Morgunblaðið - 13.12.1979, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 13. DESEMBER 1979
7
r
Þegar mikiö lá
viö
Alþýðuflokkurinn rauf
vinstri stjórn í þann
mund þing kom saman í
haust, sem leiddi til þing-
rofs og nýrra kosninga.
Þá lá mikið á, að sögn
forystumanna flokksins,
að stððva þrátefli og
stefnuleysi stjórnarflokk-
anna, stokka upp spílin
og takast tafarlaust á við
hin brýnu og aðkallandi
þjóðfálagsverkefni, ekki
sízt á sviði dýrtíöarmála.
Nú er vinstra þráteflið
hafið á ný. Það er hægt
farið af stað, segja
flokksbroddar, og langt
til lands nýrrar vinstri
stjórnar. Þjóðin spyr:
liggur ekki lengur á að
ákveöa tafarlausar að-
gerðir og hefjast handa?
Hefur ekki verðbólgu-
vandinn tútnað enn út?
Er þðrf aögerða ekki enn
brýnni en á haustdðgum?
Fiskvinnslan í landinu
er rekin með 4—5% tapi í
dag, sem svarar til 5 til 6
milljarða halla á heilu ári,
að sðgn Árna Benedikts-
sonar í Mbl. í gær. Staða
þessa undirstöðuat-
vinnuvegar, sem er
dæmigerð fyrir rekstrar-
grundvöll framleiðsluat-
vinnuvega, þjóðar- og
gjaldeyristekjur hvíla
þyngst á; þá verðmæta-
sköpun er sníður okkur
lífskjararamma, bæði
sem þjóð og einstakling-
um.
Verðbólgan vex meö
undrahraða og veikir
sífellt rekstrarstöðu at-
vinnuveganna, þ.e. at-
vinnu- og afkomuöryggi
almennings. En flokkarn-
ir, sem slitu samvistum
fyrir fáum vikum, fara sór
hægt í vinahótum. Langt
er til lands, segja þeir.
Ekki er nóg með að
samkomulag sá fjarri í
mikilvægum málaflokk-
um, sem þjóðarhag
varða, heldur í málum
eins og forsetakjöri á
Alþingi.
Mennirnir, sem vildu
hafa hraðan á í haust, eru
á hægagangi. Þeir lesa —
hver fyrir annan — kosn-
ingastefnuskrár á samn-
ingafundum og hreykja
sár af í fjölmiðlum. Eng-
inn þeirra trúir í raun á
samkomulagl Bíða þeir
máske færis að flýja af
hólmi; einhverrar mála-
mynda afsökunar í jóla-
gjöf frá forsjóninni? Það
væri eftir öðrum hetju-
skap þeirra.
Uppvakningur
vinstri
stjórnar?
Steingrímur Her-
mannsson virðist taka
vinstri-stjórnarverkefni
sitt vettlingatökum. Sær-
ingar hans — til að vekja
upp þá vinstri stjórn, sem
kratarnir gáfu dánarvott-
orð á haustdögum — eru
máttlitlar. Ekki að undra
þegar höfð er í huga
lýsing leiðara Alþýðu-
blaðsins í gær á upp-
vakningnum:
„Það er óneitanlega
nöturleg staðreynd, aö
óstjórn þessarar sömu
ríkisstjórnar, sem for-
ystumenn Verkamanna-
sambandsins töldu svo
miklu skipta að fá yfir sig,
skuli hafa leitt til stjórn-
lausrar óðaverðbólgu,
sem nú bitnar af mestum
þunga á meöiimum
Verkamannasambands-
ins, og mun, ef ekkert
verður að gert, jafnvel
leiöa til atvinnubrests. —
Það er einnig óneitanlega
nöturleg staðreynd, að
forystumenn Alþýðu-
bandalagsins innan Al-
þýðusambandsins skuli
nú vera harðastir tals-
menn óbreytts vísitölu-
kerfis — og þar meö
vaxandi launaójöfnuöar í
landinu.“
Alþingi var sett í gær í
skugga óvissunnar.
Steingrímur Hermanns-
son hrærir nú í óvissu-
pottinum. Ekki er verklag
hans traustvekjandi.
Jafnvel forsetakjör á Al-
þingi virðist utan hans
sáttahæfni — a.m.k. enn
sem komið er. Ekki
glæsilegt ástand á kær-
leiksheimili vinstri flokk-
anna — meðan vanda-
málin bíða. Þjóðin setti
traust sitt á þetta þing,
sem hún hefur nýkosið.
Hversu lengi fá vinstri
flokkarnir að leika sár —
meðan verðbólgulogar
svíða innviði þjóðfélags-
byggingarinnar?
Likt
Gerö 301. Hátalari, sem hentar í
bókahillu en fyllir stofuna meö
tónlist. Lítill en hljómmikill. Eins og
allir aörir Bose hátalarar notar
gerð 301 endurkast frá veggjum til
aö framkalla opiö, víöáttumikiö
hljóö.
