.
Aðspurður sagði Garðar að
kvartanir vegna skipulags við
flutning í nýtt óperuhús væru
fyrirsláttur. „Ég verð að fá upp-
lýsingar um hversu mikla pen-
inga við fáum til að flytja og
hvenær af flutningunum verður
áður en ég get farið að leggja
fyrir eitthvað prógramm. Því get
ég ekki gefið þeim þær upplýs-
ingar, sem þeir vilja þegar þeir
vilja, en mér fínnst ég hafa ful-
komna sjórn á hlutunum,“ sagði
Garðar þegar rætt var við hann.
Hann sagðist vera að skipu-
leggja blaðamannafund vegna
næsta starfsárs á þriðjudag og
vegna frumsýningar á Ástar-
drykknum á fímmtudag.