Morgunblaðið - 24.07.1999, Síða 16
16 LAUGARDAGUR 24. JIJLÍ 1999
AKUREYRI
MORGUNBLAÐIÐ
Efnismeira Dagskrárblað
Tjarnarkvartettinn á sumartónleikar
í Akureyrarkirkju
Dagskráin er helguð
kristni í þúsund ár
TJARNARKVARTETTINN kemur
fram á fjórðu tónleikahelgi Sumar-
tónleika í Akureyrarkirkju sem verða
á morgun, sunnudaginn 25. júlí kl. 17.
Maríuvers, íslensk helgikvæði og
þjóðlög eru á fyrri hluta efnisskrár-
innar en íslensk sönglög og kvæði í
þeim síðari. Dagskráin er helguð
kristni í þúsund ár.
Tjarnarkvartettinn er blandaður
kvartett skipaður tvennum hjónum
úr Svarfaðardal, þeim Rósu Kristínu
Baldursdóttur, sópran, Hjörleifi
Hjartarsyni, tenór, Kristjönu Arn-
grímsdóttur, alt, og Kristjóni Hjart-
arsyni, bassa. Kvartettinn hefur
starfað allar götur frá árinu 1989,
haldið tónleika víða um land og í út-
löndum, gefið út fjórar geislaplötur
og komið fram í útvarpi og sjónvarpi.
Tónleikarnir standa yfir í klukku-
stund og er aðgangur ókeypis.
Dagskrárblaó Morgunblaðsins inniheldur dagskrá sjónvarps- og
útvarpsstöðva í hálfan mánuó.
í blaðinu er einnig að finna viðtöl, greinar, kvikmyndadóma,
fræga fólkið og stjörnurnar, krossgátu, yfirlit yfir beinar útsend-
ingar frá íþróttaviðburðum og Ijölmargt annað skemmtilegt efni.
Hafðu Dagskrárblaó Morgunblaósins alltaf til taks nálægt
sjónvarpinu!
Morgunblaðið/Golli ÞÓRARINN B. Jónsson, formaður íþrótta- og tómstundaráðs, klippir á
HEITUR pottur er í glerhýsi í nýbyggingunni en þaðan er gott útsým borðann og bauð gestum inn í nýbyggingu Sundlaugar Akureyrar, en
yfir sundlaugarsvæðið. Gísli Kristinn Lórenzsson, forstöðumaður, fylgist með.
Nýbygging sundlaug-
arinnar tekin í notkun
NÝBYGGING við Sundlaug Akur-
eyrar var tekin í notkun í gær, en
þar er anddyri, búningsklefar
kvenna, sturtur og glerhús með heit-
um potti. Með tengigangi við
Iþróttahúsið við Laugagötu er bygg-
ingin rúmlega 1.300 fermetrar að
stærð. Þá voru einnig teknir í notkun
nýir útiklefar bæði fyrir karla og
konur auk þess sem nýr og öflugur
hreinsibúnaður hefur verið tekinn í
notkun við laugina. I þessum áfanga
framkvæmda var frágangur á lóð
einnig innifalin.
Ásgeir Magnússon, formaður
framkvæmdanefndar Akureyrarbæj-
ar, sagði að mikill sómi væri að
mannvirkinu en nokkru öðru vísi um
að litast en þegar fyrsta sundlaugin
var byggð á þessum stað fyrir rúm-
lega hundrað árum. Þá hefðu menn
látið sér nægja vatn úr læk sem þar
rann og torfhleðslu. Núverandi fram-
kvæmdir við Sundlaug Akureyrar
hafa staðið yfir með hléum frá árinu
1994 og þeim er ekki að fullu lokið.
Eftir á að endurbæta búningsaðstöðu
karla og innrétta efri hæð gamla
sundlaugarhússins þar sem áður
voru búningsklefar kvenna. Hönnun
er lokið og væntir Ásgeir þess að
framkvæmdir gætu hafist fljótlega.
