Morgunblaðið - 04.03.1998, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
MIÐVIKUDAGUR 4. MARZ 1998 17
KÞ kaupir 44% hlut
Landsbankans í
Kjötumboðinu
Rætt um að aðrir
hluthafar gangi
inn í kaupin
KAUPFÉLAG Pingeyinga á Húsa-
vík hefur keypt eignarhlut Lands-
banka íslands í Kjötumboðinu hf. í
Reykjavík. Hlutur bankans var 44%
og fyrir átti KÞ 5% þannig að félag-
ið á nú 49% hlutafjár en rætt er um
fleiri hluthafar gerist aðilar að þess-
um hlutabréfakaupum.
Landsbankinn eignaðist stóran
hlut í Kjötumboðinu eftir erfiðleika
Sambandsins og gjaldþrot Mikla-
garðs hf.
Að sögn Þorgeirs B. Hlöðvers-
sonar, kaupfélagsstjóra KÞ, sýna
þessi kaup Kaupfélags Þingeyinga
hvort tveggja í senn, hversu mikla
hagsmuni KÞ á í áframhaldandi öfl-
ugum rekstri Kjötumboðsins hf. og
hversu mikla trú það hefur á fram-
tíðarmöguleikum fyrirtækisins.
Rætt um aukningu hlutaQár
„Með kaupum á hlut Landsbank-
ans hefur skapast skýr grunnur fyr-
ir þá sem vilja starfa saman innan
Kjötumboðsins, til að taka ákvarð-
anir um uppbyggingu á framtíðar-
rekstri þess,“ segir í fréttatilkynn-
ingu frá KÞ um kaupin. Forkaups-
réttarákvæði eru í samþykktum
Kjötumboðsins og eru viðræður í
gangi á meðal hluthafa um dreif-
ingu eignaraðildar í félaginu, annað-
hvort með nýtingu forkaupsréttar
eða það sem að sögn Þorgeirs er of-
ar í umræðunni að auka hlutafé fé-
lagsins og styrkja fyrirtækið þannig
ennfrekar.
Þörf á öflugu
sölufyrirtæki
Kjötumboðið er sölu- og mark-
aðsfyrirtæki á annan tug sláturleyf-
ishafa um allt land, aðallega kaupfé-
laga. Það er einnig með mikla kjöt-
vinnslu í Reykjavík.
Á síðastliðnu ári lauk greiningar-
vinnu á vegum þeirra sem hafa
starfað saman innan Kjötumboðs-
ins, þar sem mótaðar voru tillögur
um framtíðarskipan félagsins. Leit-
ast var við að svara þeirri spum-
ingu hvemig fyrirkomulag skilaði
mestum árangri í að selja kjötafurð-
ir, bæði innanlands og utan, og
tryggja kaupendum öfluga og góða
þjónustu, samræmd gæði og hag-
kvæma dreiflngu. Niðurstaða þessa
hóps var að menn yrðu að hafa
áfram öflugt markaðs- og sölufyrir-
tæki, á höfuðborgarsvæðinu, sem
verði leiðandi í markaðssetningu,
vöruþróun og kjötiðnaði og í góðum
tengslum við söluaðila. Á grundvelli
þessara niðurstaðna hefur stjóm
unnið síðan, segir í tilkynningunni.
Kjötumboðið er stærsti útflytj-
andinn á landbúnaðarvörum og seg-
ir Þorgeir mikilvægt í þeirri við-
leitni að byggja upp framtíðarmark-
að fyrir innlendar kjötvörur, á
grundvelli gæða. Starfsmenn Kjöt-
umboðsins era einmitt þessa dag-
ana úti í Bandaríkjunum að rækta
tengsl við aðila sem hófu viðskipti á
síðastliðnu ári, grandvelli gæða.
Kaupþing Norðurlands hf.
Hagnaðurinn nam
15,2 milljónum
REKSTUR Kaupþings Norðurlands
hf. skiiaði 15,2 milljóna króna hagn-
aði á árinu 1997 samanborið við 25,9
milljónir króna árið 1996. Heildar-
velta félagsins nam um 20 miiljörð-
um króna og jókst um 2 milljarða
króna á milli ára. Þá jókst eigið fé
félagsins um 27 milljónir króna á
milli ára og arðsemi eigin fjár nam
16,4%.
Heildartekjur Kaupþings Norður-
lands námu 81 milljón króna saman-
borið við 77,9 miHjónir króna árið áð-
ur. Hreinar rekstrartekjur vora 70,4
milljónir króna samanborið við 70,1
milljón króna árið 1996.
Arðsemi eigin
fjár nam 16,4%
Niðurstaða efnahagsreiknings var
586.6 milljónir króna samanborið við
260.7 mÚljónir króna árið áður.
