Morgunblaðið - 29.11.1988, Blaðsíða 46
46
MORGUNBLAÐIÐ, VIÐSKIPTI/AIVINNUIÍF ÞRIÐJUDAGUR 29. NÓVEMBER 1988
Fyrirtæki
Kaupsamningur
Þekkingar á Allt-
hugbúnaði ógildur
„ÞROTABÚ Allt-hugnbúnaðar er óbundið af þeim kaupsamningi sem
gerður var á milK þess fyrirtækis og Þekkingar hf., og telur sig því
hafa fúllan ráðstöfúnarrétt yfir öllum eignum þrotabúsins, þar með
töldum öllum hugbúnaði," sagði Sigurður G. Guðjónsson hrl., en hann
er bústjóri í þrotabúi Allt-hugbúnaðar. Þekking hf. er fyrirtæki sem er
í eigu sömu aðila og Allt-hugbúnaður, og höfðu fyrirtækin gert kaup-
samning sín á milli skömmu áður en Allt-hugbúnaður var lýst gjaldþrota.
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins hafa enn sem komið er bor-
ist þijú tilboð í þrotabúið. Tilboðin
eru frá íslenskri forritaþróun hf.,
Hugtaki hf., og eigendum og að-
standendum Þekkingar hf. Hálfdán
Karlsson hjá íslenskri forritaþróun
sagði, að áhugi þeirra á þrotabúi
Allt-hugbúnaðar byggðist á því, að
þjónusta þessarra tveggja fyrirtækja
væri afar eðlislík, og því myndu
kaup á Allt-hugbúnaði styrkja ís-
Iðnaður
Leikfanga-
framleiðsla
á Þingeyri
Þingeyri.
FRÉTTAMAÐUR Morgun-
blaðsins fór á stúfana til að
forvitnast um starfsemi leik-
fangasmiðjunnar Oldu hf.
sem hóf starfsemi fyrir
nokkrum árum á bjartsýninni
og með aðstoð nokkurra
góðra aðila.
Að sögn forráðamanna fyrir-
tækisins hefur starfseminni ver-
ið þannig háttað að undanfömu
að unnið hefur verið að leik-
fangaframleiðslu hálft árið en
hinn helming ársins hafa starfs-
mennimir, sem hafa að meðal-
tali verið 3—4, unnið að ýmsum
tilfallandi verkefnum, m.a.
byggingavinnu. Með þessu móti
hefur tekist að halda fyrirtæk-
inu gangandi en Alda hf. mun
vera eina fyrirtækið sinnar teg-
undar á landinu eftir því sem
best er vitað.
Fyrirtækið framleiðir ein-
göngu leikföng úr tré og ber þar
hæst dýrfirska vörubílinn Dúa
sem er framleiddur í þremur
gerðum, Dúi P-6, Dúi LP-10 og
Dúi P-10. Einnig dúkkuvagninn
Dúdú með gamla íslenska laginu
og íslenska kúluspilið.
í þau tæp þijú ár sem leik-
fangasmiðjan Alda hefur starfað
hafa verið framleidd um 3.500
eintök af vömbílnum Dúa. Er
hann löngu kominn í öll hémð
landsins en hveijum bíl fylgir
númer að ósk kaupanda og í
skoðunarvottorð er skráð nafn
eigandans. Forráðamennirnir
töldu að frekari vömþróun þyrfti
að eiga sér stað innan fyrirtæk-
isins en þar er við ramman reip
að draga þar sem afl þeirra hluta
sem gera skal, peninga, vantar.
- Hulda
DUI — Drengur að leik
með vömbílinn Dúa.
lenska forritaþróun og stækka við-
skiptamannahópinn. „Við höfum
ákveðin markmið tengd framleiðslu-
magni og þjónustu. Til að ná þeim
sem best þurfum við sem flesta við-
skiptavini, og ef af þessum kaupum
gæti orðið, væri stórt skref í þá átt
að baki, sem væfi einnig öllum við-
skiptavinum til hagsbóta," sagði
Hálfdán.