Þórarinn B. Jónsson, formaður
íþrótta- og tómstundaráðs, gat þess
að þrjár bæjarstjórnir hafi staðið að
framkvæmdum við sundlaugina og
þakkaði þeim þann kjark og þor sem
falist hefði í svo umfangsmiklum
framkvæmdum. Hann sagði hina
nýju aðstöðu reista af myndarskap
og áfram myndi verða haldið á sömu
braut.
Listasmiðja
á Listasumri
LISTASMIÐJA verður starfrækt á
Akureyri sem hluti af dagskrá Lista-
sumars ‘99. Fjórir ungir myndlistar-
menn, Aðalsteinn Þórsson, Barry
Camps, Camilfa Singh og Walter
Willems eru frumkvöðlar smiðjunnar
en þau eru öll frá AK12, Listaháskól-
anum í Hollandi.
Aðalverkefni listasmiðjunnar verð-
ur gerð stuttmyndar sem sýnd verð-
ur í Ketilhúsinu á Akureyri og
Neuwe Vida, Haarlem í Hollandi. Þá
verður mikið um að vera á hverju
kvöfdi meðan starfsemin er í gangi,
eða frá þriðjudeginum 27. júlí til 31.
júfí, en þá um kvöldið lýkur lista-
smiðjunni með uppákomu í Ketilhúsi.
Þeir sem áhuga hafa á að taka
þátt í listasmiðjunni geta haft sam-
band við starfsmenn Listasumars á
skrifstofu Gilfélagsins í Kaupvangs-
stræti.
Bókmenntadagskrá
í Deiglunni
Tímans
hringrás
DAGSKRÁ úr ljóðabálki Pjet-
urs Hafsteins Lárussonar
„Vökuborg og draums/Tímans
hringrás í Reykjavík" verður
frumflutt í Deiglunni við Kaup-
vangsstræti annað kvöld,
sunnudagskvöldið 25. júlí kl.
21.30.
Leikararnir Baldvin Hall-
dórsson og Karl Guðmundsson
lesa upp. Ami Isleifsson hefur
samið tónlist við ljóðabálkinn
og flytur hana. Þá koma þeir
Hauloir Ágústsson og Guðjón
Pálsson einnig fram og flytja
tónlist.
Pjetur Hafstein Lárusson
dvelur nú við ritstörf í rithöf-
unda- og fræðimannsíbúðinni í
Davíðshúsi. Ljóðaflutningur-
inn er fyrsti liður í samfelldum
bókmenntaviðburðum á Lista-
sumri sem stendur fram til 1.
ágúst næstkomandi.
Kirkjustarf
AKUREYRARKIRKJA: Fjöl-
skylduhátíð í Kjamaskógi kl.
12.45 á morgun, sunnudag, í til-
efni af 1000 ára afmæli kristni í
Eyjafirði. Fjölskylduguðsþjón-
usta, leikritið Nýir tímar eftir
Böðvar Guðmundsson frum-
sýnt, tónlist, brúðuleikhús, rat-
leikur og fleira. Sumartónleikar
kl. 17 á morgun. Morgunbæn
kl. 9 á þriðjudag.
GLERÁRKIRKJA:
Kvöldguðsþjónusta verður í
kirkjunni kl. 21 annað kvöld.
HVÍTASUNNUKIRKJAN:
Samkomur með Randy
Bozharth frá Dallas í Texas kl.
11.30 á sunnudag, einnig kl. 20
á sunnudags- og mánudags-
kvöld. Randy er virtur kennari
þar vestra og ber fram góða og
heilbrigða kennslu. Líflegur
söngur og fyrirbænaþjónusta.
Bænastundir kl. 6.30 alla
morgna.
Síðasta
sýningarhelgi
SÍÐASTA sýningarhelgi er á verk-
um Ólafar Erlu Bjarnadóttur á
leirverkum í Gallerí Svartfugli,
Listagilinu Akureyri.
Sýningunni lýkur 25. júlí. Galler-
íið er opið frá kl. 14-18.