Morgunblaðið - 04.03.1998, Síða 56
Drögum næst
ÍSLANDSFLUG g&rir fheérum tært aö fffú&a 570 8090 I 10. mars JKL HAPPDRÆTTI HÁSKÓLA ÍSLANDS
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN1,103 REYKJAVIK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF 5691181
PÓSTHÓLF 3040, NETFANG: R1TSTJ@MBL.1S, AKUREYRl: KAUPVANGSSTRÆTI1
MIÐVIKUDAGUR 4. MARZ 1998
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
Tónskáldið Ravel
S
Arthur Treacher’s-fískréttakeðjan færir út kvíarnar
Hófst með samstarfí
Stjórnarformaður Arthur
Treacher’s, Bi-uce Galloway, hefur
setið í stjórn Miami Subs í tæpt ár. I
nóvember hófst samstarf fyrirtækj-
anna með því að Arthur Treacher’s
opnaði fiskréttastað undir sínu nafni
inni á einum veitingastaða Miami
Subs. Guðmundur Franklín segir að
þetta samstarf hafi gefíst vel, salan
á veitingastaðnum hafí tvöfaldast.
Nýlega var síðan skýrt frá því að
áform væru uppi um frekara sam-
starf. Guðmundur Franklín segir að
í framhaldi af þessu hafi verið
ákveðið að kaupa Miami Subs, enda
væri mun auðveldara og ódýrara að
stækka fyrirtækið á þann hátt en að
byggja allt frá grunni.
I fréttatilkynningu sem Miami
Subs sendi frá sér í gær kemur fram
að tilboðið verði tekið til athugunar í
lok vikunnar. Jafnframt kemur fram
að óformlegar viðræður fari einnig
fram við önnur fýrirtæki í matvæla-
iðnaði um hugsanlegt samstarf eða
sameiningu.
♦ ♦♦--------
Vala kom-
in heim
^ KyALA Flosadóttir, bronsverð-
launahafí í stangarstökki kvenna á
Evrópumeistaramótinu í frjálsí-
þróttum sem fram fór í Valencia
um liðna helgi, kom til Iandsins á
ellefta tímanum í gærkvöldi ásamt
öðrum keppendum íslands á mót-
inu, Jóni Arnari Magnússyni og
Þóreyju Eddu Elísdóttur. Vala og
þjálfari hennar, Stanislav Szyzrba,
dveljast hér á landi í eina viku í
boði menntamálaráðherra, Björns
Bjarnasonar, og tók hann á móti
þeim í Leifsstöð. Vala keppir á
móti í Laugardalshöll á fimmtu-
..dagskvöldið. Þar etur hún m.a.
kappi við Evrópumeistarann
Anzhelu Balakhonovu frá Úkraínu
en hún bætti heimsmet Völu um
einn sentímetra í Valencia. Á
myndinni er Vala að veita Val-
gerði Björk og Hildi Björk Páls-
dætrum eiginhandaráritun. Björn
Bjarnason og Flosi Magnússon,
Taðir Völu, horfa á.
sótti Island heim
Gerir tilboð í nær
200 veitingastaði
Morgunblaðið/Kristinn
5% hlutabréfa í SH
HIÐ heimskunna franska
tónskáld Maurice Ravel
MPvom til íslands árið 1905 en
' til er bréf sem hann sendi
frá Þingvöllum 2. septem-
ber það ár. Bréfið er birt í
bók Arbies Orenstein, A
Ravel Reader. Orenstein,
sem er tónlistarprófessor
við Aaron Copland School of Music
í Queens College í New York,
sagðist í samtali við Morgunblaðið
ekki vita mikið um ferð tónskálds-
ins tii íslands en hann teldi að um
stutta skemmtiferð hefði verið að
ræða. „Hann hefur viljað komast
burt úr erlinum heima við og hvfla
sig á erfiðum málum. Það var mik-
Um 50 íslenskir stofnanafjárfestar og
einstaklingar eiga hlut í fyrirtækinu
ARTHUR Treacher’s Inc. í Bandaríkjunum, veitingahúsakeðja sem ís-
lendingar eiga meirihluta í, hefur gert tilboð um kaup á Miami Subs Corp.
sem rekur 192 skyndibitastaði. Fyrir á Arthur Treacher’s yfir 200 veit-
ingastaði og verða þeir því um 400 talsins með kaupum á Miami Subs.
Arthur Treacher’s er ein af stærri
sjávarréttaskyndibitakeðjum Banda-
ríkjanna. Um fimmtíu íslenskir aðil-
ar eiga hlut í fyrirtækinu, stofnana-
fjárfestar og fjársterkir einstakling-
ar. Meðal hluthafa eru Skúli Þor-
valdsson, forstjóri í Síld og fiski,
sem er varaformaður stjórnar, og
Guðmundur Franklín, verðbréfa-
miðlari í New York. Islendingarnir
tóku þátt í að endurskipuleggja
rekstur fyrirtækisins og eiga þar
meirihluta.
