Morgunblaðið - 31.05.1988, Síða 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 31. MAÍ 1988
Morgunblaðið/Einar Falur
Ms. Saltnes er eitt af stœrri skipum i íslenska skipaflotanum 6.000 smálestir að stærð og lítil von að
skipveijar heyrðu bank mannsins sem var lokaður inni fremst í skipinu.
Laumufarþegí frá Marokkó með Saltnesi til íslands:
Fannst fyrir tilvilj-
un nærri dauða en lífi
Er nú í vörslu Útlendingaeftirlitsins
og verður sendur til síns heima aftur
HÉR á iandi er nú í vörslu út-
lendingaeftirlitsins Marokkó-
búi sem gerðist laumufarþegi
með ms. Saltnesi og bíður hann
nú þess að verða fluttur aftur
til síns heima að sögn útlend-
ingaeftirlitsins. Maðurinn
laumaðist um borð f skipið í
heimabæ sínum Nador í Ma-
rokkó þann 2. eða 3. maí sl. og
ætlaði að komast með skipinu
til Noregs þar sem hann sagðist
eiga ættingja. Þrem dögum eft-
ir að skipið lagði í haf fannst
maðurinn fyrir tilviljun og var
þá aðframkominn af vosbúð.
Yfirvöld í Noregi hÖfðu ekki
áhuga á að taka við manninum
og urðu skipveijar þvi að sigla
með hann til íslands. Saltnesið
kom til Grundartanga á föstu-
daginn og hafði þá Marokkó-
búinn verið um borð í skipinu
f 25 daga frá þvf það lagði úr
höfn f Nador þann 3. maf sl.
Hér fer á eftir f stórum dráttum
frásögn eins skipveija, Guð-
mundar Þ. Guðbrandssonar,
bátsmanns, af gangi mála.
Ágúst ísfeld Agústsson, háseti
um borð í ms. Saltnesi, átti sér
einskis ills von að morgni föstu-
dagsins 6. maí þegar hann var
sendur fram undir bakka til að
undirbúa gólf undir málningu.
Ekki hafði Ágúst verið nema
nokkrar mínútur inni í bakkanum
þegar hann heyrði torkennilegt
uml, hann leit í kringum sig og
hugsaði sem svo að sennilega
væri bátsmaðurinn að stríða sér.
En í því er kallað veikri röddu
„Hei monsjör, hei monsjör!".
Ágúst leit í áttina sem röddin kom
úr og sér svart andlit stara á sig
úr myrkrinu. Hann rak upp skelf-
ingaróp og andlitið öskraði á móti
honum.
Ágúst tók síðan til fótanna,
hljóp út og skálkaði hurðina fasta
þegar hann hafði lokað henni á
eftir sér. Að því búnu hljóp hann
sem fætur toguðu aftur í og til-
kynnti bátsmanninum, Guðmundi
Þ. Guðbrandssyni, hvers hann
hefði orðið vísari.
Varð nú uppi fótur og 6t um
borð í skipinu og þegar farið var
aftur frammá fannst Marokkóbú-
inn aðframkominn við inngang-
Marokkóbúinn ásmt björgunarmanni sinum Ágústi ísfeld Ágústssyni
um borð f Saltnesinu á leiðinni til íslands.
Mikið magn af málingu var geymt undir bakkanum og lekur þynnis-
brúsi gerði loftið inni nærri óbærilegt.
Guðmundur Þ. Guðbrandsson bátsmaður á ms. Saltnesi við dyrnar
þar sem gengið er inn f bakkann. Hann heldur á röri sem Marokkó-
maðurinn notaði til að beija á hurðinni og má sjá merki þess á
henni efst til hægri.
Eðvarð Hreiðarsson háseti á staðnum þar sem Marokkómaðurinn
faldi sig.
inn, en þangað hafði hann skriðið
úr felustað sínum.
Greinilegt var á öllum um-
merkjum að maðurinn hafði gert
örvæntingarfulla tilraun til að láta
skipveija vita af sér með því að
beija í hurðina sem var skálkuð
utanfrá, en hann orðið að gefast
upp um síðir. Að sögn skipveija
var Marokkóbúinn illa á sig kom-
inn og óvíst hvort hann hefði þol-
að að vera lokaður inni í felustað
sínum alla leið til Noregs.
