Morgunblaðið - 29.07.1995, Síða 14
14 LAUGARDAGUR 29. JÚLÍ 1995
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
Hlutabréfavísi-
tala VÍBísögu-
legu hámarki
HLUTABRÉFAVÍSITALA VÍB náði á fimmtudag sögulegu há-
marki þegar hún fór í 826,35 stig en áður hafði hún farið hæst
í 821,15 stig 22. ágúst 1991. Vísitalan var fyrst reiknuð í upp-
hafi árs 1987 og var hún þá skráð 100 stig. Upphaflega var hún
reiknuð hálfsmánaðarlega út frá gengi bréfa í sex fyrirtækjum,
þ.e. Almennum tryggingum, Eimskip, Flugleiðum, Hamiðjunni,
Iðnaðarbankanum og Skagstrendingi.
Vísitalan er núna reiknuð dag-
lega og byggist á gengi hlutabréfa
í 16 fyrirtækjum en vægi hvers
þeirra er miðað við markaðsverð-
mæti bréfanna á hveijum tíma.
Hlutabréf Eimskips hafa því mest
vægi, eins og sést á myndinni.
Heildarmarkaðsverðmæti hluta-
bréfa í þessum félögum nam tæp-
lega 36,9 milljörðum króna á
fimmtudag.
íslensk hlutabréf ekki dýr í
alþjóðlegum samanburði
Ásgeir Þórðarson, forstöðumað-
ur verðbréfamiðlunar VÍB, segist
fremur eiga von á því að hluta-
bréfaverð haldi eitthvað áfrarh að
hækka. „Ef afkoma fyrirtækja
verður góð á þessu ári gæti næsta
ár orðið hagstætt. Hins vegar er
það eðli hlutabréfa að þau sveifl-
ast í verði og sá dagur mun því
koma að tímabil lækkunar fer í
hönd,“ sagði hann. Ásgeir benti
hins vegar á að miðað við helstu
kennitölur væru íslensk hlutabréf
ekki orðin dýr í alþjóðlegum sam-
anburði. í Bandaríkjunum væri t.d
Dow Jones hlutabréfavísitalan
einnig í sögulegu hámarki.
Ferð til New York
VÍB hefur ákveðið að gefa einum
viðskiptavini, sem kaupir hlutabréf
hjá fyrirtækinu, farseðil til New
York og verður nafn hins heppna
dregið úr potti um næstu áramót.
,___1 22. ágúst 1991 27. júlí 19951_
I | 821,15 stig 826,35 stigl
VIB frá 1987
——- ....
stig
800
700
600
500
400
300
200
100
0
91%
Hækkun vísitölunnar
innan hvers árs
16%
7%
| | 1992 1993
12%
1987 1988 1989 1990 1991 1994 1995
-10% ‘7% ,il27/7
22,5%
Vægi íyrintækja í hlutabréta-
vísitölu VÍB 27. júlí 1995
§s
£ 5
sa
UJ 3 §
c!
'°
10,4% -q
3
8
. I
•5C LU
2 ^ 'S2
6,2% 6,2% 6,1%5^go/o o
™ 4,3%
5
C3
OC
S
1
CC
■a
§
1
£5
1
cc
§
co
'o 2,2%
§
§
co
C3
3
CQ
S
cc cc a.
S S ^
oo
2,9%2,7%p 3% 2 2%
nnnnK'H-H^w
Afkoma Heklu hf. batnaði um 100 milljónir fyrstu sex mánuði ársins
HEKLA hf. skilaði alls um 26,5
milljóna króna hagnaði fyrstu sex
mánuði ársins, samkvæmt óendur-
skoðuðu milliuppgjöri. Þetta eru
mikil umskipti frá árinu 1994 þegar
tapið nam um 59 milljónum, og að
teknu tilliti til óreglulegra liða _nem-
ur batinn um 100 milljónum. Áætl-
anir Heklu gera ráð fyrir að afkom-
an verði áfram góð á þessu ári þann-
ig að heildarhagnaður ársins verði
um 50 milljónir.
