Morgunblaðið - 29.07.1995, Side 47
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 29. JÚLÍ1995 47
DAGBÓK
VEÐUR
29. JÚLÍ Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólris Sól í hád. Sólset Tungl í suðri
REYKJAVÍK 1.25 0,3 7.28 3,5 13.34 0,2 19.43 3,9 4.23 13.33 22.40 14.57
ÍSAFJÖRÐUR 3.27 0,2 9.17 1,9 15.32 0,2 21.29 2,2 4.04 13.39 23.04 15.04
SIGLUFJÖRÐUR 5.47 Or1 12.08 1,2 17.48 0,2 3.45 13.21 22.53 14.45
DJÚPIVOGUR 4.35 1.9 10.43 0,3 16.56 2,1 23.07 0,4 3.50 13.03 22.14 14.27
Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfiöru (Moraunblaðið/Siómælinaar Islands)
il Hæö Li Lægð Kuldaskil
Hitaskil
Samskil
Heimild: Veðurstofa Islands
Sunnan, 2 vindstig. 10 Hitastig
8 Vmdonn sýmr vind- __
i ' Slydda \7 Slydduél I stetnu og fjóðrin sss Þoka
’ . I vinHstvrk hnil fifií
Heiðskirt Léttskýjað Hálfskýjað Skýjað Alskýjað
Snjókoma Él
vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig.
VEÐURHORFUR í DAG
Yfirlit: Á Grænlandssundi er 995 mb lægð,
sem hreyfist lítið og önnur um 1.006 mb djúp
skammt vestur af Irlandi og mun hún þokast
norður.
Spá: Sunnan- og suðaustanátt, kaldi eða stinn-
ingskaldi, skúrir sunnan- og vestanlands og
einnig suðaustanlands, en bjartviðri á Norð-
austurlandi.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA
Veðurhorfur næstu daga: Á sunnudag verður
sunnan strekkingur og rigning um mest allt
land en eftir helgi hægari vestlæg og síðar
breytileg átt, úrkomuvottur vestantil á mánu-
dag en annars þurrt um mest allt land. Þá
verður fremur svalt í þyrjun vikunnar en hlýnar
síðan aftur.
Veðurfregnir eru lesnar frá Veðurstofu kl.
1.00, 4.30, 6.45, 10.03, 12.45, 16.30, 19.30,
22.10. Stutt veðurspá er lesin með fréttum
kl. 2, 5, 6, 8, 12, 16, 19 og á miðnætti. Svar-
sími veðurfregnir: 9020600.
FÆRÐ Á VEGUM
(Kl. 17.30 í gær)
Upplýsingar um færð eru veittar hjá þjónustu-
deild Vegagerðarinnar í Reykjavík í símum:
8006315 (grænt númer) og 5631500. Einnig
eru veittar upplýsingar um færð á vegum í
öllum þjónustustöðvum Vegagerðarinnar ann-
ars staðar á landinu.
Helstu breytingar til dagsins í dag: Lægðin á Græniands-
sundi hreyfist til norðausturs, en önnurlægð skammt
vestur af írlandi þokast norður.
VEÐUR VÍÐA UM HEIM
kl. 12.00 f gær að ísl. tíma
Akureyri 18 skýjað Glasgow 19 rigning
Reykjavík 11 súid Hamborg 24 skýjað
Bergen 19 skýjað London 25 skýjað
Helsinki 27 léttskýjað LosAngeles 20 heiðskírt
Kaupmannahöfn vantar Lúxemborg 20 skýjað
Narssarssuaq 8 úrkoma Madríd vantar
Nuuk 4 alskýjað Malaga 29 þokumóða
Ósló 23 skýjað Mallorca 32 heiðskírt
Stokkhólmur 24 léttskýjað Montreal 20 heiðskírt
Þórshöfn vantar NewYork 25 skýjað
Algarve 30 heiðskírt Orlando 24 hálfskýjað
Amsterdam 22 léttskýjað París 25 skýjað
Barcelona 29 mistur Madeira 23 skýjað
Berlín 27 skýjað Róm vantar
Chicago 23 heiðskírt Vín 26 skýjað
Feneyjar 32 þokumóða Washington 24 alskýjað
Frankfurt 22 skýjað Winnipeg 16 heiðskfrt
Spá
Krossgátan
LÁRÉTT:
1 slæpast, 4 binda, 7
brennur, 8 svífum, 9
hnöttur, 11 hina, 13for-
boð, 14 jurt, 15 gamall,
17 smáskip, 20 töf, 22
ferma, 23 hagvirkni, 24
synja, 25 vitlausa.
LÓÐRÉTT:
1 svera, 2 geigur, 3 for-
ar, 4 stórhýsi, 5 h|jóð-
færi, 6 formóðirin, 10
skömm, 12 elska, 13
tjara, 15 ólundin, 16
endasneið, 18 ekki
gamlan, 19 klaufdýra,
20 hamagang, 21 rispa.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU
Lárétt:- 1 geðveikar, 8 vonar, 9 lægja, 10 góa, 11
lirfa, 13 nurla, 15 solls, 18 safna, 21 ket, 22 rella,
23 efins, 24 kampakáta.
Lóðrétt:- 2 efnir, 3 varga, 4 iglan, 5 angur, 6 hvel,
7 bata, 12 fól, 14 una, 15 sorg, 16 lilja, 17 skaup,
18 stekk, 19 feitt, 20 assa.
í dag er laugardagur 29. júlí,
210. dagur ársins 1995. Orð
dagsins er: Þeir sem búa til
goðalíkneski, eru hver með öðr-
um hégóminn einber, og dýrindis-
smíðar þeirra eru að engu liði.
Vottar slíkra guða sjá eigi og
vita eigi, til þess að þeir verði
sér til skammar.
