Morgunblaðið - 13.12.1979, Side 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 13. DESEMBER 1979
Margt býr í
þokunni á
Sauðárkróki
Sauðárkróki, 11. des. 1979.
SÍÐASTLIÐINN sunnudag frum-
sýndi Leikfélag Sauðárkróks
gamanleikinn Margt býr í þok-
unni eftir Dinner og Morun.
leikstjóri er Haukur Þorsteins-
son en leikmynd gerði Sigfinnur
Sigurjónsson.
í sýningunni koma fram níu
leikarar, en þeir eru Elsa Jóns-
dóttir, Jóhanna Björnsdóttir,
Helga Hannesdóttir, Guðbjörg
Hólm, Kári Valgarðsson, Guðni
Friðriksson, Jón Albert Jónsson,
Jón Þór Bjarnason og Haukur
Þorsteinsson.
Húsfyllir var á frumsýningunni,
sem var vel heppnuð, og var
leikriti og leikendum vel tekið af
áhorfendum. Félagið hyggst sýna
leikinn í Miðgarði næstkomandi
laugardagskvöld, en sýningar hér
á Sauðárkróki hefjast svo aftur
milli jóla og nýárs.
Formaður Leikfélags Sauðár-
króks er Ólafur Pálsson.
— Kári.
JÖUN
1
VkXMLSTUNCA 1889
Jólamerki
Lions-
klúbbsins
Bjarma
LIONSKLÚBBURINN Bjarmi á
Hvammstanga sendir í ár frá sér
fjórða jólamerki sitt, og er það í
11 merkja samstæðu, sem hafin
var útgáfa á árið 1976.
í ár er á merkinu mynd af
kirkjunni í Víðidalstungu, en hún
átti 90 ára vígsluafmæli á árinu.
Teikningu kirkjumyndar gerði
Helgi S. Ólafsson, ramma og letur
teiknaði Sigurður H. Þorsteinsson
og Páll Bjarnason prentaði. Upp-
lag eru 500 arkir með 10 merkjum
og kostar örkin 750 kr. en einnig
er fáanlegt skalaþrykk, 3 ótakkað-
ar arkir sem kostar 4.500 kr.
Andvirði merkisins rennur til
líknar- og menningarmála á veg-
um klúbbsins auk þess til kirkj-
unnar rennur ákveðinn hluti sölu-
andvirðisins.
Friðrik Sophusson alþm.:
Kosningaúrslitin komu nokk-
uð á óvart. Einkum þykir ýmsum
Framsóknarflokkurinn hafa
unnið óverðskuldaðan sigur, þeg-
ar hann endurheimti fylgi sitt
frá fyrstu árum þessa áratugs.
Þess ber þó að geta Framsóknar-
flokknum til hróss, að hann
tefldi fram nýjum mönnum
víðast hvar á landinu og hefur
þess vegna tekist að fá sér nýtt
yfirbragð. Það er reyndar þess
virði að kanna, hvort slík end-
urnýjun sé nauðsynleg til fylgis-
aukningar í Ijósi kosningasigurs
kratanna 1978, en þá fór fram
gagnger endurnýjun á frambjóð-
endaliði þeirra. Þessi kenning
fær ennfremur byr undir báða
vængi, þegar úrslit kosninganna
1974 og 1971 eru skoðuð. Nýr
foringi Sjálfstæðisflokksins
vann glæsilegan sigur 1974 og ný
hreyfing Frjálslyndra og vinstri
1971.
Alþýðuflokkurinn og Alþýðu-
bandalag voru sigurvegarar
kosninganna í fyrra, fengu sam-
tals 28 atkvæði á þingi og höfðu
átta atkvæði fram yfir Sjálf-
stæðisflokkinn. Eftir þessar
kosningar er Sjálfstæðisflokkur-
inn fjölmennari á þingi en A-
flokkarnir báðir til samans. Það
er því kynlegt, þegar Alþýðu-
bandalagið talar um sigur, eftir
að hafa tapað þremur þingsæt-
um. Vonandi vinna þeir sem
flesta „sigra“ á næstunni. Slík
sigurganga endar með því, al
þeir þurrkast alveg út.
Vonbrigði
Sjálístæðismanna
SjáKstæðisflokkurinn ætlaði
sér mikinn hlut í kosningunum
og gerði sér vonir um að endur-
heimta fylgið, sem hann fékk
1974 eftir þriggja ára vinstri
stjórn. Sú von brást. Það er því
eðlilegt, að innan flokksins og
meðal flokksmanna fari fram
umræður um ástæður og orsakir
og kosningaúrslitanna og stjórn-
málaviðhorfið að loknum kosn-
ingum.
