Morgunblaðið - 28.11.1998, Síða 77
MORGUNBLAÐIÐ
FÓLK í FRÉTTUM
LAUGARDAGUR 28. NÓVEMBER 1998 77
Árni Johnsen og Geir Haarde á Hótel íslandi
Við höfum gaman
af því að syngja
ÁRNI Johnsen og Geii’ Haarde voru
með útgáfutónleika á Broadway á
Hótel Islandi í gærkvöldi þar sem
þeir fluttu lög af diskinum Stór-
höfðasvítan og svolítið meira. Þeh'
munu einnig skemmta í kvöld og
raunar alla föstudaga og laugardaga
alveg til jóla. „Þetta verðui- á undan
Abba og New York, New York,“ seg-
h’ Árni. „Það verða tekin lög úr Stór-
höfðasvítunni, gamalkunnir banda-
rískir kántrísmellir með íslenskum
texta eins og Fagra blóm, Astin mín,
Með Magga á Grundó og Ég elska
þig.“
Hvemig kom Geir inn íþetta?
„Það kom bai-a af sjálfu sér,“ svar-
ar Arni. „Ég fór að segja félaga mín-
um frá þvl í sumar að ég ætlaði að
gefa út disk með Stórhöfðasvítunni
og svolítið meira. Þá segir Geir:
„Skrambi væri nú gaman að syngja
inn á disk.“ Hann er mikill söngmað-
ur og tekur oft lagið í góðra vina
hópi. „Þá skellum við þér bara sem
gestasöngvara á diskinn,“ sagði ég.
Við glettumst eitthvað með þetta
og það liðu nokkrir mánuðh'. A einu
fai’tinu segi ég við Geir: „Heyrðu við
þurfum að velja lög.“ Þá svarar
hann: „Þau eru klár.“„
Hvernig diskur er þetta?
Hann nefnist Stórhöfðasvítan og
svolítið meira og er með átján lögum.
„Sjö eru nýútsett og syng ég fjögur,
þar af eitt í tveimur útgáfum á ís-
lensku og færeysku. Geh' syngur
þrjú lög eða Elskan mín sem er ís-
lenskun á „I Love You Because" sem
varð þekkt með Jim Reeves, Söng
sjómannsins sem Alfreð Clausen
söng fyrr á öldinni við texta Lofts
Guðmundssonar og rússneska þjóð-
lagið Steinka Rasín við texta sem ég
hef samið með íslenskri náttúru-
stemmningu. Að sjálfsögðu er Stór-
höfðasvítan einnig á disknum og er
hún 22 mínútui' að lengd í flutningi
Sinfóníuhljómsveitar íslands. Þá eru
tíu gamlar upptökur á lögum sem
svítan byggir á frá árunum 1971 til
1994.“
Hvernig verður dagskráin á Broa-
dway?
„Við verðum með gítar og upptök-
ur og syngjum og tökum létta lotu.“
Hafíð þið komið fram saman áður?
„Ekki formlega."
Hvernig fer þetta saman við pólitík-
ina?
„Pólitíkusar era bara eins og ann-
að fólk. Sumir spila brids. Aðrir spila
golf. Sumir lesa bók. Aðrir stunda
íþrótth' og hestamennsku. Þetta er
bara hluti af því að hafa gaman af til-
verunni og bregða á leik. Við höfum
gaman af því að syngja báðir. Þetta
er sjötti diskurinn sem ég gef út og
það er gaman að gera svolítið öðru-
vísi og fá gestasöngvara sem hefði
þess vegna getað orðið óperasöngv-
ari ef hann hefði lagt sig eftir því og
Morgunblaðið/Þorkell
GEIR H. Haarde, Vilhjálmur Guðjónsson og Arni Johnsen við upptök-
ur á disknum Stórhöfðasvítunni og svolítið meira.
C
þá tala ég um á heimsmælikvarða.
En við tökum þetta nú meira í vísna-
stíl.“
Eru fleiri söngmenn í þingfiokkn-
um, - þið gætuð kannski stofnað
kór?
