Morgunblaðið - 31.05.1988, Page 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 31. MAÍ 1988
Ráðning háskólakennara
eftir Björn S.
Stefánsson
Ráðning í nýja stöðu lektors í
stjómmálafræði í félagsvísinda-
deild Háskóla íslands, hefur vakið
athygli almennings. Var það fyrir
það, að Hannes H. Gissurarson,
einn umsækjenda um stöðuna,
opinberaði tortryggni sína til
þriggja manna nefndar, sem fé-
lagsvísindadeild setti til að meta
hæfni umsækjenda, og hann rök-
studdi með því að hann hefði átt
í óvægilegum deilum við tvo
nefndarmannanna. Þá tilnefndi
rektor Háskólans fulltrúa sinn í
nefndina. Deildarforseti kvaðst
raunar helzt vilja fá í nefndina
erlendan mann, en ekki væri til-
tækur neinn útlendingur læs á
íslenzku. Deildin heimilaði nefnd-
inni að leita álits erlendra manna.
Hvomgt skildi ég í sjálfu sér sem
viðurkenningu á gagnrýni Hann-
esar, heldur svo að með því ætti
að eyða þeirri tortryggni, sem
hann kynni að hafa vakið með
almenningi. Hér skal skýrt frá því
hvemig fór og ályktað almennt
um fyrirkomulag ráðninga við
Háskóla íslands.
Margt draga fjölmiðlungar fram
fyrir augu og eym almennings,
en það kann að hafa farið fram
hjá þeim, að í níu manna hópi
umsækjenda og dómnefndar-
manna var einn og aðeins einn,
sem hafði fengið þá viðurkenningu
erlendis að teljast hæfur til að
gegna stöðu kennara í stjóm-
málafræði í háskóla, og er það sá,
er þetta ritar. Þessa frama var
getið á þremur stöðum í þeim
gögnum, sem ég sendi mennta-
málaráðuneytinu til kynningar, en
í áliti dómnefndar er þessa hæfnis-
dóms ekki getið.
Stjómmálafræði er fræðigrein í
örri þróun, og eins og gengur em
menn misnæmir á nýmælin. Ég
er sjálfmenntaður í greininni og
því óháður þeim hefðum, sem orð-
ið hafa til og mótazt á löngum
tíma. Fræðigreinin var upphaflega
fróðleikur um stjómarfar og þró-
aðist síðan til þess að skýra for-
sendur skipulags opinberra mála
og breytinga á þeim. Ég kom
þannig að greininni, að ég vildi
gera mér grein fyrir hvað það
væri, sem mótaði verksvið stjórn-
valda annars vegar og félaga og
einstaklinga hins vegar, og fór því
að rýna í rit stjórnmálafræðinga
um þau mál. Ég las rannsóknar-
skýrslu um eitt land og hlaut að
dást að, hvað höfundur gat bmgð-
ið upp glöggri mynd af kerfínu.
Svo las ég um annað land með
jafnsnjallri mynd. En þessar
glöggu myndir vom hvor annarri
óháðar og ekki til leiðsagnar um
næstu mynd eða um það, hvemig
lýsa mætti slíkum málum á ís-
landi. í stjómmálafræði reyndist
ekki vera notuð gmndvallaraðferð
til að greina, hvað það er, sem
heldur við og breytir stjómarfari,
því að hver höfundur hafði þar sín
eigin vinnubrögð. Þessi reynsla
mín kom kunningjum mínum,
norskum félagsvísindamönnum,
ekki á óvart. Þegar hin hefð-
bundna stjómmálafræði brást
mér, var ég svo heppinn að kynn-
ast betur öðm sviði þjóðfélags-
fræða, þar sem verið var að þróa
gmndvallaraðferð til þjóðfélags-
greiningar. Þar er fjallað um
stjómarfar á sama hátt og önnur
þjóðfélagsmál. Sá, sem nær tökum
á aðferðinni, er jafnvígur til rann-
sókna á stjómarfari og öðmm
sviðum þjóðfélagsins, en þekking-
in verður að sjálfsögðu háð því,
hvaða málum menn hafa sinnt.
Stjómmálafræði hefur þá ekki sér-
stöðu vegna vinnubragða og
hefða.
Því hefur verið haldið fram með
rökum, að þróun vísinda gerist
síður við það, að stuðningsmenn
fyrri kenninga fallist á nýjar kenn-
ingar, heldur frekar við að þeir
sem aðhylltust eldri kenningar,
hætti störfum og deyi. Á síðum
dagblaðs er varla fært að rökræða
dómnefndarálitið, sem er afhent
sem trúnaðarmál. Strax eftir að
álitið kom fram vom birtir kaflar
úr því, mér vitanlega óátalið. Hér
verður frekar skýrt frá því, sem
ekki er þar að lesa, en hinu, sem
þar stendur. í álitsgerðinni kemur
ekki fram, að dómnefnd hafi þann
gmndvallarskilning til að meta
verk, er að framan greinir, heldur
virðist dómnefnd vera bundin af
hefðum greinarinnar. Ekki er út-
skýrt, hvað sé merkilegt við þær
ritsmíðar, sem farið er viðurkenn-
ingarorðum um og höfðu raunar
áður fengið formlega viðurkenn-
ingu. Samhengi ritstarfanna yfir-
leitt er ekki kynnt með þeim skiln-
ingi, sem vísindamenn eiga, þegar
þeir fást við efni á því sviði sem
þeir hafa þjálfast á.
