Morgunblaðið - 31.05.1988, Blaðsíða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 31. MAÍ 1988
Morgunblaðið/Þorkeii Allur hópurinn, ásamt umboðsmönnum Morgunblaðsins á Vesturlandi, staddur fyrir utan Hótel Stykkis-
Grundfirðingarnir urðu næstum af skemmtuninni þvi viftureim slitn- hólm.
aði í langferðabíl þeirra.
á Hótel Stykkishólmi
MORGUNBLAÐIÐ hélt blaðburð-
arbömum sínum og umboðsmönn-
um af Vesturlandi veglega hátið
s.l. sunnudag 29. mai á Hótel
Stykkishólmi. Alls var búist við
um 65 bömum víðsvegar af Vest-
urlandi og fóra þau að týnast í
húsið um kl. 11. Til hát- iðarinnar
voru mætt 30 blaðburðarböra frá
Akranesi, 6 frá Borgamesi, 3 frá
Búðardal, 2 frá Hellissandi, 2 frá
Hólmavik, 3 frá Hvammstanga, 7
frá Ólafsvík, 2 frá Rifi, 8 frá
Stykkishólmi og 6 frá Grundar-
firði. Það bólaði þó hvergi á
Grundfirðingum en þegar leið að
hádegi komu þeir loks. Viftureim
hafði slitnað í bíl þeirra og tafið
ferðina.
Upp úr hádegi bauð Lilja Leifs-
dóttir, innheimtustjóri Morgunblaðs-
ins> alla velkomna og kynnti dag-
skrána. Hún sagði jafnframt að
markmið slíkrar hátíðar væri að efla
tengsl við blaðburðarböm og um-
boðsmenn úti á landi og, ekki síst,
að skemmta sér. Þá voru blaðburðar-
bömum afhentar Morgunblaðspeys-
ur svo ekki myndi væsa um þau í
nepjunni snemma á morgnana.
Að loknum hádegisverði, sem fór
hið besta fram, var boðið upp á
myndbandssýningu. Þar var starf-
semi Morgunblaðsins rakin frá því
frétt verður til þar til áskrifendur fá
blaðið sitt heim. Bömin fylgdust með
af athygli og fannst þeim greinilega
mikið til koma. Sérstaklega hrifust
bömin af prentsmiðjunni í Kringlunni
og þegar þau voru hvött til að heim-
sækja hana þegar þau ættu leið í
borgina, lýstu margir yfir að þeir
myndu ekki láta það tækifæri úr
greipum sér ganga.
Þá var komið að skemmtiatriði
hátíðarinnar. Ómar Ragnarsson og
undirleikari hans, Haukur Heiðar,
stigu á svið og sungu og fóru með
gamanmál við góðar undirtektir við-
staddra. Ómar fór hamförum í saln-
um, dansaði á borðum, gelti og gagg-
aði við hláturrokur áhorfenda. Böm-
in kunnu greinilega að meta
stólpagrín Ómars. Því næst stjómaði
Ómar spumingakeppni og voru veg-
leg verðlaun í boði en á meðan fund-
uðu umboðsmenn Morgunblaðsins á
Vesturlandi með Lilju Leifsdóttur
innheimtustjóra og Jóhönnu Víborg,
verkstjóra í afgreiðslu.
Um fimmleytið var hátíðinni svo
slitið og blaðburðarbömin héldu heim
á leið eftir skemmtilegan dag.
Skipulagningu hátíðarinnar ann-
aðist Hanna Björk Þrastardóttir.
Ekkert var gefið eftir í bjölluspurnmgunum.
Galvaskir Hólmarar ásamt um-
boðsmanni Morgunblaðsins á
Stykkishólmi, Erau Lárusdóttur.
Ómar Ragnarsson gekk ber-
serksgang á Hótel Stykkishólmi.
Stofnuð landsnefnd
um friðarfræðslu
og friðaruppeldi
Kampakátir Akuraesingar borða hamborgara og franskar.
STUÐNINGSHÓP um friðarupp-
eldi og Rauðakrossi íslands hefur
borist erindi frá WAO sem eru
samtök er vinna að velferð munað-
arlausra og yfirgefinna barna um
allan heim, þess efnis að hér á
landi sem og i öllum löndum heims
verði stofnuð landsnefnd um frið-
arfræðslu og friðaruppeldi.
f bréfi frá stuðningshópnum segir
m.a.: „Samtökin WAO leggja áherslu
á alþjóðlega samvinnu til að koma í
veg fyrir meginorsakir þess að böm
verði munaðarlaus og yfirgefin. Þar
sem stríð og ofbeldi eru þar efst á
blaði hafa samtökin ákveðið að reyna
að fá böm til að afneita stríði og
ofbeldi til lausnar á vandamálum og
leggja í stað þess áherslu á samvinnu
og friðsamlegar lausnir.
Tvær megin hindranir eru að þessu
marki en það eru leikfangavopn og
ofbeldi í fjölmiðlum og hafa samtök-
in WAO ákveðið að undirstrika þessa
þætti með tveggja vikna aðgerðum
sem hefjast þann 7.september 1988
með degi helguðum eyðingu leik-
fangavopna. Sá dagur verður upphaf
friðarleikfangaviku og f kjölfar henn-
ar kæmi friðarfjölmiðlavika fyrir
böm. Þessum aðgerðum á síðan að
ljúka með alþjóðlegum friðardegi
bama þann 20. september.
Þegar hafa verið stofnaðar lands-
nefndir í yfir 70 löndum. Samtökin
leggja á það áherslu að hver lands-
nefnd hafi mjög breiða þátttöku og
í henni eigi fulltrúa samtök, hreyf-
ingar, félög og stofnanir sem á ein-
hvem hátt geta haft áhrif á velferð
bama.“
Stuðningshópur um friðaruppeldi
og Rauðikross íslands vænta þess
að þeir sem hlut eiga að máli skilji
mikilvægi þessa erindis og tilnefni
einn fulltrúa fyrir sig til að vinna
að aðgerðum í haust og áframhald-
andi starfi. Svör óskast send í póst-
hólf 279, 121—Reykjvavík og verður
stofnfundur landsnefndar boðaður
síðar.
Bólusetning
gegn heila-
himnubólgu
Dr. L. Barretto frá Toronto
heldur erindi um árangur bólu-
setningar gegn Haemophilus
Influenzae, heilahimnubólgu, á
2ja mánaða böraum og eldri í
Kanada.
Fyrirlesturinn verður haldinn í
Domus Medica í dag, þriðjudag, kl.
17.30-19.00.
Allir sem starfa við ungbama- og
mæðraeftirlit em velkomnir.
Hátíð blaðburðarbama