Morgunblaðið - 29.07.1995, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
LAUGARDAGUR 29. JÚLÍ 1995 15
FleiriJap-
anar án
atvinnu
Tókýó. Reuter.
JAPANAR hafa birt skuggalegar
tölur um vaxandi atvinnuleysi, sem
sýna að það jókst í 3,2% í júní og
hefur ekki verið meira.
Atvinnuleysið jókst úr 3,l%_í maí
og er jafnmikið og í apríl. I júní
1994 voru 2.9% atvinnulausir.
Alls voru 2.02 milljónir atvinnu-
lausar í júní miðað við 2.08 milljónir
í maí og 1.83 milljónir í júní í fyrra.
Raunverulegt atvinnuleysi kann
að vera meira, því að í Japan eru
aðeins þeir sem sækja um vinnu tald-
ir atvinnulausir. En þótt margir séu
atvinnulausir segja yfirvöld að ekki
sé hægt að fullyrða að um framtíðar-
þróun sé að ræða.
Jafnframt sýna aðrar tölur, sem
hafa verið birtar, að 61 starf er í
boði fyrir hverja 100 sem sækja um
atvinnu og eru það lægstu tölur síð-
an í janúar 1987.
Japönsk fyrirtæki ráða færra nýtt
fólk til starfa en áður í spamaðar-
skyni vegna hægs efnahagsbata og
neikvæðra áhrifa af styrkleika jens-
ins.
Einnig má rekja þetta til þess að
starfslið fyrirtækja er fjölmennt
vegna mikilla mannaráðninga á
gróskuskeiðinu á síðasta áratug.
Hrávara
Verð á kaffi heldur
áfram að lækka
London. Reuter.
KAFFI hélt áram að lækka í gær
þrátt fyrir hækkanir fyrr í vikunni
þegar Brazilía og fleiri kaffifram-
leiðslulönd komust að samkomulagi
um að draga úr útflutningi.
Septemberverð í London var 2.685
dollarar tonnið í gær, miðað við 2.825
dollara á miðvikudag. Verðið hækk-
aði á miðvikudag þegar þær fréttir
bárust að samtök kaffiframleiðslu-
ríkja (ACPC) hefðu ákveðið að tak-
marka útflutning við 60.4 milljónir
poka á ári til júní 1996.
Áður en viðræður APC hófust var
verðið 2.700 dollarar, en vitað var
að dregið yrði úr útflutningnum. í
júlíbytjun var verðið rúmlega 2.000
dollarar.
Sala á gulli jókst í New York síð-
degis á fimmtudag og sagan endurt-
ók sig í Evrópu í gær. Síðdegis í gær
var verðið í London 383,00 dollarar
únsan miðað við 385,70 dollara úns-
an sólarhring áður. Verðið hefur
ekki verið lægra í níu vikur Við lok-
un var það 383,05 dollarar.
Verð á hráolíu breyttist lítið. í
London var það um 16,10 dollarar
tunnan, en stutt er síðan það var
15,45 dollarar, hið lægsta í 10 mán-
uði.
Verð á kopar komst ekki yfir 2.900
dollara tonnið í London i gær. Birgð-
ir eru ekki eins rýrar og fyrir viku.
en verðbréfafyrirtækið GNI hermir
að verðhækkunum sé ekki lokið.
Að sögn GNI mun eftirspurn eftir
áli hins vegar minnka ört á síðari
árshelmingi. Því er einnig spáð að
álframleiðsla muni aukast, þar sem
ekki muni takast að standa við sam-
komulagið um að draga úr fram-
leiðslunni. Álverð í London var 1.891
dollar við lokun í gær.
Viacom skilar 38 millj-
óna dollara hagnaði
New York. Reuter.
VIACOM — hið kunna kvikmynda-,
kaplasjónvarps, myndbands- og
bókaútgáfufyrirtæki - hefur skýrt
frá vænum hagnaði á öðrum árs-
fjórðungi og segir að allar deildir
þess séu í örum vexti.
Hagnaðurinn nam 38 milljónum
dollara, eða 10 sentum á hlutabréf.
Að sögn Sumners Redstones stjórn-
arformanns sýnir góð afkoma að
gefíð hefur góða raun að sameina
Viacom Paramount-fyrirtækinu að
kvikmyndaveri þess meðtöldu og
fyrirtækinu Blockbuster Entertain-
ment. Viacom keypti einnig bóka-
forlagið Simon & Schuster í fyrra
og komst nýlega yfir fyrirtækið
Tele-Communications og kaplasjón-
varpskerfi þess.
