Morgunblaðið - 25.03.1988, Síða 54

Morgunblaðið - 25.03.1988, Síða 54
54 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 25. MARZ 1988 t Móðir okkar og tengdamóðir, KRISTÍN TEITSDÓTTIR frá Móum, lést 12. mars. Útförin hefur farið fram. Kristín Guðmundsdóttir, Sigríður Ólafsdóttir, Unnur Andrésdóttir, Guðmundur Guðmundsson, Teitur Guömundsson, Rúna Guðmundsdóttir, Magnús Guðmundsson. t Elskuleg systir okkar, JÓHANNA Þ. EINARSDÓTTIR, Hverfisgötu 16, andaðist í Landspítalanum miðvikudaginn 23. mars. Jarðarförin auglýst síðar. Kristin G. Einarsdóttir, SigurðurG. Einarsson. t Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, GEORG SKÆRINGSSON, Skólavegi 32, Vestmannaeyjum, sem andaðist í Vífilsstaðaspítala miðvikudaginn 16. mars, verður jarðsunginn frá Landakirkju, Vestmannaeyjum, kl. 14.00 laugar- daginn 26. mars. Fyrir mína hönd og annarra aöstandenda. Sigurbára Sigurðardóttir. Olöf K. Guðbrands- dóttir — Minning Fædd 2. maí 1919 Dáin 21. mars 1988 Með þessum fáu orðum viljum við koma á framfæri þakklæti okk- ar til Lóu, eins og hún alltaf var kölluð, fyrir um 30 ára samfylgd. Fyrstu kynnin hófust þegar hún tókst á hendur umsjón með heimili föður míns, Ólafs Hólm Theodórs- sonar. Heimilið var í sárum eftir •fráfall húsmóðurinnar og hlutverk hennar ekki alltaf auðvelt. Þann 12. júlí 1958 giftust Lóa og Ólafur og lifðu í farsælu hjónabandi allt þar til hann lést í júlí 1972. Eignuð- ust þau einn son, Eyþór Harald, rafmagnsverkfræðing, sem var ungur að árum þegar faðirinn féll frá. Með þrotlausu starfí og fyrir- hyggju kom Lóa syninum til mennta. Eyþór býr í Reykjavík með Unni Kjartansdóttur og eiga þau einn son, Kjartan Má, sem var sann- ur augasteinn ömmunnar, en ein- mitt í því hlutverki naut Lóa sín hvað best. Fyrir átti Lóa eina dótt- ir, Jóhönnu Dóru Þorgilsdóttur, sem er hjúkrunarfræðingur og einnig búsett hér í Reykjavík. Synir Dóru eru Unnar Gils og Kristbjöm sem sjá nú á eftir ömmunni sem alltaf var vakandi yfír velferð þeirra. Lóa fæddist 2. maí 1919 að Jörfa í Haukadal, Dalasýslu, dóttir hjón- anna Ingibjargar Daðadóttur og Guðbrandar Amasonar sem þar stunduðu búskap. Átthagamir voru Lóu alltaf hugstæðir og þó ferðim- ar hafí ekki verið margar þangað síðustu árin ræddi hún þeim mun oftar um æskuárin heima. Lóa var ein af sex systkinum. Eftir að Lóa flutti til Reykjavíkur, um tvitugt, vann hún ýmis störf og lengst hef- ur hún unnið við ræstingar á hús- næði Eimskips. Hlýlegt heimilí hennar í Keldulandi 17 ber vitni um einstaka eljusemi húsmóðurinn- ar. Lóu féll aldrei verk úr hendi og þær em margar lopapeysumar sem hún hefur pijónað. Nutu ættingjar oft góðs af greiðasemi hennar og var hún óspör á að gefa peysur sem bám meistara sínum gott vitni. Sama má segja um útsaum og aðr- ar hannyrðir. Lóa flíkaði ekki tilfínningum sínum og hafði ekki of mörg orð um hlutina, þó duldist það engum sem