I þessari grein verður ekki
vikið að forystumálum flokksins
(í víðtækri merkingu), klofningi
né öðrum slíkum atriðum, sem
rædd eru manna á meðal um
þessar mundir. Það er ofur
eðlilegt að leitað sé skýringa á
kosningaúrslitunum í stefnu og
stjórn flokksins og öðru, sem
máli skiptir. Markmiðið hlýtur
að vera að læra af reynslunni og
gera betur næst. í lýðræðisríkj-
um eru kosningar og kosninga-
úrslit orustur og áfangar, en
hvorki stríð né endanlegur dóm-
ur. Sjálfstæðismenn, bæði fram-
bjóðendur og aðrir flokksmenn,
lögðu sig fram í kosningabarátt-
unni og mikil vinnugleði var
ríkjandi við kosningaundirbún-
inginn. Þessi staðreynd gerði
vonbrigðin sárari þegar úrslitin
lágu fyrir og fylgisaukningin
varð ekki meiri en raun bar
vitni.
Hvers vegna var
baráttan háð
með þessum hætti?
Til þess að geta vegið og metið
þá fjölmörgu þætti, sem koma til
skoðunar við endurmatsumræð-
urnar, verðum við fyrst af öllu
að gera okkur grein fyrir því,
hvers vegna kosningabaráttan
var háð með þeim hætti, sem
gert var. Hér á eftir verða rifjuð
upp nokkur atriði.
1. í fyrsta lagi var tíminn
mjög naumur. Sjálfstæðisflokk-
urinn hafði verið í viðbragðs-
stöðu s.l. vor, þegar við lá að upp
úr syði vegna ósamkomulags
vinstri flokkanna. Flestir spáðu
því hins vegar, að stjórnarsam-
starfið myndi endast fram yfir
áramótin fyrst að þeir lifðu s.l.
vetur af. Stjórnarslitin komu því
á óvart og kosningabaráttan í
opna skjöldu. Prófkosningar
styttu enn þann frest, sem menn
höfðu til að undirbúa sig fyrir
Alþingiskosningarnar.
2. Skoðanakannanir sýndu
verulega breytingu á viðhorfum
kjósenda. Og þótt margir sýnd-
ust óráðnir töldu sjálfstæðis-
menn augljósa óánægju koma
fram gagnvart vinstri stjórnar-
samstarfi. Þegar af þessari
ástæðu þóttumst við hafa veru-
legan meðbyr, þrátt fyrir nokkur
átök m.a. vegna klofningsfram-
boða í tveimur kjördæmum og
óróa eftir prófkjör í Reykjavík.
3. Tekin var ákvörðun um að
segja nákvæmlega fyrir kosn-
ingar, hvernig staðið skyldi að
vissum aðgerðum eftir kosn-
ingar, ef við fengjum áhrif í
ríkisstjórn. Þessi ákvörðun var
ekki tekin til að afla flokknum
atkvæða, heldur til að styrkja
stöðu hans að loknum kosning-
um. Nákvæm stefna er vörn
flokksforystunnar gegn þrýsti-
hópum, sem eftir kosningar
reyna að afvegleiða hana með
gylliboðum eða hótunum. Á
sama hátt er tiltölulega nákvæm
stefna forsenda þess að forystu
flokksins sé veitt eðlilegt aðhald
innan flokksins.
4. Sjálfstæðisflokkurinn lagði
áherzlu á, að stjórnmálaumræð-
an í kosningabaráttunni snerist
um stefnu hans. Þess vegna var
trompað út „leiftursókn gegn
verðbólgu“. Ekki verður því
mótmælt að umræðurnar sner-
ust um stefnu Sjálfstæðisflokks-
ins. Hins vegar varð þetta til
þess að flokkurinn markaði sér
stöðu í baráttunni eins og
stjórnarflokkur og aðrir flokkar
gátu breitt yfir ósamkomulag
nýliðins vinstristjórnarsam-
starfs.
Sjálfsagt hafa neikvæðar um-
ræður um flokkinn vegna klofn-
ingsframboða ráðið því, hve
kjörorðin voru sterk. Þannig var
athygli dregin frá óróanum að
stefnunni.
