Morgunblaðið - 29.07.1995, Page 9
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 29. JÚLÍ 1995 9
FRETTIR
Hreindýrastofninn er kominn niður fyrir 2.000 dýr
Veiðin skorin niður
Átak um stöðvun
unglingadrykkju
Vara við
útihátíðum
FORSVARSMENN átaksins um
stöðvun unglingadrykkju vilja vara
foreldra við því að senda ungmenni
á útihátíðir um verslunarmannahelgi
eftirlitslaust. í frétt frá forsvars-
mönnum segir að reynslan hafi sýnt
að mikil drykkja fari fram á slíkum
hátíðum, þótt bæði meðferð áfengis
og neysla sé bönnuð og að ungmenn-
un yngri en sextán ára sé óheimill
aðgangur nema í fylgd með fullorðn-
um.
Lögð er áhersla á að mikið sé í
húfi og óæskilegt að skapa vettvang
sem leiði til drykkju unglinga og
neyslu fíkniefna en útisamkomur ýti
mikið undir slíkt. „Ástæða er til að
vekja athygli á að mörgum stúlkum
hefur verið nauðgað á útihátíðum.
Ölvun eykur líkur til þess að stúlkur
geti orðið fórnarlömb og drengir
gerendur. Slík ofbeldisverk varpa
skugga yfir líf beggja aðila allt lífið
og verður sjaldnast bætt fyrir. Ölvun
margfaldar einnig hættu á slysum
hvers konar, til dæmis vegna ölvuna-
raksturs, sem oft endar með hörm-
ungum,“ segir í aðvörun átaks-
manna.
„Auk þess að virða almennar regl-
ur þjóðfélagsins verða allir ábyrgir
aðilar þjóðarinnar að taka höndum
saman við að stöðva unglingadrykkj-
una. Hún er þjóðinni til skammar.
Hún er þjóðinni til skaða. Hún leiðir
hörmungar yfir börnin okkar og flöl-
skyldur þeirra.“
• •
Orn Bárður
Jónsson nýr
fræðslustjóri
• BISKUP íslands hefur ráðið séra
Örn Bárð Jónsson til að vera
fræðslustjóri Þjóðkirkjunnar. Séra
Bernharður Guðmundsson sem hef-
ur gegnt embætti fræðslustjóra
hefur sagt embættinu lausu.
Sr. Örn Bárður
Jónsson er fæddur
á ísafirði 23. nóv-
ember 1949, sonur
hjónanna Salóme
M. Guðmunds-
dóttur og Jóns
Örnólfs Bárðar-
sonar. Hann lauk
verslunarprófi frá
Verslunarskóla ís-
lands árið 1969 og
var við nám í endurskoðun frá
1969-1972.
Árin 1977-1978 var hann við
nám í kristnum fræðum í Eng-
landi. Árið 1979 var hann vígður
djákni við Grensásskirkju í Reykja-
vík og starfaði þar í tæp fimm ár.
Hann stundaði nám við Guðfræði-
deild Háskóla íslands 1980-1984
og lauk þaðan kandidatsprófi.
Árið 1984 var hann vígður prest-
ur til aðstoðarguðsþjónustu í Garða-
sókn. Árið 1985 var hann kjörinn
sóknarprestur í Grindavíkurpresta-
kalli ogþjónaði þartil 1990 er
hann var kallaður til nýs embættis
verkefnisstjóra safnaðaruppbygg-
ingar á Biskupsstofu en Þjóðkirkjan
hafði þá samþykkt að helga yfir-
standandi áratug eflingu safnaðar-
starfs. Hann var settur fræðslu-
stjóri kirkjunnar 1. september 1994.
Sr. Örn Bárður hefur setið í
ýmsum nefndum innan kirkjunnar.
í júní sl. lauk hann Doctor of
Ministry prófi frá Fuller Theo-
logical Seminary í Pasadena í Kali-
forníu. Ritgerð hans fjallar um efl-
ingu safnaðarstarfa og heitir
„Discipling a Nation: Parish
Renewal Within the Evangelical
Lutheran Church of Iceland.“
Eiginkona séra Arnar er Bjarn-
fríður Jóhannsdóttir sjúkraliði og
eiga þau fimm börn.
Forvarnarstarf
Stígamóta
Nei þýðir
nei
STÍGAMÓT, samtök kvenna gegn
kynferðislegu ofbeldi, ætla að
efna til fræðslu- og forvarnará-
taks í vikunni fyrir verslunar-
mannahelgina. í tilefni þess hafa
veggspjöld og fræðslubæklingar
verið gefnir út og verður þeim
dreift á bensínstöðvar, strætis-
vagnabiðstöðvar og aðra brottfar-
arstaði ferðalanga.
