Morgunblaðið - 26.11.1988, Síða 64
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 26. NÓVEMBER 1988
64
„Herra dómari, skjólsieeÓinqarmihn Ujsirsig
saklausan af þul ab Irafa ekið of naiægt meslu
b'i-FreiÖ-"
©1966 Universal Press Syndicaie
ást er...
... að kenna honum lykilorðin.
TM Reg. U.S. Pat Off. — all rights reserved
® 1988Los AngelesTimesSyndicate
/^N
Með
morgunkaffínu
Bara láta ykkur vita að
fjand.... lyftuhurðin lokast
of fljótt ...
HÖGNI HREKKVÍSI
Status Quo
Hvenær kemur Iron Maiden?
Rokkaðdáandi skrifar:
„Þegar Status Quo kom til landsins
var talið að áhorfendur gætu fyllt
Reiðhöllina tvisvar. Raunin varð
önnur,“ segir bréfritari meðal ann-
ars, en hann hefur áhuga á að
hljómsveitin Iron Maiden komi til
landsins.
„Ég vil spytja forráðamenn SPLITT
h/f hvenær hljómsveitin Iron Maid-
en kemur til íslands. Síðastliðið
sumar fullyrtu þeir að Iron Maiden
kæmi í nóvember en ég hef ekkert
heyrt um þá tónleika ennþá!. Von-
góðir rokkunnendur eru að missa
vonina um áframhaldandi rokktón-
leika hérlendis vegna þess að ekk-
ert hefur heyrst frá þeim sem skipu-
leggja slíka tónleika.
Tap vegna Status Quo-tónleik-
anna var 4-5 milljónir, en Kiss-
tónleikamir skiluðu sex milljón
króna hagnaði. Þess vegna er tæp-
lega hægt að ætla að SPLITT h/f
hafí farið á hausinn vegna Status
Quo-tónleikanna, þ.e.a.s. ef fyrir-
tækið hefur orðið gjaldþrota.
Það er fullvíst að Iron Maiden á
marga aðdáendur hérlendis og ég
er viss um að aðdáendumir myndu
a.m.k, fylla Reiðhöllina þrisvar
sinnum. Þegar Status Quo kom til
Islands var talið að aðdáendur væm
nægilega margir til að fylla Reið-
höllina tvisvar. En raunin varð önn-
ur. Það em fáir nú til dags sem
nenna að hlusta á elliæra tónlistar-
menn sem spila bara „búgí vúgí.“
Uriah Heep kom í vor og ég hef
heyrt að hljómsveitarmeðlimirnir
hafi verið svo ánægðir að þá langi
til að koma aftur á eigin kostnað.
AHA kom fyrir einu og hálfu ári
og sagðist vilja koma aftur, þó ekk-
ert yrði af því. Ég vil þakka SPLITT
fyrir góða skemmtun á tónleikum,
og einnig fyrir að reyna að halda
uppi tónleikahaldi hérlendis. Fræg-
ar hljómsveitir hafa komið hér fram
og vonandi verður ekki langt að
bíða þess að Iron Maiden komi hing-
að. Síðast en ekki síst vil ég stinga
upp á hljómsveitum og tónlistar-
mönnum sem væm líklegir til að
fylla Reiðhöllina.
Bruce Springsteen
Duran Duran
Sting
Tha Stranglers
UB 40
Phil Collins
Scorpions
U2
Simple Minds
Van Halen
The Cure
Whitesnake
Def Leppard
Billy Idol
Eg vil biðja forráðamenn SPLITT
h/f að athuga þessi nöfn og mögu-
leikana á að fá þá í heimsókn til
íslands til að halda tónleika hér.
Lengi lifi tónleikahald á íslandi."
Gleraugu
fundust
Kona nokkur kom að máli við
Velvakanda og sagðist hafa fundið
karlmannagleraugu eftir erfi-
drykkju föstudaginn 18. nóvember
í Sigtúni 3, Goðheimum. Hún vill
gjaman að eigandinn fái gleraugun
sín aftur og biður hann að hringja
í s. 8 29 33 eða 2 70 20.
