Morgunblaðið - 29.07.1995, Blaðsíða 8
8 LAUGARDAGUR 29. JÚLÍ 1995
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Þetta er algjört hrekkjusvln, hann lætur okkur aldrei í friði...
7.077 manns nýttu skattaafslátt vegna hlutabréfakaupa 1994
Endurgreiðslur í ar
nema 480 rnillj ónum
RÍKISSJÓÐUR greiðir um 430
milljónir til 7.077 einstaklinga sem
keyptu hlutabréf á síðasta ári.
Tæplega 5.000 eigendur hús-
næðissparnaðarreikninga fá 150
milljónir í skattaafslátt í ár. Ríkis-
sjóður endurgreiðir alls 2,1 millj-
arð vegna ofgreidds tekjuskatts
og útsvars.
Talsvert fleiri nýta sér skattaaf-
slátt vegna hlutabréfakaupa í ár
en síðustu þijú ár. A árunum
1992-1994 fengu 6.100-6.400 ein-
staklingar afslátt hvert ár, en í
ár fer Qöldinn upp í 7.077. Sam-
tals keyptu þessir einstaklingar
hlutabréf fyrir 1.032 milljónir og
ná þannig að lækka skatta sína
um 430 milljónir.
Árið 1993 keyptu einstaklingar
hlutabréf fyrir 834 milljónir. Sú
aukning sem varð á hlutabréfa-
kaupum í fyrra er því um 200
milljónir. Líklegt er að sala á
hlutabréfum í Lyfjaverslun íslands
skýri þessa aukningu að einhverju
Ieyti, en hlutabréf fyrir 200 millj-
ónir voru seld í fyrirtækinu.
Hver einstaklingur keypti fyrir
146 þúsund krónur að meðaltali,
en árið áður var meðaltalið 130
þúsund á mann.
150 milljónir vegna
húsnæðissparnaðarreikninga
Eigendur húsnæðissparnaðar-
reikninga lögðu 997 milljónir inn
á reikningana á síðasta ári. Þetta
færir þeim um 150 milljónir í
skattaafslátt. í fyrra greiddi ríkis-
sjóður 214 milljónir vegna þessara
reikninga og 257 milljónir árið
1993. Afsláttur vegna þessara
reikninga fer lækkandi ár frá ári
vegna breytinga á lögum. í ár er
afslátturinn 15% af innleggi, en
lækkar niður í 10% á næsta ári.
Alls greiðir ríkissjóður út um 5
milljarða til skattgreiðenda um
þessi mánaðamót. Stærstur hluti
er vegna greiðslu vaxtabóta og
barnabóta. Endurgreiðslur vegna
tekjuskatts og útsvars nema 2,1
milljarði. Þar er m.a. um að ræða
ofgreiddan skatt af kostnaði sem
hefur verið viðurkenndur við
álagningu á móti framtöldum tekj-
um af bifreiðahlunnindum, dag-
peningum og skattaafsláttur
vegna hlutabréfakaupa og hús-
næðissparnaðarreikninga. Eining
er um að ræða endurgreiðslu á
útsvari, en útsvarsprósentan er
mishá milli sveitarfélaga.
Allir sem fá endurgreiddan
skatt fá einnig greiddar verðbætur
á upphæðina, en engir vextir eru
greiddir. Þeir sem skulda tekju-
skatt þurfa einnig að greiða verð-
bætur. Þeir þurfa heldur ekki að
greiða vexti ef þeir greiða á gjald-
daga.
Teppi af sviðinu frá samkomu Benny Hinn auglýst til sölu
Seldust upp á innan við
þremur klukkustundum
ÞAÐ VAKTI athygli þegar teppi
af sviðinu frá samkomum Benny
Hinn voru auglýst til söiu í fyrra-
dag. Að sögn Árna Björns Guð-
jónssonar, sem er í söfnuðinum
Orði lífsins, seldust teppin, sem
voru um 250 fermetrar, upp á
tveimur til þremur klukkustundum
og fengu færri en vildu.