Að sögn Steingerðar Krisljáns-
dóttur, starfskonu hjá Stígamót-
um, verður styrk sem samtökin
fá árlega frá dómsmálaráðuneyt-
inu varið að þessu sinni til for-
varnar og fræðslustarfs. Undan-
farin ár hafa Stígamótakonur
starfað á útihátíðum við gæslu,
áfallahjálp og aðhlynningu og
notað féð frá ráðuneytinu til að
standa undir kostnaði. „Okkur
finnst auðvitað súrt í brotið að
geta ekki boðið upp á þessa þjón-
ustu núna en við fáum engar kon-
ur til að sinna henni í sjálfboða-
vinnu,“ segir Steingerður.
Ef forsvarsmenn úti- og fjöl-
skylduhátíða óska þess senda
Stígamót fulltrúa sinn á hátíðirnar
á kostnað mótshaldara. Umsjónar-
menn Uxa og Víkurhátiðarinnar
hafa farið þessa á leit við samtök-
in og er nú þegar búið að ákveða
að tvær starfskonur fara á Kirkju-
bæjarklaustur.
------» ♦ ♦----
Hirðulausir
bátsverjar
Björgnnar-
sveitir í við-
bragðsstöðu
SINNULEYSI bátseiganda gagnvart
Tilkynningaskyldunni kostaði mikla
vinnu ijölda aðila og olli óþarfa ótta
hjá ættingjum. Tilkynningaskyldan
vill því beina þeim tilmælum til hlut-
aðeigandi aðila að sinna sínum skyld-
um af samviskusemi.
Grennslast hafði verið eftir bátn-
um, Sigurbjörgu Helgadóttur KÓ 98,
í tæpan sólarhring þegar tilkynning
barst til fjarskiptastöðvarinnar í
Gufunesi um fimmleytið í fyrradag.
Báturinn lagði 'úr höfn frá Ólafsvík
á miðvikudag og er talið að hann
hafi komið til hafnar í Patreksfirði
um kvöldið. Bátsveijar hirtu hvorki
um að tilkynna sig út frá Ólafsvik
né kvöldskyldu.
Mikið umstang
Auglýst var eftir bátnum i kjölfar-
ið í öllum veðurfregnatímum, svipast
var eftir honum á miðunum auk þess
sem hann var í stöðugri köllun hjá
fjarskiptastöðvum í Gufunesi og á
Isafirði. Lögregla og hafnarverðir í
Ólafsvík og á Patreksfirði leituðu í
höfnum, björgunarsveitir voru í við-
bragðsstöðu og unnið var að því að
fá flugvél til leitar þegar bátsveijar
loks sinntu tilkynningaskyldu sinni.
UMHVERFISRÁÐHERRA hefur
ákveðið að fengnum tillögum Hrein-
dýraráðs og veiðistjóra, að heimila
veiði á 291 hreindýri á þessu ári.
Heimilt verður að veiða 127 tarfa
og 164 kýr auk hreindýrakálfa sem
fylgt hafa felldum kúm. Þetta er
veruleg fækkun frá árinu 1994 þeg-
ar heimilað var að veiða 740 dýr,
en þá voru felld alls 622 dýr.
Veiðikvótinn í ár er byggður á
niðurstöðum talninga sem fram fóru
í apríl og júlí síðastliðnum, en sam-
kvæmt talningunni var áætlaður
heildarfjöldi hreindýra í apríl tæp-
lega 1.900 dýr en er nú í júlí áætlað-
ur 2.500 dýr.
Hreindýrastofninn var í apríl árið
1991 talinn vera 3.100 dýr, en þá
var tekin ákvörðun um að fækka
hreindýrum niður undir 2.000 dýr.
Tilgangurinn með fækkuninni var
að reyna að draga úr ágangi hrein-
dýra á skógræktarsvæði, draga úr
líkum á ofbeit á vetrarslóð hreindýra
og halda ágangi á ræktuðu túni í
lágmarki, en um leið að halda líf-
vænlegum stofni hreindýra sem gefi
af sér mikinn arð.
Veiðiheimiidir undanfarinna ára
hafa tekið mið af þessu og hafa því
verið rýmri en ella. Hreindýrastofn-
inn hefur af þessum sökum minnkað
um 40% á síðustu fjórum árum og
er kominn niður fyrir 2.000 dýr að
vori. Veiðiheimildir í ár miðast við
að stofninn verði í jafnvægi eða í
kringum 2.000 dýr.
Almennt mega hreindýraveiðar
fara fram á tímabilinu 1. ágúst til
15. september. Þó er heifnilt að hefja
tarfaveiði 24. júlí þar sem það veld-
ur ekki truflun fyrir kýr og kálfa.
Veiðar á svæðinu við Snæfell mega
hins vegar ekki hefjast fyrr en 15.
ágúst vegna þess að óvenjumikil
fækkun hreindýra hefur orðið á því
svæði. Álitið er að fyrirkomulag
veiðanna og tímasetning undanfarin
ár hafi valdið óeðlilega mikilli fækk-
un hreindýra á þessu svæði.
Veiðitíminn við Snæfell er styttur
til þess að stuðla að fjölgun dýra á
svæðinu.