Morgunblaðið - 25.03.1988, Blaðsíða 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 25. MARZ 1988
Áætlun Bandar í kjastj ór nar
um frið í Mið-Austurlöndum
þess krafist að þeir sem þátt taká
iýsi yfir stuðningi við samþykktir
Oryggisráðs Sameinuðu þjóðanna
númer 242 og 338 og fordæmi of-
beldi og hryðjuverkastarfsemi. A
þennan hátt mun ráðstefnan ekki
spilla fyrir beinum viðræðum og
tryggt verður að viðkomandi ríki
verða ekki þvinguð til að fallast á
óviðunandi niðurstöður eða lausnir.
Eftir George P. Shultz
GEORGE P. Shultz, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, ritaði eftirfar-
andi grein um áætlun Bandaríkjastjórnar um hvernig koma megi á
friði í Mið-Austurlöndum. I umræðum hér á landi hefur komið fram,
að íslensk stjórnvöld styðji þessa áætlun Bandaríkjastjórnar. Greinin
birtist 18. mars í bandaríska dagblaðinu Washington Post.
Fáar fyrirfram skilgreindar leiðir
og reglur eru til um hvemig leysa
beri ágreining ríkja. Sérhver deila
á sér sína sögu og hefur sín sérein-
kenni. Sérhver deiluaðili á sér
drauma og er uggandi um fram-
gang eigin hagsmunamála. Verk-
efnið er því það að fá viðkomandi
riki til að láta af hemaði og setjast
að samningaborðinu. Arangur
slíkra samningaviðræðna ræðst
ekki af því hvaða aðferðum menn
beita í þessu skyni heldur vilja hinna
stríðandi fylkinga til að nýta sér
þau tækifæri sem gefast til sátta
og til að fallast á sanngjamar og
gagnkvæmar tilslakanir.
Friðarsamningar
koma að gagni
Samningaviðræður koma að
gagni í deilu araba og ísraela. Með
því móti gefst þjóðunum tveimur
tækifæri til þess að ná sáttum á
beinan og milliliðalausan hátt.
Slíkar viðræður geta skilað árangri
og leitt af sér haldgóða og raun-
hæfa samninga, sem eru í fullu
samræmi við hagsmuni deiluaðila.
Reynslan sýnir og sannar að arabar
og ísraelar geta gert með sér samn-
inga og haldið þá.
Bandaríkjastjóm hefur kynnt
áætlun sem miðar að því að koma
á beinum, tvíhliða friðarviðræðum
araba og Israela. Hugmyndir okkar
em byggðar á þeim grundvallar-
reglum, sem fram koma í samþykkt
Öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna
númer 242 og kveður á um fyrir-
komulag viðræðna á alþjóða vett-
vangi. Varðandi vesturb^kkann og
Gaza-svæðið gerir áætlunin ráð fyr-
ir tveimur samtengdum samninga-
lotum fulltrúa ísraelsstjómar og
nágranna þeirra og er takmarkið
að gjörbylta sem fyrst samskiptum
þessara ríkja.
Alþjóðleg ráðstefna
Bandaríkjastjóm styður heils-
hugar beinar tvíhliða viðræður ísra-
ela og nágrannaríkja þeirra í því
skyni að komið verði á varanlegum
friði í þessum heimshluta. Banda-
ríkjamenn hafa ævinlega verið til-
búnir til að skoða allar hugmyndir
um hvemig koma megi á slíkum
viðræðum og er alþjóðleg ráðstefna
þá ekki undanskilin.
Undanfama mánuði hafa heyrst
ákveðnar raddir um að efna beri
til ráðstefnu, sem hafí skilmerkilega
ákvarðað valdsvið og geti tekið
ákvarðanir um framtíð þessa heims-
hluta. í janúarmánuði beittj Banda-
ríkjastjóm neitunarvaldi í Öryggis-
ráði Sameinuðu þjóðanna er lögð
var fram ályktun þar sem fram-
kvæmdastjóri samtakanna var
hvattur til að beita sér fyrir þess
háttar ráðstefnu. Afstaða Banda-
ríkjamanna er sú að þetta fyrir-
komulag muni spilla fyrir milliliða-
iausum samningaviðræðum og að
óhugsandi sé að árangur náist með
þessum hætti.