„Allt efni á staðnum er selt og
gengur upp í kostnað," segir Árni.
„Okkur fannst besta lýsingin á
teppunum vera að þau hafi verið
notuð á sam-
komu Bennys
Hir.ns. Þá veit
fólk áferðina og
að gengið hefur
verið um þau af
miklum andans
mönnum. Við
erum aðeins að
koma þessum
hlutum í verð
þannig að ekkert fari til spillis."
Árni segir það hugsanlegt að fleiri
sviðsmunir frá samkomum Bennys
Hinns hafi verið seldir: „Þeir hlut-
ir sem munu koma að notum ef
hann kemur aftur eru settir í
geymslu, en sjálfsagt er að selja
það sem ekki verður notað aftur.“
Árni segir að teppin hafi selst
á um 250 krónur fermetrinn, sem
sé 50 prósent afsláttur eða upp
undir það. Kaupendur hafí einkum
verið samkomugestir, því þeir hafi
best vitað hvernig teppin litu út
og hvernig ástandið var á þeim.
Frjómælingar í andrúmslofti
Frjónæmi oftast
vegna grasfijóa
Margrét Hallsdóttir
FRJÓMÆLINGAR
hafa verið stundaðar
hér á landi samfellt
síðan árið 1988 og hefur
Margrét Halldóttir jarð-
fræðingur annast mæling-
arnar. Fijókornum er safn-
að í sérstaka gildru sem
er við Veðurstofu íslands
og einu sinni í viku eru þau
tekin úr gildrunni, talin og
tegundargreind. Þannig
fæst hve mikið af fijókorn-
um eru í hveijum rúmmetra
lofts frá degi til dags frá
byijun maí til septem-
berloka. Nýjar niðurstöður
fijómælinga eru birtar einu
sinni í viku, í textavarpinu.
Einnig er nýkomið út fijó-
dagatal þar sem er að finna
gagnlegar upplýsingar um
helstu ofnæmisvaldandi
fijókorn á íslandi en þau eru af
birki, súrum og grösum. Upplýs-
ingarnar eru settar upp í línurit
þar sem fram kemur meðalfjöldi
fijókorna í rúmmetra, hvenær þau
eru í hámarki og hvenær minnst
er af þeim í andrúmsloftinu á því
tímabili sem mælingarnar eru
gerðar. Bæklingurinn mun liggja
frammi á heilsugæslustöðvum og
í apótekum.
Fijónæmi er einn algengasti
sjúkdómurinn meðal ungs fólks
pg tíðast er það vegna grasfijóa.
í Reykjavík og nágrenni hafa
10,5% íbúanna á aldrinum 20 til
44 ára fijónæmi.
- Hvers vegna var farið að
telja fijókorn í andrúmsloftinu á
ísiandi?
„Þegar ég var við nám í Svíþjóð
vann ég við það eitt sumarið að
teija fijókorn í andrúmslofti fyrir
lækni í Malmö. Þegar ég kom
heim að náminu loknu rakst ég á
grein um ofnæmi, í Morgunblað-
inu, eftir Davíð Gíslason lækni.
Ég ákvað þá að fara til hans og
það varð úr að við byijuðum að
mæla sumarið 1988.“
- Hvernig aðferðum er beitt
við þessar mælingar?
„Eg hafði samband við starfs-
menn evrópsks mælinets og nota
þeirra aðferðir sem eru staðlaðar
fijókornamæliaðferðir. Þeir eru
með ákveðna gerð af fijókorna-
gildru sem þeir taka sýnin í og
ég er með eina slíka sem safnar
sýnum í heila viku í einu. Ég tæmi
hana því vikulega og greini sýnin
en ég get samt séð hvernig
ástandið er dag frá degi og jafn-
vel klukkustund fyrir klukku-
stund. Síðan tel ég fijókornin í
smásjá og greini hverrar tegundar
þau eru. Það tekur mig svona einn
vinnudag að gera þetta og vinna
úr gögnunum hveiju
sinni. Niðurstöðurnar
eru birtar í fijódagatali
þar sem fram kemur
hve mikið er af fijó-
komum í andrúmsloft-
inu dag hvem.“
- Hvers vegna eru
gildrurnar tæmdar vikulega en
ekki oftar?
