Morgunblaðið - 16.12.1966, Blaðsíða 1
S3. árgangur
289. tbl.
Föstudagur 16. desember 1966
1
Prentsmiðja Morgunblaðsin*
Stefnuyfirlýsing
Kiesingers rædd -
Bonn, 1S. deserdber. NTíB.
V-ÞÝZK A þingtð í Bonn ræddi
í dag stefnuyfirlýsingu Kiesing-
ers kanzlara. Var við umræðurn-
ar lögð mikil áherzla á að styrkja
samvinnu V-Þjóðverja og
Frakka. Einnig var rætt um
inngöngu Breta í Efnahagsbanda
lagið.
Meginatriðið í stefnuyfirlýsing
unni fjallar um fyrrnefnd mál,
svo og að bæta samibúðina við
A-Evrópulþjóðirnar. IÞjóðverjar
munu styðja friðarumleitanir
iBandarfkjamanna í iheiminum og
umfangsmiklar ráðstafanir verða
gerðar til að bæta efnáhag V-
Þýzkalands.
ÍRainer Barzel, foringi Kristi-
legra demókrata í þinginu sagði
í ræftu að styrkja yrði stöðu
frjálsrar Evrópu og siikt yrði
ekki gert án samvinnu við
Frakka. „Vandamálin um sam-
einaða Evrópu, frið í Evrópu og
sameinað býzkaland verði ekki
leyst án aðstoðar Frakklands og
Sovétríkin og aðrar A-Evrópu-
þjóðir verða að gera sér Ijóst að
friður í Evrópu byggist ekki
eingöngu á Þýzkalandi.
Moskvublaðið Izvestija ræðir
í dag stefnuyfirlýsingu Bonn-
stjórnarinnar að hún virðist
frábrugðin yfirlýsingum þeirra
Erhards og Adenauers, en inni-
haldið sé mjög sVipað. Blaðið
segir að krafa Kiesingers um að
stjórn 'hans verði viðurkennd,
sem sú eina og sanna í Þýzka-
landi sé fjarstæðukennd og sýni
að hin nýja stjórn vilji ekki
viðkenna þá staðreynd að þýzku
ríkin séu tvö.
Ekki er um að villast að
| jólin eru í nánd. Börnin eru
* komin i jólskap og skólarnir
I eru farnir að halda litlu jól-
| in. Myndina tók Sveinn Þor-
. móðsson í Breiðagerðisskóla í
' gær er átta ára börn hlýddu
Iþar á jólasögur. Sjá nánari
frásögn á bls. 10.
Frtmco vonn
mihinn sigur
, Madrid, 15. des. NTB.
r' FRANCO hershöfðingi, einræð
isherra Spánar vann mikinn sig
ur í kosningunum á Spáni í gær.
Alis greiddu 85 af hundraði
kjósenda í landinu tillögu hans
atkvæði, 1.79% sögðu nei, en
2.31% atkvæðaseðla voru ógildir
eða auðir.
Skv. nýju lögunum verður nú
í fyrsta skipti forsætisráðherra
é Spáni. Búist er við að þessi
sigur Franoos verði til þess að
hann taki ákvörðun um að verða
þjóðhöfðingi Spánar tii dauða-
dagis.
Rússar auka fjárveitingar
til landvarna
Nýbreytingar i iÓnabi
hafa gefið góda raun
Moskvu, 15 des. NTB — AP.
Fjármálaráðherra Sovét-
ríkjanna Vasili Garbusov
lagði í dag fyrir fund æðsta
ráðsins fjárlagafrumvarpið
fyrir árið 1967. Þar er gert
ráð fyrir veruíegri aukningu
útgjalda til landvarna eða
1,1 milljón rúblna — um 13,2
% aukningu — Sagði hann
ráðstöfun þessa nauðsynlega
vegna vaxandi spennu í al-
þjóðamálum — og lét að því
liggja að verulegur bluti þess
arar aukningar yrði notaður
til aðstoðar við N-Vietnam.
Buizt er Wð, að þjóðartekjur
Sovétrikjamva hœkki tn 6,6%
á komandi ári og gert er ráð fyr-
ir 5.5% lauo ahækk u n til almenn
ings.
Fréttamenn benda á, að ekki
sé gott að gera sér grein fyrir
því hversu miklu Rússar verji til
landvarna, því að á fjárlögum
þeirra séu mörg atriði talin til
annarra liða, — sem á Vestur-
löndum teljast beint til hemaðar
útgjalda.
Framhald á bis. 34.
100.000$
árslaun
Washington, 15. des. NTB
ÞEGAR Bill Moyers, blaða*
fuilltrúi Johnsons, forseta, læt-
ur af starfi sínu í Hvíta húsinu
um áramótin, tekur hann við
stöðu aðalritstjóra dagblaðsins
„Newsdey“, sem gefið er út á
Long Island. Þar fær hann um
hundrað þúsund dollara árs-
tekjur, eða meira en þreföld
laun blaðafulltrúa Hvíta húsins,
sem eru 30.000 dalir.
