Morgunblaðið - 16.05.2000, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 16. MAÍ 2000 1 5
LANDIÐ
Morgunblaðið/Jón G. Guðjónsson
Námskeið í
leirmótun
Árneshreppi - Á nýliðnum vetri
keypti Kvenfélag Árneshrepps
leirbrennsluofn og síðan fengu
kvenfélagskonur kennarann Stein-
unni Helgadóttur frá Leirkrúsinni
í Reykjavík til að kenna leirmótun
og leirbrennslu. Og nú fyrir
nokkru kom Steinunn aftur og
kláraði seinni hluta námskeiðsins.
Árangurinn er nú kominn í ljós í
formi fallegra hluta. Myndin sýnir
nemendur með afrakstur sinn.
Ferðamálafélagið Súlan
á Þórshöfn
Uppbyggingu
vega á Norð-
austurlandi
verði hraðað
STJÓRN Ferðamálafélagsins
Súlunnar hefur skorað á stjórn-
völd að framkvæmdir við upp-
byggingu vega á Norðaustur-
landi verði hraðað og einskis
látið ófreistað til að svo megi
verða. Er þá átt við uppbygg-
ingu varanlegs vegar sem tengir
byggðalög Norður-Þingeyjar-
sýslu við aðalþjóðvegakerfi
landsins.
Ályktun þessa efnis var sam-
þykkt á aðalfundi Súlunnar ný-
lega, en þar kemur fram að
færa megi fyrir því rök að nú-
verandi ástand vega reisi skorð-
ur við eflingu ferðaþjónustu,
einkum með tilliti til skipu-
lagðra ferða. Nefnt er dæmi um
að aðalsamgönguleið íbúa Þórs-
hafnar til Akureyrar að sumri
liggi um Öxarfjarðarheiði, en
þeim vegi hafi lítt eða ekki verið
haldið við frá því hann var lagð-
ur árið 1940. Akleið um Mel-
rakkasléttu er 70 kílómetrum
lengri, en þann veg þarf að aka
að vetri eða í um 8 mánuði árs-
ins. Sá vegur er líka lélegur,
segir í ályktun félagsins.
„Á sama tíma og ferðamanna-
þjónusta hefur á síðustu árum
verið helsti vaxtarbroddur ís-
lensks efnahagslífs fær svæði
eins og okkar hvergi notið sín
með tilliti til hinna ómögulegu
vegasamgangna og samkeppnis-
staðan versnar ár frá ári,“ segir
í ályktun Súlunnar, og því er
skorað á stjórnvöld að grípa til
aðgerða, enda ekki einungis um
brýnt mál að ræða, heldur sé
ástandið beinlínis niðurlægjandi
fyrir íbúa Norðurausturlands.
Þeir kunna að moka, krakkarnir í Grindavík.
Morgunblaðið/GPV
Nýr leikskdli í Grindavfk um áramót
Einkaframkvæmd í
byggingu leikskóla
Grindavík - Skóflustunga að nýjum
leikskóla í Grindavík var tekin nú á
dögunum og það voru krakkar í skóla-
hóp fyrir hádegi sem sáu um það.
Þessi framkvæmd er nýmæli á Is-
landi en hér er um einkaframkvæmd
að ræða þar sem byggingaraðilinn,
Nýsir/ístak, sér um að byggja, sér
um ræstingu og að halda við bygging-
unni. Þá er í samningnum ákvæði um
viðhald og endumýjun á innanstokks-
munum, leiktækjum, endumýjun á
Margs konar hátíðarhöld
á kristnitökuafmæli
Kirkjubæjarklaustri - Út um allt
land em sóknarnefndir, söfnuðir og
ýmsar stofnanir að minnast 1000 ára
kristnitöku í landinu. Oft em þessir
atburðir gerðir í samvinnu margra
aðila og þegar fréttaritari Morgun-
blaðsins innti sr. Bryndísi Möllu Elí-
dóttur, sóknarprest á Kirkjubæjar-
klaustri, eftir viðburðum £ hennar
héraði, kom á daginn að ýmislegt
hefur verið gert og annað enn á dag-
skrá.
Sr. Bryndís Malla þjónar Ása- og
Kirkjubæjarklaustursprestakalli og
söfnuðir þar höfðu aðalhátíð presta-
kallanna 19. mars í vetur. Þá var há-
tíðarguðsþjónusta í Prestbakka-
kirkju og samkoma í Kirkjuhvoli á
eftir þar sem flutt vora tónlistara-
triði og ræður, auk þess sem leiklist-
arhópur grannskólanemenda sýndi
framsamið atriði tengt kristninni.
Það má hins vegar segja að hátíð-
arhöldin í umdæminu hafi byrjað
fyrir rúmu ári með ráðstefnu um
kirkjur og kristni sem Kirkjubæjar-
stofa og prófastsdæmið stóðu fyrir.
Erindi sem þar vora flutt vora síðan
gefin út í heild í 7. bindi ritsins Dyn-
skógar nú í haust.
