Morgunblaðið - 29.07.1995, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 29. JÚLÍ 1995 11
FRÉTTIR
Morgunblaðið/Gunnar
ÞYRLA Bandaríkjahers gagnaðist Vestfirðingum í erfiðum verk-
efnum. Hún flutti m.a. dráttarvél frá Bolungarvík til Reykjar-
fjarðar fyrir björgunarsveitirnar á norðanverðum Vestfjörðum.
Drattarvel hengd
neðan í risaþyrlu
Bolungarvík. Morgunblaðið.
FJÖLMENNI fylgdist með er þyrla
Bandaríkjahers, sem hér var við
heræfingarnar Norðurvíking, hóf
sig til flugs með dráttarvél sem
hún flutti norður í Reykjarfjörð á
Ströndum fyrir björgunarsveitirn-
ar á norðanverðum Vestfjörðum.
Þetta var síðasta verkefni þyrl-
unnar hér á landi enda heræfing-
unum lokið og risaþyrlurnar tvær
sem tekið hafa þátt í æfingunum
verða því teknar í sundur og flutt-
ar aftur vestur um haf, þar sem
þeirra bíða vafalaust ný verkefni.
Eins og kunnugt er af fréttum
þá hafa þessar risaþyrlur, auk
þess að taka þátt í heræfingunni,
verið lánaðar af Bandaríkjaher til
ýmissa verkefna sem erfitt er að
framkvæma nema með svona stór-
virkum tækjum.
Tvö verkefni fyrir
björgunarsveitir
Fyrir björgunarsveitimar hér á
Vestfjörðum voru þyrlurnar notað-
ar í tvö verkefni, annars vegar til
flutninga á dráttarvélinni norður
á Strandir og hins vegar vom tveir
radíóendurvarpar fluttir upp á
fjöll, annar upp á Snæfjall, sem
er hæsti tindur á Snæfjallaströnd,
og hinn var settur upp á Homtær
við Arnarfjörð. Ungir sem gaml-
ir notuðu tækifærið og skoðuðu
risaþyrluna meðan dráttarvélin
var undirbúin til flugsins hangandi
neðan í þyrlunni.
Gagnrýni á reglugerð um innflutning kjöts og osta visað á bug
Ekki liægt að gera
öllum til hæfis
GUÐMUNDUR Sigþórsson, skrif-
stofustjóri í landbúnaðarráðuneyt-
inu, kveðst ekki telja gagnrýni
forstjóra Hagkaups á. reglugerð
um innflutning unninnar kjötvöm
og osta réttmæta og að sumu leyti
byggða á misskilningi á reglugerð-
inni.
Forstjóri Hagkaups gagnrýndi
sérstaklega 4. grein reglugerðar-
innar, þar sem segir að sú regla
gildi að fýrst verði úthlutað vegna
umsókna á ostategendum sem
ekki eru framleiddar hér á landi
og sú vara skuli ganga fyrir sem
ætluð er til matvælaiðnaðar.
Gert ráð fyrir að innflutt vara
sé 30% dýrari en íslensk
Guðmundur minnir á að nefnd
þriggja ráðuneyta hafí lagt til
þessa framkvæmd á lögunum um
tollkvóta með það að leiðarljósi að
þeir takmörkuðu tollkvótar sem
em til ráðstöfunar myndu að öðr-
um kosti ekki fullnægja þörfum
markaðarins. „Þegar er um að
ræða vörur sem fyrirfínnast ekki
hér en hafa verið á boðstólum að
einhveiju leyti undanfarið, t.d.
sérostar sem era ekki framleiddir
hér á landi, hefur neytandinn í
sjálfu sér ekkert val um að kaupa
íslenska osta á lægra verði en
þessir ostar yrðu við innflutning,
því að þeir eru ekki til. Almennu
gjöldin eru það há því að gert er
ráð fyrir að innflutta varan sé
minnst 30% dýrari en sú ís-
lenska," segir Guðmundur. „Þetta
er hagkvæmari leið fyrir neytend-
ur, miðað við það takmarkaða
magn sem er til ráðstöfunar."