Tölur yfir afkomu Heklu birtast
hér í fyrsta sinn opinberlega í 62
ára sögu fyrirtækisins enda hefur
það verið lokað fjölskyldufyrirtæki.
Eigendur Heklu hafa núna tekið þá
ákvörðun að birta upplýsingar úr
milliuppgjörum og ársreikningi
framvegis í samræmi við þá stefnu-
yfirlýsingu að breyta fyrirtækinu í
almenningshlutafélag.
Að sögn Sigfúsar Sigfússonar,
forstjóra Heklu hf., má í senn rekja
þessi miklu umskipti til aukinna
tekna og góðs árangurs af sparnaða-
raðgerðum sem ráðist var í á síðasta
ári. „Starfsfólkið okkar var tiibúið
að taka þátt í þessum aðgerðum og
við eigum því að þakka að þetta
tókst hjá okkur.“
Hann segir rekstrarbatann í raun
meiri en hagnaðartölurnar gefi til
kynna þar sem inn í uppgjörið í ár
komi til gjalda starfslokasamningar
að flárhæð 6,7 milljónir og áætlað
7,9 milljóna orlof. Siíku hafi ekki
verið til að dreifa á síðasta ári. Að
þessu frátöldu hafi af-
koma fyrirtækisins
batnað um 100 milljónir
milli ára.
Rekstrarkostnaður
skorinn niður um
fjórðung
Rekstrartekjur
fyrstu sex mánuði árs-
ins námu alls um
1.887,4 milljónum
króna og jukust um
nálægt 15% frá árinu á
undan. Með umfangsm-
iklum hagræðingarað-
gerðum tókst að lækka
kostnað um nálægt 24%
auk þess sem vaxta-
gjöld lækkuðu um 10 milljónir frá
árinu á undan. I tengslum við endur-
skipulagningu rekstrarins í fyrra
bauð Hekla hf. út 40 milljóna skulda-
bréf á verðbréfamarkaði og aflaði
þannig fjár á hagstæðum kjörum til
að greiða niður eldri og óhagstæðari
lán. Fyrirtækið hefur jafnframt nýtt
sér í ríkum mæli framvirka gjald-
eyrissamninga og færir
jafnan allar erlendar
skuldbindingar yfir í
íslenskar krónur sem
hefur komið sérstak-
lega vel út framan af
þessu ári þegar gengi
japanska jenins hækk-
aði verulega.
Sigfús segir að veltan
hafi aukist á öllum svið-
um rekstrarins. Fyrir-
tækið sé ekki að selja
miklu fleiri bíla en í
fyrra en þess í stað séu
dýrari bflar að seljast
betur. „Við erum sam-
keppnisfærari en við
vorum fyrir ári síðan.
Hækkun á gengi jensins á árinu 1993
gerði það að verkum að Mitsubishi-
bílar hækkuðu í verði og urðu ósam-
keppnisfærir þar sem Mitsubishi var
ekki tilbúið að selja bílana í öðrum
myntum. Volkswagen hefur núna
komið í staðinn og hefur verið að
seljast mjög vel. Þá hefur afkoma
véladeildarinnar einnig gjörbreyst
með tilkomu Scania-umboðsins því
öll aðstaða var til staðar. Það var
reyndar tap af rekstri hennar fyrstu
sex mánuðina en hún verður komin
í góðan hagnað í lok ársins. Við erum
síðan lausir við samkeppni við Lands-
bankann sem starfrækti rekstrar-
leigu á vinnuvélum gegnum dóttur-
fyrirtæki sitt, Lind hf. Það rugl er
loksins hætt. Við erum því mjög
bjartsýnir um reksturinn en erum
engu að síður mjög aðhaldssamnir í
öllum okkar áætlanagerðum.
