Morgunblaðið - 16.05.2000, Qupperneq 45
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 16. MAÍ 2000 45
Reuters
ar sprengingarnar hófust í flugeldaverksmiðju í miðbænum í Enschede á sunnudag, þar sem hundruð manna slösuðust
og tugir manna fórust.
GELDAGEYMSLUNNi
on til þess að HOLLAND
num Enschede
g yfir 600 ‘"rvr
í Ek" , ^ Q
Amsterdam ■ r ^ 5
Enschede s CA)
(búafjöldi: 145.000 BELGlA K n
Enschede
Vörugeymsla fyrir flugelda
Blossinn sýnir svæðið er verst varð úti
I Eldsvoði fyrir utan vörugeymsluna færist
til geymslusvæðis þar sem 100 tonn af
flugeldum eru geymd
l Vægar sprengingar draga
að forvitinn mannfjölda
) Mikið eldhaf verður úr öflugri spreng-
ingu sem eyðileggur fjölda húsa
i)
AP
Yfirlitsmynd sem sýnir hluta af svæðinu sem varð eyðileggingu að bráð í
Enschede eftir að flugeldaverksmiðjan sprakk í loft upp. Myndin er tekin
af myndbandi sem hollenska lögreglan tók í gær.
Morgunblaðið/Arni Sæberg
Hverfinu þar sem sprengingarnar urðu var lokað og sést lögreglumaður við
ytri girðinguna. Mikið vatn fór í slökkvist arfið og þurfti að spara það í borg-
inni í gær.
Reuters
Slökkviliðsmaður gengur hjá vörugeymslunni er geymdi um 100 tonn af
flugeldum í bænum Enschede í Ilollandi.
ir Arianne örugg. „Það eru bara þessi
ef,“ segir Bjami. „Þau eru alltaf að
slqóta upp kollinum; hvað ef þetta,
hvað ef hitt. Mér finnst ennþá erfitt að
hugsa um þetta. Reyndar veit ég ekki,
hvort ég hef náð þessu. Mér finnst
þetta stundum svo óraunverulegt.
En svo er eins og ég hafi uþplifað
eitthvað þessu líkt áður, þegar ég var
strákur á Skaganum. Þá sprakk flug-
eldaverksmiðja þar og hús skemmd-
ust. Það var auðvitað miklu smærra í
sniðum en þessi sprenging hérna á
laugardaginn. En ég var svo lítill þá og
sú sprenging þeim mun stærri í minn-
ingunni."
Hvað muna þau bezt frá þessum ör-
lagaríka laugardegi? Höggþrýstingur-
inn af seinni sprengingunni var svo
gífurlegur, segja þau.
„Þetta var einhver hrikalegur kraft-
ur, sem leystist þarna úr læðingi. Og
tilhugsunin um allt fólkið sem fórst og
særðist. Hún er sár. En við sluppum.
Við getum ekki annað en verið forsjón-
inni þakklát fyrir það.“
Þau Bjami og Arianne kynntust á
Akureyri. Hún kom til íslands nýút-
skrifaður sjúkraþjálfari, fór fyrst til
Siglufjarðar og svo til Akureyrar, þar
sem Bjarni var við myndlistamám.
Þau fluttu svo hingað til Enschede,
þar sem Bjami kláraði nám við mynd-
listarakademíuna og Arianne starfaði
á endurhæfingarstöð handan landa-
mæranna í Þýzkalandi.
Þegar ég er að skrifa þessar síðustu
línur hringir Bjami og segir þau hjón.
hafa verið að sjá loftmyndir af
sprengjusvæðinu í sjónvarpinu. „Við
sáum þetta ekki vel, en okkur sýnist
húsið okkar standa að miklu leyti,“
segir hann. „En þakið er farið og flest
virðist bmnnið. Og vinnustofuskúrinn
minn er horfinn.“
íikja ekki verið
íbúar Enschede safnast saman í kring-
um bygginguna og fylgst með bmna í
því sem þeir töldu vörugeymslu fyrir
pappír og megnuðu slökkviliðsmenn
ekki að bægja fólksfjöldanum frá í
tæka tíð.
Töldu að um flugeldasýmngu
væri að ræða
Sjónarvottai- segja að eldur hafi
kviknað í vörugeymslunni síðdegis á
laugardag og að í fyrstu hafi litið út
sem um flugeldasýningu væri að ræða.
Þá hafi eldhnettir skotist út frá bygg-
ingunni yfir norðurhluta og miðbæ
Enschede.