(Jes. 44, 9.)
Skipin
Reykjavíkurhöfn:
Mælifellið fór í gær kl.
14. Flosi ÍS fór í gær
kl. 16. Nordland Saga
var væntanlegt í gær-
kvöldi. Mermoz fer í
kvöid kl. 19. Lómur
kemur á morgun.
Hafnarfjarðarhöfn:
Haukur fór á ströndina
í gærmorgun. í fyrrinótt
kom Strong Icelander
og rússneska flutninga-
skipið Newsky. Har-
aldur Kristjánsson fór
á veiðar { gærmorgun.
Fréttir
Viðey. Gönguferð um
Vestureyna kl. 14.15.
Bátsferðir úr Sundahöfn
eru á heila tímanum frá
kl. 13. Nauðsynlegt er
að vera vel búinn til fót-
anna. Hestaleigan er að
starfl og ljósmyndasýn-
ingin í skólanum opin.
Parkinsonsamtökin.
Minningarkort Parkin-
sonsamtakanna á Is-
landi eru afgreidd i síma
552-4440 og hjá Ás-
laugu í síma 552-7417
og hjá Nínu í síma
587-7416.
Mannamót
Sumarferðir aldraðra
á vegurn Reykjavíkur-
borgar. Ferð verður
farin í Vatnaskóg
flmmtudaginn 3.ág. kl.
13.30 (en ekki föstudag-
inn 4. eins og áður var
tilkynnt) með viðkomu í
Hallgrímskirkju í
Saurbæ. Skráning og
uppl. í síma 551-7170.
Kirkjustarf
ÓHÁÐI SÖFNUÐUR-
INN: Allt messuhald
fellur niður í sumar
vegna sumarleyfa.
Fyrsta messa eftir sum-
arleyfi er sunnudaginn
13. ágúst kl. 20.30.
Holtskirlga. Á morgun
verður helgistund í
Holtskirkju í Önundar-
flrði kl. 14. Á undan eða
kl. 13 verður komið
saman við kirkjuna og
Dagbjört Óskarsdóttir
leiðsögumaður mun þt^-
rekja þætti úr sögu stað-
arins.
Hallgrímskirkja. Org-
eltónlist kl. 12-12.30.
Roger Sayer, organisti
við dómkirkjuna í Roc-
hester, Englandi leikur.
Kefas, Dalvegi 24,
Kópavogi. Vitnisburð-
arsamkoma í dag kl. 14.
Samkomur falla niður í
ágúst. Fyrsta samkoma
eftir. sumarfrí verður 2.
september.
Ferjur
Akraborgin fer alla
daga frá Akranesi kl.
8, 11, 14 og 17. Frá
Reykjavík kl. 9.30,
12.30, 15.30 og 18.30.
Á sunnudögum í sumar
er kvöldferð frá Akra-
nesi kl. 20 og frá
Reykjavík kl. 21.30.
Breiðafjarðarfeijan
Baldur fer daglega frá
Stykkishólmi kl. 10 og
16.30 og frá Brjánslæk
daglega kl. 13 og 19.30.
Alltaf er komið við í
Flatey. Bfla þarf að bóka
tímanlega og mæta
hálftíma fyrir brottför.
Heijólfur fer alla daga
frá Vestmannaeyjum kl.
8.15 og frá Þorlákshöfn
kl. 12. Fimmtudaga,
föstudaga og sunnu-
daga frá Vestmannaeyj-
um kl. 15.30 og kl. 19.
Bílar mæti hálftíma fyr-
ir brottför.
Landakot
NÝLEGA kom í fréttum að barnadeild Landakots hefði flutt í B-álmu
Borgarspítalans og lauk þar með áratuga sögu barnalækninga í
vesturbæ Reykjavíkur. Saga sjúkrahúss á Landakoti hófst í júlí 1896,
eða fyrir tæpum 100 árum þegar fyrstu St. Jósefssystumar komu
til Reykjavíkur. St. Jósefssystur tilheyrðu kaþólskri nunnureglu sem
var frönsk að uppruna. Þær stunduðu hér lækningastörf til að byija
með í heimahúsum. í riti Páls Líndals Reykjavík — sögustaður við
Sund segir að spítalinn hafi verið reistur 1902 eftir að Nonni (Jón
Sveinsson) studdi systurnar fjárhagslega i fyrirætlun sinni. Spitalinn
var vel nýttur af tilvonandi hjúkrunarfólki landsins því fram til
1930 var hann eini kennsluspítalinn á landinu. Upphaflega spítala-
byggingin var kjailari, tvær hæðir og ris auk útbygginga við norður-
hliðina og austurgaflinn og tók um 40 sjúklinga. Djúpur brunnur
var reistur þar sem nú eru mót Ægisgötu og Túngötu til að anna
vatnsþörf spitalans og eins var lagt holræsi frá honum. Árið 1934
var lagður homsteinn að nýrri byggingu á sömu lóð fyrir sjúkrahús-
ið en gamla húsið var ekki rifið fyrr en hafin var bygging álmunn-
ar sem liggur að Túngötu og fulllokið var við 1964. Fullbúin barna- •%
deild tók til starfa á spitalanum árið 1961 og hefur því starfað í 34
ár. Síðasta St. Jósefssystirin hætti störfum 31. mai 1995 en þeim
var farið að fækka vemlega og voru ekki nema tvær að störfum
síðustu árin. Landakotsspítali mun standa áfram um langa framtíð
sem óbrotgjarn minnisvarði um störf St. Jósefssystra hér á landi á
þessari öld, þó þær séu horfnar á braut.
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar:
569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn 569 1329, fréttir 569 1181, iþróttir 569 1156,
sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG:
MBL@CENTRUM.iS / Áskriftargjald 1.600 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 125 kr. eintakið.