Morgunblaðið - 26.11.1988, Side 46
46
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 26. NÓVEMBER 1988
NORRÆNT TÆKNIÁR1988
\
Stjömuskoðun
— Opið hús
í TILEFNI af Norrænu tækniári 1988 býður Stjörnuskoðunarfé-
lag Seltjarnarness almenningi til stjömuskoðunar í Stjörnuskoð-
unartumi Valhúsaskóla, eftir kl. 20, kvöldm 26. nóvember— 1.
desember. Þar er stærsti stjörausjónauki á Islandi, og munu fé-
lagsmenn veita leiðsögn við stjörnuskoðun.
Stjömuskoðun er mjög háð
veðri. Það verður að sjást til
stjama og vindur verður að vera
hægur. Einnig er rétt að taka
fram, að húsiými í tuminum er
takmarkað. Þess vegna er vænt-
anlegum gestum bent á að hringja
í Stjömutum félagsins þessi
kvöld, milli kl. 20 og 21.30, og
fá upplýsingar um hvort þar verði
opið og hægt verði að taka á
móti þeim. Síminn í tuminum er
612424.
Frá örófí alda hafa menn velt
vöngum yfír himinhvolfínu, sól-
inni, tunglinu og stjömunum.
Hugmyndir um fyrirbæri himins-
ins og alheiminn hafa þróast
smám saman. Þegar aldir liðu sáu
menn sífellt lengra út í geiminn
og kynntust alheiminum æ betur.
Fleiri reikistjömur fundust.
Fylgitungl þeirra voru uppgötvuð
eitt af öðru. Geimþokur, vetrar-
brautir og stjömuþyrpingar komu
í ljós. Stjameðlisfræðin varð til
og menn uppgötvuðu ýmis furðu-
leg fyrirbæri eins og dulstimi, tif-
stjömur, hvíta dverga, nifteinda-
stjömur og svarthol.
Á himinhvolfinu er fjölmargt
sem ekki sést með bemm augum.
Margt af því má hinsvegar greina
Mynd af tunglinu, tekin gegn-
um sjónauka stjörauskoðunar-
félagsins.
í sjónauka, og þeim mun betur
sem sjónaukinn er stærri.
Veður ræður miklu um aðstæð-
ur til stjömuskoðunar, einkum
skýjafar og vindhraði. Allt það
sem lýsir upp himininn er einnig
til tafala, t.d. tunglið, norðurljós
og síðast en ekki síst borgarljósin.
Því er nokkuð misjafnt hve vel
sést til fyrirbæra himinsins. Við
góð skilyrði má skoða gígana á
tunglinu, gaumgæfa jrfírborð
reikistjama og rýna i fjarlægar
vetrarbrautir, geimþokur og
stjömuþyrpingar.
Stærsti stjömusjónauki á ís-
landi er í Stjömuskoðunartumi
Valhúsaskóla á Seltjamamesi og
er rekinn af félagi sem nefíiist
Stjömuskoðunarfélag Seltjamar-
ness. Það er félag áhugamanna
Valhúsaskóli á Seltjarnaraesi. Hálfkúlan ofan á honum er stjörauskoðunarturainn.
um stjömuskoðun og stjömu-
fræði, hið eina á íslandi.
Félagið var stofnað árið 1976,
og em félagar nú um 110 talsins.
Ollum er heimil innganga í félag-
ið.
Sijömusjónaukinn i Valhúsa-
skóla er þungamiðja starfseminn-
ar og er félagsmönnum heimiil
aðgangur að kíkinum hvenær sem
er. Utanaðkomandi aðilar, svo
sem skólanemendur, geta fengið
að skoða stjömur í kíkinum undir
leiðsögn félagsmanna.
Félagið heldur fræðslu- og
rabbfund um stjömufræði og
stjömuskoðun. Stjóm þess gefur
út fréttabréf, þar sem sögð eru
tíðindi af starfseminni og tíndir
til fróðleiksmol'ar um málefni him-
inhvolfsins. í litlu herbergi fyrir
neðan stjömusjónaukann hafa
stjömuskoðunarmenn aðstöðu til
að glugga í blöð og þækur, og
þar hanga á veggjum kort af al-
heiminum.
Félagið býður gesti velkomna
í kvöld og næstu kvöld, — ef veð-
ur leyfir!
Tvær tengdar vetrarbrautir, M-51 og NGC-5195, sem eru í litla
ref, skammt frá stóra birni.
LAUFABRAUÐ
í þætti mínum 29. nóvember í fyrra skrifaði ég um laufabrauð. Þar birti
ég smáklausu úr fyrstu matreiðslubók, sem gefín var út á íslandi, en það
er Einfaldt matreiðslu vasaqver eftir Mörtu Maríu Stephensen, en þessi grein
hljóðar svo:
„Laufa-brauð eður kökur af hveiti-deigi vættu í sikur-blandinni góðri mjólk
eður rjóma, útskomar ýmislega, og soðnar í bræddu smjöri, eru svo algeng-
ir, að frá þeim þarf ekki meir að segja."
Eg tók svo mikið upp í
mig að segja að ekki
væri hægt að steikja
laufabrauð í smjöri, en
þar varð mér heldur betur á í
messunni. Frú Elsa E. Guðjónsson
hringdi í mig og sagði mér að
þetta væri rangt hjá mér, hún
hefði ásamt fleiri konum steikt
laufabrauð úr smjöri. Hefur Elsa
tekið saman grein um laufabrauð,
sem birtist í Árbók hins íslenska
fomleifafélags árið 1986 og var
útbúið sérprent með þessari grein.
