Morgunblaðið - 29.07.1995, Page 6
6 LAUGARDAGUR 29. JÚLÍ 1995
MORGUNBLAÐIÐ
f
FRÉTTIR
Rússneskir ráðamenn ræða valdbeitingu í Smugunni
Segja að samráð verði
haft við Norðmenn
VLADÍMÍR Korelskíj, sjávarút-
vegsráðherra Rússlands, flutti
ávarp á úthafsveiðiráðstefnu Sam-
einuðu þjóðanna í New York á
miðvikudag. Hann lagði þar þunga
áherslu á að greinar 13 og 14 í
samkomulagsdrögunum um rétt
strandríkja til að stjóma veiðum á
hafsvæðum sem að öllu eða nokkru
leyti eru umlukin lögsögu þeirra
yrðu samþykktar, ella gæti farið
svo að málin yrðu leyst með valdi.
Fréttamaður norska ríkisút-
varpsins, sem ræddi við rússneska
sjávarútvegsráðherrann, hafði eft-
ir honum að Rússar myndu ef til
vill beita valdi í Smugunni. „Svo
gæti farið að Rússar tækju íslensk
skip í Smugunni ef ráðstefna SÞ
um úthafsveiðar fínnur ekki lausn
á fískveiðideilunum. Við munum
eiga samráð við Norðmenn áður
en til slíkra aðgerða verður grip-
ið,“ sagði Korelskíj.
Káre Eltervaag, talsmaður
norska utanríkisráðuneytisins,
sagði í samtali við Morgunblaðið
að stefna Norðmanna væri sú að
tjá sig ekkert um þessi mál fyrr
en ráðstefnunni í New York lyki.
Hann vísaði því algerlega á bug
að rætt hefði verið um samráð við
Rússa um töku íslenskra skipa í
Smugunni.
Heimildarmenn í Noregi benda
á að orð Korelskíj um samráð við
Norðmenn áður en íslensk skip
verði tekin geri hótun hans létt-
væga. Ljóst sé að Norðmenn muni
aldrei samþykkja slíkar aðgerðir
nema þeir telji sig hafa óskoraðan
rétt til þeirra samkvæmt alþjóða-
samningum.
Ekki stefnubreyting
Þorsteinn Pálsson sjávarútvegs-
ráðherra sagðist ekki telja að um
væri að ræða neina raunverulega
stefnubreytingu hjá Rússum. „En
ég tel að rússnesk stjórnvöld ættu
að ganga til samninga um þessi
mál en ekki skýla sér stöðugt á
bak við neikvæða afstöðu Norð-
manna.“ Ráðherrann sagði að
stríðshótanir yrðu málinu ekki til
framdráttar.
„Það er alkunnugt að þetta
vandamál skiptir Rússa afar miklu
máli,“ sagði Korelskíj í ávarpi sínu.
„Ef ég á að vera alveg hreinskilinn
verð ég að segja að verði þessar
greinar, með viðeigandi orðalagi,
ekki teknar með getum við ekki
ímyndað okkur að við samþykkjum
samninginn i heild sinni.
Að sjálfsögðu væri hægt að
leysa deilurnar um verndun veiði-
stofna á umræddum hafsvæðum
með öðrum aðferðum. Ég á við
að strandríki, eitt eða fleiri, grípi
einhliða til bráðabirgðaaðgerða og
noti herskip verði það nauðsyn-
legt. Herra formaður, ég nefni
ekki fordæmi fyrir slíku, þau eru
mörg og þeir sem hér eru staddir
þekkja þau vel.“
Réttur til að fara um borð
I grein 14, sem Korelskíj lagði
mesta áherslu á, er rætt um rétt
ríkis sem á lögsögu er umlykur
alþjóðlegt hafsvæði til að fara um
borð og kanna hvort veiðiskip á
svæðinu noti ólögleg veiðarfæri
eða brjóti með öðrum hætti samn-
inga um veiðar á úthöfum. Komið
hefur til blóðugra átaka vegna
fiskveiða á Okhotsk-hafi sem er
rússneskt innhaf við Kyrrahaf.
Grein 13 fjallar um sömu réttindi
á svonefndum hálfluktum svæð-
um, sem tvö eða fleiri ríki eiga
lögsögu að, eins og í Smugunni.
Er Morgunblaðið ræddi við full-
trúa rússnesku sendinefndarinar á
ráðstefnunni í New York kom fram
að þeir teldu Rússa tala máli
strandríkja. Góðar horfur væi;u á
því að áðurnefndar greinar yrðu
samþykktar en engu væri þó hægt
að slá föstu um það ennþá.