„Réttlætið náði
fram að ganga“
Það var einnig mikill sigur fyrir
fyrirtækið að fá endurgreiddar um
30 milljónir frá skattyfirvöldum sem
voru ranglega innheimtar af okkur
í formi dráttarvaxta og aukaálags
vegna virðisaukaskatts af ábyrgðar-
viðgerðum. í því máli vorum við
bornir þungum sökum bæði af skatt-
yfirvöldum, fjölmiðlum og keppi-
nautum en höfum núna hreinsað
okkur af því. Réttlætið náði þar fram
að ganga.“
Hekla hefur umboð fyrir Pana-
sonic fax- og símtæki svo og Kenwo-
od og General Electric heimilistæki.^
Stefnt er að því að efla þá deild
verulega og er í undirbúningi að
setja á laggirnar stóra verslun í
gamla Hekluhúsinu með þessar vör-
ur.
Eigið fé Heklu í lok júní nam alls
334 milljónum króna.
Hagnaður nam
26,5 milljónum
Sigfús Sigfússon
Emerald
leigir Fokk-
er 50 af
Flugleiðum
EMERALD Air tók á leigu eina af
Fokker Friendship 50 vélum Flug-
leiða til að flytja farþega í áætlunar-
flugi félagsins til Belfast í gær.
Karl Sigurhjartarson, umboðsmaður
Emerald á Islandi, segist vonast til
þess að þetta verði síðasta óreiðu-
flugið hjá félaginu og að meiri regla
komist á áætlunarflug Emerald í
næstu viku með tilkomu Boeing
737-200 vélarinnar sem félagið hef-
ur tekið á leigu. Hann segir allt
stefna í að hún komist í gagnið
næstkomandi þriðjudag.
Karl segir sama hvaðan gott komi
og það valdi þeim engu hugarangri
þó svo að vélin sé tekin á leigu hjá
Flugleiðum. Hann segir að vélin
hafi farið því sem næst full út, eða
með tæplega fimmtíu farþega. „Það
má segja að það hafi verið lán í ól-
áni að við vorum ekki með fleiri
farþega því annars hefðum við ekki
getað notað þessa vél.“ Hann segir
þessa flugvélategund hafa gefið
góða raun í millilandaflugi en flug-
tíminn á þessari leið muni hins veg-
ar lengjast um tæpa klukkustund,
úr rúmum tveimur tímum í þrjá.
---------» » ♦---
Eimskip fjár-
festiríHar-
aldi Böðv-
arssyni
BURÐARÁS hf., eignarhaldsfélag
Eimskips, hefur að undanförnu
keypt hlutabréf í Haraldi Böðvars-
syni hf. á Akranesi fyrir 20 milljón-
ir króna að nafnvirði og samsvarar
það 5% af heildarhlutafé. Bréfin
voru seld á genginu 2,3 og var
kaupverðið 46 milljónir króna en
með kaupunum verður Burðarás
einn af fimm stærstu hluthöfum
fyrirtækisins. Bréfin voru að mestu
í eigu Haralds Böðvarssonar hf.
A síðustu misserum hefur Eim-
skip, í gegnum Burðarás, keypt
hlutabréf í ýmsum sjávarútvegs-
fyrirtækjum. Burðarás er næst-
stærsti hluthafinn í Skagstrendingi
hf. með tæplega 12% hlutafjar, en
einnig á hann 10% hlut í Árnesi
hf. í Þorlákshöfn og 3,4% hlut í
Síldarvinnslunni hf. í Neskaupstað.
„íslenskur sjávarútvegur hefur
verið að styrkjast og hafa fyrir-
tæki eins og Haraldur Böðvarsson
hf. ekki síst átt þátt í þeirri þróun.
Það er áhugavert fyrir Eimskip að
fjárfesta í slíkum fyrirtækjum og
taka þannig þátt í uppbyggingu
þessarar atvinnugreinar," segir
Þorkell Sigurlaugsson, fram-
kvæmdastjóri þróunarsviðs Eim-
skips.