„Við höfum mikið af hæfileikafólki,
til dæmis er forsætisráðhemmn
gamalreyndur ballöðusöngvari úr
leiklistinni og textahöfundur og
skáld að auki. Friðrik Sophusson er
þjálfaður í ýmsum blökkumanna-
söngvum. Ólafm’ G. Einarsson og
séra Hjálmar Jónsson eru afbragðs
munnhörpuleikarar. Tómas Ingi 01-
rich er tónskáld og píanóleikari.
Halldór Blöndal er þekktari fyrh' að
yrkja en getur listilega kveðið rímur.
Sturla Böðvarsson er gítarleikari úr
Bítlahljómsveitum. Lára Margrét er
gamalreynd söngleikjasöngkona. Við
Björn Bjarnason sungum saman í
Ríkisútvarpinu í útvarpsþætti fyrir
mörgum árum. Vilhjálmur Egilsson
er hörkurokksöngvari og Egill Jóns-
son spilar á harmóníku. Það er því
fullt af góðu söngfólki þarna og það
er allt til í dæminu."
Handrukkað í Kansas
SÝN birti mynd föstudaginn 20.
nóvember, sem bar nafnið Skar-
kárinn og var um heldur hressi-
legan draugagang, sem við hér
norðurfrá höfum minna haft af
að segja, en t.d. engilsaxneskar
þjóðir. Draugagangur norður-
hjarans er næstum hávaðalaus
og lyktarlaus og varla að hann
hreyfi hurð eða
brjóti rúðu. Hinn
engilsaxneski
draugur gengur
aftur á móti um
með sköllum, skellir hm-ðum,
brýtur rúður og stundar hávaða
ef marka má lýsingu á skarkár-
anum í myndinni, sem ku enn
lifa góðu lífi í Texas, ásamt kon-
unni, sem hann ofsótti og nauðg-
aði, eins og myndin sýnir, sem
boðað er að sé sannsöguleg. Við
skulum lofa þeim vestverjum að
hafa sína draugatrú í friði. En
þeir, sem voru aldir upp við
þjóðsögur Jóns Árnasonar
þekkja ekkert til drauga í Texas
eða annars staðar og undrast að
gerð skuli mynd (sannsöguleg)
um afturgenginn nauðgara, sem
þolir jafnvel ofurfrost og aðrar
tæknibrellur, sem tunglfarar-
þjóðin beitir verur úr öðrum
heimi, hvort sem þær eru úr víti
eða af himnaríki komnar. Ekk-
ert bendir til þess að hægt hafi
verið að fyrirkoma þessum
Texas-draug, en hérna voru
menn snillingar í að kveða niður
drauga. Þeir ýmist sökktu þeim í
dý eða bundu þá við steina, en
þegar mest var af þeim virtust
þeir næstum vera eins og önnur
SJONVARP A
LAUGARDEGI
þjóð í landinu. Er þá álfum
sleppt en þeir voru líka fjöl-
mennir og áttu í ástarsambönd-
um við mennska menn, sem nutu
samvistanna í draumum, svo
granur vaknaði um að draum-
amir væru sprottnir af kven-
manns- eða karlmannsleysi.