Ég hafði gert ráð fyrir því, að
hlutverk fulltrúa rektors Háskól-
ans í nefndinni yrði að eyða þeirri
tortryggni, sem upp hafði komið,
ekki sízt með því að framfylgja
því, að leitað yrði til erlendra
manna, eftir því sem kostur væri
og eins og heimilað var. Ekki verð-
ur séð í dómnefndarálitinu, að það
hafí verið gert á neinn hátt. Varð-
andi mig var einfalt að byija á
því að leita rökstuðnings þeirra
erlendra stjómmálafræðinga, sem
fjallað höfðu um verk mín í dóm-
nefnd og ég skýrði frá, en það var
látið vera. Eins hefðu þeir mátt
gera sér og öðrum grein fyrir því,
að prófessorsstaða sú, sem ég var
kallaður til að gegna við stofnun
Norðurlanda í skipulagsfræðum í
Stokkhólmi, var stjórnmálafræði-
leg, með ísland sem aðalviðfangs-
efni til samanburðar við önnur ríki
Norðurlanda, en samanburðar-
stjómmál var eitt þeirra þriggja
sviða, sem spurt var sérstaklega
um hæfni í í auglýsingu um stöð-
una. Eftirgrennslan hefði auðveld-
lega leitt í ljós, að til grundvallar
því að meta mig hæfan til að
gegna slíkri stöðu (um stundar-
sakir) var lögð álitsgerð þriggja
manna, samin af öðm tilefni. Tveir
þeirra vom prófessorar í stjóm-
málafræði, en sá þriðji prófessor
í félagsfræði.
Hin sérsviðin, sem spurt var um
hæfni í, vom ákvarðanaferli og
stofnanaþróun innan stjómkerfís-
ins og hegðun og viðhorf kjós-
enda. Ekki er gerð grein fyrir
því, að nokkrir tugir ritsmíða á
þeirri skrá sem fylgdi umsókninni,
varða þessi efni. Verður ekki sagt
um það hvort dómnefnd hefur átt-
að sig á því. Ýmis skilningsatriði
varðandi íslenzkt þjóðfélag, sem
þar er að finna, vom frumleg, en
urðu fyrr en varði eins og sjálf-
sagt mál. Til þess að meta slíkt
framlag er ekki nóg að vera fróð-
ur, heldur þarf þjálfað auga
vísindamanns til að greina kjama
málsins frá fróðlegum umbúðum.
— Það tók meira en ár að koma
dómnefndarálitinu saman og á
borð deildarmanna, en hálfum degi
síðar höfðu þeir afgreitt málið.
Þrátt fyrir þessar athugasemdir
ætla ég dómnefndarmönnum ekki
neina óhlutvendni. Af langri
reynslu er það skoðun mín, að
ráðning nýrra háskólakennara í
félagsvísindadeild fari fram líkast
því, sem tíðkaðist í iðngildum mið-
alda, og virðist þá ekki skipta
miklu máli, hveijir eru fengnir til
að sjá um formsatriðin hveiju
sinni: Meistarinn kennir nemunum
fræðin, brautskráir sveina og ræð-
ur síðan til starfa þá þeirra, sem
hann hefur dálæti á, og veitir þeim
smám saman aukin réttindi eftir
velþóknun sinni. Aðrir nýliðar
verða að hafa lært á sama hátt
og meistarinn. Hver meistari fær
að fara sínu fram í ráðningum,
ótruflaður af öðrum meisturum.
Brýn ástæða er til að endur-
skoða fyrirkomulag ráðninga við
Háskóla íslands. Finna þarf ráð
til þess að koma í veg fyrir, að
fræðigrein staðni vegna þess að
starfsmenn, sem forðast eins og
heitan eld þá, sem kynnu að
skyggja á þá með nýmælum,
stjómi í reynd ráðningum. Mér
sýnist koma til greina að færa
ábyrgðina á ráðningum frá við-
komandi fræðadeild og frá
menntamálaráðuneytinu til yfír-
stjómar Háskólans, sem mætti
kveðja menn til starfa að fengnum
ábendingum um þörfina fyrir að
Björn S. Stefánsson
„Finna þarf ráð til þess
að koma í veg fyrir, að
fræðigrein staðni
vegna þess að starf s-
menn, sem forðast eins
og heitan eld þá, sem
kynnu að skyggja á þá
með nýmælum, stjórni
í reynd ráðningum.“
stuðla að framþróun í viðkomandi
grein. Einnig kæmi til álita að
ákveða áður en staða er auglýst,
að hafa með í ráðum fulltrúa er-
lendrar vísindastofnunar. Enn-
fremur mundi það veita aðhald um
vinnubrögð að gera dómnefndará-
lit að opinberu máli. Til álita kæmi
að hafa heimild til að færa menn
á milli sviða. Sá, sem hefur þjóð-
félagsfræði almennt á valdi sínu,
getur með nokkrum fyrirvara fært
sig milli greina, svo sem félags-
fræði, stjómmálafræði, mann-
fræði og sögu og jafnvel fleiri
greina, einstakar greinar og sagn-
fræði, ogjafnvel fleiri greina (ein-
stakar greinar heimspeki og hag-
fræði). Mætti það „efla alla dáð“.
CC-6
CC-L
JÖFUR HF
NYBYLAVEGI2
KÓPAVOGI
SÍIVII 42600
vörubílahjólbarðar
Hagstætt verð og greiðslukjör.
Tökum fulla ábyrgð á gæðum hjólbarðanna.
Hjólbarðadeild opin 9-6 virka daga.
cc-y CC-IVI
Kaldsólaðir gæðahjólbarðar frá Hollandi.