Morgunblaðið - 12.08.1998, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
MIÐVIKUDAGUR 12. ÁGÚST 1998 19
Tíu ár frá uppreisn lýðræðishreyfíngarinnar
Atján útlendingar
handteknir í Burma
Rangoon, Bangkok. Reuters.
HERSTJÓRNIN í Burma sakaði í
gær átján útlendinga um aðild að
samsæri en þeir voru um helgina
hnepptir í varð-
hald eftir að hafa
dreift áróðurs-
bæklingum þar
sem íbúar
Burma voru
hvattir til að
halda áfram bar-
áttu sinni fyrir
auknu lýðræði í
landinu og til að
AungSan gleyma ekki lýð-
Suu Kyi ræðisbyltingunni
sem brotin var á bak aftur íyrir tíu
árum. Er því haldið fram að útlend-
ingarnir hafi haft samráð við „föður-
landssvikara" í Burma en samsærið
hafi hins vegar verið skipulagt í er-
lendu ríki.
Ekki er vitað hvað verður um
fólkið sem er frá Bandaríkjunum,
Ástralíu, Taílandi, Malasíu, Indó-
nesíu og Filippseyjum og vildi tals-
maður Burma-stjórnar ekki stað-
festa orðróm þess efnis að það yrði
leitt iyrir rétt. Surin Pitsuwan, ut-
anríkisráðherra Taílands, kvaðst
hins vegar á fundi með fréttamönn-
um í Bangkok í gær telja líklegt að
fólkið yrði sótt til saka.
Sagðist Surin vilja gefa Burma-
stjórn nokkurn tíma til að aðhafast í
málinu, „en við fórum fram á að
Burma-stjórn sýni vægð og fylgi al-
þjóðalögum í hvívetna."
Diplómatar töldu sennilegt að
Burma-stjórn myndi vísa fólkinu
fljótt úr landi til að koma í veg fyrir
langvinna deilu og þrýsting frá er-
lendum ríkjum. Aðrir kváðust hins
vegar telja að stjórnvöld myndu
halda fólkinu föngnu um nokkurn
tíma áður en því yrði vísað úr landi.
Tíu ár voru um síðustu helgi liðin
frá uppreisn lýðræðishreyflngar
Aung San Suu Kyi, friðarverðlauna-
hafa Nóbels, en talsmenn hennar
segja herstjórnina hafa valdið
dauða þúsunda manna þegar hún
barði uppreisnina niður með harðri
hendi.
Spenna fer vaxandi
Spenna fer vaxandi í Burma enda
líður senn að lokum frests sem Suu
Kyi hefur gefið stjórnvöldum til að
boða til þings, en herstjórnin huns-
aði niðurstöður kosninga árið 1990
þar sem hreyfmg Suu Kyis vann
stórsigur. Er reiknað með að lýð-
ræðishreyfingin reyni á næstu
tveimur vikum að þrýsta enn frekar
á stjórnvöld en diplómatar telja ólík-
legt að herstjórnin gefi nokkuð eftir.
Fóru mannréttindasamtökin Am-
nesty International fram á það í gær
við stjórnvöld í Burma að þau beittu
ekki harðræði til að kæfa mótmæli
lýðræðishreyfmgarinnar.
Reuters
ing á Kýpur
BRESKUR hermaður virðir manns misstu aleiguna þegar
fyrir sér hjólabretti sonar síns heimili þeirra brunnu til kaldra
fyrir framan brunarústir heimili kola í skógareldum á Kýpur á
síns í Episkopi á Kýpur. Fjórtán mánudag.
Rannsókn á spænsku veikinni á Svalbarða
Sex grafír opn-
aðar í næstu viku
HÓPUR vísindamanna hefst í næstu
viku handa við að opna grafir sex
námaverkamanna á Svalbarða, sem
létust úr spænsku veikinni árið
1918. Vonast vísindamennirnir til
þess að rannsóknin leiði í ljós hvaða
veira olli veikinni, sem olli mann-
skæðum faraldri í Evrópu. Mikillar
varúðar verður gætt er grafirnar
verða opnaðar og er varnarklæðnað-
ur vísindamannanna líkastur geim-
búningum, vilji svo ólíklega til að
veiran sé enn lifandi, að því er segir
í Aftenposten.
Ástæða þess að grafirnar á Sval-
barða eru opnaðar er sú að þar er
ætíð frost í jörðu og líkin því vænt-
anlega vel varðveitt. Vonast vísinda-
mennirnir til að þeim takist að
rækta sýni úr þeim og endurbyggja
erfðaefni veirunnar, sem olli skæðri
inflúensu, sem köiluð hefur verið
spænska veikin.
Kanadíski vísindamaðurinn Kir-
sty Duncan stýrir verkinu en hún
hefur um árabil unnið að rannsókn-
um á spænsku veikinni. Ekki gekk
þrautalaust að fá leyfi til að opna
grafirnar, m.a. vegna ótta við að
veiran sé enn lifandi, en leyfi sýslu-
manns og ættingja mannanna fékkst
að endingu.
