Morgunblaðið - 25.03.1988, Page 32
32
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 25. MARZ 1988
Armenía:
Yfirlýsing stj órn-
valda vekur spennu
Reuter
Inngangur bankans var illa leikinn eftir að ræningjamir óku 19
tonna vömbifreið inn f anddyri hans.
Frakkland:
Oku inn í banka á
19 tonna vörubíl
París, Reuter.
HÓPUR vopnaðra manna réðst í
gær inn í banka f útborg Parfsar
á sérkennilegan hátt og rændi
hann. Óku ræningjamir 19 tonna
vörubíl inn f anddyri bankans.
Höfðu þeir á brott með sér pen-
ingaskáp í heilu lagi. Notuðu
þeir færivindu til þess að rífa
hann lausan.
Lögreglan í bænum Rungis þar
sem ránið var framið segir að árás-
armennimir hafí verið sex grímu-
klæddir menn sem báru byssur.
Þeir rotuðu vaktmann bankans og
bundu hann við stól áður en þeir
fóru á brott. Peningaskápurinn
fannst hálfopinn skammt frá bank-
anum og einnig vömbílinn. Ekki er
vitað hversu mikið ræningjamir
höfðu uppúr krafsinu.
Moskvu, Reuter.
SPENNA ríkti f gær f höfuðborg
Nagorao-Karabakh, Stepana-
kert, eftir að sovésk stjóravöld
höfðu gefið út yfirlýsingu, þar
sem varað var við frekari róst-
um, að því er háttsettur starfs-
maður dagblaðsins Sovietskfj
Karabakh sagði f sfmaviðtali við
fréttamann Reuters. Hann sagði
að þótt íbúar Nagomo-Karabakh
hefðu sýnt stillingu, hefðu þeir
ekki tekið viðbrögðum sovéskra
stjórnvalda vel.
„Eðlilegt ástand ríkir í höfuðborg-
inni, en íbúamir skiptast á skoðun-
um. Þeir taka ákvörðuninni ekki
mjög vel,“ sagði fréttamaðurinn
meðal annars. íbúi höfuðborgarinn-
ar gaf í skyn að borgarbúum hefði
hitnað í hamsi. Aðspurður um við-
brögð þeirra sagði hann: „Ég veit
það ekki, en hér ríkir engin ró.“
í yfírlýsingu forsætisnefndar
Æðstaráðs Sovétríkjanna, sem gef-
in var út á miðvikudag, segir að
það sé óviðunandi að sjálfskipaðir
hópar taki að sér að ráðskast með
landamærin, og það geti haft mjög
alvariegar afleiðingar. Áður hafði
héraðsráð Nagomo-Karabakh sam-
þykkt tillögu um að héraðið yrði
sameinað Armeníu, og farið yrði
fram á við sovésk stjómvöld að
landamærum yrði breytt.
Pera dagsins í dag
DULUX' EL
80% orkusparnaður dæmi:
'
w
7 W
11 W
15 W
20 W
OSRAM
JÓHANN ÓLAFSSON & CO.HF.
43Sundaborg 13-104Reykjavík-Sími688 588
Friðsamlegt í Jerevan
Talsmenn opinbem fréttastof-
unnar í Jerevan sögðu í gær að
friðsamlegt væri í höfuðborg Arm-
eníu og íbúamir hefðu tekið ákvörð-
uninni með skilningi. Armenar í
Moskvu sögðu hins vegar að með
því að hundsa kröfur þeirra hundruð
þúsunda Armena, sem hefðu farið
í kröfugöngur í Jerevan á liðnum
mánuði, kölluðu sovésk yfírvöld yfír
sig frekari mótmæli. „Þótt Armenar
hafí mótmælt friðsamlega og Az-
erbaijanar hafí drepið fjölda manna,
var farið með þá sem jafningja,"
sagði armenskur vísindamaður sem
býr í Moskvu. „Þetta á örugglega
eftir að valda mikilli reiði meðal
Armena. Þetta er ekki réttlæti,"
bætti hann við. Sovéskir embættis-
menn segja að 32 Armenar hafi
fallið í Sumgajt 28. febrúar, og
Armenar líta á drápin sem skipu-
lagðar ofsóknir.
Ítalía:
• p
Hjonaband ögilt
vegna fíkniefna-
neyslu brúðar
Frá Bryqju Tomer fréttaritara Morgunblaðsins.
NOKKUÐ sérstakt mál hefur
komið upp í borginni Padova á
Ítalíu. 2. júnf 1984 létu karl og
kona gefa sig saman hjá borgar-
dómara, en hjónabandið hefur
nú verið dæmt ógilt að ósk brúð-
arinnar. Ástæðan er sú að hún
var undir áhrifum eiturlyfja
þegar athöfnin fór fram, og var
þvl ekki meðvituð um eigin
gjörðir.
