Morgunblaðið - 16.03.1985, Side 1
56 SÍÐUR OG LESBÓK
63. tbl. 72. árg.____________________________________LAUGARDAGUR 16. MARZ 1985_________________________________Prentsmiðja Morgunblaðsins
Tancredo Neves
Neves veikt-
ist og gat ekki
svarið eiðinn
Rrasilíu, 15. mars. AP.
ST4ÍRNTA og fjölmennasta ríki
Suóur-Ameríku kvaddi herstjórn
með formlegum hætti f dag.
Varaforseti landsins, Jose Sarn-
ey, sór embættiseið, en forsetinn,
Tancredo Neves, veróur að bíöa
betri tíma, hann veiktist aöeins
fimm klukkustundum áöur en
hann átti aö sverja eiðinn og var
á skuröborði meðan Sarney tók
viö völdum til bráöabirgða.
Grunur lék á að Neves hefði
fengið botnlangakast, en það
fékkst ekki staðfest, aðeins að
hann væri ekki talinn i lífs-
hættu og væri raunar þegar á
góðum batavegi. Embættis-
menn sögðu að Neves myndi
sverja eiðinn og taka við æðsta
embætti landsins eins fljótt og
auðið væri. Neves veitir for-
sæti fyrstu borgarastjórn i
Brasilíu síðan 1964.
STÓRMEISTARAR
Helgi Ólafsson bættist i litinn hóp íslenskra stórmeistara í skák í gær og í tilefni dagsins heimsótti
Friðrik Ólafsson stórmeistari og fyrrum forseti Alþjóðaskáksambandsins hann á heimili foreldra hans í
gærkvöldi. „Auðvitað gleðst maður yfir þessum áfanga Helga, það hlaut að koma að þessu og það er
gaman fyrir hann að ná titlinum á undan yngri strákunum," sagði Friðrik.
„Þetta er léttir, en það hlaut að koma að þessu. En þetta var erfitt og ég þurfti heppni í stoðunni," sagði
Helgi glaðhlakkalegur. Á meðfylgjandi mynd ræða þeir Helgi og Friðrik lokastöðu taflsins sem færði
Helga stórmeistaratignina.
Sjá á bls. 31 skákina sem tryggöi Helga stórmeistaratitilinn.
Deilumál í Belgíu til lykta leitt:
Stjórnín tók af skarið með
meðaldrægu flaugarnar
Brussel, 15. nurs. AP.
STJÓRNVÖLD í Belgíu samþykktu í dag að hefja uppsetningu 16 fyrstu
meöaldrægu kjarnorkueldflauganna, sem til stendur aö koma þar fyrir á
vegum Atlantshafsbandalagsins. Alls verða flaugarnar 48, en uppsetn-
ingu þeirra 16 sem byrjað verður á mun verða lokið í lok þessa mánaðar.
Martens, forsætisráðherra Belgíu, sagði að til greina kæmi þó að fresta
uppsetningu 32 flauganna í 6 mánuði, það færi allt eftir því hvernig
afvopnunarviðræðurnar gengju fyrir sig í Genf. Samkvæmt áætlun átti
aö setja upp hinar eldflaugarnar í árslok 1987.
Wilfred Martens sagði að stjórn-
völd hefðu ákveðið að hefjast handa
við eldflaugarnar þegar utanríkis-
ráðherranum, Tindemanns, hafði
mistekist að fá sovéska ráðamenn
til að falla frá þeirri skoðun að við-
ræður um fækkun meðaldrægra
kjarnorkueldflauga væru nátengd-
ar þeim kröfum að Bandaríkjamenn
hætti þegar í stað rannsóknum sín-
um á geimvarnarkerfinu gegn
kjarnorkuvopnum. „Sovétmenn
hafa auk þess bætt við SS-20-flaug-
um og því sýnum við þessa sam-
stöðu með NATO,“ sagði Martens.
Viðbrögð við aðgerðum belgísku
stjórnarinnar voru ekki á einn veg.
Ronald Reagan Bandaríkjaforseti
sagðist verulega ánægður og
ákvörðun belgísku stjórnarinnar
væri heillaspor fyrir NATO. Carr-
ington, framkvæmdastjóri NATO,
sagði tíðindin góð, þau myndu
stuðla að samkomulagi í Genf, því
það „ætti alls ekki að vera með til-
slakanir fyrr en viðræður væru
hafnar", eins og hann komst að
Uppreisnarmennirn-
ir sækja í sig veðrið
Reirát 15. mars. AP. ^ ^
1 ivutrs. Al^
UPPREISNARMENN í rööum krist-
inna hægri manna náöu í dag á sitt
vald síöasta víginu í Austur-Beirút úr
höndum þeirra, sem hliðhollir eru
Amin Gemayel forseta landsins. Féll
vígiö cftir tuttugu mínútna langan
skotbardaga. Tveir menn féllu og
nokkrir særðust Foringjar uppreisn-
armanna hafa stoönaö „neyöarráö“,
sem hefur þaö hlutverk aö knésetja
flokk kristinna falangista. Sýrlend-
ingar hafa látið í það skína að þeir
líti mál þetta alvarlegum augum og
þeir muni ekki líða uppreisnina.