Menn hiupu til og náðu í mat
og drykk handa manninum, en
hann hélt engu niðri í fyrstu.
Hann jafnaði sig þó fljótlega, en
aftur kámaði gamanið þegar báts-
maðurinn kom eina ferðina
frammá. Þá taldi laumufarþeginn
að nú hefðu skipveijar kveðið upp
dauðadóm og sér yrði líklega kast-
að í sjóinn líkt og sögur hermdu
að gert væri við laumufarþega
sem fyndust í rússneskum,
grískum og tyrkneskum skipum.
Fór hann að hágráta, reif upp
veskið sitt og sýndi skipveijum
myndir af fjölskyldu sinni og baðst
vægðar. Skipveijar fullvissuðu
hann um að engin hætta væri á
ferðum og urðu þeir að bera hann
út úr bakkanum, en að sögn skip-
veija er það óvistlegasta vistar-
veran í öllu skipinu, ljóslaust og
vont loft vegna leks þynnisbrúsa.
Auk þess voru 500 lítrar af máln-
ingu geymdir undir bakkanum.
Þegar út á dekk kom og hvergi
sást til lands náði skelfíngin aftur
tökum á arabanum og hann greip
krampakenndu taki á björgunar-
mönnum sínum til að láta þá fínna
að ef þeir ætluðu að kasta honum
í sjóinn þá færu þeir með. En eft-
ir að hann hafði verið færður
undir þiljur og settur f' bað og
klæddur í hrein föt lofaði hann
Allah fyrir að senda þessa góðu
menn til að bjarga sér.
Þegar til Norges kom fékk
arabinn ekki landvistarleyfí og
þegar Saltnes hafði verið í tvo
daga í Bergen strauk hann frá
borði, en náðist af norsku lögregl-
unni og var eftir það lokaður inni
og varð skipafélagið að Ieggja
fram tryggingu vegna mannsins
á meðan Saltnesið var í Bergen.
Að sögn Guðmundar Þ. Guð-
brandssonar bátsmanns, sem
þessi frásögn er unnin eftir, var
Marokkóbúinn skipveijum oft erf-
iður, hann var uppstökkur og
heimtaði að þeir keyptu á sig föt,
skó og tóbak. Voru þeir því þeirri
stundu fegnastir þegar til íslands
var komið og lögreglan hafði tek-
ið manninn í sína vörslu. Frá
Grundartanga hélt Saltnesið síðan
áffarn ferð sinni og er nú á leið-
inni vestur um haf.
Byggingarnefnd Reykjavíkur:
Byggmgarleyfi
ráðhúss löglegt
Byggingamefnd Reykjavík-
ur hefur staðfest umsögn skrif-
stofustjóra borgarverkfræð-
ings um kæru ibúa við Tjamar-
götu á veitingu byggingarleyfis
ráðhússins. Samkvæmt um-
sögninni er leyfisveitingin í
fullu samræmi við lög og regl-
ur. Byggingamefnd staðfesti
umsögnina með þremur at-
kvæðum gegn tveimur. Hefur
henni nú verið vísað til félags-
málaráðherra og leggur bygg-
ingaraefnd tíl að ráðherra vísi
kærunni frá.
Ráðherra hefur nú einnig í
höndum umsögn skipulagsstjóm-
ar ríkisins um kæru Tjamar-
götubúa. Að sögn Stefáns Thors,
skipulagsstjóra, var meirihluti
fyrir því í skipulagsstjóm að
leggja til að ráðherra tæki kærana
ekki til greina.
Umsagnir byggingamefndar
og skipulagsstjómar era tilskildar
áður en ráðherra úrskurðar í
málinu. Að sögn Lára V. Júlíus-
dóttur, aðstoðarmanns félags-
málaráðherra, er málið nú í
vinnslu í ráðuneytinu, og óvíst er
hvenær úrskurðar ráðherra er að
vænta. Lára sagðist þó giska á
að það yrði innan viku.