Eðlileg krafa
Kröfu reglugerðarinnar um að
innflytjandi tilgreini magn, tegund
og framleiðsluland við umsókn
sína, segir Guðmundur eðlilega.
„Ef innflytjendur em með osta
sem em ekki framleiddir hér,
þurfa þeir að sjálfsögðu að láta
vita um hverjir þeir em og hvar
framleiddir til þess að við getum
ákveðið tollflokk þeirra. Þetta eru
nauðsynlegar upplýsingar sem
þurfa að koma fram við umsókn-
ina, vilji innflytjendur fá sinn inn-
flutning flokkaðan á viðeigandi
hátt en telji þeir hins vegar að
þeir séu með almennan ost geta
þeir sloppið við þessa sundurlið-
un,“ segir Guðmundur og minnir
á að nánari útlistun þessa ákvæð-
is muni koma fram í auglýsingu
ráðuneytisins.
Aldrei hægt að fullnægja
allri eftirspurn
Guðmundur vísar einnig á bug
gagnrýni forstjóra Hagkaups þess
efnis að tímafrekt og kostnaðar-
samt sé að láta útreikninga á til-
boðum í tollkvóta fylgja umsókn,
sem muni leiða til aukinnar álagn-
ingar á vöruna. Þessi aðferð sé í
samræmi við vilja Alþingis.
Eflaust verði valin sú leið um ein-
hveijar af þeim vörum sem reglu-
gerðin tiltekur.
„Þegar um útdeilingu á kvóta
er að ræða getur ekki verið um
annað að ræða en einhver telji sig
fá lakari útkomu en ef enginn
kvóti væri. Aðilar eins og Hagkaup
sjá kannski ekki alla kosti við þetta
fyrirkomulag en vafalaust em aðr-
ir aðilar sem heimta að þeir fái
skertan hlut. Það er aldrei hægt
að fullnægja allri eftirspurn sem
gæti verið til staðar, vegna þess
að kvótinn er mjög takmarkaður
í samræmi við eðli sitt. Þeim, sem
em að framleiða landbúnaðarvör-
ur hérlendis, fínnast þessir kvótar
vafalaust vera of stórir.
Að sjálfsögðu þarf þá sá sem
biður um tollkvóta að gera grein
fyrir hvað hann vilji greiða fyrir
að fá kvóta í tiltekinni vöm og
greiða fyrir einingu. Fullyrðing
Oskars um óhagræði gagnvart
neytendum er atriði sem ég vil
ekki taka afstöðu til, það hlýtur
að hafa verið gert í meðförum
Alþingis."
SUMARÚTSALA OIÍS
Sumarútsala OLÍS í risatjaldi við
þjónustustöðina Álfheimum
áður kr.
Welding lukt,
elaing
\ 1347,
nú kr. 890
Ferðagasgrill, Bamasundlaug, 4 manna tjald,
áður kr. 3490, nú kr. 2600 áður kr. 2758, nú kr. 1689 áður kr. 9451, nú kr. 5900
Tjöld fyrir böm, ^ 2 manna tjald,
kr.
Sve,
Sve;
Ferðaborð,
áður kr. 4990, nú kr. 3500
iM.M
Exact hella,
áður ícr. 2995, nú kr. 1990 áður kr. 3241, tíú kr. 2500 áður kr. 23l'9, nú kr. 1689 áður kr. 3Ó04, nú kr. 1990 áður kr. 5860, nú kr. 3400
Þetta eru bara dæmi. Otrúlegur afsláttur á frábærum vörum.
verkfæri, sjónauKar, borvélar, barnabílstólar, hengirúm og fleira og fleira.
Ekki fara í ferðalagið án þess að koma fyrst í tjaldið til okkar. Það borgar sig.
Sumarútsala Olís við ÁlfheimaJ^tkh;A hÁ
Opið laugardag og sunnudag frá kh 10-18. LLLLKjP/O””* pBr