Morgunblaðið - 29.07.1995, Qupperneq 38
38 LAUGARDAGUR 29. JÚLÍ 1995
I DAG
MORGUNBLAÐIÐ
þráðlaus
sími frá
Hagenuk
kr. 28.750.-
§?rddiomidun
Grandagarði 9 • Sími 511 1010
sitnan
AUKAHLUTIR
radiomidun
Grandagarði 9 • Sími 511 1010
Blab allra landsmanna!
-kjarni málsins!
Gámaveisla
í Kolaportinu
-ótrulega lágt verð
á hundruðum vörutegunda
Um síðustu helgi hófst mikil Gámaveisla í Kolaportinu, þar sem
boðið er upp á mörg hundruð vörutegundir á sannkölluðu Kola-
portsverði. Varan er flutt inn beint frá stórum dreifingaraðilum og
í mörgum tilfellum er um þekkta merkjavöru að ræða, á verði
sem er langt undir íslensku heildsöluverði. Gámaveislan heldur
áfram um helgar eitthvað fram í ágúst og um þessa helgi bætist
við heiU gámur af nýjum vörum sem eykur vöruúrvaUð enn frekar.
Mikil aðsókn var íyrstu helgina í Gámaveislunni.
Þekkt vörumerki
og vönduð vara
Þarna er að finna mikið úrval af
garðvörum, útileiktækjum, leik-
föngum, símum, útvarpstækjum,
vekjarakiukkum, segulbandstækj-
um, þvottaelhi, hillum, sælgæti og
kexi og annari neysluvöru.
"Mikið af vörunum er frá fram-
leiðendum með vandaða vöru í
háum gæðaflokki" segir Brynjar
Guðmundsson sem stendur fyrir
Gámaveislunni. "s.s. leikfanga-
framleiðendum eins og Matchbox,
Barbie, Sindy, Fisher Price, Disney,
Playmobil, Crayola, Mattel og
Chicco og búsáhöld og eldhústæki
frá þekktum framleiðendum eins
og Kenwood, Bosch, Thermos,
Prestige, Elegance og Kingstel.
Einnig úrval af fatnaði s.s. nær-
fötum, sundfötum, skyrtum, úlp-
um, íþróttaskóm, herrajökkum,
jakkafötum, frökkum og kápum".
Auk Gámaveislunnar verður
hefðbundin sölustarfsemi í gangi
með hátt í 200 söluaðilum.
Kolaportið lokað um
verslunarmannahelgina
Að venju verður markaðstorgið
lokað um verslunarmannahelgina.
Opnað verður síðan aftur helgina
12.-13. ágúst með hátíðarbrag.
Hjólahátíð 12.-13. ágúst
í ágúst hefst skemmtilegasti
tími ársins að sögn Guðmundar
hjá Kolaportinu. Haldið verður
upp á haustið með hátíðum og
fyrsta hátíðin, Hjólahátíð verður í
samstarfi við Bifhjólasamtök lýð-
veldisins og Islenska fjallahjóla-
klúbbinn helgina 12.-13. ágúst.
Haustmarkaður
Kolaportsins
Sérstakur haustmarkaður
verður opinn írá 26. ágúst til 17.
september og þá bætist við fjöldi
nýrra aðila með spennandi skóla-
og haustvörur. Markaðstorgið
verður einnig opið á virkum
dögum þann tíma sem haust-
markaðurinn stendur yfir.
Hraðbanki Búnaðar-
bankans í Kolaportinu
Búnaðarbankinn hefur sett upp
hraðbanka í Kolaportinu og nú er
hægt að fá þar alla hefðbundna
hraðbankaþjónustu.
Með morgunkaffinu
Ást er . ..
símbréf lífsins.
TM Ftog. U.S. Psl Olf. — aU hghts resoived
(c) 1995 Loa Artgetes Timo* Syndical*
LEIÐRÉTT
Messudagar
vígsluðust
í fréttatilkynningu frá
Biskupsstofu í blaðinu á
fímmtudag, var sagt að
biskup messaði í Haga-
kirkju kl. 16 á þriðjudag
og miðvikudag í Skarðs-
kirkju kl. 16. Hið rétta er
að messað verður á þriðju-
dag í Skarðskirkju og á
miðvikudag í Hagakirkju,
en tímasetning er hin
sama. Þetta leiðréttist hér
með.