henni kjmntust að ekki var djúpt á hlýju hjartanu sem sló und- ir og létt er að minnast gleði henn- ar í góðra vina hópi. Hún stóð sem klettur að baki bömum sínum og vinum jafnt í gleði og sorg. Það er okkur ljúft, nú þegar leið- ir skilja um stundarsakir, að þakka Lóu fyrir samfylgdina, þakka henni fyrir öll árin sem hún hlúði með ást og umhyggju að föður mínum, Ólafí, en hann lét það óspart í ljós hvað hún var honum kær og mátti sjá að hjónaband þeirra var byggt á traustum grunni. Lóa reyndist okkur systkinum sem besta móðir. Ekki síst viljum við þakka fyrir son okkar, Ólaf Þóri, sem dvelur við nám erlendis og getur ekki fylgt Lóu ömmu, þakkað er fyrir allar góðu stundimar sem hann átti hjá henni. Ólafur ber nafn afa síns og ekki er laust við að hann hafí notið þess sérstaklega í hlýju og kærleik ömmunnar. Guð blessi Lóu og afkomendur hennar. „Far þú í friði, friður guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt Gekkst þú með guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðar hnoss þú hljóta skalt." (Vald. Briem.) Útförin fer fram frá Bústaða- kirkju í dag, föstudaginn 25. mars, kl. 13.30. Blessuð sé minning góðrar konu. Guðrún Ólafsdóttir og Hersir Oddsson. raðauglýsingar — raðauglýsingar — raðauglýsingar Vestmannaeyjar Uppbygging menntunar í Vest- mannaeyjum Kjördæmisráð Sjálf- stæðisflokksins í Suðurlandskjör- dæmi boðar til op- ins fundar um skóla- mál í Vestmannaeyj- um 26. mars nk. kl. 15.30 i Hótel Þórs- hamri. Framsögumenn: Birgir ísleifur Gunn- arsson, mennta- málaráðherra. Helga Jónsdóttir, bæjarfulltrúi. Ámi Johnsen. Að joknum framsöguræðum verða almennar umræður. Kjördæmisráð Sjálfstæðisflokksins i Suðurlandskjördæmi. Frá húsnæðismálanefnd Sjálfstæðisflokksins Hver verður framtíðar- skipan húsnæðismála? Fundur verður hald- inn mánudaginn 28. mars nk. kl. 17.00 i Valhöll. Rætt verður um endurskoðun hús- næðislaganna, kaupleigufrumvarp- ið o.fl. Allt áhugafólk vel- komið. Geir H. Haarde, alþingismaður. Maria E. Ingvadóttir, formaður nefndarinnar. Seltirningar! Munið opna húsið okkar föstudagskvöldið 25. mars kl. 21.00 á Aust- urströnd 3. Þá ætlum við að hittast, spjalla saman og eiga góða kvöldstund. Veitingar. Allir velkomnir. Sjálfstæðisfélag Seltirninga. Hl Þingfulltrúar á aukaþingi SUS Aukaþing Sambands ungra sjálfstæðismanna verður sett í félags- heimilinu við Heiðarveg í Vestmannaeyjum föstudaginn 25. mars. Dagskrá þingsins verður eftlrfarandi: Föstudagur 25. mars: 18.15 Þingsetning. Ávörp flytja Árni Sigfússon, formaður SUS og Þorsteinn Pálsson, formaður Sjálfstæðisflokksins. 18.45 Fyrsti fundur verkefnisstjórna: Verkefnisstjórnir funda hver , í sínu lagi. Niðurstöður starfsins i vetur kynntar fyrir áhugahóp- um. Umræður. 21.00 Sameinglnlegur fundur. Ávörp flytja Drifa Hjartardóttir, Krist- inn Pétursson, Ámi Johnsen og Arnbjörg Sveinsdóttir. 