Lesbók Morgunblaðsins - 17.12.1990, Side 32
Við opnun sýningar í Listamannaskálanum gamla við Austurvöll. Sýningargestir þyrpast ínn úr dyrunum.
Hér heilsar Kjarval Sigurbirni Einarssyni, þá prófessor við guðfræðideild Háskólans. Fýrir aftan Sigur-
björn er Alfreð Guðmundsson, vinur Kjarvals og síðar forstöðumaður Kjarvalsstaða. Hægra megin við
hann er Helgi Elíasson, fræðslumálasljóri og á milli þeirra Alfreðs og Helga sést í Gils Guðmundsson
rithöfund. En að baki Kjarval er borgarskáldið, Tómas Guðmundsson.
I einrúmi, eða með einum manni var Kjarval allur
annar maður en í fjölmenni. Hér er hann í einlægum
og alvarlegum samræðum við Gunnar Gunnarsson
skáld.
Svefnstaður listamannsins í vinnustof-
unni í Sigtúni. Það var aukaatriði hvort
búið var um. Þarna hafði hann uppi
myndir, sem lengi höfðu fylgt honum;
kvöldmáltíðarmynd da Vincis og teikn-
inguna af vini sínum, Agli Thorarensen
á Selfossi, sem stendur á gólfinu aftan
við dívaninn og nú hangir uppi á Hótel
Holti. Hér hefur Ólafur K. Magnússon
verið einn á ferðinni, hitt á Kjarval í
rólegu skapi og myndað hinn íhugula,
hugsandi mann.
Samband Kjarvals og Sigurðar Benediktssonar var mjög náið síðustu Af svipnum á Kjarval á þessari mynd má ráða, að her hafi hann farið að gantast við guðsmann-
árin; hér ræðast þeir við í vinnustofunni í Sigtúni. inn, Asmund Guðmundsson biskup. Á milli þeirra sést í Svein Björnsson málara, en konurnar
til hægri hefur ekki tekist að bera kennsl á.
32