Morgunblaðið - 29.11.1988, Blaðsíða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 29. NÓVEMBER 1988
Lottó:
Ógreiddir vinnmgar
17 milljónir króna
Hæsta vinningsupphæðin frá upp-
hafi, 7 m.kr., á tveggja ára afinæiinu
„VINNINGAR í Lottóinu, sem
vinningshafar hafa ekki sótt
innan eins árs, eru um 17 millj-
Peningaskáp-
urinn fimdinn
STÓR og mikill peningaskápur,
sem stolið var í innbropti í Bíla-
leiguna Geysi þann 11. þessa
manaðar, kom í leitirnar um
helgina.
Skápurinn fannst við Leirvogs-
vatn. Hann hafði verið spenntur upp
en talið var að flest verðmæti sem
í honum voru hafi verið látin
óhrejrfð. Þar var einkum um tékka
og ýmis konar skjöl að ræða.
ónir króna en fólk hefur eitt
ár til að sækja vinningana,"
sagði Vilhjálmur Vilhjálmsson,
framk væmdastj óri íslenskrar
getspár, í samtali við Morgun-
blaðið. Fyrsti vinningur í Lottó-
inu á laugardaginn var
14.280.207 krónur sem féllu í
hlut tveggja vinningshafa,
þannig að hvor þeirra fær í sinn
hlut 7.140.103 krónur. Það er
hæsta upphæð sem þátttakandi
hefur unnið frá því að Lottóið
byrjaði. Sú næsthæsta var rúm-
ar 5 milljónir króna, að sögn
Vilhjálms. A laugardaginn voru
tvö ár siðan Lottóið tók til
starfa.
Annar vinningshafinn er Hlynur
Tryggvason á Blönduósi en hinn
vill ekki láta nafns síns getið.
Vinningsmiðarnir voru keyptir í
Blönduskála á Blönduósi og Næt-
ursölunni á Akureyri. Fyrsti vinn-
ingur var hæstur 16. maí í fyrra,
eða um 14,7 milljónir króna, sem
komu í hlut 7 þátttakenda, að
sögn Vilhjálms.
„Að þessu sinni fengu 18 manns
82.507 króna bónusvinning hver
en sá vinningur hefur verið frá
um 50 þúsund krónur og upp í
um 300 þúsund krónur. Við byrj-
uðum með bónusvinninga í 37.
viku þessa árs,“ sagði Vilhjálmur.
Eftir að við hækkuðum lægstu
vinningana hefur færst í vöxt að
vinningshafar sæki þá. Hæsti
vinningur, sem ekki hefur verið
sóttur, var 2,1 milljón króna. Vinn-
ingar á þessu ári eru samtals 231
milljón króna,“ sagði Vilhjálmur.
VEÐUR
ÍDAGkl. 12.00:
/ / /
/ / /
/ / /
///////
/////////
////'///////
Heimild: Veðurstofa Islands
(Byggt á veðurspá kl. 16.15 í gær)
VEÐURHORFUR í DAG, 29. NÓVEMBER
YFIRLIT í GÆR: Um 700 km suðsuðaustur af Hvarfi er vaxandi
og víðáttumikil 977 mb lægð, sem þokast austnorðaustur, en fyrir
norðan land er 1.011 mb hæð, sem fer heldur minnkandi. Hiti breyt-
ist lítið í fyrstu, en veður fer hlýnandi, þegar iíöur á nóttina.
SPÁ: Austanátt, stinningskaldi við suðurströndina, en gola eða
kaldi víðast annars staðar. Dálítið rigning syðst á landinu, en þurrt
að mestu í öðrum landshlutum og nokkuð bjart veður á Norður-
landi. Hiti 1—5 stig.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA
HORFUR Á MIÐVIKUDAG OG FIMMTUDAG: Suðaustanátt, kaldi
eða stinningsgola og víða rigning sunnan- og austanlands, en að
mestu úrkomulaust í öðrum iandshlutum. Hiti 3—7 stig.