I desember var undirrituð viljayf-
irlýsing um kaup Arthur Treacher’s
á sjávarréttakeðjunni Seattle Crab
Company. Við það tvöfaldaðist um-
fang fyrirtækisins og það ræður nú
yfir meira en 200 stöðum í Banda-
ríkjunum.
Verði af yftrtöku á Miami Subs
Corp. munu umsvif Arthur
Treacher’s aftur tvöfaldast og fyrir-
tækið þá reka 400 veitingastaði.
ið að gerast hjá honum á
þessum tíma, bæði í tón-
smíðunum og svo var hann
reiður vegna þess að hann
hafði ekki fengið Rómar-
verðlaunin þetta ár - sem
hann og fleiri töldu reynd-
ar hneyksli.“
Að sögn Elínar Pálma-
dóttur rithöfundar, sem skrifað
hefur sögu franskra sjómanna sem
sóttu íslensk fiskimið í þrjár aldir,
hefur Ravel hugsanlega getað
komið hingað út með einu af
frönsku herskipunum sem skiptust
á að vera hér við eftirlit.
■ Ravel í hvfldarferð/29
Tilboðum
Kjaranefnd úrskurðar um laun heilsugæsiuiækna
Föst laun hækka en
verktakagreiðslur lækka
KJARANEFND hefur úrskurðað
um laun heilsugæslulækna og leið-
ir það til þess að föst laun hækka
verulega en greiðslur frá Trygg-
ingastofnun fyrir læknisverk
lækka. Heilsugæslulæknar leggja
áherslu á að heilbrigðisráðherra
standi við samkomulag sem hann
gerði við heilsugæslulækna um
mitt ár 1996 um valfrjálst stýri-
kerfi og uppbyggingu heilsugæsl-
unnar á höfuðborgarsvæðinu.
Urskurðurinn felur í sér form-
breytingu á launum heilsugæslu-
lækna en hann byggist jafnframt á
samningi sem fjármálaráðuneytið
gerði við sjúkrahúslækna í desem-
ber sl. Um 80-90% af öllum verk-
takagreiðslum sem heilsugæslu-
læknar hafa m.a. fengið frá
Tryggingastofnun ríkisins falla
niður og verða færðar inn í föst
laun sem verða á bilinu 185-310
þúsund krónur á mánuði. Sé lækn-
ir með fleiri sjúklinga en 1.500
bætist við föst yfirvinna og getur
hún mest orðið um 107 þúsund kr.
á mánuði.
Guðrún Zoega, formaður kjara-
nefndar, segir að nefndin hafi leit-
ast við að samræma kjör heilsu-
gæslulækna. Hún segist ekki geta
svarað því hve meðallaun lækna
hækki mikið, breytingamar komi
það mismunandi við lækna. Hún
segir þó ljóst að kjör heilsugæslu-
lækna í litlum umdæmum úti á
landi muni batna umtalsvert en
neitar því ekki að laun þeirra sem
unnið hafi mjög mikið á höfuðborg-
arsvæðinu kunni að lækka. Vinnu-
álag þeirra muni hins vegar einnig
minnka.
Fulltrúar heilsugæslulækna
leggja áherslu á að heilbrigðisráð-
herra verði að standa við sam-
komulag sem hann gerði við heilsu-
gæslulækna um mitt ár 1996. Það
gerði ráð fyrir að tekið yrði upp
valfrjálst stýrikerfi, uppbyggingu
heilsugæslustöðva á höfuðborgar-
svæðinu og fjölgun lækna.
■ Skiptar skoðanir/11
var hafnað
FYRIRTÆKI sem bauð út 5%
hlutafjár í Sölumiðstöð hraðfrysti-
húsanna sl. mánudag ákvað að
hafna öllum tilboðum sem bárust í
bréfin, en samkvæmt upplýsingum
frá verðbréfadeild Búnaðarbank-
ans, sem annaðist útboðið, voru þau
nokkur. Samkvæmt útboðslýsingu
átti að skila tilboðum í bréfin ekki
seinna en á hádegi í gær, en klukk-
an 14.30 í gær eða skömmu fyrir að-
alfund SH var ákveðið að hafna öll-
um tilboðunum.
Að sögn Arna Odds Þórðarsonar
hjá Búnaðarbankanum vora tilboðin
nokkuð nærri markaðsverði bréf-
anna, en ákveðið hafi verið að gefa
hvorki upp um hvaða fyrirtæki væri
að ræða né upp á hvað tilboðin
hljóðuðu. Menn hefðu hins vegar
talið fyrirtækið meira virði en boðin
hljóðuðu upp á.
■ Áætlaður hagnaður/4