Morgunblaðið - 16.03.1985, Blaðsíða 7
7
MORGUNBLADIÐ, LAUGARDAGUR 16. MARZ 1985
Landsfundur Kvenréttindafélags íslands:
Skörp verkaskipti
eru milli kynjanna
í tölvuvæðingu
A ISLANDI er þróunin þegar orðin varhugaverð, hvað
varðar hlut kvenna í tölvuvæðingu atvinnulífsins. Skörp
verkaskipti virðist vera milli kynjanna, þar sem karlar
sinna nýsköpunar- og stjórnunarstörfum, en konur al-
mennum skrifstofustörfum, ritvinnslu og skráningu. Þessi
skipting hefur í för með sér verulegan launamun.
Þetta kemur fram í athugun
sem Kvenréttindafélag tslands
hefur látið gera, „Tölvutæknin
— Hlutur kvenna og karla á
vinnumarkaðinum", en niður-
stöður þessarar athugunar voru
birtar á landsfundi KRFÍ sem
hófst í gær. Þar kemur einnig
fram, að í skólakerfinu og hinum
ýmsu sérskólum sýna konur
minni áhuga á tölvutækni en
karlar, þó námsárangur þeirra
sé ekki lakari en karla í tölvu-
námi.
Karlar eru brautryðjendur á
vettvangi tölvutækni, þeir skapa
og innleiða hina nýju tækni í at-
vinnulífið, en konur fylgjast með
úr fjarlægð. Störf sem tengjast
sölu tölva, þróun, breytingum og
viðhaldi vél- og hugbúnaðar eru
flest í höndum karla. Athugun-
ina unnu Ragnheiður Harðar-
dóttir, Sigrún Jónsdóttir og
Sveinbjörg Svavarsdóttir.
í umræðum um þessar niður-
stöður kom fram, að hugarfars-
breytingar væri þörf hjá konum.
Þær yrðu að gera sér grein fyrir
því að hin hefðbundnu kvenna-
störf, t.d. ýmis þjónustu- og
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Frá landsfundi Kvenréttindafélags íslands í gær. Esther Guðmundsdóttir, formaður félagsins, í ræðustól.
skrifstöfustörf, yrðu meðal
fyrstu fórnarlamba tölvubylt-
ingarinnar. Konur yrðu því að
mennta sig á þessu sviði og
hvetja þyrfti ungar stúlkur til að
hyggja að atvinnuhorfum þegar
þær ákvæðu í hvaða nám þær
færu.
Á fundinum voru einnig rædd
skattamál hjóna, launamál
kvenna og málefni félagsins.
Fundinum verður fram haldið á
morgun og þá munu starfshópar
skila niðurstöðum sínum. Fund-
inum lýkur með pallborðsum-
ræðum um spurninguna: „Hvert
stefnum við í jafnréttismálum?"
Þátttakendur verða: Esther
Guðmundsdóttir, Inga Jóna
Þórðardóttir, Jóhanna Sigurð-
ardóttir, Lára Júlíusdóttir,
Margrét Frímannsdóttir og Sig-
rún Sturludóttir.
Halldór Halldórsson
ritstjóri Helgarpóstsins
Halldór Halldórsson
HALLDÓR Halldórsson hefur
verið ráðinn ritstjóri að Helgar-
póstinum. Fyrir var Ingólfur Mar-
geirsson ritstjóri.
Halldór hefur meira og minna
verið viðriðinn blaðamennsku
frá árinu 1967 er hann hóf störf
við Alþýðublaðið, en auk Al-
þýðublaðsins hefur hann starfað
við rikisfjölmiðlana, verið rit-
stjóri íslendings á Akureyri,
auk þess sem hann starfaði við
Helgarpóstinn um það leyti sem
hann hóf göngu sína.
Halldór lauk BA-prófi í heim-
speki og bókmenntum frá Há-
skóla íslands árið 1977 og mag-
istersprófi í fjölmiðlafræðum
frá Bandaríkjunum árið 1980.
Bók um starfs-
mannastjórnun
Almenna bókafélagið hefur sent
frá sér bók um starfsmannastjórn-
un eftir Margréti Guðmundsdótt-
ur. Höfundur, sem er viðskipta-
fræðingur að mennt, með starfs-
mannastjórn sem sérgrein, hefur
starfað við starfsmannastjórn hjá
Danske Esso í Kaupmannahöfn
undanfarin ár. Bókin er gefin út í
samvinnu við Stjórnunarfélag ís-
lands, en Margrét hefur haldið
námskeið á vegum félagsins um
sama efni.
í frétt frá AB segir: „Starfs-
mannastjórnun er hugsuð sem
handbók eða uppsláttarrit fyrir
fyrirtæki. Gjj SIT.a, en hent-
£7 éinnig við kennslu á fram-
haldsskólastigi. Skipulag bókar-
innar er sveigjanlegt, þannig að
lesandinn getur haft sinn hátt á
við notkun hennar. Þá er einnig
hægt að lesa hana alla i strik-
lotu og auk þess má nota hana
sem uppsláttarrit um starfs-
mannamál.
Bókin skiptist í 6 kafla: Hvað
er starfsmannastjórnun; Stefna
fyrirtækis í starfsmannamálum;
Skráning upplýsinga um
starfsmenn; Ráðningar;
Frammistöðumat og starfs-
mannasamtöl og Starfsmanna-
handbók. Hver kafli skiptist
Já, hjá okkur í Blómunrbg ávöxtum er vorið komið
bæði í Hafnarstræti og við Miklatorg.
Nú erum viö aö taka fram það allra — allra besta
úrval af pottablómum sem við höfum nokkru sinni
fengið. YfÍT
100
tegundir
Túlípanaútsala
Um þessa helgi geta allir prýtt heimili
sín meö túlípönum og fengið förskot
á voriö.
5 stk. íúiípanavöndur 95 kr.
1G 5ík. túiipánávöndur Í95 kr.
10 stk. túlípanavöndur 295 kr.
Sértilboð
Heimilisfriöur í keramikpotti 150 kr
Hedera í keramikpotti 140 kr.
annars vegar í fræðilegt ágrip
og hins vegar í dæmi um hjálp-
argögn sem nota má í starfs-
mannastjórnun."
Bókin er 158 bls. að stærð og
unnin í Prentsmiðju Árna
Valdimarssonar og Bókbands-
stofunni Örkinni hf.
VIÐ MIKLATORG
Hvitir keramikpottar í fjórum stæröum.jr'^
Allir vita aö úrvalið af afskornum
blómum er hvergi meira en hjá
okkur.
Veriö ávallt velkomin
HIOMLAMXrm
Hafnarstræti 3.