Vettlingar úr bók Elsu
í Daglegu lífi í gær, á síðu
B 5, láðist að geta þess í
grein um pijónamennsku
og íslenska verkiðn að
vettlingar sem prýddu
textann væru úr bókinni
íslenskum útsaum eftir
Elsu Þ. Guðjónsson. Beðist
er velvirðingar á mistökun-
um.
Ungtemplarar í
Galtalæk
Vegna samantektar um
skipulögð hátíðarhöld um
verslunarmannahelgina
skal áréttað að Islenskir
ungtemplarar sjá um Bind-
indismótið að Galtalæk í
samstarfi við Umdæmis-
stúku Suðurlands nr. 1. og
hafa gert í yfir 30 ár. Að-
göngumiðinn á hátíðina
kostar 4.500 krónur og er
það leiðrétt hér með.
Þá skal það áréttað að
ekkert kostar inn á
Neistaflug ’95 á Nes-
kaupstað.
Landsmót
hvítasunnumanna
Aðgangseyrir á KOTMÓT
hvítasunnumanna í Fljóts-
hlíð er einungis 200 krónur
en ekki 5.000 eins og sagt
er í samantekt um hátíða-
höld verslunarmannahelg-
arinnar. Beðist er velvirð-
ingar á þessum leiðu mis-
tökum.
Brjóstagjafarvika
í Daglegu lífi í gær var
talað um að bijóstagjaf-
arfélagið La Leche League
stæði að bijóstagjafarvik-
unni sem hefst þann 1.
ágúst nk. Það eru hinsveg-
ar samtökin World alliance
for breast feeding action
(WABA) sem formlega
standa að uppákomunni.
Rangt föðurnafn
í frásögn af félögunum
Ágústi Ólafssyni og Dúa
Björnssyni sem eru að gera
upp gamla svifflugu í Dag-
leg^u lífi í gær var rangt
farið með föðumafn á ein-
um stað. Kristján Aðal-
steinsson heitir maðurinn
sem átti verkstæðið þar
sem byijað var að smíða
sviffluguna Grunau 9, en
hann var einn af stofnend-
um Svifflugfélags Akur-
eyrar.
Pennavinir
HOLLENSKUR efnafræð-
ingur með eigið fyrirtæki
vill skrifast á við konur:
Mark Righton,
Eiber 14,
2411 LA Bodegraven,
Holland.
SAUTJÁN ára Ghanapiltur
með áhuga á íþróttum, tón-
list, dansi og bókalestri:
Godfried Sam,
Apewosika Avenue,
P.O. Box 017,
Cape Coast, Ghana.
VELVAKANDI
Svarar í síma 569 1100 frá 10-12 og 14-16
frá mánudegi til föstudags
Tapað/fundið
Húfa tapaðist
HVÍT telpuhúfa/hattur
með pífu að framan og
opin í hnakka fyrir eins
árs barn tapaðist 3. júlí
sl. á leið um Vesturgötu,
Hafnarstræti að Kalk-
ofnsvegi (SVR - leið
111). Skilvís finnandi
hafi samband í síma 557
5337 eða 553 5102.
Gullhringur
tapaðist í
Heiðmörk
GULLHRINGUR úr
rauðagulli með skrauti
úr hvítagulli tapaðist á
göngustígnum í Heið-
mörkinni um fjögurleyt-
ið miðvikudaginn 27.
júlí. Finnandi vinsam-
legast hafi samband í
síma 564 1256.
Handklæði
tapaðist
HANDKLÆÐI hvarf í
Suðurbæjarlaug í Hafn-
arfirði sl. mánudag.
Handklæðið er hvítt og
á því er merki Karate-
deildar Hauka. Einnig
er saumað nafni „Ari“ í
handklæðið. Finnandi
vinsamlegast hringi í
síma 565 3503.
Gæludýr
Páfagaukur
tapaðist
PÁFAGAUKUR hvarf
frá Hverfisgötu 47 á
fimmtudagsmorguninn.
Páfagaukurinn er ljós-
blár og mjög gæfur.
Fuglsins er sárt sáknað
og ef einhver hefur orð-
ið var við hann vinsam-
legast hringið í síma 561
2612 eða 551 2067.
Kettlingar fást
gefins
TVEIR yndislegir kettl-
ingar fást gefins. Þeir
eru kassavanir og vel
að sér í Sturlungu. Uppl.