5. Rík ástæða var fyrir því, að
valin var stefna, sem gerði ráð
fyrir skjótvirkri leið út úr verð-
bólguvandanum í stað þess að
draga úr vandanum í áföngum
og smáskömmtum. Áfanga- og
smáskammtaleiðir hafa hingað
til reynzt vonlausar, því að
ríkisstjórnir hafa ekki fengið
ótakmarkaðan tíma til að at-
hafna sig eftir kosningar. Það
var mat okkar, að verulegur
árangur í baráttunni við verð-
bólguna þyrfti að vera kominn
fram síðari hluta næsta árs, ef
næsta ríkisstjórn ætlaði að
verða langlífari en síðasta
vinstristjórn. Gilti þá einu,
hverjir sætu í stjórn.
6. Ákvarðanir í kosningabar-
áttunni voru byggðar á þeirri
trú, að landsmenn væru orðnir
uppgefnir á verðbólgunni og
væru því tilbúnir til samstarfs
um skjóta lausn. Við lofuðum
ekki gulli og grænum skógum
heldur aðgerðum, sem dygðu.
Við héldum, að fólkið væri til-
búið til að fórna nokkru um
tímabundið skeið til að ná hald-
góðri viðspyrnu gegn verðbólg-
unni og skapa þannig forsendur
fyrir bættum lífskjörum fyrr en
ella. Annað hvort voru sumir
hræddir við þessar aðgerðir eða
voru ekki tilbúnir til að breyta
til vegna ímyndaðra hagsmuna
af verðbólgunni — nema hvort
tveggja hafi verið.
Hér hafa að framan verið
rifjuð upp nokkur atriði úr
kosningabaráttunni. Frambjóð-
endur flokksins, miðstjórn og
aðrir forystumenn bera að
sjálfsögðu meira og minna
ábyrgð á framkvæmdinni og
geta því ekki losnað undan henni
eftir á, þótt þeir hafi að sjálf-
sögðu fullan rétt til að endur-
skoða afstöðu sína til kosninga-
undirbúningsins.
Ný kosningabar-
átta er hafin
Mín skoðun er sú, að stefna
flokksins hafi í langflestum at-
riðum verið góð. Að vísu gafst
ekki mikill tími til mjög ná-
kvæmrar útfærslu, en frambjóð-
endur, sem hafa nokkurt vald á
efnahagsmálum, gátu auðveld-
lega unnið úr stefnunni. Hitt er
svo annað mál, að slík stefna
getur verið fjötur um fót þeim,
sem telja kvæði og klám öflugri
vopn, en heilsteypt stefna til að
vinna bug á verðþólgunni.
Kosningaúrslitin ollu sjálf-
stæðismönnum vonbrigðum, þar
sem þeir fengu aðeins tvo þing-
menn, þegar Framsókn hlaut
fimm. Einörð stefna og hrein-
skilin viðhorf fyrir kosningar
hafa þó unnið það gagn, að á
næstu mánuðum mun það koma
fram, að Sjálfstæðisflokkurinn
hafi rétt fyrir sér. Þess vegna er
það athyglisvert, þegar formað-
ur Framsóknarflokksins gefur
þær yfirlýsingar nýlega, að
vandinn sé nú allur annar og
meiri en fyrir nokkrum vikum.
Það er gott, þegar augu manna
opnast.
Ef vinstri stjórn myndast, þá
verður það í fyrsta skipti á
rústum sams konar stjórnar. Nú
verður ekki hægt að kenna
öðrum um. Það er álit mitt, að
styrkur stefnu Sjálfstæðis-
flokksins verði enn meiri á
næstunni, þegar samanburður
fæst við sameiginleg úrræði
vinstri flokkanna — ef þau
liggja þá einhvern tíma fyrir.
Það sem þó skiptir mestu máli
er að gera sér ljóst, að kosninga-
úrslit ráðast ekki á síðustu
vikunum fyrir kosningar —
heldur á öllu kjörtímabilinu.
Þess vegna verðum við Sjálf-
stæðismenn að byrja nú þegar á
kosningabaráttunni. Og í næstu
kosningum ætlum við okkur enn
stærri hlut.
Ný kosninga-
barátta er haíin
ítísku
littala býður frábæra línu í glösum,
bollum, diskum, skálum o.fl.
Komiö í nýju GJAFAVÖRUDEILDINA
og skoðið nýju gerðirnar með lausu
handfangi ætlaðar fyrir heita og kalda
drykki.
KRISTJfin
SIGCEIRSSOfi HF.
LAUGAVEG113. REYKJAVIK. SÍMI 25870
ÞU AUGLYSIR UM
ALLT LAND ÞEGAR
ÞÚ AUGLÝSIR í
MORGUNBLAÐINU