Morgunblaðið - 26.11.1988, Page 11
11
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 26. NÓVEMBER 1988
Izumo í jiuta-mai-leikdansi.
móta, en raunin hefur orðið sú, að
karlmenn einir flytja kabuki enn
þann dag í dag, þótt Yoh Izumo
hafí brotið hefðina í því, eins og
ýmsu öðru.
Dansamir í fyrri hluta sýningar-
innar voru frá upphafí 19. aldar,
þar sem Izumo túlkaði sjö hlutverk,
gleðikonu, götudansara, blindan
nuddara, glæstan ungan aðals-
mann, stríðsmann, perlukafara og
að lokum guðinn Shoki. Síðan kom
dans sem byggir á þjóðsögu frá 9.
öld um konu sem er perlukafari og
fómar lífí sínu er hún endurheimtir
gimstein úr ríki drekakonungsins á
hafsbotni. í seinni hluta sýningar-
innar farðaði listakonan sig á svið-
inu og Haukur skýrði hvað hinir
ýmsu litir og búningar í kabuki
þýddu. Loks stóð á sviðinu ofur-
hugrakkur stríðsmaður og flutti
dans um hetjumóð og bardaga hins
tápmikla samúrai.
Þetta var undurfögur sýning, og
þrátt fyrir framandleikann mikil
gleðí fyrir skilningarvitin.
íbúðir fyrir aldraða og
fatlaða
íbúðirnar eru í 18-íbúða fjölbýlishúsi í næsta nágrenni
við heilsugæslustöð, sjúkrahús og dvalarheimili ald-
raðra á Egilsstöðum. Á hverri hæð er sameiginlegt
þvottahús og bjartur setkrókur. Lyfta er í húsinu. Á
jarðhæð er þjónusturými í eigu Egilsstaðabæjar. íbúð-
unum og allri sameign verður skilað fullfrágenginni.
Afh. í des. 1989.
Verð á 2ja herb. tb. 41,0 fm nettó kr. 3100 þús.
Verð á 2ja herb. íb. 47,5 fm nettó kr. 3416 þús.
Verð á 2ja herb. íb. 59,4 fm nettó kr. 3980 þús.
Allar nánari upplýsingar gefur Ragnar Jóhannsson í
st'ma 97-11095.
21150-21370
LÁRUS Þ. VALDIMARSSON sölustjóri
LÁRUS BJARNASON HDL. LÖGG. FASTEIGNASALI
Til sýnis og sölu meðal annarra eigna:
Góð íbúð á góðu verði
4ra herb. íb. á 3. hæð.i suðurenda um 100 fm. Nýl. bað. Góð teppi.
Sólsv. Ágæt sameign. MikiA útsýni. Verð aðeins kr. 4,5 millj. Ib. er í
reisul. húsi við Kleppsveg rétt við Daibraut.
Gott steinhús á vinsœlum stað
í Hvömmunum f Kóp. um 250 fm nettó. Á hæð er 5 herb. stór og góð
íb. Á jarðh./kj. eru 3 íbherb. nú 2ja herb. séríb. Bílsk.. geymslur og
þvottah. Arkitekt: Sigvaldi Thordarson. Eignaskipti mögul.
2ja herb. rúmgóðar íb. við:
Miðvang Hf. á 2. hæð. 64 fm nettó. Sérhiti, sérþvottah. Sólsv. Mikil
og góð sameign. Mikið útsýni. Sanngj. verð og grkj.
Laugarnesveg á 2. hæð. 62,3 fm nettó. Úrvalsgóð innr. Rúmg. sv.
Ágæt sameign. Danfoss kerfi. Vinsæll staður. Útsýni.
í tvíbhúsi við Aragötu
Aðalhæð 160 fm nettó með um 70 fm gott húsn. í kj. Bílsk. fylgir.
Ræktuð hornlóð. Greiöslukj. óvenju hagst. Úrvalsst. rétt við háskólann.
Hinn 12. júlí 1944 var
Almenna fasteignasaian sf. stofnuð og hefur starfað æ síðan. Við-
skiptamenn okkar fyrr og síðar skipta þvi mörgum þúsundum. Þess
vegna leitar til okkar fjöldi fjársterkra kaupenda. Margir bjóða góðar
etgnir f skiptum. AA þessu sinni óskum við sérstaklega eftir:
Sórhæð 3ja-4ra herb. í borginni eða Kóp.