Málið snýst því ekki um hvort
efna beri til alþjóðlegrar ráðstefnu
um frið í Mið-Austurlöndum eða
ekki. Arabaríkin þurfa á slíkri ráð-
stefnu að halda til að samningavið-
ræður geti hafist en verði skipulag
hennar ekki með viðunandi hætti
munu engar viðræður fara fram.
Því er brýnt að tilgangur, skipulag
og valdsvið ráðstefnunnar sé öld-
ungis skýrt og greinilegt. Fulltrúi
Bandarílg'astjómar mun ekki sækja
ráðstefnu taki þeir sem hana sitja
sér dómsvald á sviði alþjóðlegra
öryggismála. í augum frjálsra og
fullvalda þjóða hlýtur slíkt fyrir-
komulag að vera öldungis óviðeig-
andi.
Spumingin er því sú hvort unnt
er að ná samningum um að bundinn
verði endi á átök araba og ísraela
/orskólamót Kristilegra skólasamtaka veröur
íhaldið i Vatnaskógi um bænadagana 30. mars til
2. april.
VERÐ: 2700 kr.
Miðar verða seldir á fundum á lattgardags-
kvöldum kl. 20.30 að Amtmannstig 2B og á
bænastundum á þriðjudögum kl.20.15 að
Freyjugötu 27. Eimtig er skráð i sima 28710 á
skrifstofutima og i sima 18789 utan
skrifstofutima (Gunnar, Helgi eða Guðni) til
27.mars. Farið verður frá B.S.Í.kl. 13*4K)
niiðvikudaginn 30.mars.
ÓKEYPIS BÆKLINGUR
Starfsframi, betri vinna, betri laun
Eftir nám í ICS-brófaskólanum átt þú möguleika á auknum
starfsframa og betur launaöri vinnu. Þú stundar námiö heima
hjáþór á þeim hraöa sem þér hentar. Nú stunda rúmar 8 milljón-
ir manna nám í gegnum ICS-brófaskólann! Líttu á listann og
sjáöu öll þau tækifærisem þér gefast. ICS-brófaskólinn hefur
örugglega námskeiö sem hæfir áhuga þínum og getu. Prófskír-
teini í lok námskeiða. Sendu miöann strax í dag og þú færö
ÓKEYPIS BÆKLING sendan í flugpósti. (Setjiö kross í aöeins
einn reit). Námskeiöin eru öll á ensku.
□ Tölvuforritun
□ Rafvirkjun
□ Ritstörf
□ Bókhald
□ Vélvirkjun
□ Almanntnám
□ BiNélavirkjun
P Nytjalist
□ Stjórnun
fyrirtækja
□ Garðyrkja
□ Kjólasaumur
□ Innanhús-
~ arkitektúr
□ Stjórnun hótela
og veitingastaöa
□ Blaóamenr.ska
□ Kselittekni og
loftraasting
Nafn:
Heimitisfang:........................................
ICS International Correspondence schools Dept. YYS, 312/314 Hlgh
Street, Sutton, SurreySMI 1PR, England.
Bandaríkjastjóm heldur fast við
áætlun sína um beinar friðarvið-
ræður ísraela og araba. Við munum
ekki sætta okkur við að einstökum
liðum tillagna okkar verði breytt
eða þeir rangtúlkaðir og rifnir úr
samhengi. Einkum og sér í lagi
getum við ekki liðið að efnt verði
til ráðstefnu með óhóflegt eða óskil-
greint valdsvið. Miklu skiptir að
ekki verði kveðnir upp dómar yfír
samningaviðræðunum og að þeir
sem ráðstefnuna sitja fari ekki út
fyrir valdsvið sitt sem fylkingamar
verða að hafa náð sáttum um hvert
skuli vera.