Kvikmyndin Forrest Gump er
Viacom dijúg tekjulind.
Verð hlutabréfa í Viacom lææk-
uðu um 1,375 dollara í 50,375 doll-
ara í kauphöllum.
Hagnaður
Commerzbank
tvöfaldast
Frankfurt. Reuter.
COMMERZBANK AG, þriðji stærsti
banki Þýzkalands, segir að rekstrar-
hagnaður hafi rúmlega tvöfaldazt á
fyrri árshelmingi 1995.
Rekstrarhagnaðurinn jókst um
105,7% í 897 milljónir marka á fyrstu
sex mánuðum ársins.
Eigin viðskipti í verðbréfum, er-
lendum gjaldeyri o.fl. jókst í 247
milljónir marka úr 87 milljónum á
sama tíma í fyrra.
Dótturfyrirtækin CISAL í Luxem-
borg, Rheinhyp og Hypothekenbank
Essen AG áttu einnig mikinn þátt í
hinum stóraukna hagnaði, sem sér-
fræðingar höfðu spáð að yrði á bilinu
50 til 80%.
Danirlækka
vexti á ný
Kaupmannahöfn. Rcuter.
DANSKI seðlabankinn hefur lækkað
vexti af skuldabréfum í endursölu
um 0,15% í 6,05% vegna stöðugleika
á gjaldeyrismarkaði.
Bankinn lækkaði þessa vexti síð-
ast af sömu ástæðu í 6,20% úr 6.35%
6. júlí. Þá Iækkaði bankinn einnig
innláns- og forvexti í 5,75& úr 6,00%.
Síðasta vaxtalækkun er talin já-
kvætt skref, sem kunni að leiða til
fleiri lækkana.
Hagfræðingur Jyske Bank spáir
annarri lækkun þegar frumvarp til
fjárlaga verður kynnt í ágústlok. Þá
telur hann að innláns- og forvextir
verði lækkaðir um 0,25% og vextir af
skuldabréfum í endursölu um 0,15%.
Dönsk hlutabréf hafa hækkað í
verði við síðustu vaxtabreytingu.
Samið við tvo að-
ila um Eyrarsund
Kaupmannahöfn. Reuter.
IBM þróar
ódýran vír-
ushugbúnað
Financial Times
IBM er að þróa vírushugbúnað
sem er ætlað að verða talsvert
ódýrari en sá hugbúnaður sem
fyrir er á þessum markaði. IBM
segir að forritið ' vinni bug á
öllum þekktum tegundum vír-
usa, og muni kosta 49 dollara.
Norton AntiVirus-forritið frá
Symantec, sem er leiðandi á
þessum markaði, kostar nú 129
dollara.
Friðrik Skúlason hefur náð
árangri í útflutningi á vírushug-
búnaði, en ekki náðist í Friðrik
vegna þessa máls í gær. Hann
selur vírusforrit sitt m.a. til
Microsoft, helsta keppinautar
IBM á hugbúnaðarmarkaði.
DANSK-sænska Eyrarsundsfé-
lagið hefur undirritað samninga
upp á 5.2 milljarða danskra króna
um helming framkvæmda við brú
yfir Eyrasund og göng undir það.
Samningarnar taka til fram-
kvæmda Danmerkurmegin brúar-
innar og gangnanna.
Framkvæmdum lokið
árið 2000
Verksmiðjuframleiddum
göngum verður sökkt og gervieyja
mynduð skammt frá landi sam-
kvæmt samningunum. Þar við
bætast dýpkunarframkvæmdir og
vinna við upphleðslu og upp-
græðslu.
Að sögn Eyrarsundsfélagsins
var samið við tvö alþjóðleg bygg-
ingafyrirtæki um framkvæmdir,
sem skulu hefjast nú þegar og
ljúka á við fyrir mitt árið 2000.
Samningur upp á 3.8 milljarða
danskra króna um gangnagerð var
gerður við Oresund Tunnel
Contractors, sem sænsk, frönsk,
dönsk, hollenzk og brezk fyrirtæki
standa að.
Samningur upp á 1.4 milljarða
d. króna um dýpkunarfram-
kvæmdir o.fl. Danmerkurmegin
var gerður við Oresund Marine
Joint Venture, hóp danskra, hol-
lenzkra og bandarískra bygging-
arfyrirtækja.
Umboðsmenn um land allt