Raðhúsi ekki stóru eða litlu einbhúsi i borginni eða nágr.
3ja herb. íb. í Gbæ eða Hafnarf.
2ja-3ja herb. fb. með rúmg. stofu og bílhýsi eða bílsk.
Einbýlishús um 200 fm í borginni eða nágr. á einni hæð.
Sérhæð eða einb. miðsv. í borginni eða á nesinu.
Margskonar eignaskipti og margír bjóða útb. fyrir rétta eign.
Opið í dag laugardag
kl. 11-16
Veitum rágjöf og
traustar uppl.
ALMENNA
FASTEIGNASAUH
LAUGAVEG118 SÍMAR 21150-21370
Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs;
Tilnefningar komnar frá öllum
LJÓÐABÓKIN „Tengsl“ eftir
Stefán Hörð Grimsson og leikri-
tið „Dagur vonar“ eftir Birgi
Sigurðsson hafa verið tilnefnd
af Islands hálfu til bókmennta-
verðlauna Norðurlandaráðs árið
1989.
Verðlaunin verða afhent í Kaup-
mannahöfn þann 27 janúar á næsta
ári en verðlaunin eru 150 þúsund
danskar krónur. Þau verða síðan
afhent við hátíðlega athöfn á 37.
þingi Norðurlandaráðs í Stokkhólmi
þann 28. febrúar.
Að hálfu Svía verða lagðar fram
skáldsögur eftir Lars Ahlin og
Sigrid Combuchen og Norðmenn
tilnefndu einnig tvær skáldsögur,
eftir þau Liv Keltzow og Dag Sol-
stad. Danir hafa tilnefnt skáldsögu
eftir Jens Christian Grondahl og
ljóð eftir Rolf Gjedsted, Finnar
leggja fram smásögur eftir Rosu
Liksom og ljóð eftir Gösta Agren
og Færeyingar ljóðabókina „Hús
úr ljódi" eftir Gunnar Hoydal.
ÖRUGG Mmi
SPARIFJÁR
Verbbréfamarkabur sparisjóbsins
Sparisjóður Reykjavíkur og nágrennis býður einfalda en
jafnframt örugga leið til að ávaxta sparifé.
Bankabréf sparisjóðsins eru*verðtryggð og bera 8,5%
vexti umfram verðbólgu.
Við sölu bankabréfanna er raunávöxtun reiknuð í heild
og samstundis greidd út í formi lægra söluverðs en nafnvirði
bréfsins segir til um.
Bankabréf sparisjóðsins eru eingreiðslubréf. í því felst að
kaupanda er endurgreitt nafnverð ásamt fullri
verðtryggingu í lok tímabilsins.
Sparisjóðurinn ber álfarið ábyrgð á greiðslu bréfanna.
Dœmi:
Jón kaupir nýtt bankabréf sparisjóðsins að nafnvirði kr.
100.000,00 til 3ja ára.
Ávöxtunin 8,5% er reiknuð út fyrir allt tímabilið, samtals
kr. 21.710,00 og dregst sú upphæð frá og greiðir Jón því
aðeins kr. 78.290,00 fyrir bréfið.
Á gjalddaga fær Jón hins vegar 100.000,00 nafnverðið
greitt með fullri verðtryggingu.
Að auki innleysir sparisjóðurinn og selur
spariskírteini ríkissjóðs. Þau fást nú til 3ja, 5 og8 ára.
Sparisjóðurinn býður ennfremur öll helstu verðbréf
markaðarins hverju sinni.
Fjárvarsla sparisjóbsins
Fjárvörsluþjónustan er einföld og aðgengileg leið til að
njóta sérþekkingar og ráðgjafar í fjármálum.
Viðskiptavinurinn leggur það fé sem hann vill ávaxta í
sérstakan „vörslusjóð". Sérfræðingar sparisjóðsins leitast
viðáð ná fram hámarksávöxtun á sjóðnum.
Látið fagmenn vaka yfir fjármunum þínum — hjá
sparisjóðnum.
Sparísjóður Reykjavíkurog nágrennis
- Vcröbréfamarkaður -
Skólavörðustíg 11