Jónas Ingi Ketilsson hjá Hugtaki
hf. sagði, að í ljósi þess að Hugtak
hf. hafi miðað hluta af sínum hug-
búnaði við notkun samhliða Allt-
hugbúnaði, auk samstarfs fyrirtækj-
anna á öðram grundvelli, ætti Hug-
tak beinna hagsmuna aðgæta.„Það
kæmi sér augljóslega afar illa fyrir
okkur ef við gætum ekki lengur
treyst á tengingu framleiðslu okkar
við Allt-hugbúnað. Slíkt gæti haft í
för með sér óvissu í markaðssetn-
ingu á lausn fyrir fiskvinnslu og
útgerð sem unnin er í samvinnu við
Allt-hugbúnað,“ sagði hann.
Morgunblaðið/Sverrir
IMY VERSLUN — Forsvarsmenn Skæm f.v. Friðþjófur Friðþjófsson umboðsmaður Solar og
eigendumir Sigurbjörg Þórmundsdóttir og Þuríður Jónsdóttir. Þriðji eigandinn Susanne Heitmann var
ekki viðstödd myndatökuna.
Verslun
Skæra með Nordisk Solar lampa
SKÆRA nefnist ný verslun sem
tekin er til starfa og sérhæfir
sig í lýsingartækni bæði fyrir
vinnustaði og heimili. Skæra er
með aðsetur að Skútuvogi 11 og
hefur ýmiss konar (jós og ljósa-
búnað á boðstólum en þó aðallega
frá danska fyrirtækinu Nordisk
Solar Compagni.
Að sögn forsvarsmanna Skæm
hefur Nordisk Solár verið leiðandi
fyrirtæki á dönskum markaði og
lagt áherslu á góða hönnun, góð
tæki og rétta notkun þeirra. Þegar
breytt var lýsingarútreikningum frá
BZ aðferð í NB lét fyrirtækið koma
þessum upplýsingum í tölvutækt
form og hefur Háskóli íslands á
þann hátt getað notfært sér þekk-
ingu Nordisk Solar.
Af stærri hönnunarverkefnum
sem þeir Solar-menn hafa leyst má
nefnda lýsinguna í nýju flugstöðv-
arbyggingunni á Kaupmannahafn-
arflugvelli og meðal hönnuða sem
vinna fyrir Nordisk Solar em C.F.
Möller, Sten Zineh, Christian Hvidt
og Ole Press Jörgensen en nýja
framleiðsla Solar — Flexlampinn
svonefndur er einmitt hannaður af
honum.
Lampar frá Solar hafa hlotið
samþykki opinberra stofnana í Dan-
mörku, Noregi, Svíþjóð, Finnlandi
auk v-þýsku VDE viðurkenningar-
stofnunarinnar. Lampar frá Solar
hafa einnig verið samþykktir af
rafmagnsprófunardeild Rafmagn-
seftirlits ríkisins hér á landi.
*
Utflutning’ur
Mögiileiki á sölu fersks
fisks til Japans opnaður
Rætt við Burt Hubbs, yfirmann Evrópudeildar Flying Tigers
FLUGFÉLAGIÐ Flying Tigers, sem er stærsta fragtflutningafélag
í heiminum, hefúr í janúar flug til Austur-Asíu með millilendingu í
Keflavík. Um er að ræða 11 ferðir í viku og hafa stjórnendur félags-
ins óskað eftir leyfi til fragtflutninga um Keflavík til og frá Asíu
og Evrópu sömuleiðis. Hæst ber þar möguleika á sölu ferskfisks til
Japans, sem er einn stærsti fiskmarkaður í heimi, enn stærri en
Bandaríkin. Flying Tigers hafa óskað eftir samvinnu við Flugleiðir
vegna þessa og eru tilbúnir til að skipta flutningum á milli félag-
anna, komi til samvinnu. Flugleiðamenn eru nú að íhuga þetta til-
boð. Yfirmaður Evrópudeildar Flying Tigers, Burt Hubbs, var stadd-
ur hér á landi fyrir skömmu og skýrði Morgunblaðinu frá fyrirætlun-
um sinum.