Óviðunandi ástand
Öll ytri skilyrði fyrir friðarvið-
ræðum eru til staðar. Ekki verður
unað lengur við núverandi ástand
mála. Fullur vilji er til að láta
draumsýnir víkja og að tekið verði
á raunhæfan hátt á deilumálunum.
Og lagðar hafa verið fram raun-
hæfar tillögur í þessu skyni sem
falla að grundvallarhagsmunum
þeirra sem hlut eiga að máli.
Verkefni okkar liggur einnig ljóst
fyrir. Við verðum að fá araba og
ísraela að samningaborðinu en til
þess þarf hreinlyndi, stefnufestu og
þolgaeði. Áætlun Bandaríkjastjóm-
ar - að efnt verði til viðeigandi ráð-
stefnu í þessu skjmi og síðan hefj-
ist beinar tvíhliða viðræður - er
bæði raunhæf og mikilvæg. Tími
er til kominn að náð verði söguleg-
um sáttum. Áætlunin hefur verið
kynnt og liggur fyrir. Nú er kominn
tími til að hefjast handa.
George Shultz, utanríkisráðherra Bandaríkjanna (t.v), ásamt Yitzhak
Shamir, forsætisráðherra ísraels (t.h) er Shultz kynnti friðartillögur
Bandaríkjastjórnar i Jerúsalem í byrjun þessa mánaðar.
og hvort fylkingamar geta tekið
veigamiklar og erfiðar ákvarðanir
og eru reiðbúnar til þess. Þá er
ekki síður mikilvægt að fyrirkomu-
lag viðræðnanna falli að kröfum
fylkinganna beggja.
Víðtæk áætlun
Styrkur áætlunar Bandaríkja-
stjómar felst í því að hún er í senn
víðtæk og samhæfð. Hvorki er unnt
að aðgreina né hundsa einstaka
þætti hennar án þess að gjörvallt
skipulagið riðlist. Við erum hlynntir
ráðstefnu, sem gerir ráð fyrir að
hafnar verði víðtækar tvíhliða við-
ræður. Síðan taki þeir sem ráðstefn-
una sitja skýrslur viðræðunefnda
til umfjöllunar í samræmi við sam-
þykktir araba og ísraela. Þá verði
Kirkjur á landsbyggðinni:
Fermingar á pálmasunnudag
Ferming í Siglufjarðarkirkju
sunnudaginn 27. mars, pálma-
sunnudag, ld. 10.30. Prestur sr.
Vigfús Þór Ámason.
Fermd verða:
Andrea Ólöf Ólafsdóttir,
Hafnargötu 28.
Atli Þór Þorgeirsson,
Hólavegi 37.
Ásmundur Halldór Einarsson,
Hverfísgötu 16.
Baldvin Jóhann Kristinsson,
Norðurgötu 4.
Börkur Steingrímsson,
Suðurgötu 63.
Eiður Már Arason,
Hvanneyrarbraut 33.
Elín Þorsteinsdóttir,
Hverfísgötu 27.
Elsa Jensdóttir,
Hafnartúni 10.
Geirdís Hanna Kristjánsdóttir,
Grundargötu 7 B.
Gunnar Hrafn Hall,
Hólavegi 7.
I: Halldóra María Elíasdóttir,
*' Fossvegi 17.
Hákon Heimir Sigurðsson,
Hvanneyrarbraut 46.
Hrund Pálmadóttir,
Þormóðsgötu 21.
' Hulda Ingibjörg Magnúsdóttir,
Fossvegi 14.
Jón Ásgeir Jónsson,
Mjóstræti 1.
Kolbrún Sveinsdóttir,
■ Lindargötu 20 B.
Mikael Þór Bjömsson,
’ Fossvegi 16.
Ólöf Ásta Salmannsdóttir,
Hólavegi 63.