í Vestur-Beirút, þar sem órói
hefur til þessa verið talsvert meiri
en í austurhlutanum, var breskum
sendiráðsstarfsmanni rænt i dag
og er hann annar breski þegninn
sem gripinn er af mannræningj-
um á tveimur dögum. Þegar sá
fyrsti hvarf var talið að um mis-
tök hefði verið að ræða, ræningj-
orði. Á hinn bóginn voru Belgar
gagnrýndir heiftarlega hjá sovésku
flokksfréttastofunni og þeir sagðir
vera að kynda undir vigbúnaðar-
kapphlaupinu og grafa undan við-
ræðunum í Genf.
arnir hefðu talið hann bandarísk-
an. Nú telur enginn slíkt lengur.
f Suður-Líbanon réðust ísraelar
í morgun með 100 manna herlið og
skriðdreka á þorpið Barish og
gerðu þar umfangsmikla leit að
vopnum og skæruliðum. Nokkrir
voru handteknir og ísraelarnir
sprengdu tvö hús, sem þeir sögðu
full af vopnum, i loft upp. Mann-
fall varð ekkert.
Barn en
ekki sprengja
Jerásalem. 15. mars. AP.
Sprengjusérfræöingar lögregl-
unnar í Jerúsalem voru aö búa sig
undir að sprengja í loft upp dul
arfullan pakka á markaöstorgi í
borginni í morgun, þegar þeir
uppgötvuöu aö í honum var aö
finna nýfætt barn, sem haföi veriö
yfirgefiö.
Lögreglumenn héldu fyrst að
í pakkanum væri sprengja, sem
hermdarverkamenn hefðu skil-
ið eftir, eins og algengt er þar í
landi. Þeir hugðust nota fjar-
stýrt vélmenni til að sprengja
hann upp og voru að búa sig
undir það þegar þeir heyrðu
veikan grát koma frá pakkan-
um.
Barnið var tafarlaust flutt I
sjúkrahús og herma fréttir
þaðan að það sé við bestu
heiisu. Tilraunir til að hafa
upp á foreldrum þess hafa enn
engan árangur borið.
írakar segjast
hrekja írani af
herteknu svæði
Rmghdad og Nikósíu, 15. mmre. AP.
MIKLIK bardagar geisuöu í dag í Huwaizab-mýrlendinu, skammt frá þjóö-
veginum milli borganna Basra og Bagdad í írak. íranir hafa hreiðrað um sig
þar að undanförnu og þeir sögðust hafa sótt enn lengra fram f dag, írakar
sögöu á hinn bóginn að þeir heföu hrakiö frani til baka og væri í þann mund
að endurheimta allt sitt landssvæði.
Hvað svo sem þarna er í raun að
gerast, þá logar allt í ófriði,
fréttamenn höfðu það eftir ferða-
mönnum sem áttu leið um þjóð-
veginn, að mikill sprengjugnýr
bærist frá svæðinu og þotur og
þyrlur íraka væru á stöðugum
þönum til og frá. Sjálfir segja fr-
akar, að þeir hafi stökkt írönum á
flótta með skriðdrekasveitum sín-
um og „gífurlegur fjöldi írana“
hefði fallið og „fjöldi brynvarinna
vígvéla“, eins og komist var að
orði í útvarpi íraksstjórnar.
Sýndu írakar fréttamyndir í sjón-
varpi frá átakasvæðinu og svo
langt sem augað eygði mátti sjá
lík íranskra hermanna eins og
hráviði um allt og skriðdreka og
herbíla í ljósum logum. Á móti
sögðust íranir hafa drepið 1.200
íraska hermenn, en vont væri að
eiga við þá, því þeir væru farnir að
nota eiturgas á nýjan leik.
frakar gerðu árásir á nokkrar
íranskar borgir í dag og ollu
nokkru mann- og eignatjóni. íran-
ir hótuðu á móti að skjóta eld-
flaugum á allar borgir í Irak utan
þar sem bænahús shita væri að
finna, ef frakar létu ekki af
skothríð á óbreytta borgara.
Þá gerðist það í Teheran í dag,
að óþekktur hryðjuverkamaður
sprengdi sig í loft upp á fjölmenn-
um útifundi þar sem Ali Khameini
forseti írans hélt ræðu. Fimm
manns létu lífið og margir urðu
sárir. Khameini sakaði ekki og
hann hélt ræðu sinni áfram
nokkrum minútum eftir spreng-
inguna.