Lífeyrissjóðir semja við
breskt fjárvörslufyrirtæki
LÍFEYRISSJÓÐASAMTÖKIN hafa
náð samkomulagi við breska fjár-
vörslufyrirtækið Gartmore Capital
Management Ltd. um umsjón með
erlendum fjárfestingum lífeyrissjóð-
anna. Að sögn Hrafns Magnússon-
ar, framkvæmdastjóra Sambands
almennra lífeyrissjóða, er markmið
samningsins að gefa iífeyrissjóðun-
um nýjan valkost varðandi erlendar
fjárfestingar. Hann lagði áherslu á,
að lífeyrissjóðirnir myndu þar fyrir
utan einnig fjárfesta erlendis með
milligöngu íslenskra vérðbréfafyrir-
tækja, eða á eigin vegum.
Samtök almennra lífeyrissjóða og
Landssamband lífeyrissjóða standa
saman að samningnum, og hefur
undirbúningur staðið í hartnær eitt
ár. Hrafn sagði, að lífeyrissjóðirnir
kæmu fram sem einn viðskiptavi.nur,
og ættu þannig kost á betri ávöxt-
un. Hins vegar yrði hver sjóður
skráður eigandi að sínum bréfum.
„Við fengum breskt ráðgjafafyrir-
tæki okkur til hjálpar til að velja
samstarfsfyrirtæki," sagði Hrafn í
samtali við Morgunblaðið. „Gart-
more er eitt þekktasta og virtasta
fyrirtækið á sínu sviði, og ég tel að
valið hafi heppnast vel.“
Hrafn sagði Gartmore bjóða við-
skiptavinum sínum möguleika á fjár-
festingum í fjölda verð- og skulda-
bréfasjóða. „Við leggjum áherslu á
að lífeyrissjóðirnir fjárfesti í traust-
um alþjóðasjóðum, með víða áhættu-
dreifingu. Eg vil benda á, að með
þessum samningi er ekki verið að
kasta rýrð á fjárfestingakosti ís-
lenskra verðbréfafyrirtækja, heldur
er markmiðið að bjóða með þessu
valkost í erlendum fjárfestingum
sem öllum lífeyrissjóðum gefst færi
á. Þennan kost geta sjóðirnir einnig
notað sem ávöxtunarviðmiðun fyrir
aðrar erlendar Ijárfestingar sínar,“
sagði Hreinn ennfremur.
Joe’s-verslanir opnaðar í
Kringlunni og á Akureyri
TÍSKUVERSLANIR með vörur
frá danska fyrirtækinu Joe’s
verða opnaðar í Kringlunni og
á Akureyri þann 1. september
næstkomandi. Joe’s-verslanir
eru víða á Norðurlöndum, og
segir Guðmundur Ólafsson, eig-
andi Joe’s í Kringlunni, að ætl-
unin sé að verslanirnar fylli
ákveðið tómarúm á markaðnum,
Hann segir að hjá Joe’s sé lögð
áhersla á alls kyns tískufatnað
fyrir unga menn.
„Mér hefur sýnst að tísku-
markaðurinn hér skiptist í tvo
flokka, flnni verslanir annars
vegar og ódýrar verslanir hins
vegar, þar sem minni áhersla
er oft lögð á gæði,“ sagði Guð-
mundur í samtali við Morgun-
blaðið. „Joe’s mun staðsetja sig
þarna á milli, þar sem um vand-
aðar vörur er að ræða, en jafn-
framt er nýttur sá sparnaður
sem hlýst af verslanakeðjum, og
honum skilað til neytenda." í
Kringlunni verður Joe’s til húsa
á neðri hæð, þar sem nú er versl-
unin 1,2, 3, en Guðmundur hef-
ur fest kaup á því húsnæði.
Verslunin á Akureyri er í eigu
Ragnars Sverrissonar kaup-
manns, og verður liún við
Gránufélagsgötu.