Morgunblaðið - 29.07.1995, Qupperneq 36
36 LAUGARDAGUR 29. JÚLÍ 1995
MORGUNBLAÐIÐ
Dýraglens
ElHhH/BŒNTiMA
| l/£7£>/4 FIU60EIH5,
^ þÖ.PABBt? 1
' EF pU BíZTHOöO) ,
MUN6FA£>0^ /
Grettir
Tommi og Jenni
Ljóska
Ferdinand
IT SAVS HERE
THAT BIRD5 HAVE
LAR6ER BRAINS
THAN FISH..
THAT SHOULD
MAKE VOU
FEEL GOOD..
NOU) YOU KNOU)
VOU'RE SMARTER
THAN A FISH..
I
mi
HOUU ARE YOU
AT THINKING
UNDER U)ATER?
Það stendur hér að
fuglar hafí stærri
heila en fískar.
Það ætti að
gera þig
ánægðan.
Nú veistu að þú ert
snjallari en fískur.
Hvemig fínnst þér að
hugsa ofan í vatni?
BREF
HL BLAÐSINS
Kringlunni 1103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Simbréf 569 1329
Fátæklegur
kennsluárangur
Frá Sveini Krístinssyni:
í KENNARAVERKFALLINU í vor
fékk undirritaður þá einkennilegu
hugmynd í spumarformi, hvað
mundi gerast, ef verkfallinu lyki
aldrei og kennsla, í svipuðu formi
og áður, hæfíst aldrei að nýju?
Hvað mundi gerast, ef kennsla
legðist niður um gjörvalla jörð.?
Flestir yrðu líklega fljótir að
svara því til, að svartnætti þekking-
arleysis mundi leggjast yfír jörðina,
auk þess sem ólíft yrði á atvinnu-
leysisbótum vegna ásóknar at-
vinnulausra kennara. — Hið síðast-
talda gæti eflaust valdið æmum
vanda. En um þekkingarleysis-
svartnættið langar mig til að fara
nokkmm frekari orðum.
Mér hefur ávallt skilist, að skil-
yrði þess, að maður geti sagt öðram
til vegar með sæmilegum árangri,
sé að maður viti nokkum veginn
sjálfur, hvert stefna ber. En í því
sambandi mætti spyija: Er ástand-
ið í heimsmálum þannig nú til dags,
að telja megi öraggt, að við séum
á réttri braut, hvað þekkingu, upp-
lýsingaöflun og upplýsingamiðlun
varðar?
Ófriðarbál loga víða um heim.
Tillitsleysi gagnvart náunganum
er i algleymingi. Konum, bömum
og sjúku fólki er ekki þyrmt. Fólk
er brennt til bana, skotið, höggvið
í spað eða svelt í hel, gjaman án
nnarra saka en „rangs“ þjóðernis.
„Þjóðernishreinsun" er tískuorð.
Líklega afturgengið tískuorð. Ég
man ekki betur en reynt væri að
telja manni trú um í gamla daga,
að það hefði farið í gröfína með
Adolf heitnum Hitler. En nú nota
flestir fréttamiðlar þetta orð
hikstalaust, rétt eins og þeir væra
næsta sáttir við þá hugsun, sem
að baki þvi býr, svo sem eins og
um væri að ræða fatahreinsun, til
dæmis. - Ekki verður séð, að sú
menntunarbraut, sem mannkynið
nú fetar, dragi úr hneigð manna
eða þjóða til að beita drápstækjum
gegn náunganum, ef þeim býður
svo við að horfa.
Drápstækin era líka að verða æ
„fullkomnari". Kennarar hafa ekki
látið deigan síga við að innprenta
nemendum sínum þá tækniþekk-
ingu, sem til þess þarf að ná sem
bestum árangri með slíkum tækj-
um. - Mörg þessi tæki má raunar
einnig nota til nytsamlegra verka.
En mannkynið stendur einfaldlega
ennþá á því menningarstigi, að slík
„tvíeggjuð“ tæki i höndum þess era
eins og beittur rýtingur eða hlaðin
byssa í höndum óvita bams, og þó
að sjálfsögðu mun skaðvænlegri,
ef rangt er beitt.
Ég segi ennþá, því vonina meg-
um við helst ekki missa. Von um
að á endanum verði sú regla virt
um gjörvalla jörð, að eigi skuli
kvelja né myrða náungann, hversu
fjarskyldur sem hann sýnist vera,
jafnvel þótt skipun um slíkt komi
frá „hærri stöðum.“
Ég álít að hver einstaklingur sé
svo skapaður, að slík réttlætisvit-
und sé honum meðfædd. Vandinn
sé sá að halda henni óspjallaðri í
heimsins volki. - Það er eflaust
vel hugsað að láta fulltíða menn
veita þeim yngri kerfísbundna
fræðslu.
En er hugsanlegt, að eitthvað
af náttúrlegum, góðum kenndum
nemendanna skolist burt í leiðinni?
I öllu falli er árangurinn af kennslu-
starfí fortíðar ekki uppörvandi, sé
á heildina litið. - Kannski ættum
við að gefa eftirkomendum okkar
kost á að fara á mis við eitthvað
af þeirri „þekkingu", sem leitt hef-
ur til þess hörmungarástands, sem
nú ríkir víða um heim?
SVEINN KRISTINSSON,
Þórufelli 16, Reykjavík.
Breyting á eignaskatt-
lagningu bifreiða
Frá Fríðriki Sophussyni:
ÉG ÞAKKA Jóhanni F. Guð-
mundssyni fyrir bréf til mín í
Morgunblaðinu þann 26. júlí sl. í
bréfínu bendir Jóhann réttilega á
að við álagningu eignaskatts sé
ekki tekið tillit til afskrifta bifreiða
heldur sé ávallt miðað við kaup-
verð óháð því hvenær bíllinn er
keyptur.
Jóhann bendir á að hugsanlegt
sé að setja á laggimar nefnd m.a.
með aðild formanna Bílgreinasam-
bandsins og Félags íslenskra bif-
reiðaeigenda til að skoða ágalla
núverandi kerfís og leggja fram
tillögur til breytinga.
Ég hef átt náið og gott samráð
við bæði þessi félög og breyting á
þessu er einmitt eitt þeirra verk-
efna sem sett hafa verið í starfs-
áætlun ráðuneytisins.
Eins og ég hef rakið áður var
reglum um afskriftir bifreiða
breytt árið 1979 þannig að þær
vora afnumdar en þess í stað var
miðað við kaupverð. Ástæðan var
sú að á verðbólgutímum væri eðli-
legt að sleppa afskriftum og aðlög-
un að markaðsverði en nota í stað-
inn kaupverð bifreiða sem eigna-
skattsstofn. Nú þegar verðbólgu-
tímabilið er að baki er rétt að
endurskoða þessa reglu.
Þess vegna verður á Alþingi
lögð fram tillaga til breytingar á
fyrirkomulagi við eignaskattlagn-
ingu bifreiða.
FRIÐRIK SOPHUSSON,
fjármálaráðherra.
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók verður framvegis varðveitt í
Gagnasafni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan,
hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu
efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari þar að lútandi.