Aukningin nemur tæpum 326 milij-
ónum króna eða 125%. Eigið fé jókst
úr 92,8 milljónum króna í árslok
1996 í 119,6 milljónir króna í árslok
1997, sem er aukning um 29,2%.
Arðsemi eigin fjár nam 16,4%.
Kaupþing Norðurlands er eina
löggilta verðbréfafyrirtækið á lands-
byggðinni og býður upp á almenna
verðbréfaþjónustu, fjárvörslu og
ráðgjöf á sviði fjármála. Svo sem
fram hefur komið hélt félagið upp á
10 ára afmæli sitt á liðnu ári. I des-
embermánuði var starfsemin flutt í
nýtt og glæsilegt húsnæði á Skipa-
götu 9 og við það gerbreyttist öll að-
staða til hins betra.
Starfsmönnum fjölgaði um tvo á
árinu og voru þeir tíu talsins í árslok.
Framkvæmdastjóri félagsins er
Tryggvi Tryggvason.
Stjórnin
endurkjörin
Aðalfundur Kaupþings Norður-
lands var haldinn fóstudaginn 27.
febrúar. Þar var fráfarandi stjóm fé-
lagsins endurkjörin. Hana skipa:
Sigurður Einarsson, forstjóri Kaup-
þings hf., stjómarformaður, Gunnar
Sverrisson, forstöðumaður stjómun-
arsviðs Kaupþings hf., varaformað-
ur; Ámi Magnússon, fjármálastjóri
KEA: Guðrún Guðmannsdóttir,
framkvæmdastjóri Lífeyrissjóðs
Vestflrðinga og Friðrik Friðriksson,
sparisjóðsstjóri Sparisjóðs Svarf-
dæla.
Hús verslunarinnar
Islandsbanki lokar útibúi
ÍSLANDSBANKI hefur ákveðið að
loka útibúi sínu í Húsi verslunar-
innar í Kringlunni um páskana og
sameina útibúinu á Kirkjusandi.
Hagræðing er ástæðan.
Svokölluð bakvinnsla sem fram
fór í útibúinu í Húsi verslunarinnar
hefur nánast öll verið flutt niður í
Bankastræti. Sigurveig Jónsdóttir,
upplýsingafulltrúi Islandsbanka,
segir að húsnæði útíbúsins hafi eft-
ir það verið orðið allt of stórt og
óhagkvæmt og ekki hægt að
minnka það. Því hafi verið ákveðið
að sameina útibúin. Gert er ráð fyr-
ir því að húsnæði útibúsins sem er á
íyrstu hæð hússins og hæðinni fyrir
neðan verði selt í framhaldinu.
íslandsbanki verður áfram með
hraðbanka í anddyri Húss verslun-
arinnar og útibú í Suður-Kringlu.
Að sögn Sigurveigar gefst við-
skiptavinum kostur á að velja ann-
að útibú en hún býst við að það
henti flestum að flytja sig á Kirkju-
sand.
TX220 24.900
Sjónvarpsmiðstöðin
Umboðsmenn um land ðllu
VESTURLAND: Hljómsýn. Akranesi. Kaupfélag Borgfirðinga. Borgarnesi. Blómsturvellir. Hellissandi. Guðni Hallgrfmsson. Grundaríiröi. VESTFIRÐIR: Rafbúð Jónasar Mrs, Patreksfirði. Póllinn,
(safirði. NORÐURLAND:KF Steingrímsfjarðar. Hólmavík. KF V-Húnvetninga, Hvammstanga. KF Hónvetninga, Blönduósi. Skagfirðíngabóð, Sauðárkróki. KEA, Dalvík. Bókval, Akureyri. Ljósgjafinn,
Akureyri. KF Þingeyinga, Húsavík. Urö, Raufarhofn. AUSTURLAND: KF Héraðsbúa. Egilsstóöum. Verslunin Vík, Neskaupsstað. Kauptún. Vopnafirði. KF Vopnfirðinga.Vopnafirði. KF Héraðsbúa.
Seyðisfirði. Turnbræður, Seyðisfirði.KF Fáskrúðsljarðar, Fáskrúðsfirði. KASK. Djúpavogi. KASK. Höfn Hornafirðí. SUDURLAND: Rafmagnsverkstæði KR. Hvolsvelli. Mosfell. Hellu. Heimstækni,
Selfossi. KÁ, Sellossi. Hás, Þorlákshóln. Brimnes. Veslmannaeyjum. REYKJANES: Hafborg, Gríndavik. Raflagnavínnusl. Sig. Ingvarssonar, Garði. Balmætti, Haínarfirði.