Morgunblaðið - 31.05.1988, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 31. MAÍ 1988
23
Ungur Indverji - á leið út i ótrausta tilveru.
Indveijar á Fídjí - að vera eða fara?
Hlutskipti Indveija á Fídjí er
vissulega ekki öfundsvert en þess
er þó að gæta að þeim hefur ekki
verið gert að koma sér úr landi eins
og t.d. í Uganda forðum. Og það
er ekki heldur um að ræða ofsókn-
arherferð á hendur þeim þó skiiin
hafi skerpst milli kynþáttanna. Þeir
geta verið áfram uppá sömu skil-
mála og hingaðtil: að Fídjar ráði
sjálfir sínu foma heimalandi.
Vandinn er sá að Indverjinn sem
fæddir eru á Fidjí og hafa búið þar
kynslóðum saman líta einnig á eyj-
amar sem sitt heimaland, enda
þótt þeir lifi og hugsi eins og megin-
lands-Indveijar. Og nú em þeir
orðnir fleiri og finnst þeir eigi að
ráða meiru. Hugmyndin um að
meirihlutinn ráði er reyndar ekki
sprottin uppúr indverskum hugsun-
arhætti og hefur átt erfiða æsku á
Indlandi sjálfu. Þar á að heita ein-
hverskonar lýðræði en er öllu held-
ur arfgengt í flölskylduveldi: Maður
hét Nehm, hans dóttir Indira, sonur
hennar Rajiv ... Varla hafa þeir
átt von á því að Fídjar létu möglun-
arlaust landið af hendi fyrir eina
vestræna hugmynd, sem að auki
var þröngvað upp á þá eins og
bæði kristninni og Indveijunum
sjálfur.
Herinn sem hundur
Þegar herir fremja valdarán
koma manni ósjálfrátt og ekki
ástæðulaus í hug: öfgamenn, fasist-
ar og juntur, ofsóknir, pyntingar,
aftökur. En þó ýmis mannréttindi
hafi verið skert á Fídjí, varðhald
án dóms og iaga, blöð f útgáfu-
banni o.fl. Þá hefur ekki heyrst um
bióðsúthellingar eða pyntingar og
ekki þarf valdarán til þess að brot-
ist sé inn í búðir, þó það hjálpi sjálf-
sagt til. Hér em alit aðrar forsend-
ur en í Suður-Ameríku.
Hér er ekki teflt um einkahags-
muni Öfgaklfku heldur tilvemrétt
menningar og þjóðar í landi feðr-
anna.
Þó Rabúka herforingi hafi geng-
ið fram fyrir skjöldu er lítill vafi á
því að hann var handbendi höfð-
ingjavaldsins. Bakvið hann stóðu
bæði Mara og Ganilau enda þótt
þeir yrðu að mótmæla uppátækinu
af diplómatfskri tillitssemi við um-
heiminn.
Þeir era reyndar komnir aftur til
valda báðir tveir og nú er að sjá
hvort hundurinn; herinn, lætur loka
sig aftur inni eftir að hafa bragðað
á bitbeini valdsins.
Að lifa eða lenda á safni
Fídjar þurfa ekki langt að ieita
til þess að sjá hvemig fer þegar
þjóðflokkur missir undirtökin í landi
sínu; verður homreka heima hjá
sér. Dæmin em enn að gerast allt
í kring. Á nágrannaeyjunum Nýju-
Kalidóníu sitja Frakkar á bræðmm
fídja, Kanökum, og beija niður allar
sjálfstæðisgrillur með 15.000
manna her. Hinumegin í hafinu, í
svokallaðri „frönsku“ Pólýnesíu, er
sú rómantíska þjóð aftur á ferð og
dælir peningum og efnahagslegum
haltukjafti-brjóstsykmm f bams-
lega einfalda fbúana. Sem er nógu
slæmt útaf fyrir sig þó þeir létu
vera að eitra fyrir þeim og okkur
öllum, með atómúrgangi.
í „landi tækifæranna" hafa yfir
hundrað Aborgínar, frumbyggjar
Ástralíu, fundist hengdir eða á ann-
an hátt „sjálfdauðir" í fangaklefum
lögreglunnar á fáeinum ámm. Ráð-
þrota skilningsvana stjórnvöld hafa
nú loks skipað nefnd...
Þetta em dæmi úr sögu Kyrra-
hafs dagsins í dag.
Nær okkur í Norður-Atlantshafi
em eyjar Karfbahafsins. Margaug-
lýstar sólbaðsparadfsar. Þar búa
svertingar, afkomendur innfluttra
þræla frá Afríku og annast með
hangandi hendi — já sumir tala um
kynþáttafordóma með öfugu for-
merki — misjafnlega lífsglaða hóp-
ferðamenn. Verra gæti það svosem
verið! En hvað er orðið um sjálfa
Karíbana (sem hafið heitir eftir) og
Arawakana, indjánaættbálkana
sem bjuggu þama áður, og létu
ekki beisla sig og brúka á ökmnum
eins og Fidjar?
Eitthvað má færðast um þá í
söfnum nýlenduveldanna, innan um
geirfugla og aðrar minjar.
Umsátur innanfrá
Það var þungur gangur í Suva,
höfuðborg Fídjí þegar ég kom þang-
að í október. Við helstu umferðar-
leiðir vom göddóttir vegatálmar
sem ökumenn fóm varfæmislega í
gegnum, bfll fyrir bíl, eins og tor-
tryggnar skepnur eftir ábendingum
með byssuhlaupum.