Þá hefur presturinn verið í sam-
vinnu við myndlistarkennara grann-
skólans í vetur. Á þeirra vegum var
sett upp gluggaskreyting í kapellu
sr. Jóns Steingrímssonar á aðvent-
unni. Þar höfðu nemendur unnið
myndverk um tákn jólanna, útfærð á
ýmsan hátt. Seinni hluta vetrar vann
svo annar hópur að verkum um Jes-
ús og líf hans og lagði áherslu á tákn-
Morgunblaðið/Hanna Hjartardóttir
Sr. Bryndís Malla við eitt verka á sýningu í kapellunni.
mál litanna. Sýning þeirra verka var
í dymbilviku og einnig sett upp í kap-
ellunni. í grannskólanum vora
þemadagar 10.-14. apríl sem vora
helgaðir þessu afmæli og var þar
unnið að ýmsum verkum.
í tilefni þessara tímamóta verður
gerður bæklingur um sögu kirkna á
svæðinu og upplýsingar hafðar
frammi í hverri kfrkju. Kirkjukór
Prestbakkasóknar mun halda tón-
leika 10. júni sérstaklegaafþessu til-
efni. Síðast en ekki síst má geta þess
að á árlegum kammertónleikum á
Kirkjubæjarklaustri, sem verða 13-
15. ágúst í sumar, mun verða fram-
tölvubúnaði á fimm ára fresti o.fl.
Samningstíminn er 24 ár. Sam-
kvæmt upprunalegu tilboði hljóðaði
samningurinn upp á 23 milljónir á ári
en sú upphæð hefur lækkað niður fyr-
ir 17 milljónfr eftir að ýmislegt var
tekið út úr upphaflegu tilboði. Fram-
kvæmdum á að ljúka með hraði og á
að afhenda leikskólann 1. janúar 2001
en þetta er fjögurra deilda leikskóli
með 80 heilsdagsrýmum.
„Þörfin er mikil í hraðri uppbygg-
ingu bæjarins en þegar nýi leikskól-
inn tekur til starfa munum við geta
svarað eftirspum eftir leikskólaplássi
fyrir öD böm á aldrinum 2-6 ára og
jafnvel allt niður í 18 mánaða. Sam-
hliða því að taka í notkun þennan nýja
skóla munum við endurbæta gamla
leikskólann við Dalbraut og búa hann
í takt við tímann," sagði Einar Njáls-
son bæjarstjóri við þessa athöfn. Ein-
ar sagði líka að ekki væri búið að taka
ákvörðun um rekstrarform skóla-
haldsins sjálfs en það yrði skoðað með
opnum hug.
Sigfús Jónsson, framkvæmdastjóri
hjá Nýsi, sagðist hlakka til samstarfs-
ins við Grindvíkinga og sló á létta
strengi: „Við verðum komnir yfir sjö-
tugt þegar samningstímanum lýkur
en þá verða aðrir teknir við þannig að
það er engu að kvíða varðandi samn-
inginn.“
Firmakeppni Smára
Hrunamannahreppi - Hestamenn í
hestamannafélaginu Smára, .sem
starfar í Hreppum og á Skeiðum,
komu saman að venju 1. maí og
háðu fírmakeppni með fjölda þátt-
takenda. Sigurvegari í barnaflokki
var Guðríður Þórarinsdóttir á Funa
og keppti fyrir hreppsskrifstofu
Hranamanna.
I unglingaflokki varð Einar Örn
Sigurjónsson á Glym en hann
keppti fyrir Garðyrkjustöðina
Hverabakka 2. Brigitta Bragger
varð efst í kvennaflokki á Brellu,
keppti hún fyrir Tamningastöðina á
Kálfhóli en Guðjón Birgisson og
Hrimnir fóra með sigur af hólmi í
karlaflokki, þeir kepptu fyrir Flúða-
skóla. Að venju var það Magnús
Gunnlaugsson í Miðfelli sem fór
hraðast á skeiðinu á Kappa sínum.
Verulegur fjöldi fólks stundar
hestamennsku í þessum sveitum sér
til heilsubótar og ánægju. Nokkrar
tamningastöðvar eru starfræktar á
svæðinu og er mikið hjá tamninga-
mönnum að gera. Margir bændur
kvarta þó yfir að erfitt sé að selja
hross og að verðið sé lágt, að til-
kostnaður sé mikill, ekki sist síðast-
liðinn vetur sem var harður og
gjafafrekur á hrossum.
flutt verk eftír Mist Þorkelsdóttur
tónskáld. Afi hennar, sr. Sigurbjöm
Einarsson biskup, hefur þegar sam-
ið nokkurs konar söguljóð við verkið.
Þar er um að ræða sögu Kirkjubæj-
arklausturs frá landnámi til nútíma,
verk í nokkrum köflum og í hverjum
kafla era nokkur erindi. Þama verð-
ur vafalaust magnþrangið verk þess-
ara nákomnu listamanna.
Eins og upptalningin ber með sér
hafa þessi prestaköll í V-Skaftafells-
sýslu, £ samvinnu við fleiri aðila,
sannarlega lagt hönd á plóg við að
gera 1000 ára afmælinu skil á sem
glæsilegastan hátt.