22.00 Kvöldvalca í félagsheimilinu - skemmtiatriði frá hverju kjördæmi. 24.00 Kvöldvöku lýkur. Laugardagur 26. mars: 09.00 Samelginlegur fundur. Niðurstöður skoðanakönnunar, sem Skáís gerði fyrir SUS laugardaginn 19. mars, kynntar. Verkefn- isstjórar kynna ályktunardrög hópanna og hugmyndir um framkvæmdaleiðir. 11.00 Annar fundur verkefnisstjórna. Lokayfirferð ályktana - rætt um leiðir til framkvæmda. 12.30 Hádegisveröur. 14.00 Sameiginlegur fundur. Ávörp flytja Vilhjálmur Egilsson, Geir H. Haarde, Sturla Böðvarsson, Tómas Ingi Olrich og Einar Kr. Quðfinnsson. 15.00 Sameiginlegur fundur. Afgreiðsla ályktana. 17.00 Aimennar umræður um vinnubrögð SUS og framkvæmd hugmynda. 20.00 Kvöldverður á veitingahúsinu Muninn i Hótel Þórshamri. Snyrtilegur en óformlegur klæðnaður. Menn séu viðbúnir úti- veru þar sem... Þingslit verða að kvöldverði loknum á Stakkagerðistúni við varðeld og flugeldaskot ef veður leyfir. Allir sameiginlegir fundir eru haldnir f félagsheimilinu við Heiðarveg. Fundir i verkefnishópunum eru bæði í félagsheimilinu og Hamars- skóla. Þingfulltrúar eru minntir á brottfarartíma frá Reykjavík með Flugleið- um kl. 14.15 og 17.20 á föstudag, mæting hálftima fyrr. Herjólfur fer frá Þorlákshöfn kl. 12.30 á föstudag, rúta til Þorlákshafnar legg- ur upp frá Umferðarmiðstöðinni kl. 11.00. Skráning fer fram i félagsheimilinu við Heiðarveg. Munið að kvöld- verður á laugardagskvöldinu er innifalinn f þinggjaldi, sem er kr. 1.950,-. Sjáumst á SUS-þingil- Framkvæmdastjórn. landbúnaði - Flúðir: Sóknarmöguleikar i fullvinnsla í héraði - styrkari staða til sveita Kjördæmisráð Sjálf- stæðisflokksins í Suöurlandskjör- dæmi boðar til al- menns fundar um möguleika i land- búnaði, fullvinnslu og eflingu byggðar í sveitum. Fundurinn verður í Félags- heimilinu á Flúðum mánudagskvöldið 28. mars nk. kl. 21.00. Framsögumenn: Kolbeinn Ingi Kristinsson, framkvæmdastjóri. Birgir Guðmundsson, mjólkurbússtjóri. Jóhannes Gunnarsson, formaður Neytendasamtakanna. Sigmar B. Hauksson. Jónas Þór Jónasson, kjötiðnaðarmaður. Eggert Haukdal, alþingismaður. Að loknum framsöguræðum verða almennar umræður. Kjördæmisráð Sjálfstæðisflokksins á Suðurlandi. •S Vesturland - Vesturland Landssamband sjálfstæðiskvenna boðar til almenns stjórnmálafundar í Hótel Borgar- nesi laugardaginn 26. mars 1988 kl. 13.30. Dagskrá fundarins: Starf Landssambands sjálfstæðiskvenna: Þórunn Gestsdóttir, formaður. Byggðamál: Eygló Bjamadóttir, formaður sjálfstæðisfélagsins Skjaldar, Stykkishólmi. Sigríður A. Þórðardóttir, oddviti, Grundarfirði. Fylgl kvenna við SJálfstœðisflokklnn: Inga Jóna Þórðardóttir, formaður framkvæmda- stjórnar Sjálfstæðisflokksins. Fundurinn er öllum opinn. Stjórnarfundur Landssambands sjálfstæð- iskvenna verður haldinn fyrir hádegi á sama stað. Rútuferð frá Reykjavfk (Valhöll) kl. 8.30. Landssamband sjálfstæðiskvenna.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.