Endurkastsstillir aölagar hljóm-
buröinn þinni tónlist og þinni
stofu. Þú færð mikið, eölilegt
hljóö, sem þú býst ekki viö frá
hátalara í þessum veröflokki. Þaö
er engin tilviljun aö þessi hátalari
er sá mest seldi í heimi.
Líkara
Ef þú vilt hljóö, sem er enn líkara
lifandi tónlist, reyndu gerð 501.
Hátalarinn stendur á gólfi og
framleiöir bassa, sem fær veggina
til aö nötra. Hátalararnir eru ekki
eins en hannaöir þannig, að þeir
vinna saman viö aö skapa frábæra
stereotónlist meö mikilli fyllingu.
Og þú getur notað endurkastsstilli
til aö aölaga hljóminn aö stofunni
þinni.
Lifandi
Líkast lifandi tónlist er gerö 601.
Sex hátalarar í hvorum kassa eru
nákvæmlega staösettir til aö fylla
herbergiö meö hreinni, nákvæmri
tónlist. Þessi staösetning veldur
því, aö gerö 601 gefur einstaklega
raunverulega tónlist. Víddarstillir
gerir mögulegt aö aölaga hljóm-
eiginleikana aö stofunni þinni.
Gerö 601 skilar lifandi tónlist
betur en nokkur annar hátalari.
Nema einn.
Toppurinn. Bose gerö 901 Hannaöur ... miðaö viö hátalara í venjulegum
til að skila öllum víddum lifandi k.______ kössum. Sérsmíöaöir hátalarar með
tónlistar og veita mestu hugsanleyu hárri nylm. Iramleiöa stórkostlegt
hlustunaránægju Níu samhæföir hljóð án þess aö þörf sé fyrir stóra
hátalarar i hvorum kassa skila tærum & dýra magnara. Hlustiö á Bose 901,
hátónum og kraftmiklum bassatónum. eÍSMMHR|| þá er auövelt aö gleyma því aó þú
Hljóöiö endurkastast eftir ákveönu ""■» sért aö hlusta á hátalara. Tónlistin
kerfi, er skapar meiri tilfinningu fyrlr I W verður aðalatriðlð. Eins og þú værir
rými en nokkur annar hátalari. I I aö hlusta á hana í fyrsta skipti. Lifandi.
Kassinn er hannaöur á sérstakan I I Allar nánari upplýsingar um þessa
hátt, er gerir Bose 901 mögulegt að 1 frábæru hétalara fáið þið í
framleiöa bassa, sem er sérstakur verslunum okkar:
®
heimilistæki hf
HAFNARSTRÆTI 3 — 20455 — SÆTÚN 8 — 15655
Verslunarhúsnæði
til sölu
Til sölu er 243 ferm. verslunarhúsnæöi á
besta stað við Síðumúla. Nánari upplýsingar
veittar á skrifstofunni.
Davíð Sigurðsson h/f
Síðumúla 35.
Sími85855.
Hagbeit
Fáksfélagar: Hagbeitarlönd
okkar verða smöluð sem hér
segir:
Ragnheiöarstöðum 15. des. veröa hestar í rétt kl.
10—11.
Það er áríöandi að þeir, sem ætla aö hafa hesta sína
þar í vetur komi svo þeir geti fariö inn á óbitið land,
og það verður farið aö gefa þeim.
Sunnudaginn 16. des. veröa þessi lönd smöluð:
Saltvík, verða hestar í rétt kl. 11 —12.
Dalsmynni, verða hestar í rétt kl. 13—14.
Arnarholti, verða hestar í rétt kl. 15—16.
Bílar verða á staönum til aö flytja þá.
Æskilegt er að greiöa hagbeit og flutning á skrifstofu
félagsins föstudaginn 14. des. kl. 13—18 og í allra
síðasta lagi á smölunarstaö.
Aö gefnu tilefni er óheimilt aö taka hesta úr
hagbeitarlöndum okkar, nema aö starfsmaöur fé-
lagsins sé viöstaddur.
Síðasta smölun fyrir jók
Tamningastöð
veröur rekin á vegum félagsins í vetur og opnar hún
2. janúar. Tamningamaöur: Hafliöi Helgason.
Hestamannafélagið Fákur.
^ -
Það borgar sig að \
verzla tímanlega
fyrir jolin
Svínakjöt
Læri í heilu .................. kr.2.390 kg.
Bógar hringskornir m/ negulnöglum
og lárviöarlaufum í heilu...... kr. 2.300 kg.
Reyktir bógar í heilu m/ beini .. kr. 2.980 kg.
Lundir ......................... kr. 4.800 kg.
Hnakkar úrb. reyktir ........... kr. 4.390 kg.
Kótilettur ..................... kr. 4.600 kg.
Hamborgarhryggir ............... kr. 5.300 kg.
Hamborgarhryggir úrbeinaöir .. kr. 6.500 kg.
Viö minnum líka á
kjúklingana,
unghænurnar, nauta-
kjötið, folaldakjötið og
jólahangikjötiö.
Grænmeti og ávextir, mikiö úrval og allt í
jólabaksturinn
Opið föstudag
til kl. 20
laugardag til kl. 22
VDMURBL
^ Þverbrekku 8 Kópavogi. Símar 42040 og 44140. j