Það er hagkvæmara að tæma
gildruna einu sinni í viku en dag-
lega. Erlendis eru gildrur hins
vegar tæmdar á hveijum degi til
að hafa upplýsingar um fjölda
fijókorna eins nýjar og hægt er.
Við höfum alltaf átt í erfiðleikum
með að fjármagna mælingarnar,
því þær eru gerðar fyrir styrkfé.
Fyrstu þijú árin styrkti Vísinda-
sjóður okkur. SÍBS hefur alltaf
styrkt okkur og undanfarin tvö
ár höfum við fengið styrk frá
Umhverfisráðuneytinu. Reykja-
víkurborg hefur líka veitt okkur
styrki.“
►Margrét Hallsdóttir fæddist
á Akureyri 12. ágúst 1949. Hún
lauk stúdentsprófi frá Mennta-
skólanum á Akureyri árið 1969
og prófi í jarðfræði frá Há-
skóla íslands árið 1973. Mar-
grét stundaði framhaldsnám í
Lundi í Svíþjóð og lauk dokt-
orsprófi í ísaldarjarðfræði árið
1987. Doktorsritgerðin fjallar
um gróðurfarsbreytingar á Is-
landi við landnám og við
vinnslu hennar rannsakaði hún
frjókorn í setlögum. Margrét
hefur starfað hjá Raunvísinda-
stofnun Háskóla íslands frá
árinu 1979. Á sumrin annast
hún fijómælingar í andrúms-
lofti en á veturna stundar hún
fijógreiningu i setlögum sem
tekin eru á botni stöðuvatna.
Eiginmaður Margrétar er
Kristinn Einarsson vatnafræð-
ingur og eiga þau tvö börn.
- Hvenær árs eru fijókornin
mest?
„Við emm að koma inn í þann
tíma ársins sem mest er af fijó-
kornum. Grasfrjókorn fóru yfir
þijátíu í rúmmetra í fyrsta skipti
12. júlí í ár og ég hef oft mælt
fyrir 100 fijókorn í rúmmetra á
einum sólarhring í lok júlí. Há-
markið er þá og í byijun ágúst.
Tími birkifijókoma er hins vegar
liðinn en þau eru flest um mánaða-
mót maí og júní og tími súrufijó-
korna er að verða liðinn.
Ftjómagn í andrúmslofti stjórn-
ast mikið af veðri þannig að fijó-
kornin eru flest á sólríkum, þurr-
um dögum þegar það er vinda-
samt.“
- Hvað eru frjókorn?
„Ftjókorn eru karlkynsfijóefni
plantna. Þau eru mjög lítil og sjást
ekki með berum augum. Ef maður
hristir blómin hrinur af
þeim gult hveitikennt
duft og það eru fijó-
kornin, mörg saman í
klessu. Þau myndast í
fijóhnappi plantnanna
og ef þær eru vindfræv-
aðar sér vindurinn um
að blása þeim af og bera þau yfir
á kvenblómin. Þar skýtur fijóið
fijópípu inn að eggbúinu og sam-
einast eggfrumunni. Fijóvgað
eggið skiptir sér og myndar kím
sem ásamt eggbúinu verður að
fræi.“
- Hringir fólk til þín eftir upp-
lýsingum um frjókorn?
„Já fólk hringir töluvert til að
spyija bæði um ástandið hérna
og úti í heimi. Fólk með frjónæmi
sem er að fara utan vill vita hvern-
ig ástandið er á áfangastað.
Grasfijó eru t.d. miklu fyrr á ferð-
inni í Suður-Evrópu en hér og í
ágúst er tími þeirra liðinn á
Spáni.“
Frjókorn eru
flest um mán-
aðamót júlí
og ágúst