Morgunblaðið/Gústaf Gústafsson
SKIPBROTSMAÐURINN á Valborgu kom
til Patreksfjarðar um tvö í fyrrinótt.
Fórísjóinn
er trillan sökk
SKIPVERJINN á Valborgu BA-
130, sem sökk 17 sjómílur vestur
af Blakki, lenti í sjónum en náði
að losa björgunarbátinn í þann
mund sem trillan sökk. Að sögn
Guðmundar Einarssonar, sem
bjargaði honum um borð í Hafliða
BA, var maðurinn orðinn kaldur.
„Ég var að færa mig til milli
veiðisvæða og sá þá neyðarsól á
lofti. Ég kallaði strax í talstöðina
og spurði hvort fleiri hefðu séð ljós-
ið og jók síðan hraðann nær þessu.
Það var mjög erfitt að gera sér
grein fyrir hvað væri langt í þetta.
Þegar ég var búinn að sigla í 10
mínútur kom ég að björgunarbát
og við hliðina var sokkinn bátur.
Maðurinn var kominn í björgunar-
bátinn. Vel gekk að ná honum um
borð,“ sagði Guðmundur.
Lítill fyrirvari
Valborg mun hafa sokkið með
litlum fyrirvara. Gúmbáturinn féll
á manninn og lenti hann í sjónum.
Hann þurfti síðan að bíða í sjónum
dálitla stund meðan báturinn var
að fljóta upp. Talið er að hann hafi
verið í gúmbátnum í um 15 mínút-
ur áður en Guðmundur á Hafliða
bjargaði honum.
Valborg er önnur trillan sem ferst
vestur af Blakki á skömmum tíma,
en Hilmir BA-48 fórst þar á þriðju-
dag. Þá varð einnig mannbjörg.
Talið er að ofhleðsla hafí átt þátt
í því slysi.
Borgarstjóri, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, fyrirskipaði endurskoðun á vali listaverka í Höfða
Umhverfi leiðtoga-
fundarins breytt
HIN heimsfræga mynd sem gefin var út að loknum leiðtogafundinum í október 1986. Málverkið
af Bjarna Benediktssyni er á veggnum fyrir aftan þjóðarleiðtogana, en það hefur nú verið fjar-
lægt úr Höfða og sett í geymslu.
ENDURSKOÐUN fór fram á lista-
verkum í Höfða í vor. Gunnar
Kvaran, forstöðumaður Kjarvals-
staða, segir að markmiðið með
breytingunum hafí verið að birta
gestum yfirlit yfír íslenska mynd-
list.
Gestir hafa veitt því athygli að
málverk af Bjarna Benediktssyni,
fyrrverandi borgarstjóra og ráð-
herra, var tekið niður við breyting-
una. Málverkið var mitt á milli
Reagans og Gorbatsjovs á opin-
berri ljósmynd frá fundi leiðtog-
anna í Höfða árið 1986. Ingibjörg
Sólrún Gísladóttir, borgarstjóri,
segir enga sérstaka ástæðu liggja
að baki því af fjarlægja myndina,
annað en henni hafi kannski ekki
fundist ástæða til að hafa mynd
af Bjarna einum borgarstjóra í
Höfða.
Gunnar Kvaran sagði að lista-
verkaeign borgarinnar væri geymd
á Kjarvalsstöðum og í hinum ýmsu
stofnunum borgarinnar. Listaverk-
um væri svo skipt út í stærri stofn-
anirnar við og við. „Eftir að borg-
aryfírvöld óskuðu eftir að breytt
yrði til á veggjum Höfða gerði
starfsfólk Kjarvalsstaða tillögu að
nýrri upphengingu. Hugmyndin
byggðist upp á verkum eftir frum-
kvöðla á þorð við Jón Stefánsson,
Kjarval, Ásgrím Jónsson og Krist-
ínu Jónsdóttur. Síðan eru myndir
eftir listamenn frá fjórða áratugn-
um eins og Finn Jónsson, Jón Bri-
em og Svavar Guðnason og uppi
á lofti er sérstakt herbergi með
verkum eftir abstrakt listamennina
með sérstakri áherslu á Septem
hópinn. í langa borðsalnum er svo
lítið úrval af verkum eftir íslenska
samtímalistamenn. Ég nefni verk
eftir Helga Þorgils Friðjónsson,
Rúrí, Kristján Guðmundsson og
Erró,“ sagði Gunnar. Fyrir höfðu
verið í Höfða töluvert mörg verk
eftir nokkra frumkvöðla í íslenskri
myndlist og nokkur verk Erró.
