Morgunblaðið - 26.11.1988, Blaðsíða 67
67
MORGUNBLAÐŒ) IÞROTTIR LAUGARDAGUR 26. NÓVEMBER 1988
GOLF / EVRÓPUKEPPNI FÉLAGSSVEITA
Úlfar efstur
Úlfar Jónsson leiðir einstaklingskeppnina með tveimur höggum. Hann lék níu
fyrstu holumar í gær á 4 yfir pari, en tók sig síðan á óg lék hinar holumar níu á
2 undir pari.
Úlfar frábær og
erenn efstur
sæti eftir þriðja keppnisdag
ÚHar á 74 höggum
Englendingar efstir
Keilirífjórða
ÚLFAR Jónsson lék frábærlega
á þriðja keppnisdegi Evrópu-
keppni félagssveita í golfi sem
fram fer á Marbella um þessar
mundir. Hann lék 18 holur á
74 höggum eða tveimuryfir
pari vallarins. Þetta var besta
skor dagsins og leiðir Úlfar enn
í einstaklingskeppninni, en
sveit Keilis lyfti sér um eitt
sæti frá því í gær, er nú í fjórða
sæti, en alls keppa 19 sveitir á
mótinu.
ljóðið í Sveinbimi Bjömssyni
fararstjóra Keilisliðsins var
einstaklega gott í gærkvöldi, hann
sagði m.a. „Þetta var enn betra en
í gær og strákamir hafa spilað ótrú-
lega vel. Það'skilja sex högg okkur
og Dani og nú kemst ekkert að hjá
okkur annað en að vinna upp þann
mun og næla í þriðja sætið. Það
er mikill hugur í strákunum." Mót-
inu lýkur í dag.
Sem fyrr segir, lék Úlfar Jónsson
18 holur á 74 höggum. Honum
gekk afar illa framan af, lék t.d.
níu fyrstu holumar á 4 yfir pari,
en tók sig síðan á og lék hinar
holumar níu á 2 undir pari og em
þó umræddar níu holur stómm erf-
iðari að sögn Sveinbjöms farar-
stjóra.
Úlfar hefur tveggja högga for-
ystu á næstu menn sem em úr sveit-
um Vestur Þjóðveija og Dana, skor
Úlfars er 225 högg samtals, en
næstu menn em með 227 högg.
Þá em einn Spánveiji og einn Eng-
lendingur með 228 högg hvor. Þeir
Guðmundur Sveinbjömsson og
Tryggvi Traustason léku einnig vel
í gær, Guðmundur lék á 79 högg-
um, alls 242, og Tryggvi lék á 83
höggum, eða alls 250 höggum.
í sveRakeppninni
England leiðir í sveitakeppninni
með 458 högg, en næstir koma
Spánveijar með 460 högg. Þá Dan-
ir með 461 högg og þar á eftir
Keilismenn með 467 högg. Þar
næst þessar sveitin
Vestur Þýskaland 469, Belgía 473,
írland 473, Frakkland 475, Sviþjóð
477, Skotland 481, Ítalía 481, Holl-
and 484, Austurríki 485, Wales
492, Portúgal 496, Noregur 500,
Luxemburg 501, Sviss 502 og Pinn-
land 524.
Veðurútlit var ekki gott fyril^^
lokadaginn. í gær var loks þurrt,
en samt blés strekkingsvindur og
völlurinn var blautur og þungur
eftir stórrigningar síðustu daga. í
gærkvöldi var enn farið að rigna
og horfur á framhaldi á því.
HANDKNATTLEIKUR / NM UNGLINGA
Sigur gegn Finnum
í fyrsta leiknum
ÍSLAND vann sinn fyrsta leik I
á Norðurlandamóti unglinga-
landsliða kvenna f handknatt-
leik í Finnlandi í gærkvöldi.
Þá var lefkið gegn heimaliðinu
og urðu lokatölurnar 13 gegn
9 fyrir island eftir að staðan
í hálfleik hafði verið jöfn, 5:5.
eikurinn markaðist í fyrri
hálfleik af því að þetta voru
fyrstu sporin, taugamar vom
þandar, en í sfðari hálfleik lagað-
ist þétta ailt saman og stelpumar
spiluðu vel. Þær geta samt betur
og vonandi sýna þær það í næstu
leikjum," sagði Kristján Halldórs-
son þjálfari liðsins í samtali við
Morgunbladið í gærkvöldi.
í dag leika íslensku stúlkumar
gegn Dönum og Norðmönnum,
sterkustu liðunum að sögn Kristj-
áns. Á morgun verður síðan leikið
gegn Svíum.
Mörk Islands skomðu: Sigrfður
Snorradóttir 4, Helga Sigurðar-
dóttir 3, Andrea Atladóttir 2,
Heiða Erlingsdóttir 2, Þuríður
Reynisdóttir og Hala Helgadóttir
eitt mark hvor.
KNATTSPYRNA / ENGLAND
Fer Arsenal
í toppsætið?