Á laugardag sýndi ríkiskass-
inn myndina
Kvenhetjur, sem
byggðist á sögu
um tvær systur í
Texas á nítjándu
öld, þegar Sam Houston og fé-
lagar hans voru að stofna Texas
og ná því undan áhrifum Mexík-
ana. Var Houston þó liðfár og
vanmegna fyrsta kastið, eins og
orrusta hinna fáu við Alamo
sýndi. Þai- kurlaði Santa Anna
niður lungann úr hetjum vest-
ursins, en Bandaríkjamenn
höfðu gjarnan að herópi síðan:
Munið Alamo. Þær Texas-systur
lifðu líka þrælastríðið og barátt-
una við kommansí-indíána, en
sumar frárnar voru hálfir indíán-
ar í ættir fram. Ur þessari gerj-
un reis síðan voldugt fylki í
Bandaríkjunum, en mikið lögðu
þeir menn á sig, sem fyrstir urðu
til að brjótast til lands í Texas og
víðar í svokölluðum vesturríkjum
og miklar sögur hafa verið af
þeim sagðar, bæði sannai’ og
lognar. I þessari mynd ríður
enginn inn í sólarlagið, enda er
þetta ekki vestri heldur fjöl-
skyldusaga frá tímum sem vora
svo erfiðir að að konur máttu
þakka fyrir að ná fertugsaldri,
en þá vora þær orðnar afgamlar
og slitnar af linnulausum þræl-
dómi. Seinni hluti myndarinnar
um kvenhetjurnai’ var svo sýnd-
ur á sunnudagskvöld, þar sem
við skildum við þær á göngu á
heimatúni og höfðu uppi þau síð-
ust orð að þarna væru þær enn,
tvær Texas-kerlingar.
Sama kvöld sýndi ríkiskassinn
myndina Voðafár með þeim Lee
Mai-vin (látinn) og Gene Hack-
man. Um 1907 var það látið ger-
ast í skáldsögu í Bandaríkjunum
í hinum risastóra kjötvinnslufyi'-
irtækjum, sem risið höfðu upp í
Chicago, að maður féll ofan í
stóra hrærivél með hökkuðu
kjöti og fórst þar. I stað þess að
stöðva framleiðsluna sagði í
skáldsögunni, að fyrirskipun
hefði borist um að halda áfram á
óbreyttum hraða. Menn átu síð-
an sína hamborgai-a og pylsur. í
myndinni núna skuldar
nautamafíósi í Kansas öðram
mafíósa í Chicago peninga. En
eftir að handrakkari frá Chicago
hefur verið tekinn og hakkaður í
pylsm’ og sendur til baka merkt-
ur mafíósanum í Chicago er Lee
Marvin sendur við þriðja manna
til að rukka í Kansas. Hann kem-
ur þar sem nautastíurnar eru og
skuldugi mafíósinn er að éta
hakk og sláturmat úr nautum.
Sér Marvin þá að í einni nauta-
stíunni eru naktar konur hálfsof-
andi af dópi. Þær voru fyrir við-
skiptavinina eins og nautin. Ekki
verður þetta mafíósageim rakið
frekar, enda þótti henta að
slökkva á rásinni.
Indriði G. Þorsteinsson.
DHBBEBBBSflHBHHHBBBnBBBBBBBBMHEHI
nBaBaeBMnng
EIGNAMIÐLUMN
___________________________ Starfsmenn: Sverrir Kristinsson lögg. fasteignasali, sölustióri,
Þorteifur St.Guömundsson.B.Sc., sölum., Guömundur Siguriónsson Iðgfr. og lögg.fasteignasali, skjalagerð.
Stetán Hrafn Stefánsson lögfr., sölum., Magnea S. Sverrisdóttir, lögg. fasteignasali, sölumaöur,
Stefán Ámi Auöólfsson, sölumaður, Jóhanna Valdimarsdóttir. auglysingar, gialdkeri, Inga Hannesdóttir, éfB
slmavarsla og ritarl, Olðf Steinarsdóttir, öflun skjala og gagna, Ragnheiöur D. Agnarsdóttir.skrlfstofustörf. II
Síini 588 9090 • Fax 588 9095 - Síðuniiila 2 J
m
Um 500 eignir kynntar á alnetinu -www.eignamidlun.is
Opið í dag laugardag kl. 12-16.
Vilt þú selja?
Ef þú vilt selja þína húseign þá
er þetta rétti tíminn. Við höfum
fjölda kaupenda á skrá. Hafðu
samband og við komum og
metum hana þér að kostnað-
arlausu.
Við leitum t.d. að:
* 130-150 fm hæð í Hlíðunum
eða einbýlishúsi í neðra Breið-
holti. Traustur aðili.