Ekki lykilmynd í listasögunni
Nokkur verkanna fengu að vera
áfram í Höfða en Gunnar sagði
að ekki hefði verið talin ástæða
'til að halda myndinni af Bjarna
Benediktssyni. „Okkar forsendur
voru hvorki pólitískar eða aðrar
en að stilla upp úrvali úr íslenskri
listasögu og myndin af Bjarna
hefur auðvitað fyrst og fremst gildi
sem mynd af þessum merka stjórn-
málaleiðtoga en ekki sem lykil-
mynd í íslenskri iistasögu," sagði
Gunnar.
Hann sagði að fram hefði komið -
það sjónarmið að friða ætti her-
bergið til minningar um leiðtoga-
fundinn. „Stóra spurningin er auð-
vitað hvort við eigum að frysta
herbergið eingöngu vegna fundar-
ins eða gera honum skil á annan
hátt. Mín persónulega skoðun er
að skynsamlegra væri að gera við-
burðinum skil í bókarformi, á
myndbandi eða með einhveijum
hætti, annars staðar í húsinu. Sú
hugmynd kom einmitt upp að uppi
á lofti yrði sérstakt herbergi inn-
réttað til minningar um fundinn,"
sagði Gunnar. Hann bætti því við
að þó fundurinn hefði auðvitað
verið merkilegur fyndist sér ekki
að hann ætti að vera megininntak-
ið í Höfða. Fyrst og síðast væri
húsið auðvitað móttökuhús borgar-
stjóra og borgaryfirvalda í Reykja-
vík. Konumynd eftir Gunnlaug
Blöndal hefur verið hengd upp í
stað myndarinnar af Bjarna Bene-
diktssyni.
Ingibjörg Sólrún sagðist hafa
látið endurskoða myndavalið því
myndirnar hefðu hangið lengi í
Höfða og ástæða hefði verið til að
breyta aðeins til. „Síðan fannst
mér ástæða til að koma verkum
yngri listamanna upp á vegg þarna
ásamt með eldri meisturum. Því
bað ég forstöðumann Kjarvals-
staða að koma með tillögur um
nýja upphengingu, sem og hann
gerði, og þetta er s.s. niðurstaðan.
Að vísu er talsvert að verkum
núna þarna uppi til bráðabirgða
því ýmislegt sem ákveðið hafði
verið að hengja upp er núna á
yfirlitssýningu úr listaverkasafni
borgarinnar á Kjarvalsstöðum,"
sagði hún.
Engin sérstök ástæða til að
myndin yrði áfram
Ingibjörg Sólrún sagði að í
sjálfu sér væri engin sérstök
ástæða fyrir því að myndin af
Bjarna Benediktssyni var tekin
niður. „Annað en að mér fannst
svosem kannski engin ástæða fyr-
ir því að mynd af honum, einum
borgarstjóra, væri þarna uppi á
vegg í Höfða og ég veit svo sem
ekki hvaða rök voru fyrir því að
aðeins væri mynd af Bjarna Ben.,
sem borgarstjóra, þarna uppi á
vegg. En eins og ég segi fannst
mér engin sérstök ástæða til að
myndin yrði áfram og spáði ekk-
ert sérstaklega í hvort hann ætti
að vera þarna eða ekki. Myndin
var einfaldlega eitt af því sem fór
við endurskoðunina.“
Ansi margt úr sér gengið
Ingibjörg Sólrún sagði erfitt að
halda herberginu þar sem myndin
af leiðtogunum var tekin eins og
það var árið 1986. „... því Höfði
er nú einu sinni móttökuhús borg-
arinnar og það kann vel að vera
að innan tíðar þurfi að gera því
ýmislegt til góða. Ansi margt er
þarna orðið úr sér gengið, af hús-
gögnum, gardínum, og öðru slíku,
og því er ekki hægt að hafa það
alltaf eins og það var 1986. En
mér finnst ástæða til að vera með
litla sýningu um fundinn, jafnvel
uppi á efri hæð, og sú hugmynd
hefur verið rædd án þess að búið
sé að forma það.“
I
»
I
»
»
I:
»
»
I
í
i
Í
V,
♦
c
i