FRJÁLSAR ÍÞRÓTTIR
Fjörtíu tillögur
liggja fyrir
ársþingi FRÍ
- sem haldiðverðurum helgina
GOLF
Nýr golf-
völlur við
Urriðakot
Oddfellowreglan hefur látið
teikna golfvöll í Urriðakotsl-
andi, sem reglan á og er hjá Urriða-
vatni milli Hafnarfjarðar og Garða-
bæjar. Svæðið blasir við þegar far-
inn er svonefndur Flóttamannaveg-
ur frá Vífilstöðum til Hafnarfjarð-
ar. Þetta glæsilega framtak Odd-
fellowreglunnar ætti að geta orðið
til að bæta úr því vandræða-
ástandi, sem óneitanlegá er komið
upp nú þegar í Reykjavík.
Urriðakotsvöllur verður sam-
kvæmt teikningu Hannesar Þor-
steinssonar 18 holur, 6.400 metra
langur og þarmeð lengstur golfvalla
á Islandi. Að auki verður þarna
smávöllur með 9 par-3 holum, stórt
æfíngasvæði og að sjálfsögðu golf-
skáli. Framkvæmdir em hafnar að
einhveiju leyti, þar á meðal um-
fangsmikil skógrækt , en ætlunin
er að næsta vor verði sáð í brautir
og byijað að ganga frá flötum, svo
líklegt er nú talið, að hægt verði
að leika golf á þessum velli að ein-
hverju leyti eftir rúm tvö ár, eða
sumarið 1991.
NOKKRIR mikilvægir leikir
eru í ensku deildarkeppninni
í knattspyrnu í dag. Ber þar
ef til vill hæst viðureign hins
ólíklega toppliðs Norwich á
heimaveili gegn Luton. Þrátt
fyrir að Norwich vermi topp-
sætið, hefur gengi liðsins ver-
ið skrykkjótt að undanförnu.
að er einkum Arsenal sem
leikið hefur eins og meistari
síðustu vikurnar og í dag mætir
liðið Derby á útivelli. Paul Davis,
hinn hömndsdökki miðvallarleik-
maður Arsenal, hefur nú afplánað
9 leikja bann sem hann var dæmd-
ur í fyrir að kjálkabijóta mótheija
í leik. gegn Southampton. Hann
verður þó ömgglega ekki með í
leiknum, heldur í varaliðinu sem
mætir Southampton. Derby hefur
leikið vel síðan að Dean Saunders
kom frá Oxford, en vafamál var
hvort að hinn framheiji Derby,
Paul Goddard, gæti leikið með í
dag vegna ökklameiðsla.
Astæða er til að geta þess að
Aston Villa leikur gegn Coventry
á Highfield Road. Leikmenn Co-
ventry em afar meðvitaðir um að
liði þéirra hefur ekki tekist að
vinna Villa í 24 síðustu 1. deildar
leikjum félaganna.
Frá Anfield berast þær fregnir,
að Ian Rush hafi jafnað sig af
meiðslunum sem hann hlaut í
leiknum gegn Arsenal í deildar-
bikarkeppninni á miðvikudaginn.
Þá kom inn á fyrir hann John
Aldridge sem síðan skoraði sigur-
mark Liverpool. Það verður því
að koma í ljós hvor þessara mark-
heppnu framheija leikur gegn
Wimbledon á Anfíeld í dag. Bobby
Gould, stjóri Wimbledon, lét hafa
eftir sér í blöðum í gær, að lið
hans ætti enga möguleika gegn
Liverpool, sem væri lang besta
liðið í Englandi.
ÁRSÞING Frjálsíþróttasam-
bandsins verður haldið um
helgina í Hlégarði í Mosfells-
bæ. Útlit er fyrir annasamt þing
því fyrir því liggja um 40 tillög-
ur, að sögn Ágústar Ásgeirs-
sonar, formanns FRÍ.
Margar tillagnanna snerta
mótakerfíð nánast í heild
sinni, bæði innan- og utanhússmót-
in. Einnig em tillögur er varða vall-
araðstöðu, eða réttara sagt að-
stöðuleysi fijálsíþróttamanna í
landinu, skipulag starfsemi FRÍ og
stefnumörkun, fræðslumál, út-
breiðslumál, landsliðsskyldu, fé-
lagaskipti og lyfjapróf. Það verða
um 10 þúsund síður af pappír, sem
liggja fyrir þinginu," sagði Ágúst.
Að sögn Ágústar tvöfölduðust
umsvif FRÍ frá fyrra ári, hvað
kostnað snerti. Heildargjöld ársins
em um 20 milljónir, miðað við tæp-
ar 10 í fyrra. Þá var hagnaðurinn
ein milljón en nú vantaði um tvær
milljónir á ->ð endar næðu saman.
Kemur það fy rst og fremst til vegna
mikils kostnaðar FRÍ vegna
Ólympíuleikjanna í Seoul. Þá varð
mikil aukning á utanferðum fijáls-
íþróttamanna á árinu. Keypti FRÍ
t.a.m. 260 millilandafarseðla hjá
Flugleiðum á árinu miðað við 97 í
fyrra.
Stjómarmenn í FRÍ gefa allir
kost á sér til áframhaldandi setu,
en auk þess liggur fyrir þinginvK
tillaga um fjölgun í stjórn um tvo
menn, þ.e. úr fimm í sjö.