„Ég hafði verið fíknefnaneytandi
um skeið áður en ég gifti mig, hafði
verið í meðferð vegna þéssa vanda-
máls og hafði sterk fráhvarfsein-
kenni," segir Francesca Ruffato sem
2. júní 1984 giftist Massimo Galiaz-
zo. Bæði voru þau eiturlyfjaneyt-
endur, hann atvinnulaus og hún
ieikkona. Francesca heldur áfram:
„Eftir síðustu meðferðina sem ég
fór í, gerði ég mér grein fyrir því
að hafa gift mig án þess að átta
mig á því hvað ég var að gera. Ég
vil lifa eðlilegu lífí núna, en ég er
gift án þess að vita f raun hvers
vegna.“
Réttarlæknirinn Francesco Intr-
ona hefur gefíð skýrslu um málið
þar sem hann staðfestir að þegar
athöfnin hafí farið fram „hafí Ruff-
ato ekki verið sjálfráð gerða sinna."
Læknirinn segir ennfremur: „Eitur-
lyflaneytendur eru yfirleitt afar ein-
mana og leita félagsskapar hver
annars, sem byggist ekki endilega
á vináttu heldur sameiginlegum
vandamálum. Ég tel lfklegt að þau
hafí ekki gift sig af þeim ástæðum
sem leiðir f flestum tilfellum til
hjónabands, heldur einkum f leit að
stöðugum félagsskap. Þá er einnig
líklegt að þau hafí viljað nota gjafír
og fjármuni sem þau fengu við brúð-
kaupið til að kaupa eiturlyf og kom-
ist þannig hjá því að þurfa að stela."
Örvænting ástæða
hjúskapar
Sandro Merz sem dæmdi f þessu
sérkennilega máli sagði meðal ann-
ars í úrskurði sfnum: „Örvænting
eiturlyfjaneytenda byggist oft á ein-
manaieik og hræðslu við að geta
ekki fengið þann skammt af eitur-
lyfjum sem lfkaminn kallar á. Þessi
hjúskapur er afleiðing þess að tveir
örvæntmgarfullir einstaklingar sem
áttu við sameiginlegt vandamál að
stríða leituðu félagsskapar hvor
annars og staðfestu hann með
hjónabandi. Francesca Ruffato var
ekki með réttu ráði þegar athöfnin
fór fram, hún var þess vegna ekki
ábyrg gjörða sinna og telst hjóna-
bandið því hér með ógilt."
Ótti við glæpi
Mál þetta hefur vakið marga til
umhugsunar um hin endalausu
vandamál sem fylgja eiturlyfja-
neyslu, en á Ítalíu skipta fómarlömb
fíkniefna hundruðum á hveiju ári.
Skipulögð glæpastarfsemi byggist
að miklu leyti á verslun með eitur-
lyf og í sumum borgum er ástandið
orðið svo slæmt að böm em neydd
til að taka inn fíkniefni fyrir utan
skólana. í sumum tilfellum em böm-
unum boðin eftiin „til pmfu“ án
endurgjalds og reyna eiturlyfjasal-
amir þannig að færa sér í nyt for-
vitni ungmennanna til að auka við-
skiptin síðar meir. Algengt er að
foreldrar fylgi bömum sfnum f skól-
ana og sæki þau þegar skóla lýkur.
Þetta á ekki eingöngu við um nem-
endur í gmnnskólum, heldur einnig
menntaskólanema. Einnig em dæmi
um að þegar báðir foreldrar vinna
úti allan daginn, ráði þeir lífvörð
fyrir bömin, sem fylgir þeim hvert
sem þau fara. „Það er meira en lítið
að þessu þjóðfélagi," sagði 17 ára
menntaskólapiltur við fréttaritara á
dögunum. „Konur era hættar að
geta gengið um götur með skart-
gripi, þvf eiturlyfjaneytendur ráðast
á þær og ræna. Þær geta ekki geng-
ið um bæinn á kvöldin, því þá
blómstrar kynferðisleg áreitni. Böm
geta ekki leikið sér róleg f almenn-
ingsgörðum án þess að eiga á hættu
að stinga sig á sprautu með sýktu
blóði. Stjómmálamennimir sem við
veljum til að taka mikilvægar
ákvarðanir fyrir okkur valda hveiju
hneykslinu á fætur öðm og misbjóða
því trausti sem við höfum sýnt þeim.
Ég get ekki farið f skólann, á knatt-
spymuæfíngar eða f heimsókn til
vina minna nema í fylgd með
mömmu vegna hættu á að einhver
reyni að fá mig til að taka eiturlyf,
ræni mig eða hreinlega ræni mér!“
I
HARÐVIÐARVAL
Innihurðir — innihurðir — innihurðir
HARÐVIÐARVAL HF
KROKHALSI 4, SIMI 671010.