Víkverji skrifar
Víkverji veltir stundum fyrir sér
hugtakinu fréttamat. Frétta-
mat fjölmiðla kemur á stundum
spánskt fyrir sjónir. Þannig var
tveggja hæða og fimm dálka fyrir-
sögn á forsíðu Tímans sl. miðviku-
dag: „KAUPMENN ÓTTAST AÐ
FARA í JÓLAKÖTTINN". Fram-
setning og staðsetning fréttarinnar
bendir til að þessi íslenzki kaup-
mannsótti sé meiriháttar heims-
frétt, stærsta sólin á fréttahimni
dagsins! Kaupfélagsstjórar virðast
hinsvegar óttalausir eða ótti þeirra
ekki frásagnar virði.
Á samdráttartímum, eins og
þeim sem yfir standa, fer allur fjöld-
inn fram með gát í eyðslu. Þetta
hefur reyndar sagt til sín um nokk-
urra mánaða skeið, jafnvel helft
ársins, ef marka má fréttir um
tekjusamdrátt ríkisins, sem fjár-
málaráðherra hefur hátt um, en
tekjur þess koma að stærstum hluta
um verð vöru og þjónustu: tolla,
vörugjöld, - benzíngjald, söluskatt
o.s.frv. Þessi þróun hefur sum sé
staðið mánuðum saman og fengið
margendurtekna fréttalega umfjöll-
un. Síðan skýtur henni upp á for-
síðu Tímans, eins og blaðið hafi
skyndilega uppgötvað eitthvað nýtt,
stórt og áður óbirt leyndarmál.
XXX
að hefur ekki farið mikið fyrir
því í fréttum fjölmiðla að gerð-
ar voru um 70 hjartaskurðaðgerðir
á Landspítala árið 1987 og að þess-
ar aðgerðir verða verulega fleiri í
ár. Það eitt að þessar aðgerðir, sem
hófust hér á landi 1986, fara fram
í landinu, eru í raun stórviðburður
í sögu íslenzkrar heilsugæzlu.
Það eitt að sjúklingar, sem þarfn-
ast hjartaskurðaðgerðar, þurfi ekki
að fara úr landi, eins og áður var,
og þá oftlega í fylgd aðstandenda,
sparar mikið ómak, óþægindi ýmiss
konar, kostnað — og eykur á öryggi.
Sama má raunar segja um
útvíkkunaraðgerðir á kransæðum,
sem hófust á Landspítala upp úr
miðju ári 1987.
Ymsa aðra nýja starfsemi er að
finna í nýútkominni ársskýrslu
Ríkisspítala fyrir árið 1987, svo sem
unglingageðdeild og bráðamóttöku.
Það er heldur ekki svo lítil frétt að
nýburum á kvennadeild fjölgaði úr
2.279 árið 1986 í 2.512 árið 1987
eða um 233 einstaklinga eða 10,2%.
Eða þá að komur á göngudeildir
Ríkisspítala voru nærri 95.000 það
árið. Eða að meðallegutími á legu-
deildum hefur stytzt verulega, sem
þýðir að afköst hafa aukizt, ef svo
má haga orðum um starfsemi sem
þessa. Allt eru þetta víst jákvæðar
fréttir en þær eiga greinilega erfið-
ara uppdráttar í fréttaheiminum en
hinar neikvæðu.
XXX
Víkveiji sá það í Mogganum
sínum í gær að út er komin
hjá Almenna bókafélaginu „Bæna-
bók fyrir böm“ eftir séra Sigurð
Pálsson. Á okkar tímum, tímum
hins langa vinnudags beggja for-
eldra og margs konar tómstunda-
anna — og þar af leiðandi oft ónógra
samvista foreldra og bama — er
vissulega þörf fyrir bók af þessu
tagi. Ef menn gefa sér tíma til að
hugleiða upphaf og tilgang jóla-
halds má ljóst vera, að varla er
hægt að mæla með betra efni í jóla-
pakka barnanna.