Morgunblaðið - 16.12.1966, Side 16
16
MORGUNBLAÐIÐ
FSstudagur 18. dea. 1966
Útgefandi: Hf. Árvakur, Reykj avík.
Framkvæmdastjóri: Sigfús Jónsson.
Ritstjórar: Sigurður Bjarnason frá Vigur.
Matthías Johannessen.
Eyjólfur Konráð Jónsson.
Ritstjórnarfulltrúi: Þorbjörn Guðmundsson.
Auglýsingar: Árni Garðar Kristinsson.
Ritstjórn: Aðalstræti 6.
Auglýsíngar og afgreiðsla: Aðalstræti 6. Sími 22480.
í lausasölu kr. á mánuði innanlands.
Askriftargjald kr. 105.00 7.00 eintakið.
ÚTHLUTUN LISTA-
MANNALAUNA
TTinn 27. apríl s.I. samþykkti
Alþingi svohljóðandi
þingsályktunartillögu um
undirbúning löggjafar um
listamannalaun.
„Alþingi ályktar að skora
á ríkisstjórnina að láta und-
irbúa fyrir næsta reglulegt
Aiþingi löggjöf um úthlutun
' listamannálauna. Skal við
það starf haft samráð við
Bandalag íslenzkra lista-
manna.“
Flutningsmenn tillögu þess
arar voru þeir Sigurður
Bjarnason, Benedikt Gröndal,
Þórarinn Þórarinsson og
Einar Olgeirsson.
í greinargerð er fylgdi til—
lögunni var á það bent að all-
mörg undanfarin ár hefði
þingkjörin nefnd skipt því
fé, sem Alþingi hefði á hverj-
um tíma veitt til listamanna-
launa. Nefnd þessi hefði ver-
ið kjörin til eins árs í senn.
Á það hefði verið bent með
rökum að slíkt skipulag þess-
ara mála væri ekki til fram-
búðar. Síðan sagði í greinar-
gerðinni:
„Æskilegt væri, að sér-
stakri stofnun væri fengið
það verkefni að úthluta
listamannalaunum. Ólíklegt
er að nokkurn tíma verði
fundin aðferð, sem allir verði
ánægðir með og tryggi fyllsta
réttlæti í þessum efnum, svo
mikið álitamál er það, hvað
sé styrks eða verðlaunavert
á sviði listsköpunar og túlk-
unar. Er það skoðun flutn-
ingsmanna þessarar tiliögu að
nauðsynlegt sé að freista
nýrra leiða, þegar um er að
ræða verðlaunaveitingu tii
íslenzkra listamanna. Þess
vegna er þessi tillaga fiut7t.*,
Því miður var þeirri end-
nrskoðun, sem tillagan gerði
ráð fyrir ekki lokið áður en
þing kom saman í haust.
Menntamálaráðherra hefur
hins vegar lýst því yfir á Al-
þingi að undiröúningur sé nú
hafinn að undirbúningi lög-
gjafar um úthlutun lista-
mannalauna. Er ástæða til að
fagna því. En auðvitað skipt-
ir mestu máli að skynsam-
legu og sanngjörnu skipulagi
.verði komið á. Það verður
áreiðanlega farsælast að sér-
stakri og sjálfstæðri stofnun
verði fengið það verkefni að
úthluta listamannalaunum.
Áframhaldandi kosning póli-
tískrar nefndar til þess að
vinna þetta verk er ekki lík-
leg til þess að leysa vand-
ann.
Eins og áður var sagt er
það miður farið að frumvarp
um þessi efni skyldi ekki ná
afgreiðslu í svipaðan mund
og fjárlög voru samþykkt. Af
því leiðir að úthlutun lista-
mannalauna á næsta ári get-
ur ekki xarið fram fyrr en
einhvern tíma í vor eða sum-
ar. En undanfarin ár hefur
hún verið framkvæmd í janú-
ar. En um það er þó ekki að
sakast, ef nýtt og skynsam-
legt skipulag kemst á í þess-
um málum.
FJÁRLÖG
AFGREIDD
rjárlög fyrir árið 1967 voru
afgreidd frá Sameinuðu
Alþingi að loknum þremur
umræðum í gær.
Það sem sérstaka athygli
vekur við þessa fjárlagaaf-
greiðslu er, að tekizt hefur
að afgreiða greiðsluhallalaus
fjárlög án þess að leggja á
nokkra nýja skatta og að
vegna góðrar afkomu ríkis-
sjóðs hefur að sama skapi tek
izt að tryggja fé til þeirra ráð
stafana, sem nauðsynlegar
eru vegna verðstöðvunar-
stefnu ríkisstjórnarinnar.
Innan ramma fjárlaganna
eru möguleikar tii þess að
standa undir þeim kostnaði,
sem faila mun á ríkissjóð
vegna þeirra sérstöku niður-
greiðslna, sem ákveðnar hafa
verið meðan fyrirhugað verð
Stöðvunartímabil stendur, ■ en
ástæða er tii þess að undir-
strika orð Magnúsar Jónsson-
aat, fjármálaráðherra, við
þriðju urnræðu fjárlaga, að
verði niðurstaðan sú, þegar
því verðstöðvunartímabili
lýkur, að æskilegt sé að halda
,þeim niðurgreiðslum áfram
■til áramóta 1967, verður fé
lagt ti’l hliðar af greiðsluaf-
gangi þessa árs til þess að
standa undir þeirn kostnaði,
en hann mun nema um 50
millj. kr.