TÁKN:
Q ► Heiðskírt
Léttskýjað
Hálfskýjað
Skýjað
Alskýjað
s, Norðan, 4 vindstig:
' Vindörin sýnir vind-
stefnu og fjaðrirnar
vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig.
f r r
r r r r Rigning
r r r
* r *
r * r * Slydda
r * r
* * *
* * * * Snjókoma
* * *
-j 0 Hitastig:
10 gráður á Celsius
y Skúrir
*
V El
= Þoka
= Þokumóða
’, ’ Súld
OO Mistur
_j- Skafrenningur
R Þrumuveður
VEÐUR VÍÐA UMHE/M
kl. 12:00 í gær að ísl. tíma
Akureyri Reykjavlk hlti 2 3 veður skýjað skýjað
Bergen 2 rigning
Helsinki +10 lóttskýjað
Kaupmannah. 4 rigning
Narssarssuaq 2 skýjað
Nuuk +1 alskýjað
Oaló +1 snjókoma
Stokkhólmur +4 snjókoma
Þórshöfn 5 rigning
Algarve 17 léttskýjað
Amsterdam 6 rigning
Barcelona 12 mistur
Chicago 0 snjókoma
Feneyjar 9 heiðsklrt
Frankfurt 2 þokumóða
Glasgow 10 mistur
Hamborg 5 rigning
Las Palmas vantar
London 8 alskýjað
Los Angeles 10 heiðskírt
Luxemborg +1 hrimþoka
Madnd 9 heiðskírt
Malaga 18 léttskýjað
Mallorca 18 léttskýjað
Montreal 7 skúr
New York 16 skúr
Parfs 1 alskýjað
Róm 13 þokumóða
San Diego 9 heiðskírt
Winnipeg +20 skýjað
Morgunblaðið/Jón Sigurðsson
Hinn lukkulegi vinningshafí Hlynur Tryggvason ásamt eiginkonu
sinni Sigurlaugu Hermannsdóttur.
Frétti þetta um
hádegið í gær
Sagði lottóvinningshafinn á Blöndu-
ósi húsasmiðurinn Hlynur Tryggvason
Blönduósi.
„Mér líður eins og ríkisstjórn sem fundið hefur lausn á efna-
hagsvandanum,“ sagði Hlynur Tryggvason húsasmiður á
Blönduósi þegar hann var inntur eftir líðaninni með stóra lottó-
vinninginn. En eins og kunnugt er skiptist lottópotturinn milli
tveggja norðlendinga og komu 7.140.103 kr. í hlut.
Hlynur Tryggvason sagði að
hann hefði keypt tíu raðir fyrir
hádegi á laugardaginn og væri
það í fyrsta sinn sem hann tæki
þátt í lottóinu eftir að tölunum
var fjölgað. Ekki kvaðst Hlynur
hafa notað neitt sérstakt kerfi
við val á tölum heldur látið örlög-
in ráða hvar merkt var við. Það
var ekki fyrr en um hádegisbilið
í gær sem Hlynur uppgötvaði að
stóri vinningurinn væri hans.
„Við hjónin höfðum heyrt í út-
varpinu að lottóvinningurinn
hefði gengið út og veltum þessu
því ekkert fyrir okkur frekar. í
gærmorgun var svo athygli konu
minnar Sigurlaugar Hermanns-
dóttur vakin á því að annar vinn-
ingshafinn væri frá Blönduósi
og hann hefði ekki gefið sig
fram. Jafnframt kom fram hve-
nær miðinn hafði verið keyptur
þannig að konan fór heim úr
vinnuni til að athuga miðann og
kom þá þessi stórkostlega stað-
reynd í ljós.“ Hlynur sagði að
ákvörðun um ráðstöfun fjárins
væri ekki endanlega mótuð en
þó væri ljóst að vinningurinn
myndi létta skuldabaggann.
—Jón Sig.
*
Andri Isaksson til starfa
hjá UNESCO í New York
ANDRI ísaksson prófessor hef-
ur verið ráðinn til starfa hjá
UNESCO, Menningarmála-
stoftiun Sameinuðu þjóðanna,
næstu tvö ár sem skrifstofii-
stjóri tengslaskrifstofu í New
York.
Andri starfaði í menntamála-
ráðuneytinu sem sérfræðingur í
skólarannsóknum og deildarstjóri
í skólarannsóknadeild ráðuneytis-
ins á árunum 1966—1973 er hann
var skipaður prófessor í uppeldis-
fræði við Háskóla íslands.
Andri var ritari íslensku UN-
ESCO-sendinefndarinnar 1966—
1980. Hann starfaði hjá UNESCO
í París 1980-1983 að fjölþjóðleg-
um samstarfsverkefnum á sviði
nýjunga og tilrauna í skólamálum
í Evrópu. Árin 1983—1987 var
hann fulltrúi íslands og Norður-
landa í framkvæmdastjórn UNES-
CO.
Andri ísaksson tók við nýja
embættinu á mánudag, 28. nóv-
ember.