Gert er ráð fyrir að verkið taki
um þrjár vikur, en það hefst mið-
vikudaginn 19. ágúst. Fjölmiðlum
verður leyft að fylgjast með þar til
grafið hefur verið 5 sm niður en þá
verður svæðið girt af.
Opnar lúgur
á togaran-
um Gaul
BRESK stjórnvöld hafa staðfest að
tvær lúgur og einar dyr á togaran-
um Gaul, sem sökk úti fyrir Noregs-
ströndum 1974, hafi verið opnar. Ný
rannsókn á flaki togarans hafi leitt
þetta í ljós, og sagði fulltrúi breska
samgönguráðuneytisins að rannsak-
endur hefðu gert „mikilvægar upp-
götvanir".
Fulltrúinn sagði ennfremur að
þessar uppgötvarnir „réttlættu þá
ákvörðun að hefja aftur rannsókn á
orsökum slyssins". Prjátíu og sex
manna áhöfn fórst með skipinu. 111-
viðri var kennt um hvernig fór, en
einnig hefur því verið haldið fram
að togarinn hafi verið notaður til að
njósna um sovéska flotann og verið
grandað af sovésku tundurskeyti.
Rannsóknin á flakinu fer fram
með fjarstýrðum kafbáti sem sendir
myndir frá flakinu um borð í móð-
urskipið, Mansal 18. Um borð í
skipinu eru auk rannsakenda full-
trúar ættingja þeirra sem fórust.
Einn ættingjanna, Ken Collier,
sagði við BBC: „Við viljum komast
að hinu sanna. Fjölskyldur [þeirra
sem fórust] hafa ekki getað lifað
eðlilegu lífi vegna þess að við höfum
ekki greftrað [hina látnu].“
--------------
Heimssýningin Expó ‘98
Forráðamenn
sakaðir um
fjárdrátt
Lissabon. Reuters.
FJÁRMÁLASTJÓRI heimssýning-
arinnar í Lissabon hefur verið hand-
tekinn, sakaður um fjárdrátt. Portú-
galska dagblaðið Diario de Noticias
greindi frá því að jafnvirði tæplega
40 milljóna króna hefði horfið með
grunsamlegum hætti úr fjárhaldi
sýningarinnar.
Joao Caldeira, fjármálastjóri, var
tekinn höndum eftir að endurskoð-
endur uppgötvuðu misferlið. Þrennt
í viðbót var handtekið grunað um
aðild að málinu.
Framkvæmdastjóri heimssýning-
arinnar sagði forráðamenn hennar
ekki hafa haft hugmynd um misferl-
ið fyrr en endurskoðendur fengu
það verkefni að fara yfir fjármálin
til þess að undirbúa lokun sýningar-
innar í september. Heimssýningin í
Lissabon var opnuð í maí sl.
Til sölu einbýlishús
í Ventura hverfinu í Orlandó, Flórída
Þetta er verndað svæði með 18 holu golfvelli, sund-
laug, tennisvöllum, klúbbhúsi o.fl.
Húsið stendur á stórri lóð. í húsinu, sem er 175 fm, eru
3 svefnherbergi, 2 baðherbergi, setustofa, borðstofa,
eldhús og þvottahús ásamt tvöföldum bílskúr.
Húsið er fullbúið húsgögnum og heimilistækjum.
Þeir, sem áhuga hafa á þessari eign, leggi inn nafn og
símanúmer á afgreiðslu Morgunblaðsins og mun
verða haft samband við þá, merkt: „Orlandó."
Góður söluturn
- einstakt tækifæri
Á horni Sogavegs og Tunguvegs er af sérstökum ástæðum til sölu
þjónustuverslun með myndbandaleigu og matvöruhorni. Fyrirtækið
er í 230 fm húsnæði. Góð og stöðug velta. U.þ.b. 3.600 spólur
fylgja, þ.m.t. allar nýútkomnar spólur, ný tölva með viðskiptaforriti
sem er sérhannað fyrir myndbandaleigur. fsvél og góðar innrétting-
ar fyrir sælgæti og aðrar vörur ásamt kæliskápum fyrir drykki og
sérkæliklefa fyrir mjólkurvörur. Fyrirtækið er í góðum og vel skipu-
lögðum rekstri og húsnæðið í góðu ástandi, m.a. allt ný málað og
ný skilti í gluggum. Næg bílastæði. Einstaklega hentugt atvinnu-
tækifæri fyrir samhenta fjölskyldu eða duglega einstaklinga.
Húsakaup, fasteignasala,
Suðurlandsbraut 52,
sími 568 28 OO.
E/si
á óskalii
st
:alista
brúðhjónanna!
KitchenAid
mest selda heimilisvélin í 50 ár
• 5 gerðir hraerivéla í hvítu, svörtu, bláu, rauðu og gráu
• Fjöldi aukahluta
• Islensk handbók fylgir með uppskriftum
• Lágvær og þrælsterk - endist kynslóðir
• Sérstök brúðkaupsgjöf:
Öll brúðhjón fá glæsílega svuntu með ísaumuðu nafni
sínu og brúðkaupsdegi
Þú gefur ekki gagnlegri gjöf
Einar
Farestveit&Co. Kf.
Borgartúni 28 « 562 2901 og 562 2900
www.mbl.is