Grænflekkóttir hermenn í felu-
búningum fmmskógarins skám sig
skarpt úr innan um venjulega bíla
og borgara. Ekki var þorandi að
miða á þá myndavél. Bæði var það
bannað og hver vissi nema þeir
væri spenntir á taugum niðri undir
vel öguðu yfirborðinu. Þrautþjálfað-
ir með finguma á gikkjunum. Mað-
ur réttir ekki höndina að ókunnug-
um hundi.
Andrúmsloftið í bænum er ein-
kennilega tvíbent, þó flestir láti eins
og ekkert hafi í skorist. Meirihluti
fólks á miðbæjargötunum em Ind-
veijar og manni finnst þeir eins og
dálítið hnuggnir og umkomulausir.
Sums staðar, sérstaklega við mark-
aðinn og umferðarmiðstöðina ba-
kvið hann, hanga smáhópar ungra
Ffdja, hafast ekki að en sýnast til
í tuskið ef tækifæri býðst. Maður
þykist jafnvel greina glaðhlakka-
lega eftirvæntingu undir svölu fas-
inu. Þetta er umsátur innanfrá, hér
ægir saman vinum og óvinum og
þama rangiar einstöku túristi eins
og heilög kýr og tekur við útmæl-
andi augnatillitum og afsakandi
brosum úr báðum herbúðum.
Það verður ekkert af fyrirhugðri
ferð gestsins á „Gullna drekann",
þann rómaða djammstað Suður-
hafsins. Herinn hefur skellt á út-
göngubanni á venjulegum ljósatíma
bifreiða og fólk reynir að ná heim
til sín fyrir skammvinnt rökkur
hitabeltisins.
Höfundur er í hnattsigiingu á
akútunni Kriu.
Kaupmannahöfn:
Móðurmálskennsla
íslenskra bama
Jónshúsi, Kaupmannahöfn.
VÍÐA Á Norðurlöndum pjóta
fslensk böm á skóla&ldri móður-
málskennslu. Einkum er hlúð að
fslenskukennslunni af skólayfir-
völdum f Svfþjóð og fara íslensku-
kennararair f sænska skóla og
kenna fslensku böraunum hveiju
á sfnum stað. Hér f Danmörku er
kennslan f 1—2 skólum f viðkom-
andi borg eftir veryulegan skól-
atfma og ráða foreldrar hvort
þeir koma með böra sfn þangað.
íslendingaskólinn f Kaupmanna-
höfn er í Bavnehöj- og Gladsaxe-
skólunum og em kenndar 4 kennslu-
stundir á föstudögum frá kl. 15.
Kennarar í Bavnehöj-skólanum f vet-
ur vom Sigurveig Sigurðardóttir og
Sigríður Siguijónsdóttir, en hin
síðamefiida flutti heim til íslands f
desember og tók Kristfn Oddsdóttir
Bonde við starfi hennar. Nemendur
þeirra em um 30 og koma sumir
þeirra langt að. í Gladsaxe kennir
Bjöm Þórðarson og em nemendur
hans u.þ.b. 15 talsins, flestir böm
námsmanna á Kagsaa-stúdentagarð-
inum.
Nýlega hélt íslendingaskólinn sýn-
ingu á veggspjöldum og myndum
baraanna í féalgsheimilinu í Húsi
Jóns Sigurðssonar og jafnframt lágu
frammi sýnishom af námsefni
gmnnskólastigsins, sem Náms-
gagnastofnun í Reykjavík hafði gefíð
til skólans. Námsefnissýnishomin
verða áfram til sýnis í bókasafni ís-
lendinga f Kaupmannahöfn, sem er
í Jónshúsi. Fjöldi foreldra skoðaði
sýninguna og ræddi við móðurmáls-
kennarana, sem þar vora til viðtals,
og var hið bezta gagn af, sem gjam-
an er um foreidradaga f skólum.
- G.L. Ásg.
. Morgunblaflið/Guðrún L. Ásgeirsdóttir
Dagný og Bára Björk nemendur í fslendingaskólanum í Kaup-
mannahöfn.
Glæsileg karlmannaföt
margir litir.
Klassísk snið og snið fyrir yngri menn.
Verð kr. 5.500,-,8.900,- og 9.900,-
Terylenebuxur kr. 1.395,-, 1.595,-, 1.795,- og
1.995,- teryl./ull/strech.
Gallabuxur kr. 895,- og 975,-, sandþvegnar kr. 875,-
Ný komið sumarbuxur, bíljakkar, bolir margar
gerðir, köflóttar skyrtur, peysuro.fi. ódýrt.
Andrés,
Skólavörðustíg 22a,
sími 18250.
Börn
verða
alltaf
börrr
EN ÞAU BREYTAST
LJÓSMYN0AST0FA
GU0MUN0UR KR JÓHANNESS0N
LAUGAVEG1178 SÍMI 689220
Vönduð vinna og góð þjónusta skiptir máli.
> E WflG E - =
l STAMFORD RAFALAR
Samford rafalar til
skipa og fyrir landvél-
artil afgreiðslu strax.
Hafið samband við
okkur.
Gott verð - áratuga
góð reynsla.
S. Stefánsson og Co. hf.y
Grandagarði 1b, símar 54331 og 27544.