Þar er mikill fróðleikur um laufa-
brauð og mynd af laufabrauði
steiktu í smjöri og væri gaman
að birta allt það sem þar er skrif-
að, en mér er skammtað rúm í
þessum þætti.
Ég gerði tilraun með að steikja
laufabrauð úr smjöri fyrir 5 árum
og mistókst það, en úr þvi að ég
veit að þetta er hægt, vil ég ekki
gefast upp og um helgina steikti
ég laufabrauð úr smjöri og viti
menn, það tókst. Ég hafði samt
ýmsar tilfæringar við smjörið.
Keypti t.d. ósalt smjör, bræddi
það, lét stirðna aftur, en skar þá
undan því og hellti frá syijunni.
Bræddi síðan á ný og var dugleg
að veiða froðuna ofan af. Hafði
ekki mjög sterkan hita, en laufa-
brauðið var mjög fallegt, ljóst og
geysilega bragðgott. Eg á ekki
djúpsteikingarpott, en mér datt í
hug að auðvelt væri að steikja
laufabrauð úr smjöri í honum, þar
sem hann er með hitastilli. Ég
velti síðan fyrir mér hvort miklu
dýrara væri að steikja í smjöri en
jurtafeiti, smjörstykkið kostar kr.
187 en jurtafeitisstykkið 120, svo
að munurinn er ekki ýkja mikill.
Oft er erfítt að fletja út laufa-
brauð, einkum ef það er úr hveiti.
Gæta verður þess að degið sé
ekki of þurrt. Deigið þarf líka að
vera heitt, sem það er alltaf í
byijun þar sem við setjum heita
mjólk út í mjölið. En
deigið er fljótt að
kólna, og erfítt
getur verið að
eiga við það,
þegar svo _er
komið. Ég
skipti deiginu
í iitla bita.
Set þá síðan
í hreint stykki
ofan í pott með
loki. Sem ég set
síðan í bakara-
ofninn. Hef
minnsta straum
ofninum. Tek síðan
hvem bita úr pottinum jafnóðum
og ég flet út. Sé þetta gert er
auðvelt að fletja deigið út. Við
fietjum sfðan deigið út eins þunnt
og við getum.
Notið stóran pott, þegar þið
steikið laufabrauð. Hafíð bruna-
teppi við hendina. Munið að aldrei
má skvetta vatni á feitiseld. Hann
á að kæfa. Oft er nóg að setja
Umsjón: KRISTÍN GESTSDÓTTIR
Teikningar: SIGURÐUR ÞORKELSSON
hlemminn á pottinn. Hafíð hann
alltaf við hendina. Feitin þarf að
vera vel heit, þegar steikt er.
Skerið smábita af deiginu og setj-
ið í feitina. Ef bitinn brúnast mik-
ið, er feitin of heit, ef hann brún-
ast ekkert, er hún of köld. Ekki
er gott að steikja laufabrauð í
djúpsteikingarpotti, þar sem hann
nær ekki nægum hita.
Og svo að iokum. Látið böm
ekki vera nærri meðan þið steikið
laufabrauðið.
Laufabrauð úr hveití
1 kg hveiti
l'/2 tsk. lyftiduft
1 tsk. salt
7 dl mjólk
3—4 pakkar jurtafeiti, Palmín,
lVa—2 kg
l.Sjóðið mjólkina.
2. Blandið saman hveiti, lyfti-
dufti og salti. Setjið mjólkina út í.
3. Hnoðið deigið þar til það er
gljáandi og spmngulaust.
4. Skiptið deiginu í litla bita
sem eru hæfilegir fyrir hveija
köku.
5. Fletjið út, leggið disk ofan
á og skerið í kring með kleinu-
hjóli eða hníf.
6. Leggið kökumar á stykki og
breiðið yfír þær þar til þær eru
skomar út og síðan aftur þar til
þær eru steiktar.
Athugið: Ef þið viljið steikja
úr smjöri, farið þið eins að og
segir í formála hér á undan, gæti
þess að hafa ekki mjög mikinn
hita.
Laufabrauð með heilhveiti
750 g hveiti
250 g heilhveiti
1 tsk. salt
IV2 tsk. lyftiduft
7V2 dl mjólk
Farið að eins og segir í upp-
skriftinni hér að framan.
Laufabrauð úr rúgmjöli
500 g hveiti
500 g rúgmjöl
2 tsk. lyftiduft
2 msk. sykur
2 tsk. salt
70 g smjöriíki
V2 iítri sjóðandi mjólk
V4 lítri sjóðandi vatn
3—4 pk. jurtafeiti, IV2—2 kg
1. Blandið saman hveiti, rúg-
mjöli, lyftidufti, sykri og salti.
2. Skerið smjörlíkið smátt og
myljið út í mjölið.
3. Sjóðið saman mjólk og vatn
og hrærið út í deigið.
4. Skiptið deiginu í litla bita,
fletjið hvem bita út þunnt, leggið
síðan disk ofan á og skerið í kring
með kieinuhjóli eða hníf.
5. Farið að eins og segir í upp-
skriftunum hér að framan.