Morgunblaðið - 13.12.1979, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 13. DESEMBER 1979
3
Bláref arækt hafin á fjór-
um stöðum í Eyjafirði
Grenivik. 12. des. 1979.
UM klukkan tvö í nótt komu til Akureyrar í flugi með
flugvél Iscargo, blárefir frá Dalchomzieminkfarm í
Skotlandi. Refirnir dreifast á fjögur refabú við
Eyjafjörð.
Grávara hf. á Grenivík faer 100
læður, Sólberg á Svalbarðsströnd
fær 50 læður, 30 læður fara á
Grund og á Lómatjörn í Höfða-
hverfi fara einnig 30 læður. Hjá
Grávöru eru nú um 1500 minka-
læður, en þeim kemur til með að
fækka, meðal annars vegna Alli-
sonveiki sem veldur ófrjósemi.
Búið á Lómatjörn kemur til með
að fá amerískan mink í vor frá
sama búi og blárefirnir komu frá í
Skotlandi.
Grávara er hlutafélag með á
annað hundrað félagsmenn, eig-
andi Sólbergs eru Úlfar Arason,
Sigurður Helgason er eigandi bús-
ins á Grund, en búið á Lómatjörn
er félagsbú í eigu bræðranna
Jóhanns og Heimis Ingólfssonar
og Arfit Kro. Yfirumsjón með
tilraunastarfseminni hefur Tómas
Stefánsson, en hann fór á þrjú
mikilvæg námskeið í Skotlandi
áður en refirnir komu hingað til
lands.
Hér er um tilraunarefarækt að
ræða, og er gert ráð fyrir að hún
standi í eitt ár. Ef hún gefst vel er
fyrirhugað að leyfa refarækt á
fleiri stöðum á landinu.
— Vigdís.
NEMENDUR Melaskólans í Reykjavik afhentu i gær Hjálparstofnun kirkjunnar andvirði „jólaepla"
sinna, kr. 45 þúsund, til Kampútseu-söfnunarinnar. „Okkur er tjáð, að fyrir þessa upphæð sé hægt að
kaupa mjólk handa 23 börnum í eitt ár, en það samsvarar þeim fjöida sem er í einni bekkjardeild hér
i skólanum. Eða þá að hægt væri að kaupa skólabækur handa 7 bekkjardeildum." segir m.a. i
tilkynningu frá nemendum. A myndinni má sjá hvar Guðmundur Einarsson flytur nokkur ávarpsorð
er hann tekur við gjöfinni. Ljósm. G.E.
Verður
Fiskveiða-
sjóður
stærsti
skipa-
eigandinn?
LÁNAKJÖR Fiskveiðasjóðs
voru meðal þeirra mála, sem
Kristján Ragnarsson gerði
að umtalsefni í ræðu sinni á
ársfundi LÍÚ i gær. Sagði
Kristján, að nú væri svo
komið, að greiða þyrfti 55—
60% af áætluðu aflaverð-
mæti nýs skips á fyrstu
rekstrarárum þess, ef
standa ætti i skilum við
Fiskveiðasjóð. Greiðslubyrði
til annarra stofnlánasjóða
væri þá ótalin.
„Er nú svo komið,“ sagði
Kristján Ragnarsson, „að
vanskil við Fiskveiðasjóð,
eingöngu vegna skipa, sem
smíðuð hafa verið hér á landi
og hafa verið með mun minni
vísitölutryggingu en nú gildir
á lánum, eru orðin 2,5 millj-
arðar króna. Ef Fiskveiða-
sjóður hefur innheimtuað-
gerðir, verður hann stærsti
skipaeigandi í landinu."
Flugleiðir:
Fyrsta beina
ferð breiðþot-
unnar í dag
DC-10 ÞOTA Flugleiða á í dag að
fara fyrstu áætlunarferð sina milli
New York og Luxemborgar án
viðkomu á íslandi. Mun þotan fara
ýmist milli Luxemborgar og borg-
anna New York, Nassau og Chicago
með viðkomu í Baltimore, en
flugtiminn yfir hafið er frá 8 til 11
timar.
Ekki hefur verið gengið frá samn-
ingum við þær 9 áhafnir sem fljúga
DC-10 þotunni, en Baidur Oddsson
formaður Félags Loftleiðaflugmanna
kvað stöðuga fundi hafa staðið yfir
síðustu daga og myndu standa áfram
næstu daga þar til samið yrði. Þurfa
áhafnirnar að dvelja ytra í nokkra
daga, en gætu síðan komið heim í
nokkurra daga frí á milli.
Uppsagnir Loftleiðaflugmanna
hafa ekki komið til framkvæmda m.a.
vegna pílagrímaflugsins sem nú er
nýafstaðið og í gær var gengið frá
samningum um að lána Cargolux 4
áhafnir á DC-10 þotu, sem leigð hefur
verið félaginu frá Flugleiðum.
SSS-tSÍ-S.
Sfeíí—1*,
atóíaú ^nU «tequndtí at
„„ ei 0.°°° C”"Æ
\]% ^ Floa' OU*”0>a'"'aS
Setusa^
\^otudu o9