Það er því Ijóst, að fj'ár-
lög ársins 1967 eru afgreidd
á þann hátt, að nægilegt fé
verður fyrir hendi til þess að
standa undir öllum kostnaði
vegna verðstöðvunarstefnu
ríkisstjórnarinnar, án þess að
nokkrir nýir skattar verði
lagðir á. Hér er um mjög mik
ilsverða áfanga að ræða og
bera þess glöggt vi'tni, að
fjármál ríkisins hafa verið
tékin föstum og sterkum tök-
um.
Los Angeles 16. des. — NTB.
WALT Disney, kon-ungur
teiknimyndanna lézt í Dur-
banctk í Kaliíorniu í dag.
Hann varð 65 ára gamall. í
byrjiun ménaðarins var hann
lagður inn á sjú'kraihús þar
sem gera átti á honum smá-
skurðaðgerð. Við rannsókn
fundu læknar sj.úikralhússins
æxli í vinstra lunga hans og
reyndist nauðisynlegt að skera
burt hluta af lunganu. Upp-
Skurðurinn tókist vel og sögðu
læknar að Disney rnyndi geta
hafið stönf af fullum krafti
eftir einn mánuð. Eftir að
hann var útskrifaður af
sjúkrahúsinu tók hann þegar
til starfa, en fór aftur á
sjúkrahúsið 6. þessa mánaðar
í venjulega rannsókn en átti
ekki afturkvæmt þáðan.
Walt Disney með heiðursskjal, er samtök bandariskra
kvikmyndahúsaeigenda sæmdu hann sem stórkostlegasta
kvikmyndamann heimsins.
K vi kmyn d ajöfurinn
Walt Disney lézt í gœr
Mikki mús í Fantasíu.
D i s n e y ákapaði flestar
frægustu teiknimyndapersón-
ur Hollywood borgar, meðal
þeirra Mi.kka mús sem hann
fyrst kyrrnti í talmynd árið
æðsta heiðursmerki Banda-
ríkjanna veitt borgara á frið-
artímum.
Disney var óhemju stoltur
yfir að lýkilorðið á innrásar-
degi Bandamanna í heims-
styrjöldinni síðari var „Mikki
mús“. Diseny fór aldrei dult
með, að í kvikmyndasköpun
sinni reyndi hann að full-
nægja smekk allra manna og
tók Mtið tillit til hátíðlegra
og háfleygra kvikmyndagagn-
rýnenda. Hann viðurkenndi
fúslega að hann væri bæði
viðkrvæmur, verzilunarsinnað-
ur og sagði oft að honum
hefði ekki alltaf gengið allt
í haginn.
Ðýralífsmyndir Disneyis eru
heimskunnar og hann fram-
leiddi myndina frægu, Mary
Poppins, sem sýnd var í
Gamla bíó við metaðsókn
fyrir skömmu. Á seinni árum
beitti Disney starfskröftum
sínum einikum að hinum risa-
stóra og fræga skemmtigarði
Disneylandi, sem hann hugs-
aði.
1(9(2®. Þá kom Andrés önd,
Jóakim frændi og öll sú
fræga fjöliskylda, íkornarnir
litlu, indíánastrákurinn og fL
og fl. Fyrsta langa teikni-
mynd hans var Mjallhvít og
dvergarnir sjö, síðan komu
m. a. Gosi, Þyrnirós, Fantasía,
Bamibi, ÖSkubuska.
Auk teiknimyndanna fram-
leiddi Disney fjöidann allan
af venjulegum kvikmyndum
og sjónvarpskvikmyndum. —
Alls mun hann hafa gert um
600 kvikmyndir yfir ævina og
voru honum veitt öll hugsan-
leg kvikmyndaverðlaun. Einn-
ig var hann nefndur sem
hugsanlegur friðarverðlauna-
hafi Nóbels. 1064 var hann
sæmdur friðarorðunni, sem er
Andrés önd og félagar.
AEmanak til ágóða fyrir
skíðalyftu á ísafirði
ÍSAFIRÐI, 15. des. — Fyrir
nokkru kaus íþróttabandalag
ísafjarðar nefnd til þess að und-
irbúa smíði skíðalyftu á Selja-
landsdal við ísafjörð. Franskur
sérfræðingur kom hingað í sum
ar og mældi fyrir lyftunni, en
fyrirhugað er að endastöðvar
hennar verði rétt fyrir ofan skíða
skálann og víð GulihóL Er
áætlað að skíðalyfta þessi muni
kosta um 1,4 millj. kr.
Undirbúningsnefndin hefur
þegar hafið fjársöfnun og hefur
hún látið gera mjðg smekklegt
veggaknanak með myndum frá
ísafirði og auglýsingum frá ísi.
fyrirtækjum, sem hafa á þann
hátt viljað styrkja þetta mann-
virki.
Almanak þetta er nú til sölu
í bókabúðum á ísafirði og á
sunnudaginn verður gengið með
það um í bænum og gera ísfirzk-
ir skíðamenn sér vonir um að
sem flestir láta þetta almanala
fylgja með í jólapökkunum.
— H.T.