„Breytt flutningamynstur hefur
gert það að verkum að við teljum
mikla þörf á því að koma á nýrri
áætlun milli Asíu og Evrópu eftir
Pólleiðinni, sem liggur milli Asíu
um Anchorage í Alaska, ísland og
til Frankfurt í Þýzkalandi eða Lon-
don,“ sagði Burt Hubbs. „Sam-
kvæmt áætlun munum við hefja
flug á þessari leið um miðjan jan-
úar með 10 flug, 6 að austan og
Ijögur austur, öll um Keflavík, fáist
til þess leyfí. Um miðjan marz
bætist svo enn eitt flug við til Asíu.
(Með þessu náum við betri nýtingu
úr flugflota okkar, minna álagi á
áhafnir og komumst betur inn á
bezta flugflutningamarkaðinn, sem
nú er talinn leiðin milli Austurlanda
fjær og Evrópu.
Eftir að hafa tekið þessa ákvörð-
un, hefur fyrirtækið að sjálfsögðu
leitað fleiri möguleika á verkefnum,
til dæmis með flutningi til og frá
Keflavík. Sérstakan áhuga höfum
við á fiskflutningum. Við höfum
aflað þeirra upplýsinga hjá umboði
okkar í Tókýó, að nægileg eftir-
spum er eftir fiski þar eystra og
vitum að íslenzkir fiskframleiðend-
ur hafa áhuga á að nýta sér reglu-
bundið, stöðugt og áreiðanlegt flug-
félag á þessari leið. Við munum því
fljúga daglega austur og fjórum
sinnum í viku að austan og niður
til Evrópu. Það getur komið fyrir
að við fljúgum yfir ísland, leyfi
aðstæður það, en bíði okkar fiskur
til Japans munum við lenda og taka
hann. Til þess höfum við skuld-
bundið okkur.
Við höfum rætt við flugmála-
stjóra og ráðherra utanríkismála,
samgöngumála og forsætisráðherra
og fengið góðar móttökur. Við höf-
um verið hvattir til að leggja fram
skriflega umsókn um leyfi fyrir
flutningum á þessari flugleið. Mér
finnst ráðherramir og opinberir
stafsmenn hafa verið mjög jákvæð-
ir og vissulega hefur flug þetta í
för með sé ýmsan hagnað fyrir ís-
land. Þetta er vissulega gott tæki-
færi, ekki aðeins fyrir okkur, heldur
líka Keflavíkurflugvöll vegna auk-
innar umferðar og umtalsverðrar
fjárhæðar, sem við munum greiða
fyrir lendingargjöld, eldsneyti og
ýmsa aðra þjónustu. Ennfremur
myndum við taka með okkur fáa
starfsmenn og treysta því að fá
heimamenn til starfa fyrir okkur.
Það gæti verið eitthvað af ungu
fólki, sem hefði áhuga á að læra
inn á þessa flugflutninga og það
kæmi til greina að kenna því starfið.
Við munum setja upp tölvukerfi
okkar hér á landi, sem tengir sam-
an allar skrifstofur Flying Tigers
og veitir aðgöngu að áætlunum
annarra flugfélaga og ennfremur
verðum við með nokkra flugvirkja
en reiknum með að þurfa allnokkra
þjónustu frá Flúgleiðum á jörðu
niðri. Yfirmenn viðhalds- og tækni-
deildar okkar í Evrópu em komnir
til landsins til að ræða ýmis mál
af þessu tagi við Flugleiðir og munu
meðal annars vinna á Keflavíkur-
flugvelli til að kynna sér aðstöðuna.