* Litlu einbýli í Hafnarfirði fyr-
ir fjársterkan aðila.
* 4ra-5 herb. íbúð
vogi með bílskúr.
Grafar-
* 200-250 fm einbýli eða hæð
á Seltjarnarnesi. Góðar greið-
slur.
* 4ra herb. íbúð í litlu fjölbýlis-
húsi með sérinng. í vestur-
bænum.
Einnig er mikil eftirspurn eft-
ir húsnæði í nýju hverfunum í
Kópavogi.
EINBYLI .ÁilWKm
Arnarnes.
Vorum að fá í einkasölu mjög gott einb. á tveim-
ur hæðum samtals um 350 fm með tvöföldum
innb. bílskúr. Ástand og útlit mjög gott. Mjögu-
leiki á séríbúð í kjallara. Stór og gróin suðurlóð.
V. 21,0 m. 8314
4RA-6HERB. 'WMSBk
Kársnesbraut.
Vorum að fá í sölu einkar skemmtilega 89,9 fm
4ra herb. íbúð í fjórbýli ásamt 26 fm bílskúr.
Frábært útsýni og góð staðsetning í snyrtilegu
fjölbýli. V. 8,3 m. 8305
3JA HERB. ' JQI
Laugarnesvegur.
Vorum að fá í einkasölu góða 3ja herb. íbúð á 1.
hæð með góðri sameign. Endumýjað rafmagn.
V. 6,8 m. 8273
Kirkjusandur 1-3-5 - sýning-
aríbúð.
Glæsileg 2ja-3ja herb. ný íbúð á jarðhæð sem
snýr til suðurs og vesturs. Góð verönd. Stórar
stofur. Flísalagt bað. Húsvörður. Möguleiki á að
kaupa stæði í bílgeymslu sem er innangengt í.
Ásett verð 8.350/tilboð
Kóngsbakki.
3ja herb. glæsileg 80 fm íb. á 3. hæð. Fallegt
útsýni. Parket. Sérþvottah. Nýstandsett blokk.
Góður garður. Áhv. 3,1 m. V. 6,5 m. 6109
2JA HERB.
Baldursgata - mikið áhv.
Vorum að fá í einkasölu 2ja herb. íbúð á 3. hæð
nálægt miðbænum. íbúðin þarfnast lagfæringar.
Mikiö áhv. 5,6 m. V. 6,2 m. 8319
Þangbakki - einstakl.íb. m.
útsýni.
Einstaklega skemmtileg og góð einstak-
lingsíbúð á 7. hæð í lyftuhúsi m. frábæru útsýni.
Stórar svalir. Góð stofa m. svefnkróki. Laus
strax. V. 5,0 m. 8316
Seilugrandi - vesturbær.
Vorum að fá til sölu mjög snyrtilega 70 fm
íbúð á jarðhæd I góðri blokk. Gengið út I
garð úr stofu. Sérgeymsla í íbúð. Lögn fyrlr
þvottav. á baði. Áhv. 2,8 m. byggsj. V. 6,3
m.8069
MEÐ HÁLENDINU - GEGN NATTURUSPJOLLUM
Fjölbreytt skemmtiatriði: * Kvennakór Reykjavikur undir stjórn Sigrunar Þorgeirsdóttur
* Voces Thules * Dansarar úr íslenska dansflokknum undir stjórn Láru Stefánsdóttur *
Súkkat. * Anna Kristin Arngrimsdóttir leikkona * Trúðarnir Barbara og Úlfar * Dansdúóið
Lipurtré * Rússibanar * Barnakór undir stjórn Sigurðar Rúnars Jónssonar * Jóga: lag
Bjarkar Guðmundsdóttur flutt af myndbandi * Oddaflug: brot. úr heimildamynd Páls
Steingrimssonar * Kynnir Edda Heiðrún Backman.
í Háskólabíói laugardaginn 28. nóvexnber 1998 kl. 14:00