Laust eftir klukkan fjögur að stað-
artíma, eða tvö að íslenskum tíma,
varð síðan gríðarleg sprenging í bygg-
ingunni og skömmu síðar kom upp
eldur sem breiddist skjótt út um nær-
liggjandi íbúðabyggð. Sprengingin og
eldurinn sem fylgdi í kjölfarið ollu
mikilli skelfingu meðal þeirra er þust
höfðu að til að fylgjast með sakleysis-
legri „flugeldasýningunni" sem á ör-
skömmum tíma breyttist í eldhaf.
Bílar og hús sem stóðu næst vöru-
geymslunni gereyðilögðust og götur í
miðbæ Enschede líktust vígvelli eftir
að brak hafði þeyst í allar áttir. Byggð
í um 400 metra radíus umhverfis Toll-
enstraat, þar sem vörugeymslan var
staðsett, var rústir einar og dynurinn
af sprengingunni heyrðist í allt að 15
km fjarlægð og sögðust íbúai' í bæjum
í kring hafa haldið að um flugslys væri
að ræða.
„Ég fór út á hjólinu mínu til að fylgj-
ast með og sá hryllinginn. Það var
blóð, ég sá fólk gráta, það voru flísar,
eyðilagðir gluggar og stálbitar út um
allt,“ sagði einn sjónarvotta í samtali
við fréttamann AFP.
Að mati bæjarstjórans í Enschede
eyðilögðust um 400 íbúðarhús og eru
1000 hús til viðbótar talin mikið
skemmd. Á fjórða hundrað íbúa var
hýst í skóla í suðurhluta bæjarins.
Bæjaryfirvöld sögðu í gær að 628
manns hefðu slasast í sprengingunni
og brunanum sem á eftir fylgdi og að
þar af sé 32 enn haldið í sjúkrahúsum í
nágrenni bæjarins. Sex manns eru á
gjörgæsludeildum. Þá sagði Jan Mans
bæjarstjóri Enschede að 200 íbúa
væri enn saknað en lagði þó áherslu á
að ekki væri talið að allir hefðu farist í
slysinu.
Slökkvilið náði að slökkva elda seint
á laugardagskvöld og leit var hafin í
rústunum. í gær sögðu björgunar-
menn að aðeins hefði verið hægt að
leita í fjórum götum eða um einum
fimmta hluta svæðisins er verst varð
úti, vegna gífurlegs hita. Enn hafa að-
eins verið borin kennsl á fimmtán lík
og sagði Dick de Jong, yfírmaður
kennslasveitar lögreglunnar, í gær að
óvíst væri hvenær leit yrði hætt vegna
aðstæðna og ónógra upplýsinga um þá
sem væri saknað.
útilokuð
Fæstir vita hvað geymt
er í vörugeymslunum
Þá hafa sérfræðingar hollenska
hersins verið kallaðir til starfa til að
rannsaka hugsanleg eldsupptök en
Aad Groos lögreglustjóri Enschede
sagði í gær að íkveikja hefði ekki verið
útilokuð. Grunsemdir um íkveikju
hafa kviknað í Ijósi þess að kveikt var í
þremur fyrirtækjum í norðurhluta
bæjarins í liðinni viku.
Þá sagði hollenska ríkissjónvarpið
frá því í gær að slökkvilið hefði verið
kallað út í gærmorgun vegna gruns
um íkveikju. Heimildamenn The Daily
Telegraph innan hollensku lög-
reglunnar sögðu á sunnudag að ef um
íkveikju hefði verið að ræða gæti
hugsast að sökudólgurinn hefði ekki
vitað af því að í byggingunni væru
geymdir flugeldar.
Alls er talið að um tuttugu fyrirtæki
í Hollandi hafi leyfi til þess að geyma
flugelda í byggingum og eru tvær af
tólf slíkum vörugeymslum staðsettar
í Enschede. Undanfama daga hafa
verið uppi háværar raddir um að
breyta hollenskri löggjöf og banna
geymslu flugelda í íbúðabyggð.
Fæstir vita hvað geymt er í slíkum
vöruskemmum og var jafnvel Jan
Mans bæjarstjóri einn þeirra. Vöru-
geymslan var byggð árið 1977 og á
þeim tíma var hún staðsett í útjaðri
bæjarins en með árunum hefur
byggð teygt sig í átt að iðnaðarhverfi
hans og verkamannaíbúðir verið
reistar í námunda við flugelda-!
geymsluna.
Bæjarstjórinn sagði í gær að fyrir-
tækið sem bar ábyrgð á vörugeymsl-
unni hefði haft öll tilskilin leyfi og að
byggingin hefði staðist öryggiskröf-
ur. Þá hafi öryggisdeild hollenska
hersins rannsakað vörugeymsluna i
síðustu viku og ekki fundið neitt að-
finnsluvert.