Við emm ennfremur að huga að
aðstöðu fyrir okkur og fólk okkar
á vellinum og höfum mætt mikilli
góðvild.
Við höfum mikinn áhuga á því
að fá leyfi til þessara flutninga.
Við æskjum leyfís fyrir fragtflug,
ekki aðeins frá Keflavík til Asíu og
baka, heldur höfum við einnig
áhuga á flugi milli Keflavíkur og
Evrópu. Það er viðkvæmt mál
vegna hagsmuna Flugleiða. Við
bjóðumst hins vegar til samvinnu
við Flugleiðir. Við höfum mikla
flutningagetu og möguleika til sam-
ræmdra flutninga með Flugleiðum
eins og við höfum gert með mörgum
öðmm flugfélögum. Með því móti
gætum við veitt þeim aðgang að
ákveðnu rými í flugvélum okkar,
sem þeir gætu selt viðskiptavinum
sínum. Formlegar viðræður um
samstarf af þessu tagi em ekki
hafnar, en við höfum þegar sent
þeim tilboð þess efnis og bíðum nú
svars.
Mér skilst að talað hafi verið um
flutningafríhöfn í Keflavík áður.
Það kemur hugmyndum okkar ekk-
ert við, en ég held samt sem áður
að slík fríhöfn hér yrði öllum aðilum
til hagsbóta. Fragtfríhafnir em
reknar víða um heim með góðum
árangri, það eykur umferðina og
flutninga, en er ekki skilyrði af
okkar hálfu.
Við flytjum nánast allt, sem
kemst um borð í flugvélar okkar.
Við flytjum mikið af hátæknibúnaði
frá Asíu til Evrópu. Þá flutninga
gætum við fært til Keflavíkur. og
gefið Flugleiðum kost á að flytja
þetta áfram til Evrópu. Við höfum
mikinn áhuga á fiskflutningum,
sem við teljum mikla framtíð í. Við
munum geta tryggt íslendingum
vemlega flutninga á fiski til Japans
og hugsanlega til Evrópu. Við flytj-
um mjög mikið að lifandi dýmm,
sérstaklega nautgripum og hross-
um. A síðasta ári flugum við með
4.000 nautgripi, aðallega frá Dan-
mörku og Þýzkalandi, til Kína. Við
flytjum mjög mikið af reiðhestum
og sláturhrossum og munum geta
flutt hesta héðan, fáum við leyfi til
þess.
Við emm með reglubundið flug
um allar heimsálfur nema Afríku.
Við emm einnig með alþjóðlegt
leiguflug, leigjum Bandaríkjastjórn
tvær Boeing 747 til flutninga á
fólki á vegum hersins um heiminn.
Við eigum 20 747-flutningavélar, 6
DC-873F-flutningavélar með hljóð-
látum hreyflum og 11 Boeing 727-
flutningavélar, sem eingöngu em
notaðar innan Bandaríkjanna.
Flugfélagið var stofnað 1945 af
flugmönnum sem upphaflega flugu
fyrir Kína í innrás Japana fyrir fyrri
heimsstyijöldina. í fyrri heimsstyij-
öldinni gengu þeir í bandaríska
flugherinn og flugu sem omstuflug-
menn til loka þeirrar seinni. Þeir
hófu þá starfsemina á notaðri vél
frá Long Beach í Kalifomíu og
fluttu þá meðal annars jarðarber
og varahluti í bíla. I dag er þetta
meira en eins milljarðs dollara fyrir-
tæki, sem gefur mjög vel af sér,
og leggjum mikla áherzlu á öflun
nýrra verkefna til að viðhalda vexti
okkar,“ sagði Burt Hubbs. HG
silUJ jXWil.líU.UIf.U-lJ.li.WiM'íi'láailÍíiíJáJiJíí