SKÁK
Uinsjón Margcir
Pétursson
• b C d • I g
HVÍTUR ieikur og vinnur
Staðan kom upp á World
Open skákmótinu í Fílad-
elfíu í Bandaríkjunum um
síðustu mánaðamót. Arnar
E. Gunnarsson (2.135) var
með hvítt og átti leik, en
Bandaríkjamaðurinn B.
Ash hafði svart.
19. Hxd7! - Rxd7 20. Dg4
- g6 21. Rh6+ - Kg7 22.
fxe5 - Rxe5 23. Rd5! -
cxd5 24. Hxf7+ — Kh8
25. Dd7 og svartur gafst
upp því hann er óveijandi
mát á h7.
Bandaríski stórmeistar-
inn Alexander Yermol-
insky,' fæddur í Sánkti
Pétursborg í Rúss-
landi, sigraði á mótinu.
Átta Islendingar voru
á meðal keppenda. í
opna flokknum, þar
sem Ijölmargir stór-
meistarar kepptu,
hlaut Arnar Gunnars-
son fimm og hálfan
vinning af níu mögu-
legum, Magnús Orn
Úlfarsson og Jón Vikt-
or Gunnarsson hlutu 5
v., Björn Freyr Bjömsson
fjóran og hálfan vinning
og Bergsteinn Einarsson 4
v. í flokki 2.000-2.200
stiga, hlaut Ríkharður
Sveinsson fimm og hálfan
vinning og Bjöm Þorfinns-
son 5 v. í flokki 1.800-
2.000 stiga keppti Davíð
Ólafur Ingimarsson og
hlaut hann fimm og hálfan
vinning.
Víkverji skrifar...
KUNNINGI Víkveija, sem er
nýlega fluttur heim eftir
dvöl í erlendri stórborg, hafði á
orði að það væru viðbrigði að koma
út úr húsi á morgnana í miðbæ
Reykjavíkur, þar sem hann býr
núna. Hann hefði verið vanur því
að koma beint út í iðandi mann-
þröngina, en nú liði honum eins
og í draugabæ þegar hann kæmi
út árla morguns. Kunninginn hafði
sömuleiðis orð á því að íslendingar
notuðu bíla svo mikið að varla
sæist hræða á gangi.
xxx
HANN bætti svo við að fátt
sliti því reykvískum gang-
stéttum nema ef vera kynni starfs-
menn rafmagnsveitunnar, vatns-
veitunnar, símans og hitaveitunn-
ar, sem rifu þær upp í tíma og
ótíma vegna einhverra lagnafram-
kvæmda undir þeim. Það rifjaðist
upp fyrir Víkveija þegar hann
starfaði við að helluleggja gang-
stéttir og horfði stundum á starfs-
ménn einhverrar af áðurnefndum
stofnunum rífa upp nýlagða stétt.
Sömuleiðis var ekki óalgengt að
síminn byrjaði á að grafa skurð
og moka ofan í hann aftur til þess
að rafmagnsveitan eða hitaveitan
gætu grafið sama skurðinn ein-
hveijum dögum síðar. Gæti hugs-
azt að samræmingu skorti hjá
opinberum aðilum varðandi verk-
legar framkvæmdir?
xxx
Ú ER sá tími, sem gatna-
framkvæmdir standa sem
hæst í borginni. Víkveija finnst
áberandi að starfsmenn borgar-
innar eða verktakafyrirtækja, sem
starfa á hennar vegum, standi
ekki nógu vel að merkingum vegna
hindrana, sem þeir setja á ak-
brautir. Það er alltof algengt að
ökumenn þurfi að snarhemla þeg-
ar þeir koma að umferðarkeilum,
búkkum eða hreinlega opnum
skurðum á götunum, þrátt fyrir
að í lögum og reglum segi að vara
eigi menn við slíku með góðum
merkingum.
xxx
OFT HEFUR Víkveiji fundið
að einokunarsölu áfengis hér
á landi og hnýtt í Áfengis- og tób-
aksverzlunina sem birtingarmynd
vitlausrar áfengisstefnu. Það er
hins vegar ástæða til að hrósa
fyrirtækinu fyrir lipra þjónustu við
þá, sem standa í flutningum og
þurfa að sníkja tóma pappakassa.
Áfengiskassar eru af hentugri
stærð til að flytja t.d. bækur og
verða yfirleitt mátulega þungir.
Starfsfólk ÁTVR tekur flytjendum
ævinlega af ljúfmennsku og hjálp-
ar þeim jafnvel að hlaða tómum
kössum í bílinn.