‘! Rósa Dögg Ómarsdóttir,
Hólavegi 41.
t Sandra Hjálmarsdóttir,
!' Norðurtúni 13.
Sigurður Ámi Leifsson,
Norðurgötu 7.
Sigurlaugur Oddur Jónsson,
Aðalgötu 11.
Sigvaldi Svanur Júlíusson,
Hólavegi 11.
Soffía Amarsdóttir,
Suðurgötu 59.
Steindór Örvar Guðmundsson,
Hafnartúni 28.
Sæmundur Gunnar Ámundason,
Hverfísgötu 5 B.
Þrúður Elísabet Sturlaugsdóttir,
Laugarvegi 7.
Þrúður Stefánsdóttir,
Hlíðarvegi 35.
Ferming í Norðfjarðarkirkju
pálmasunnudag 27. mars kl.
10.30. Prestur sr. Svavar Stef-
ánsson.
Fermd verða:
Anna Jónsdóttir,
Þiljuvöllum 19.
Ásta Lilja Bjömsdóttir,
Nesbakka 3.
Emil Gunnarsson,
Miðstræti 14.
Hans Ögmundur Stephensen,
Nesbakka 2.
Heiðrún Þorsteinsdóttir,
Urðarteig 4.
Hildur Björk Svavarsdóttir,
Blómsturvöllum 35.
Katrín Bjömsdóttir,
Hofí.
Marteinn Hilmarsson,
Nesbakka 12.
Pétur Freysteinsson,
Nesbakka 4.
Sesselja Jónsdóttir,
Þiljuvöllum 19.
Sigríður Þrúður Þórarinsdóttir,
Miðgarði 16.
Stella Ingigerður Steinþórsdóttir,
Starmýri 13.
Berg Valdimar Siguijónsson,
Gauksmýri 2.
Valdís Sigurþórsdóttir,
Nesbakka 14.
Vigfús Vigfússon,
Valsmýri 6.
Vilborg Elva Jónsdóttir,
Sæbakka 14.
Þórey Kristín Pétursdóttir,
Egilsbraut 9.
Ferming í Egilsstaðakirkju
pálmasunnudag kl. 11. Prestur
sr. Vigfús Ingvar Ingvarsson.
Fermd verða:
Anna Sólveig Stefánsdóttir,
Furuvöllum 8.
Eysteinn Húni Hauksson,
Laugavöllum 11.
Guðmundur Guðnason,
Vonarlandi.
Herborg Eydís Eyþórsdóttir,
Útgarði 6.
Sigríður Lára Siguijónsdóttir,
Selási 9.
Skúli Magnús Júlíusson,
Hvoltröð 6.
Ferming í Þingmúlakirkju
pálmasunnudag kl. 14. Prestur
sr. Vigfús Ingvar Ingvarsson.
Fermd verða:
Amar Karl Ólason,
Hallbjamarstöðum Skriðdal.
Ester Jökulsdóttir,
Grímsárvirkjun Skriðdal.
Viðar Gunnlaugur Hauksson,
Haugum Skriðdal.
Ferming i Hoffellskirkju,
pálmasunnudag kl. 11. Prestur
sr. Baldur Þorsteinsson.
Fermd verður:
Ema Gísladóttir,
Svínafelli.
Ferming í Bjamaneskirkju,
pálmasunnudag kl. 13.30. Prest-
ur sr. Baldur Kristjánsson.
Fermd verða:
Bima Rafnkelsdóttir,
Klettabrekku.
Guðmundur Hjartarson,
Bjamanesi.
Jóhann Þór Stefánsson,
Hæðagarði 10.
Jón Ingimar Sigurðsson, '
Ási.
Nanna Dóra Ragnarsdóttir,
Akumesi.
Pálmar Hreinsson,
Hæðagarði 13.
Þórir Gísli Sigurðsson,
Ási.
Þórunnbjörg Sigurðardóttir,
Ási.