Morgunblaðið - 31.05.1988, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 31. MAÍ 1988
5
Dómari á ekki
að víkja sæti
í Svefneyjamáli
Ríkið var
samþykkt
Egilsstöðum.
ALMENNAR kosningar um
heimild til að opna áfengisút-
sölu fóru fram á meðal bæj-
arbúa á Egilsstöðum á laugar-
dag og var það samþykkt með
54% greiddra atkvæða.
Á kjörskrá voru 883, 324 voru
samþykkir eða 54%, andvígir voru
273 eða 45%, einn seðill var auður
og einn ógildur. Þátttaka í kosn-
ingunum var 67,83%.
- Björn
Karpov vandar heimsmeistaran-
um Kasparov ekki kveðjumar í
viðtalinu. Aðspurður um hvort
þeir tefli saman á næstunni eftir
mótið í Amsterdam (sem lauk nú
um helgina með yfirburðasigri
Kasparovs) segir Karpov:
„Líklega, en það er aldrei hægt
að reiða sig á Kasparov. Áætlanir
hans breytast dag frá degi. Það
veit enginn hvort hann tekur þátt
í sovéska meistaramótinu sem
hefst þann 25. júlí. Hann hafði
skráð sig á mótið í Hollandi en
Frá Hjólreiðadeginum Morgunblaðið/ól.K M.
Góð þátttaka á Hjólreiðadagiim
HÆSTIRÉTTUR hefur fellt úr
gildi úrskurð Guðmundar L. Jó-
hannessonar, héraðsdómara í
Hafnarfirði, um að honum beri
Islenskt
bygg til
manneldis
á markað
Selfossi.
MALAÐ íslenskt bygg til manneld-
is er væntanlegt á markað i þess-
ari viku. Það verður selt í mat-
vöruverslunum og í svonefndum
heilsubúðum.
Byggið er frá Þorvaldseyri í Aust-
ur-Eyjaflallahreppi, grófmalað og
ætlað til dæmis til að setja út á súr-
mjólk. Rannsóknir á bygginu sýna
að í því eru engin óæskileg efni og
að það er algjörlega ómenguð vara.
- Sig Jóns.
„JÓHANN Hjartarson er skák-
maður í örri framför. Hann er
ætíð vel undirbúinn og ég mun
taka einvígið mjög alvarlega,"
sagði Anatolíj Karpov, fyrrver-
andi heimsmeistari í skák, í við-
tali við þýska skáktimaritið Die
Schachwoche þegar hann var
spurður hvemig honum litist á
andstæðing sinn í næstu umferð
áskorendaeinvígjanna.
En hvemig lýst Karpov á að
tefla í Seattle? „Það var boðið upp
á tvö lönd, Bandaríkin og Island.
Ég hefði ekkert haft á móti ís-
landi en upphaflega dagsetningin,
þ.e.a.s. í ágúst, var óhentug vegna
sovéska meistaramótsins. Ég gat
heldur ekki fallist á að tefla á Is-
landi í janúar vegna kuldans."
að víkja sæti í svokölluðu Svefn-
eyjamáli. Guðmundur mun þvi
fara með málið og dæma í þvi.
Verjandi sakbomings í Svefn-
eyjamálinu lagði fram þá kröfu
þann 13. apríl sl. að Guðmundur
viki sæti vegna ummæla hans um
málið í sjónvarpi. Guðmundur ákvað
þann 19. apríl að víkja sæti, en
ekki vegna ummæla sinna, heldur
vegna ummæla móður eins af böm-
unum, sem hlut eiga að máli. Guð-
mundur taldi, að ummæli konunnar
um sig hefðu verið ærumeiðandi og
móðgandi og hann kynni að eiga'
skaðabótakröfu á hendur konunni.
Það gerði hann vanhæfan til að
fara með málið.
Þessum úrskurði skaut ríkissak-
sókneui til Hæstaréttar og krafðist
þess að honum yrði hrundið og
héraðsdómaranum lýst rétt og skylt
að fara með og dæma málið. Hæsti-
réttur komst að þeirri niðurstöðu
að skammaryrði um dómara geri
hann almennt ekki vanhæfan til að
fara með mál og gæti ella hver sem
er gert dómara vanhæfan með því
að níða hann. Samkvæmt þessu
bæri að fella hinn kærða úrskurð
úr gildi.
skráði sig úr því aftur og svo er
hann með eftir allt saman.“
Hjólreiðadagnrinn „Hjólað í
þágu fatlaðra ’88“ var haldinn
sl. sunnudag. Þátttaka var mik-
il, 3.200 manns hjóluðu að
Kringlunni, frá átta skólum í
Reykjavík og Kópavogi.
Það voru Kringlan og íþrótta-
félag fatlaðra sem stóðu fyrir Hjól-
reiðadeginum að þessu sinni.
Kvennadeild Styrktarfélags lam-
aðra og fatlaðra stóð fyrir slíkum
degi árlega frá 1981—85, og þær
aðstoðuðu einnig við framkvæmd-
ina í ár.
Að sögn Magnúsar Pálssonar,
framkvæmdastjóra Hjólreiðadags-
ins, gekk dagurinn mjög vel, eng-
in slys eða óhöpp urðu. Lagt var
af stað frá átta stöðum og hjóluðu
hjúkrunarfræðingar aftast í hveij-
um hóp til öryggis. Síðan var safn-
ast saman á efra bílastæði Kringl-
unnar, þar sem Magnús Kjartans-
son lék létta “hjólreiðatónlist" og
þátttakendur og gestir þágu veit-
ingar. Allir þátttakendur fengu
barmmerki, sem gilti sem happ-
drættismiði, í viðurkenningar-
skyni.
Magnús vildi koma á framfæri
þakklæti til allra sem aðstoðuðu
við framkvæmd dagsins, einkum
iögreglunnar, sem hann kvað hafa
staðið sig mjög vel. „Þetta gekk
alit eins og í sögu og ailir vorii
mjög jákvæðir, ekki sist hinir fötl-
uðu, sem fylltu mann aðdáun",
sagði Magnús að lokum.
Valkostur vandlátra
Of kalt á Islandi
- segir Anatolíj Karpov
Beinskiptur, 5 gíra eða 4 gíra, sjálfskiptur, vökvastýri.
Vél 16 ventla, 1,4 I, 90 hestöfl, 2ja blöndunga.
(H) HONDA Á ÍSLANDI,
VATNAGÖRÐUM 24, S. 689900.