Ruby með krabbamein
Bílstjóri Hitlers
krefst skaðabóta
FYRRVERANDI bílstjóri Adolfs
Hitlers hefur nýlega krafizt þess
að fá greidd 91 þúsund mörk í
skaðabætur vegna slyss sem
hann varð fyrir í lok stríðsins
þegar hann ásamt öðrum nazist-
nm var á leið í fangabúðir í am-
erískum herbíi. Hann heitir Erich
Kempkas, og samkvæmt því,
eem hann sjálfur segir var það
hann sem helti benzíninu yfir
lík Hitlers, brenndi það og jarð-
eetti eftir að Sjukov marskálkur
hafði sigrað Berlín.
Eric'h var mjög ákafur nazisti
®g hafði hlotið „hið gullna flokks
*nerki“ þegar árið 1933, auk þess
*em harm var meðlimur í SS-
pveitunum. Árið 1936 varð hann
yfirmaður bílakosts kanzlaraem-
bættisins og um leið einkabíl-
stjóri foringjans. 1 lítilli bók, sem
YValt Disney
látinn
Walt Disney lézt | sjúkra-
húsi í Kaliforníu í gær.
Nánari frásögn á bls. 16.
hann hefur skrifað kemur fram
að hann var trúr Þýzkalandi unz
yfir lauk. Eftir að hafa brennt
og grafið Hitler flúði hann frá
Berlín, og var handtekinn í
Framhald á bls. 31.
Dallas, Texas 11. des.
EÆKNISRANNSÓKN hef-
ur leitt í ljós, að Jack Ruby,
sem myrti Lee Harvey Os-
wald, er sjúkur af krabba-
meini. Læknar á spítalanum,
þar sem Ruby var rannsakað-
ur, Parkland Memoríal Ho-
spital, segja, að rót krabba-
meinsins í Ruby hafi ekki enn
verið ákveðin, en víst sé, að
krabbameinið sé komið í
frumukerfi Ruby og breiöist
út.
sagði, að óliklegt, væri að
Ruiby gæti mætt fyrir rétti í
febrúar, en ákveðið hefur ver-
ið að dæma hann í þeim mán-
uði.
Ruby fór á spftalann með
lungnabólgu, en á meðan á
dvöl hans þar stóð, fundu
læknar kýlið á háJsi hans, seim
krabbameinið hefur dreifst
frá.
í naesbu viku fer Ruby aft-
ur ti/1 spítalans þar sem læ*kn
Jay P. Sanford, læknirinn, ar munu reyna aðf finna rót
sem skoðaði Ruby, sagði, að krabbameinsins í Ukama
erfitt væri að segja hvort nans-
krabbameinið myndi reynast Sanford sagði, að Ruby
Ruby lífshættulegt. Hann væri nú mjög sjúkur maður.
Geir Hallgrímson
Framkvœmda- og fjáröflunaráœtlun Reykjavíkurborgar /967 — /970
115% aukning fjármunamyndunar
1961 til 1965 — 6% aukning framkvæmda næstu 4 ár
FRAMKVÆMDA- og fjár-
öflunaráætlun Reykjavíkur
1967—1970 var lögð fram í
borgarstjórn Reykjavíkur í
gær.
Borgarstjóri, Geir Hall-
grímsson, gerði grein fyrir
efni áætlunarinnar svo og
fyrir framkvæmdum borgar-
innar síðustu ár.
Á tímabilinu 1961 til 1965
hefur aukning fjármuna-
myndunar borgarinnar orðið
um 115% en lækkar um 6,8%
á yfirstandandi ári miðað við
1965,
Á næstu 4 árum er gert
ráð fyrir, að heildarfjárfest-
ing í framkvæmdum verði
2.450 milljónir króna eða um
1,5% aukning framkvæmda á
ári.
Hér fer á eftir fyrsti hluti
ræðu borgarstjóra en ann-
ars staðar í blaðinu er getið
ummæla hans um einstaka
framkvæmdaþætti
Nú hefur verið lögð fram
Framkvæmda- og fjáröflunar-j
aætlun Reykj avíkurborgar fyrir
árin 1967—1970, sem gerir báð-
um Iþessum jþáttum nokkur skih
Þegar Framkvæmdaáætlun
Reykjavíkurborgar 1966—67 var
iögð fram í maímánuði sl., taldi
ég æskilegt, að slík framkvæmda
og fjáröflunaráætlun lægi fyrir
við afgreiðslu fjárhagsáætlunar
ár hvert og hefur það nú tekizt,
Framhald á bls. 10.